Morgunblaðið - 01.02.1978, Síða 19

Morgunblaðið - 01.02.1978, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRUAR 1978 19 Heimild í reglugerð: Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra: Stutt við bakið á innlendum húsein- ingaverksmiðjum Athugun á húsnœðisþörfum aldraðra Gunnar Thoroddsen, svaraði í sameinuðu þingi í gær fyrir- spurnum varðandi starfsemi Hús- næðismálastofnunar ríkisins. Svar ráðherrans fer að meginmáli hór á eftir: ,,Ég óskaði eftir greinargerð frá Húsnæðismálastofnun ríkisins varðandi framkomna fyrirspurn. Svarið var svohljóðandi: ,,Allt frá upphafi starfsemi sinnar hefur Húsnæðismálastofnun rikisins unnið að framgangi þeirra stefnu- miða, sem fram koma í 3. gr. 1. um stofnunina. Stærsta átakið fram- an af var stofnun eigin teikni- stofu, sem hannaði vandaðar ibúðarteikningar, er seldar voru við vægu verði víðs vegar um land. Er enginn vafi á þvi, að þessi þjónusta hafði mjög mikið gildi fyrir landsbyggðina, bæði að þvi er varðar betri og fegurri íbúðarbyggingar og betri húsa- kost. Enn er þessi starfsemi rekin einkum í þágu landsbyggðarinnar með góðum árangri. Veiting fram- kvæmdalána fyrir íbúðarbygging- ar hvarvetna i landinu jafnt til sveitarstjórna, stjórnar verka- mannabústaða, einkafyrirtækja í byggingariðnaði og dvalarheimila aldraðra hefur oftsinnis ekki að- eins ráðið úrslitum um að slíkar byggingar komust á laggirnar heldur hefur veiting þeirra lagt grundvöll að festu i framuvæmd- um m.a. að því er atvinnu varðar og gert framkvæmdaaðilum kleift að gera hagstæða samninga af margvíslegu tagi er verkað hafa til lækkunar á byggingarkostnaði. Enginn vafi er á að lánveitingar þessar hafa orðið til þess að gera margar þessara framkvæmda mun ódýrari en ella hefði orðið. Á vegum tæknideildar stofnunar- innar starfar starfshópur, sem annast fast og ákveðið eftirlit með byggingarkostnaði félagslegra byggingarframkvæmda einkum þó vegna leiguibúða sveitarfé- laga. Vegna þessarar starfsemi hafa þessar framkvæmdir ekki orðið jafn dýrar og ella hefði orð- Framhald á bls 18. fyrir Norðurlandi Það kom fram í svari sjávarútvegsráðherra á Alþingi í gær, að í reglugerð, sem gilti um síldveiðar og leyfi til síldveiða á liðnu ári, hafi verið heimild til síldveiða í reknet frá 20. ágúst til 20. nóvember, ef veiðikvóti væri ekki fylltur fvrir þann tíma, og hafi sú heimild gilt eins fvrir veiðar fyrir Norðurlandi sem annars staðar. Itagnar Arnalds (Ahl.) hafði spurst fyrir um, hvort ekki væri tímabært að leyfa tilraunaveiðar á sild í reknet fyrir Norðurlandi. Svar Matthíasr Bjarnasonar sjáv- arútvegsráðherra fer hér á eftir. „Eins' og kunnugt er voru hér við land þrír síldarstofnar, það er íslensk og norsk vorgotssíld og íslensk sumargotssild. Sumarsíld- veiðarnar norðanlands og austan byggðust að langmestu leyti á vor- gotssildarstofninum og eins tg nafnið bendir til, kvikna þessir sildarstofnar að vorlagi, í mars- apríl. Annar þeirra hrygnir við suðurströnd íslands og hinn við vesturströnd Noregs. Að hrygn- ingu lokinni hélt norska sildin í vesturveg til ætisleitar og var fyrr á árum komin á hin áturíku síld- armið norðanlands og austan síðla vors eða á öndverðu sumri. ís- lenska vorgotssildin hélt eínnig til þessara miða eftir hrygningu og gekk þá einkum frá hrygning- arstöðvunum við Vestmannaeyjar og á Selvogsbanka vestur og norð- ur með landinu. Venjulega var þessi vestanganga komin norður á Húnaflóa um miðjan júní. Meðan báðir vorgotssildarstofnarnir voru stórir og leituðu á grunnmið fyrir Norður- og Austurlandi, var oft svartur sjór af síld um hásum- arið, þegar ætisgöngurnar voru í algleymingi. Þessu er ólíkt farið að því er varðar sumargotssíldina, én hún hrygnir eins og nafnið bendir til, um hásumarið, einkum í júlímánuði. Hrygningarstöðv- arnar eru