Morgunblaðið - 01.02.1978, Side 28

Morgunblaðið - 01.02.1978, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRú’AR 1978 M0RöUD-y^_ Mreinu s ? C o ^Z__ tðjjlolt /33. Ég hef teiknað hér árásar- manninn. gerði það meðan hann stóð mér Ijósast fyrir hugskotssjónum! Já, þegar við læknar veikjumst, verðum við að treysta hver á annan. Ég ætla mér að gera það sem þú hefur aldrei þorað að gera! BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Þegar spilin eru gefin með töflu fyrir fjölmennar tvfmenn- ingskeppnir verða spilin stund- um villt ef svo má að orði komast. Einmitt þetta kom fyrir í desem- berhluta Philip Morris Evrópu- bikarkeppninnar, sem haldinn var í Ungverjalandi. Eitt skiptingarspil þaðan. Norður gaf, austur og vestur á hættu. Norður S. 8 H. ÁKD1087432 T. — L. G42 Vestur S. KG94 H. — T. AK532 L. AK107 Austur S. Á1063 H. 5 T. DG108 L. D865 Suður S. D752 H. G96 T. 9764 L. 93 Spil þetta var nokkuð umtalað enda árangur paranna mis-jafn. Sjá mátti á skorblöðunum fjögur hjörtu dobluð og unnin og allt upp á sex spaða í austur og vestur. Og sjö hjörtu voru spiluð sem fórn yfir spaðaslémmunni. En einna bestum árangri náði Belgíu- maður, sem varð sagnhafi í sjö spöðum eftir þessar sagnjr. 5pib 'PINNtlGtN 763/ COSPER. Asni. Þetta er ekki spor! Skattfram- tal árid ’78 Þeir eru örugglega margir, sem hafa sitið með sveittan skallann fram á kvöld í gærkveldi yfir skattaskýrslunni sinni og hlaupið svo eða ekið með hana niður á skattstofu rétt fyrir miðnætti. Þetta er venjan og mannmergð mikil í Tryggvagötunni, þegar líða tekur á kvöldið. Ekki er nema eðlilegt að vefjist fyrir mörgum, hvernig fylla skuli út skýrsluna, sérstaklega ef við- komandi hefur staðið í stórræðum eða brugðið út af venju í ein- hverju. A hinn bóginn er skýrslu- gerðin komin í fastar skorður hjá mörgum, og þeir, sem eru svo forsjálir að halda til haga reikn- ingurn og öðru, er viðkemur fram- talinu, eiga i engum erfiðleikum. % Leiðbeiningar um framtal Leiðbeiningar þær um fram- tal, sem blöðin hafa birt frá ríkis- skattstjóra, koma að miklu gagni og spara mörgum sporin eða hringingar. En maður, sem kom að máli við Velvakanda, gagn- rýndi þó þessar leiðbeiningar. Hann sagði að þær væru alltof itarlegar og flóknar fyrir venju- legt fólk, einna líkastar þvi að þær væru gerðar fyrir lögfræð- inga og viðskiptafræðinga eina. Hann sagðist skilja, að ríkisskatt- stjóri gæti ekki látið neitt frá sér fara, sem ekki næði til allra hugsanlegra afbrigða i framtali, en spurði hvort blöðin gætu ekki einfaldað þetta og tíunduðu ein- Norður Austur Suður Vestur 4 II pass pass dobl pass 4 S pass pass 5 H 5 S pass 6 S 7 H pass pass 7 s allir pasN Þegar noróur ákvað að fórna í sjö hj,örtu fannst ungverska spilat-anum, sem var í vestur, rétt að treysta á hamingjudísina og sagði alslemmuna. Suður spilaði út hjarta og eftir að hafa trompað í borði þurfti Belginn að ákveða hvernig spila skyldi trompunum. Greinilega var suður líklegri til að eiga fleiri spaða en norður. Og samkvæmt því var eðlilegt að spila spaðatíunni frá hendinni við fyrsta tækifæri. En þvi fylgdi, að ekki mátti fara heim á spaða ætti suður fjórlit. Innkomuliturinn á höndina varð að vera Iauf, litur- inn sem hann átti færri spil í því annars hefði norður fengið á ein- spilið sitt í trompi. HÚS MÁLVERKANNA Framhaldssaga eftir ELSE FISCHER Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi 59 