Morgunblaðið - 01.02.1978, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRUAR 1978
NÝLEGA voru stofnuð í
Austurriki samtök kennd
við brezka Ijóðskáldið W.H.
Auden, sem Islendingum er
vel kunnur frá því hann
ferðaðist um ísland á yngri
árum, orti frægan Ijóðabálk
og Island átti upp frá því
stóran þátt í skáldskap
hans. Siðustu árin bjó hann
i Austurriki og þvi hafa
Austurrikismenn myndað
samtök til minningar um
hann. Verndarar samtak-
anna eru Bruno Kreisky,
forseti landsins, hljóm-
sveitarstjórinn Leonard
Bernstein, myndhöggvar-
inri Henry Moore og skáldið
Stephen Spender.
Þegar Auden settíst í helg-
an stein í þorpinu Kirchstett-
en, um 40 km vestan við
Vinarborg, varð heimili hans
óformlegur samkomustaður
Auden kvöldið sem hann dó. Myndina tók Barbara Pflaum
Alþjóðleg sam-
tök til minningar
um W. H. Auden
Vinnustofa skáldsins er nýuppgerð.
margra listamanna og rithöf-
unda i Evrópu og Norður-
Ameriku. íbúarnir drógu líka
að sér athygli hans og urðu
kveikjan að mörgum af siðari
Ijóðum hans. Síðan hann lézt
á árinu 1 973 og hlaut hvilu i
kirkjugarðinum i Kirchstett-
en, hefur þorpið haldið áfram
að draga að gesti viðs vegar
að úr heiminum.
Frá þvi samtökin voru
stofnuð i virðingarskyni við
Auden sumrið 1977, hafa
þau þegar vakið áhuga um
allan heim og bréfabunki
hrúgast upp i aðsetursstað
þeirra
Unníð er að þvi að gera
upp hús skáldsins, ásamt
hinum upprunalegu hús-
gögnum þess Héraðsstjórnin
veitir styrk i þessu skyni. Og
austurriska skáldið Peter
Matejka vinnur að þvi að
gera úttekt á bókum og
handritum dánarbúsins.
Hvenær sem Auden dvaldi
i Kirchstetten eftir 1958,
tóku að birtast þýðingar á
Ijóðum hans á þýzku og
þýskir þýðendur dvöldu öðru
hverju þar hjá honum. í þvi
skyni að auka áhuga og
þekkingu á verkum skáldsins
í þýzkumælandi löndum,
hyggjast samtökin efna til
Auden-sýningar, sem rithöf-
undurinn Gotthard Fellerer
stendur fyrir Hún verður
haldin í Wiener Neustadt og i
sambandi við hana efnt til
ferða um nágrennið Og sam-
tökin styðja frumflutning
ferða um nágrennið. Og á
kóralverki með Ijóðum Aud-
ens eftir ungt tónskáld,
Bruno Liberda, á árinu
1978
Auden talaði þýzku full-
komlega og nýtti blæbrigði
þeirrar tungu iðulega í skáld-
skap sínum, segir Robert
Cox, sem skrifar um Auden-
samtökin i blaðið Austria To-
day. Hann segir að Auden-
samtökin muni starfa að
tengslum milli þýzkra og
enskra bókmennta og rithöf-
unda á þessar tungur, veita
skjól bókmenntalegum sam-
skiptum á þann hátt, sem
Auden lagði rækt við um sína
ævidaga
Leonard Bernstein i heimsókn i húsi Audens i Kirchstetten
„Gat ekki
annaðen
líkað vel
við hann”
Valdimar Björnsson um Hubert
Humphrey, gamlan keppinaut sinn
Einn þeirra fjölmörgu sem
hylltu Hubert Humphrey látinn
var gamall keppinautur hans,
Vestur-íslendingurinn Valdimar
Björnsson, fyrrverandi rikisfé-
hirðir í Minnesota, heimaríki
þeirra beggja.
Valdimar er sá af leiðtogum
repúblikana í Minnesota sem
hefur komizt næst því að ógna
veldi demókrata í fylkinu, og
þó hafa þeir átt á að skipa
landsfrægum stjórnmálamönn-
um eins og Walter Mondale,
Eugene McCarthy og Karl Rol-
vaag auk Humphreys. En
Valdimar og Humphrey voru
góðir vinir þótt þeir væru á
öndverðum meiði í stjórnmál-
um.
