Morgunblaðið - 01.02.1978, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRUAR 1978
13
Miðstjórn Alþýðubandalagsins:
Vill fara nið-
urfærsluleið
Gerir tillögu um lækkun vaxta, söluskatts,
álagningar, en hækkun skatta á fyrirtæki
MIÐSTJÓRN Alþýðubandalags-
ins hefur sent frá sér ályktun um
það, hvernig bregðast eigi við
þeim efnahagsvanda, sem við er
að etja í þjóðfélaginu og leggur
til að verðlag verði lækkað um 7
til 10%, auk þess sem söluskattur
verði lækkaður, en nýir skattar
lagðir á veltu og verðbólguhagn-
að. Bendir Alþýðubandalagið á,
að til þess að ná varanlegum ár-
angri, þurfi að breyta efnahags-
stefnunni i grundvallaratriðum,
Kæra bæjarstjórans
í Hafnarfirði:
Rannsókn tekin
upp aftur ef frek-
ari rökstuðningur
fyrir kæru berst
„I OKKAR úrskurði sagði, að það
bæri að taka rannsókn málsins
upp að nýju, ef af hálfu kærenda
kæmi fram frekari rökstuðningur
fyrir kærunni," sagði Bragi Stein-
arsson, varasaksóknari, er Mbl.
ræddi við hann vegna þeirrar
ákvörðunar bæjarráðs Hafnar-
fjarðar að leggja til við bæjar-
stjórn, að hún beindi þvf til dóms-
málaráðherra að hann léti fara
fram rannsókn á afgreiðslu sak-
sóknaraembættisins og bæjarfó-
getaembættisins f Hafnarfirði á
kæru bæjarstjóra á hendur fyrr-
verandi bæjarlögmanni.
„Það er rétt, að okkur þótti ekki
ástæða til frekari aðgerða í mál-
inu, eins og það kom til okkar“,
sagði Bragi Steinarsson, „en hins
vegar ber að taka rannsókn þess
upp að nýju, ef frekari og fyllri
rök verða færð fyrir kærunni.
Um þá samþykkt bæjarráðs
Hafnarfjarðar að snúa sér til
dómsmálaráðherra vil ég ekkert
segja".
Einar Ingimundarson, bæjarfó-
geti í Hafnarfirði, kvaðst ekkert
vilja um málið segja.
m.a. með skipulagningu fjárfest-
ingar, gjaldeyrissparnaði, virku
verðlagseftirliti, víðtækum að-
gerðum í húsnæðismálum og
fleira — eins og það er orðað.
Alþýðubandalagið gerir tillögu
um niðurfærslu verðlags, lækkun
söluskatts og álagningar í verzl-
un. Síðan segir, að því tekjutapi.
sem ríkissjóður yrði fyrir af lækk-
un söluskatts, mætti „mæta með
skatti á brúttótekjur fyrirtækja
þannig að þau 1600 skattlausu
fyrirtæki, sem samanlagt velta
tvisvar sinnum meira fé en ríkis-
sjóður, verði skattlögð."
Alþýðubandalagið vill að inn-
heimta söluskatts verði stórbætt
og sérstakt eftirlit tekið upp með
gjaldeyrisskilum og skattframtöl-
um. Sérstakar ráðstafanir verði
gerðar til þess að skattleggja
verðbólgugróða. Þá verði lögð
áherzla á að draga úr ríkisútgjöld-
um með hagræðingu og sparnaði
og með niðurfellingu framlags til
járnblendiverksmiðjunnar á
Grundartanga.
Síðan segir: „Þessi niðurfærslu-
leið verðlags ásamt lækkun vaxta
á atvinnurekstri á að geta stuðlað
að betri rekstri og bættri afkomu
atvinnuvega og atvinnuöryggi,
jafnframt því sem slíkar ráðstaf-
anir tryggja verkafólki umsamin
lifskjör."
Ljósmynd Mbl. kee.
Það óhapp vildi til f fyrrakvöld, að alls jö bifreiðar lentu saman i árekstri á veginum milli
Reykjavíkur og Kópavogs og urðu allnokkrar skemmdir á bílum en engin slys á fólki.
