Morgunblaðið - 31.01.1978, Side 1

Morgunblaðið - 31.01.1978, Side 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÖTTABLAÐI 25. tbl. 65. árg. ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Afturkippur í viðræðurnar í SALISBURY Salisbury. Valetta, 30. janúar. Reuter. AP. VIÐRÆÐUR um framtíð Rhó- desfu áttu sér stað á tvennum vígstöðvum í dag. 1 Salisbury ræddu fulltrúar minnihluta- stjórnarinnar með Ian Smith I broddi fylkingar við talsmenn tveggja þjóðernisfylkinga í land- inu, en Muzorewa biskup var ekki viðstaddur. Biskupinn gekk af Framhald á bls. 30. Islenzk utan- ríkisráðherra- frú í Portúgal Hinn nýi utanríkisráðherra Portúgals, Victor Sa Machado, ásamt konu sinni Kirsten Thor- berg, en hún er sem kunnugt er íslenzk. Myndin er tekin á heimili þeirra í Lissabon. Varanleg lausn — sagði Soares þegar nýja stjórnin tók við Lissahonn. 30. janúar. Reutcr. HIN NÝJA stjórn Mario Soares sór embættiseið í dag. Auk Soares forsætisráðherra eru tíu jafnaðarmenn í stjórninni, þrír miðdemókratar og tveir óháðir. Stefnuskrá hinnar nýju stjórn- ar verður lögð fyrir þingið á fimmtudaginn, en hún verður borin undir atkvæði eftir fimm daga umræður. Soares Iýsti því yfir í dag að þolgæði og einbeittur vilji væru nauðsynlegar forsend- ur þess að takast mætti að vinna bug á efnahagsöngþveitinu í land- inu. Soares sagði ennfremur, að stjórnin mundi á næstunni taka upp viðræður við Alþjóðabank- ann um óhjákvæmilegar lántök- ur. Forsætisráðherrann visaði á Framhald á bls. 30. Egypzkir embættismenn segja að meðal mála, sem verði til um- ræðu á hermálafundunum sé við- átta landamærasvæða þar sem herlið verður annað hvort tak- markað eða útilokað, svo og tima- Kaíró — Tel Aviv. 30. jan.Reuler. HERMALAVIÐRÆÐUR Egypta og tsraelsmanna hefjast i Kafró á morgun. Er Ezer Weizman varnarmálaráðherra Israels væntanlegur til Kafró I fyrramálið, og er talið að fyrsta mál á dagskrá verði búseta tsraelsmanna I námunda við Rafah vellir tsraelsmanna f eyðimörkinni. Aðstoðarutanríkisráðherra Bandarikjanna, Alfred Atherton, sem kom frá tsrael til Kairó i dag til fundar við Sadat forseta segir að sér hafi orðið ágengt i viðræð- f norðurhtuta Sfnaf, svo og herflug- um við ísraelsstjórn og hafi hann nú fram að færa nýjar tillögur til lausnar á helztu ágreiningsatrið- um varðandi friðarsamkomulag i Miðausturlöndum. Atherton vildi ekki greina nánar frá hinum nýju tillögum, en hann hittir Ibrahim Kamel utanríkisráðherra Egypta- lands að máli á morgun. Talið er að israelska hermála- nefndin verði i Kairó fram eftir vikunni, en þá er ráð fyrir gert að Weizman og helztu aðstoðarmenn hans hverfi heim á leið. setning varðandi ýmis ákvæði væntanlegra friðarsamninga. Mordechai Gur hershöfðingi kemur ekki til viðræðna i Kairó að þessu sinni. Orðrómur hefur komizt á kreik um að ástæðan væri sú að hann væri nú i þanr. mund að láta af starfi sem æðsti yfirmaður herafla tsraelsmanna, en Raphael Eitan tekur við af honum i april, að þvi er tilkynnt var í Israel i gær. Brak f undið úr njósnahnetti Edmonton, Alberta, 30. janúar. Reuter. LEITARMENN hafa fundið hluta úr sovézka kjarnorkuknúna njósnahnettinum, sem þeyttist inn í gufuhvolfið í sfðustu viku. Mahlon Gates, sem veitir leið- angursmönnum forstöðu, sagði f kvöld að enn hefði ekki fundizt kjarnakljúfur hnattarins, sem væri sýnu hættulegasti hluti tækisins, en leitarflugvélar hefðu hins vegar fundið tvo staði þar sem greinileg útgeislun væri af völdum hluta úr honum. Brakið, sem fannst í dag, er geislavirkt að einhverju marki, en þó mun minna en gera má ráð fyrir að sá hluti hnattarins, sem hefur að geyma kjarnakljúfinn, sé. Brakið er í dæíd, sem myndazt hefur á ísi lögðu fljóti. Dældin er um þrir metrar í þvermál en brak- Framhald á bls. 30. Vfsindamaður skoðar brakið úr gervihnettinum. Staðurinn er um 1100 kílómetra norðaustur af Edmonton, og heitir Wardens Grove. AP-simamynd Pólland: Krefjast „heiðar- legra kosninga” Varsjá, 30. janúar. Rcuter. „Sjálfsvarnarnefnd almennings“ f Pól- landi, seni er arftaki Varnarnefndar verka- manna, hefur krafizt þess að farið sé að ákvæðum alþjóðlegs mannréttindasátt- mála, sem Pólverjar gerðust aðilar að f júní s.l„ um að kjós- endum skuli tryggður „réttur til virkrar þátttöku í heiðarleg- um kosningum,“ eins og það heitir I sáttmál- anum. Nefndin heldur því fram að pólsk yfir- völd hafi þessi ákvæði að engu, eins og greinilegt sé af undir- búningi byggðakosn- inganna, sem efnt verður til f landinu um næstu helgi. Þar ráði einn aðili öllu um framboð og stefnu, sem sé Kommúnista- flokkurinn. t þokka- bót hafi kjósendur hvorki aðstöðu til að fylgjast með því að kosningarnar fari fram með löglegum hætti né ganga úr skugga um hver kosn- ingaúrslitin verði. í vikunni, sem leið, fór „Hreyfingin til verndar borgara- og mannréttindum" þess á leit við Sejm, lög- gjafarsamkomu Pól- lands, að kosningalög í landinu yrðu færð til samræmis við ákvæði hins alþjóðlega sátt- mála. Uppstillingu á fram- boðslista í kosningum í Póllandi annast svo- nefnd „Einingarfylk- ing þjóðarinnar", sem er undir stjórn Komm- únistaflokksins, en einungis félagasam- tök, sem starfa í sam- ræmi við stefnuskrá einingarfylkingarinn- ar hafa rétt til að gera tillögur um frambjóð- endur. I kosningun- um, sem nú standa fyrir dyrum, eru 45% frambjóðenda flokks- bundnir, en eini möguleikinn sem kjós- endur hafa til að láta í ljós mismunandi skoð- anir i kosningunum-er að strika yfir nöfn á listanum. Hin opinbera frétta- stofa Póllands birti í dag pistil um kosning- arnar og sagði þar meðal annars: „Með því að veita frambjóð- endum Einingarfylk- ingar þjóðarinnar ein- dreginn stuðning munu borgararnir tryggja setu bezta fólksins í byggða- stjórnum." Nýj ar tillögur Israela í Kairó

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.