Blaðið Pioneer Press í St.
Paul kemst þannig að orði að
halda mætti að Valdimar væri
demókrati þegar hann talaði
um Humphrey. Sjálfur lýsir
Valdimar viðbrögðum sínum
við láti Humphreys þannig.
„Þetta minnir helzt á það
þegar Kennedy var myrtur.
Fólk bjóst náttúrlega við að
Humphrey mundi deyja, en
sorgin hefur verið einlæg og
ótrúlega margir syrgja hann,
ekki eingöngu hér (í Minne-
sota), heldur víðar Mér finnst
meira að segja að Minnesota-
búar hafi verið hálfhissa á þvi,
hve hluttekningin hefur verið
alger um allt land og viða um
heim
Það er sannarlega einsdæmi,
að lik þingmanns úr öldunga-
deild sé látið liggja á viðhafna-
börum í þinghusbyggingunni i
Washington — á likbörum
þeim, sem voru fyrst notaðar
þegar Abraham Lincoln var
myrtur —: og að allir æðstu
menn landsins tækju þátt í
kveðjuathöfninni. Eins hvíldi
líkið á viðhafnarbörum hér i
nærri þvi sólarhring i ríkisráðs-
húsinu og forsetinn kom flug-
leiðis frá Washington til þess
að vera við útförina ásamt rúm-
lega 60 þingmönnum og öðr-
um háttsettum og viðþekktum
mönnum víða að."
í blaðinu Pioneer Press segir
frá kynnum Valdimars og
Humphreys er hófust 1954
þegar Humphrey keppti að
endurkjöri til öldungadeildar-
innar og repúblikanar buðu
Valdimar fram á moti honum
(„eínn frábærasti frambjóðand-
inn sem repúblikanar í Minne-
sota hafa valið" segir blaðið um
Valdimar). Humphrey sigraði
með 162.500 atkvæða mun,
en þótt sigur hans væri ótvi-
ræður hafa repúblikanar aldrei
komizt eins nálægt þvi að sigra
Humphrey í Minnesota.
„Ha nn var þannig maður að
það var ekki hægt annað en að
Valdimar Björnsson
líka vel við hann," segir Valdi-
mar í Pioneer Press. „Hann var
hjartahlýr maður. Við urðum
mjög góðir vinir þegar við
kepptum hvor gegn öðrum "
Valdimar lýsir í blaðinu
verstu viðtökum, sem hann
befur fengið um ævina. Það
gerðist þegar þeir Humphrey
komu báðir fram á framboðs-
fundi i bænum Montevideo,
þar sem 4.500 manns mættu.
Áheyrendur voru flestir á bandi
Humphreys og í hvert sinn sem
Valdimar stóð á fætur til að tala
voru gerð hróp að honum. „Ef
Humphrey hefði skorizt i leik-
inn og beðið þá að sýna mót-
herja sinum virðingu er ég viss
um að þeir hefðu hætt," segir
Valdimar. „En hann gerði það
ekki "
Næst þegar þeir leiddu sam-
an hesta sína voru áheyr-
endurnir repúblikanar. En
Humphrey sá þá að taflið gæti
snúizt við, reis upp og tók um
Valdimar eins og til að sýna að
þeir væru aldavinir. Áheyrend-
ur voru á bandi Valdimars, en
þar sem þeir sáu hve vel fór á
með frambjóðendunum sýndu
þeir Humphrey fulla kurteisi.
Þegar kosningabaráttunni
lauk héldu þeir Valdimar og
Humphrey áfram að vera góðir
vinir og leiðir þeirra lágu oft
saman eftir það
Þegar Humphrey var til-
nefndur varaforseti og Valdi-
mar Björnsson meðal þeirra
sem fögnuðu honum á flug-
vellinum i Minneapolis er hann
kom heim frá landsfundi demó-
krata. „Honum fannst gaman
að sjá mig. Hann gerði sér far
um að heilsa mér innilega."
Valdimar Björnsson hefur
verið repúblikani alla ævi, en
hefur aldrei farið dult með það,
að hann hafði mikið dálæti á
Humphrey. Hann fylgdist vel
með stjórnmálaferli
Humphreys og Pioneer Press
hefur eftir honum að lokum:
„Menn sjá ekki aftur hans lika i
stjórnmálum Minnesota."