Einhver hafði líka neglt pappa fyrir brotnu rúðuna... eins og það hefði nú þurft að mölva rúðu þótt eldur væri laus í gevmsluskúrnum. — Ógætileg meðferð elds. Egon Jensen sneri sér frá Carl Hendberg og leit á Bir- gitte. — Þér verðið alténd að vera undir það búnar að greiða sekt. Hann var ekki sérlega dapur á svip eða samúaðarfullur þeg- ar hann mælti þelta. — Ég held ekki ég muni greiða neina sekt, Birgitte neyddi sig til að tala rólega. — Þér hafið sjálfur gefið i skyn að um íkveikju kunni að hafá ver- ið að ræða og þá er það verkefni lögreglunnar að komast að því hver kveikti í. — 0, bara að við vissum hvar Susie er. Dorrit Hendberg virtist vera að tala við sjálfa sig... eða við þau öli. Hún vírtist ekki geta hætt að hugsa um eitthvað ákveðið og afmarkað. — Sektir eða djúphyglisleg- ar rannsóknir. Er það nú ekki að gera full mikið veður út af litlu. Það kviknaði ekki í hús- inu. Morten var áhyggjufullur á svip. — Ekki að vita hvað tryggingafélagið segir. Birgitte rétti sig upp. — Meira að segja geymslu- skúr kostar sína peninga... og þar voru ýmis verkfæri, sláttu- vél, sólstólar... rauður vöru- bfll... — Þér hafið veitt þvi góða eftirtekt hvað var í skúrnum. — Já. — Það eina sem þér tókuð ekki eftir fyrr en í nótt var bensínbrúsinn. — Ekki fyrr en f nótt. nei. — Hvers vegna fóruð þér allt i einu að hugsa um þennan bensinbrúsa. Egon Jensen klóraði sér í höfðinu og horfði á hana. — Vegna þess mér fannst skrítið að ég hefði ekki tekið eftir honum áður. Og mér fannst skrftið að hann væri þarna. — Við höfum aðeins yðar orð fvrir því. — Það er mér hulin ráðgáta hvað þessi bensínbrúsi kemur málinu við. Dorrit Hendberg hellti hálf- köldu kaffinu f bollann sinn. — Ætli það verði ekki að reyna að hafa upp á þeim sem hefur keypt hann... — Það tekst kannski. Og hvað sannar það svo sem. Egon Jensen slökkti í einni sígarettunni enn. — Einhver hefði getað stolið honum. — Ég hugsa að við hljótum öll að hafa bensínbrúsa í skúrn- um hjá okkur. Það höfum við að minnsta kosti. Dorrit Hendherg horfði á þau spyrjandi. — Ég hef eingöngu olíu- lampa. sagði Björn og yppti öxl- um. Emma Dahlgren skotraði augunum á viðstadda. áhyggju- full á svip. Einhverra hluta vegna trúði hún þessari kattar- sögu. Hún var hreinlega cinum of fáránleg til að vera tilbún- ingur. En ef hún tæki góða og gilda kaltarsöguna varð einnig að leggja trúnað á þá túlkun stúlkunnar að einhver væri að reyna að lira-ða hana í burtu... Gátu Carl og Dorrit tekið þátt í slfku... Gæti Dorrit tekið upp á slfkri firru, hvött af heitri ást í garð eiginmanns sfns? Dorrit sem hafði sagt eitthvað i þá átt að hún óskaði þess að stúlkan kæmi sér á burt. Dorrit sem hafði halriiö að Birgitte væri fjárkúgari. Ejárkúgun.. . i hvaða til- gangi... og á hvaða forsendum. Emma Dahlgren leit af Dorrit og yfir á Carl. Dorrit sem var orðin svo óstyrk og föl. Dorrit sem var b.vrjuð að taka óhugn- anlega mikið af róandi lyfjum. Hafði þá... tilhugsunin var vitanlega fráleit... en dauðs- föll í Hendhergsfjnlskyld- unni... Ef svo væri trúði hún því ekki að Dorrit væri svo græn að halda verndarhendi yfir eiginmanni sínum... nema þvi aöcins hún vissi ekki hina réttu ástæðu fyrir fjárkúgun- inni. Það var eitthvað að og þvf fyrg sem það kæmist á hreint því bétra. Eitt var að minnsla kosti vist og rétt, að þau Carls og Dorrit komu hér við sögu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.