Sjávarútvegsráðuneytið:
Allar loðnuveiðar bannaðar
á tímabilinu 15. maí-15. júlí
ALLAR loðnuveiðar verða bann-
aðar á tfmabilinu 15. maf — 15.
júlí n.k. og á tímabilinu 15. marz
— 15 maf verða loðnuveiðar
bannaðar fyrir Norðurlandi og
Austurlandi frá 20 gráðu vestur-
lengdar, austur um að Eystra-
Horni, utan 25 sjómílna frá við-
miðunarlínu, að þvf er segir í
nýútgefinni reglugerð um loðnu-
veiðar árið 1978, sem sjávarút-
vegsráðuneytið hefur gefið út í
samráði við Hafrannsóknarstofn-
Gengissig gagnvart doll-
ar 2,5% frá áramótum
GENGISSIG frá áramótum gagn-
vart dollar hefur verið 2,5%. Sfð-
asta skráða sölugengi fyrir ára-
mót var 213,40 krónur fyrir hvern
Bandarfkjadollar, en f gær skráði
Seðlabankinn söiugengi á dollar
218,90 krónur. Sterlingspund hef-
ur hækkað gagnvart dollar, sem
þýðir að sig íslenzkrar krónu
gagnvart því er talsvert meira eða
4,5% frá áramótum. Sölugengi
sterlingspunds var 406,75 krónur
fyrir áramót, en var f gær 426,70
krónur.
Gagnvart Norðurlandamynt
hefur einnig orðið sig. Danska
krónan hafði til dæmis hækkað á
þessum sama tíma og þaður er
nefndur um 3,5%. Sölugengi var
fyrir 100 danskar krónur 3.702,40
krónur e;n er nú 3.830,60 krónur.
Norska krónan hafði hækkað um
2,8%, úr 4.150,00 krónum hverjar
100 krónur í 4.266,20 krónur í
gær. Þá hafði sænska krónan
hækkað úr 4.566,90 krónum í
4.713,10 krónur eða um 3,2%. 100
yen kostuðu í gær 90,59 krónur,
en kostuðu fyrir áramót 88,79
krónur. Hækkun þeirra hafði þvi
orðið rétt 2%.
Svæðislokun sú, sem gildir
tímabilið 15. marz—15. maí, er
sett vegna þess að seinni hluta
vetrar og á vorin er mestöll önnur
loðna en hrygningarloðna mjög
smá og auk þess mögur og því
lélegt hráefni miðað við það er
siðar verður. Svæðislokunin á að
koma i veg fyrir veiðar á ókyn-
þroska smáloðnu án þess að
hindra aðrar loðnuveiðar.
Veiðibannið frá 15, maí—15.
júni er til þess að tryggja að
tveggja og þriggja ára loðna nái
verulegum hluta sumarvaxtarins
sem er harður og ennfremur
sæmilegri fituprósentu.
Ennfremur er í reglugerðinni
ákvæði um bann við veiðum á
smáloðnu minni en 12 sentimetr-
ar að lengd, sé hún verulegur
hluti aflans, en þessar tak-
markanir á loðnuveiðum eru þær
sömu og giltu á s.l. ári, segir að
iokum í frétt frá sjávarútvegs-
ráðuneytinu.
—~— Lionsklúbburinn Fjöhiir
3—6 lestir efnir til villibráðaráts
á 40 bjóð
Akranesi 31. jan.
TOGARINN Krossvík kom til
hafnar f morgun með um 90 lestir
af blönduðum fiski til vinnslu f
frystihúsinu. Togarinn Haraldur
Böðvarsson var með 100 lestir s.l.
föstudag. Bátar sem róa með Ifnu
hafa verið að fá 3—6 lestir í róðri
með um 40 bjóð.
—Júlíus.
Rotaryklúbb-
ur Akraness
30 ára
Akranesi 31. jan.
