Morgunblaðið - 01.02.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRUAR 1978
3
Týr kemur með Jón Agúst að landi sfðdegis f gær.
vorum við komnir að bátnum.
Þá var Muninn búinn að setja
enda yfir i bátinn og hélt hon-
um út úr reykjarkófinu og nut-
um við allan timann, sem
slökkvistarfið tók, sérstakrar
hjálpar skipsmanna á Munin,
sem misstu af róðri fyrir bragð-
ið.
Strax og við komum að bátn-
um, sendum við 7 skipverja af
Tý um borð i Jón Agúst, 2 stýri-
menn, 2 vélstjóra, 2 háseta og
bátsmanninn. Fóru þeir með
reykköfunartæki, froðuslökkvi-
tæki og tvær kraftmiklar dælur
til slökkvistarfa", sagði Gunnar
„Vart tekizt ad ræsa mennina ef ég
hefdi verid miklu seinna á ferdinni”
Gunnar Ólafsson skipherra á Tý og Kristján Albertsson skipstjóri á
Jóni Agústi ræða saman við komuna til Njarðvíkur í gær. Ljósm.
Mbl: RAX
„ELDURINN kom mjög
skyndilega upp, ég var nýbúinn
að vera f kaffi og varð þá einsk-
is var, síðan fann ég reykjar-
Ivkt upp í bestikkinu nokkru
eftir að ég kom úr kaffi og
hljóp strax niður, þá sá ég að
eldur var laus f vélarrúminu.
Eg hljóp strax niður í káetu og
ræsti strákana og ég veit hreint
ekki hvort mér hefði tekizt að
ræsa þá ef ég hefði verið miklu
seinna á ferðinni, svo ört
magnaðist eldurinn", sagði
Kristján Albertsson skipstjóri
á Jóni Agústi GK 60 frá Garði
þegar hann kom að landi í
Njarðvíkum í gær, en í fyrri-
nótt kom upp mikill eldur í
Jóni Agústi þegar báturinn var
á leið f Ifnuróður.
Þegar Morgunblaðið ræddi
við Kristján sagði hann, að það
hefði verið kl. 5.15—4.20 sem
eldurinn kom upp. Báturinn
hefði verið á útstimi og þeir
búnir að sigla í um 2 klst. og 20.
mín., en ætlunin hefði verið að
sigla í 3 klst. út áður en línan
yrði lögð.
„Við vorum fimm á, og var ég
og vélstjórinn vakandi, en aðrir
voru í svefni. Eldurinn breidd-
ist svo ört út, að það var nánast
sem um sprengingu væri að
ræða, og var eldurinn kominn
út um alla ganga strax og fljót-
Iega inn í íbúðir og upp í brú,
þannig að við urðum að yfir-
gefa afturskipið fljótlega án
þess að slökkvitilraunir bæru
neinn árangur".
Kristján sagðist hafa haldið
sig I brúnni eins lengi og kostur
var, og náð að senda út neyðar-
kall. Muninn frá Sandgerði
hefði einnig verið á útleið og
strax komið til aðstoðar. Sömu-
leiðis hefði hann náð sambandi
— sagdi Kristján
Albertsson
skipstjóri
á Jóni Ágústi
við varðskip, sem ekki var statt
langt undan.
„Fljótlega eftir að Muninn
kom okkur til aðstoðar fóru all-
ir frá borði nema ég og yfir í
Munin og var komið enda á
milli, og var þá afturskipið
alelda. Varðskipið kom svo
skömmu síðar og menn frá því
komu strax um borð með
slökkvitæki og hófust handa við
að slökkva eldinn, sem var
mjög magnaður".
Þá sagði Kristján, að Jón
Agúst hefði verið endurnýjað-
ur verulega á síðasta ári, meðal
annars hefði verið skipt um öll
tæki í brú og hefði það kostað 7
millj. kr. „Allt er þetta nú ónýtt
og ég býst fastlega við að bátur-
inn sé ónýtur“, sagði Kristján
en hann hefur verið með Jón
Ágúst á fjórða ár.
„Okkur barst neyðarkall frá
Jóni Agústi kl. 4.28 og kl. 5.40
Ólafsson á varðskipinu Tý,
þegar Morgunblaðið ræddi við
hann um borð í Tý i Njarðvík- *
um i gær.
Að sögn Gunnars, var Jón
Ágúst staddur um 25.5 sjómílur
vestur af Garðsskaga þegar Týr
kom að bátnum og það hefði
ekki verið fyrr en kl. 8.35 sem
varðskipsmönnum hefði tekizt
að ná tökum á eldinum.
„Það kom fljótlega í ljós, að
ekki var hægt að dæla froðu á
eldinn vegna gífurlegs hita og
eldblossar stundum i allar áttir
Varð þvi úr að senda tvær sjó-
dælur til viðbótar um borð i
bátinn og með þvi móti tókst að
kæla nógu mikið til að koma við
froðutækjunum, en það var
ekki fyrr en Rl. 9.45 í morgun,
sem tókst að slökkva eldinn að
fullu, eða eftir 4 tíma baráttu“,
sagði Gunnar.
Þegar varðskipsmenn voru
búnir að slökkva eldinn í Jóni
Ágústi, var kominn mikill sjór í
bátinn og var hann þá mjög
siginn að aftan.
Jón Ágúst GK 60 er i eigu
Asgeirs h.f. í Garði. Báturinn
hét upprunalega Seley SU 10
og síðan Guðmundur Kristján.
Jón Agúst var smíðaður I
Noregi 1960 og er 125 lestir.
aóhimtil
„besta mat í heimi
Komdu við í fiskbúðinni og biddu
um flak af „línu ýsu”.
Smjörsteiktu fiskinn og ...mmm...
Eða smálúðan. Soðin og borin
fram með brœddu íslensku smjöri
... þú færð hvergi betri mat.
Grill + kjöt + íslenskt smjör og
kokkurinn er öruggur um háa
einkunn.
ná íó cóv
ilmandi brauó
og íslenskt smjör
Allir vita að smjör kann sér ekki
læti á nýju heitu brauði ( hefurðu
prófað að rista grófa brauðið?)
1 lOg af smjöri eru 74 hitaeiningar. Það er minna en
í flestu feitmeti og jafn mikið og í smjörlíki.
aó láta ft>’stikistuna
Jbotgasig"
Það er sama hvort rœður,
bragðlaukarnir eða skynsemin:
nú er tækifærió...
áaóeins
880.-
kmnurkílóið!