Morgunblaðið - 01.02.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRUAR 1978
Rausnarleg-
ar gjafir til
rannsókna í
dulsálarfræði
EFTIRFARANDI gjafir hafa bor-
ist Sjóði til rannsókna í dulsálar-
fræði frá því hann var stofnaður
árið 1975:
N.N. 100.000 (stofnfé), Minn-
ingarsjóður séra Sveins Víkings
244.481, J.E. 4.400, Sálarrann-
sóknafélag Hifnarfjarðar 20.000,
M.G. 1.000, J.K. og B.K. 10.000,
A.J. og A. 0. 2.000, N.N. 400.000,
Sálarrannsóknafélag Sauðár-
króks 5.000, N.N. 118.000. Stjórn
sjóðsins þakkar þessar rausnar-
legu gjafir.
Gjöfum til sjóðsins sem eru frá-
dráttarhæfar við skattaframtal er
varið til styrktar rannsóknum í
dulsálarfræði við Háskóla Is-
lands. Gíróreikningur sjóðsins er
60600-6.
Stjórn sjóðsins skipa Erlendur
Haraldsson, Jón Auðuns og Þor-
steinn Þorsteinsson.
(Fréttatilkynning frá sjóðs-
stjórn)
„Stóra hest-
húsið” á tón-
leikum í Bú-
staðakirkju
FRÖNSK hljómsveit sem i
islenzkri þýðingu nefnist
„Stóra hesthúsið og svefnher-
bergið" mun á föstudag leika í
Bústaðakirkju ýmis verk
klassiska tímabilsins i sinni
upprunalegu mynd og til þess
verða notuð hljóðfæri eins og
þau voru 17. og 18. öldinni.
Kemur hljómsveitin hingað til
lands í boði Kammermúsík-
klúbbsins fyrir tilstuðlan og
frumkvæði Jacques de Latour
Dejean sendiherra Frakklands
á tslandi.
Hljómsveitin La Grande
Ecurie et la Chambre du Roy,
eins og hún nefnist á frum-
málinu, er nú á leið til Banda-
ríkjanna til sex vikna hljóm-
leikahalds. Hefur hún hér
viðkomu og heldur eina tón-
leika í Bústaðakirkju kl. 20.30
á föstudag. Eru þessir tónleik-
ar opinir öllu áhugafólki um
tónlist og verður aðgangur
seldur við innganginn, en með-
limir Kammermúsíkklúbbsins
fá ókeypis aðgang út á félags-
skírteini sín.
Hljómsveitin er meðal
þeirra hljómsveita sem horfið
hafa aftur til upprunalegs
flutnings 17. og 18. aldar
tónlistar, en hún er skipuð
eins og hirðhljómsveitir 17. og
18. aldar voru skipaðar.
Tónlist sú hafði að nokkru
leyti aflagast með árunum og
fjarlægst það sem hún var
höfundum sínum, með tilkomu
sinfóníuhljómsveita og
kammermúsíksveita svo og
auknum möguleikum i miðlun
og flutningi tónlistar, að því er
fram kom á blm.fundi með
aðstandendum tónleikanna i
Bústaðakirkju. Hljómsveitin
var stofnuð 1966 og hefur leik-
ið tónlist í upprunalegri mynd
inn á um 15 hljómplötur. Hún
hefur hlotið ýmsar viður-
kenningar og er orðin eftirsótt
til tónleikahalds víða um heim,
t.d. hafa margir tónleikar
hennar verið ákveðnir allt til
ársins 1980.
Stofnandi og stjórnandi
flokksins er Jean-Claude Mal-
goire sem hlotið hefur
verðlaun og lof fyrir óbóleik
og kammermúsík.
hófstí morgun
verzl. samtímis \A
Alltnýjar ^
og nýlegar
vörur^^^l
Látið ekki happ
úr hendi
^ sleppa c
Við viljum vekja athygli á því að
við létum framleiða terelyne
ullarbuxur beint á vetrar-söluna
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
WKARNABÆR
Laugaveg 20. Laugaveg 66. Austurstræti 22. Glæsibæ. Simi 28155