ROTARYKLUBBUR Akraness er
30 ára gamall um þessar mundir
og þar af leiðandi verður haldið
hóf á Hótel Akranesi n.k. föstu-
dag 6. jan., en það verður um leið
fundur nr. 1500. Forseti klúbbs-
ins nú er séra Jón Einarsson í
Saurbæ.
—Július.
LIONSKLtJBBURINN Fjölnir
efnir á föstudag til síns árlega
villibráðaráts, en það er aðalfjár-
öflunarleið klúbbsins, sem hefur
um árabil haft það sem sitt aðal-
verkefni að styðja starfsemi vist-
heimilisins f Víðinesi á Kjalar-
nesi, en tilgangur þeirrar stofn-
unar er að taka til dvalar
drykkjusjúklinga, sem að eigin
hvötum leita lækninga á drykkju-
skap sfnum, segir í frétt frá
Lionsklúbbnum.
Vistheimilið starfar þvi sem
sjúkrahús og endurhæfingarstöð,
þar sem vistmenn taka þátt í
margvíslegri starfsemi sem þar er
rekin og temja gér á ný að lifa
eðlilegu lífi.
Með reglulegum heimsóknum
klúbbfélaga í Víðines hefur skap-
ast náið samband við vistmenn og
úr líknarsjóði Fjölnis hefur verið
lagt fé af mörkum til viðhalds,
hljóðfærakaupa og uppbyggittgar
bókasafns svo nokkuð sé nefnt.
Þótt aðalverkefni Fjölnis sé Víði-
nes, hefur líknarsjóður klúbbsins
einnig látið verulegt fé af hendi
rakna til annarra líknarmála. Þá
segir að lokum, að : llir séú vel-
komnir, Lionsfélagar sem aðrir,
til gæsa-
,anda-,lunda-,svartfygla-,rjúpa- og
hreyndýraáts meðan nokkur biti
er eftir, en til að tryggja að skort-
ur verði enginn, sé rétt að panta
miða í símum 72852, 13501 eða
83869 á kvöldin, þó ekki síðar en á
fimmtudagskvöld.
Veislustjóri veróur Richard
Hannesson, aðalræðumaður Pét-
urGuðjónsson en skemmtikraftur
kvöldsins verður Ömar Ragnars-
son. Þá veróur uppboð listaverka
eftir Baltasar, Guðmund Karl
Ásbjörnsson, Hring Jóhannesson,
Jóhannes Geir, Ragnar Lár og
Valtý Pétursson.
Ef að vanda lætur verða margir
til þess að rétta Fjölnismönnum
hjálparhönd við starf þeirra að
líknarmálum með þvi að koma á
föstudagskvöldið Átthagasal og
njóta þess sem fram verður borið.
Formaður Fjölnis er Birgir
Jóhannsson, tannlæknir.
Nýkomin styrktarblöð og
augablöð í eftirtaldar bifreiðir
HÆKKIÐ BÍLINN UPP SVO AÐ HANN TAKI
EKKI NIÐRI Á SNJÓHRYGGJUM OG HOL
ÓTTUM VEGUM.
Kvöldfundur
í Stigahlíð
FÉLAG kaþólskra leikmanna
heldur fund í Stigahlíð 63 kl. 8.30
í kvöld. Á fundinum segir ungt
fólk frá bibliuskóla í Englandi og
gistiheimili Maríusystra i Þýzka-
landi og sýnir litskuggamyndir
þaðan. Fundurinn er opinn öllum.
Bedfor 5 og 7 tonna augablöð aftan.
Datsun diesel 70—77 pugablöð aftan.
Mercedes Bens 1413 augablöð og krökbjöð.
Mercedes Bens 332 og 1113 augablöð.
Scania Vabis L55 og L56 augablöð og krókblöð aftan.
Scania Vabis L76 augablöð og krókblöð.
2", 21/4" og 2Vz" styrktarblöð i fólksbila.
Mikið úrval af miðfjaðraboltum og fjaðraklemmum.
Smíðum einnig fjaðraklemmur eftir máli.
Sendum í póstkröfu hvert á land sem er.
Bílavörubúðin Fjöðrin h.f.,
Skeifan 2 sími 82944