einkum við Suðurland. Að hrygningu lokinni hélt sumar- gotssildin vestur og austur fyrir land og blandaðist vorgotssíldar- stofnunum síðsumars einkum við Norðausturland og á vestursvæð- inu norðanlands. Var hún þá enn mjög fitulítil eftir hrygninguna og því ólik vorgotssíldinni, sem jafnan var fitumikil síðsumars og þegar haustaði og æti minnkaði hvarf fullorðna síldin frá Norður- landi. Norska sildin hélt á vetur- setustöðvar úti af Austfjörðum, sem lengi var kallað Rauða torgið og er enn kallað, en íslensku stofnarnir héldu sig einkum út af Suður- og Vesturlandi á vertíð. Um áratugur er nú liðinn síðan þessir þrír sildarstofnar hrundu. Ekkert bendir enn til þess að ís- lenska vorgotssíldin sé farin að rétta við. Norska sildin er í þann veginn að koma úr bráðri hættu, ef hún verður ekki ofveidd af Norðmönnum eins og nokkur hætta var á, að gert hafi verið á s.l. hausti. Norska sildin, endur- reisn sumargot.ssíldarinnar hefur gengið tiltölulega betur, þannig að hugsanlegt er, að stofninn nái fyrri stærð um eða upp úr 1980. Seiði sumargotssildarinnar berast vestur og norður fyrir land eins og seiði margra annarra nytja- fiska. Ungsildin heldur sig í fjörð- um og flóum vestan-, norðan- og austanlands uns hún verður tveggja til þriggja ára. Þá gengur hún venjulega suður fyrir land og sameinast eldri hluta stofnsins, sem virðist nú hafa tekið upp fyrri venjur að því leyti að eftir hrygninguna 1977 gekk talsverð síld norður með Austfjörðum i ætisleit i ágúst og þaðan allt til Norðurlands. Sömuleiðis gekk síld frá hrygningarstöðvum úti af Suðvesturlandi norður með vest- anverðu landinu. Sýni, sem bár- ust frá Norður- og Norðaustur- landi síðsumars og á s.l. hausti, sýndu, að fullorðna sildin var is- lensk sumargotssild. Ungsíldin norðanlands var aðallega tveggja ára, frá 1975, en sá árgangur virð- ist vera góður að dómi fiskifræð- inga. Samkv. reglugerð, sem gilti um sildveiðar þangað til á s.l. ári, var sildveiði leyfð á tiltækum svæðum. En í reglugerð þeirri, sem gilti um síldveiðar og leyfi til síldveiða á árinu 1977, máttu síld- veiðar hefjast i reknet 20. ágúst og vera lokið i síðasta Iagi 20. nóv., ef veiðikvótinn hafði ekki verið fylltur fyrir þan tíma, sem reyndar varð, því að þessari veiði var lokið að mig minnir i kringum 11. ,eða 12. nóv. Hins vegar var leyfður svo ákveðinn skammtur i hringnót og þau leyfi voru frá 20. sept., en vegna tíðarfars höfðu ekki allir þeir bátar, sem höfðu þessi leyfi, veitt á sinu tiltekna tímabili eins og reglugerðin gerði ráð fyrir og var reglugerðin fram- lengd hvað þessar veiðar snerti um nokkra daga. Samkv. þessari reglugerð, sem gilti á s.1. ári, voru engin ákvæði sett um veiðisvæði eins og áður var, og því hefðu bátar mátt reyna síldveiðar i reknet samkv. þeirri reglugerð fyrir Norðurlandi sem annars staðar. En mér er ekki kunnugt um, að það hafi nokkur bátur reynt, en það getur verið að það sé vegna þess að menn hafi ekki kynnt sér til hlítar þá breyt- ingu, sem við í sjávarútvegsráðu- neytinu gerðum á reglugerðinni fyrir síldveiðarnar 1977 frá því sem var fyrir tvö árin á undan frá því að síldveiðar voru aftur leyfð- ar. Eg tel eðlilegt, að þessi tilraun sé gerð og ég hef ekki í hyggju að breyta þessu ákvæði reglugerðar- innar, þannig að þessar tilraunir geti verið gerðar hvar sem er í kringum landið.“ V. SVIPMYND FRÁ ALÞINGI: Fundi er lokið. Örfáir þing- menn glugga enn í skjöl sín. Málafjöldinn sem hrannast á borð þingmanna er samur við sig. Þessi eru góð — beint frá Kanada 1 kg. kr. 338 3 kg. kr. 800 1 ks. ca. 20 kg. kr. 4730 '\ Hollri fæðu höldum fram hroll að engum setur B.C. eplin frá Björgvin Schram bjóðum í allan vetur. mim CZ3 CT3 LAUGALÆK 2. )TKöXDDRQ aími 35020 Sfldveiðar í reknet

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.