Morgunblaðið - 01.02.1978, Síða 30

Morgunblaðið - 01.02.1978, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRUAR 1978 Ágæt hlaup hjá Jóni ytra JÖN Diðriksson, sem nú stundar nám í Englandi, tók þátt f brezka meistaramótinu f frjálsíþróttum innanhúss nú um helgina og náði ágætum árangri. Jón náði öðrum bezta árangri Islendings í bæði 800 og 1500 metrum, en bæði hlaupin hljóp hann sama kvöldið. Hljóp Jón 800 á 1:54,6 mínútum og 1500 á 3:56,0 mínútum. 1 spjalli við Mbl. sagði Þjálfari Jóns, Gordon Surtees, að Jón hefði ekki komist í úrslit á mótinu. ,,Jón er í góðu formi, hann skortir hins vegar reynslu i innanhússkeppnum og lenti því oft í vandræðum í hlaupunum, þ.e. lokaðist nokkuð inni.“ Lilja setti met FRJALSlÞRÖTTAKONAN Lilja Guðmundsdóttir IR setti nýverið Islandsmet f 1000 metra hlaupi innanhúss á móti f Norrköping f Svfþjöð, en þar hefur hún dvalið við æfingar og störf í nokkur ár. Lilja hljóp 1000 metrana á 2:52,1 mfnútum, sem er nokkrum sekúndum betri en Tslandsmet Ml frestað MEISTARAMÓTI Islands í atrennu- lausum stókkum frjálsíþrótta. sem átti að fara fram í sjónvarpssal 4. febrúar, hefur verið frestað um fjórar vikur, þ.e. mótið fer ekki fram fyrr en 4. marz. hennar utanhúss, en það met setti hún fyrir 2 árum, einnig í Norr- köping. I spjalli við Mbl. sagðist Lilja vera óðum að komast í gott form fyrir keppnir innanhúss en hún mun á næstunni keppa m.a. á innanhússmeistaramóti Finn- lands. Skemmst er að minnast að Lilja sigraði i 800 metra hlaupi á finnska meistaramótinu innan- húss í fyrra og varð þriðja í 1500 m. Lilja sagði það takmark sitt að vera meðal keppenda á Evrópu- meistaramótinu innanhúss, sem fram fer í marz í Mílanó á Italíu. Metið í Norrköping setti Lilja á 259 metra hringbraut, sem tekin var þar í notkun í iþróttahöll í haust. Eitt heimsmet var sett á mótinu og var þar að verki Deanis Coates, bezti hindrunarhlaupari Bretlands frá upphafi. Hljóp hann 2000 metra vegalengdina innanhúss á 5:24,6 mínútum. Atti hann sjálfur fyrra heimsmetið sem var 5:30,8 mínútur. Þjálfari Coates er Gordon Surtes, sá sami og þjálfar Jón Diðriksson og fleiri ísienzka hlaupara. I 3000 metra hindrunarhlaupi á Dennis Coates 8:19,0 mínútur sem er brezkt met, en þeim árangri náði Coates er hann sigraði í öðrum riðli hindr- unarhlaupsins á Ölympíuleikun- um í Montreal. — ágás. Samið um leiki ■ EM ELLERT B. Schram formaður KSl og Gylfi Þórðarson stjórnar- maður gengu um helgina frá leik- dögum í Evrópukeppni landsliða. Leikir tslands ( keppninni verða sem hér segir: tsland—Pólland 6. sept, 1978 Holland—tsland 20. sept. 1978 A-Þýzkal.—Island 4. okt. 1978 Sviss—Island 23. maí 1979 tsland—Sviss 9. júní 1979 tsland—Holland 5. sept. 1979 tsland—A-Þýzkal. 13. sept. 1979 Pólland—tsland 10. okt. 1979. Reykvíkingur rauf einveldið í göngu PUNKTAMÖT í skíðagöngu fór fram við Skíðaskálann í Ilvera- dölum um sfðustu helgi. Var hér Watson hefur unnið í tveim- ur fyrstu golf- mótum vetrarins BANDARISKI golfleikarinn Tom' Watson hefur gert það gott það sem af er þessu ári Hann hefur borið sigur úr býtum í tyeimur stóru golf- mótunum. sem fram hafa farið á árinu. Tucson Open og Bíng Crosby golfkeppninnt í Bandarikjunum Bing Crosby-golfmótinu lauk i sið- ustu viku og varm Watson eftir mikla keppni við Ben Crenshaw. Kapparnir voru jafnir eftir 72 hol- urnar á vellinum i Pebble Beach á 280 höggum og þurftu að leika bráðabana og vann Watson á 2. holu Hann hlaut i verðlaun 45 þúsund dollara eða tæpar 1 0 millj- óntr islenzkra króna og hann hefur hlotið 18.5 mill|ónir króna í verð laun fyrir sigrana i þessum tveimur fyrstu mótum ársins hjá atvinnugolf- mönnum Margir fraegir kappar voru þarna meðal keppenda, svo sem Hubert Green. Tom Weiskopf, Tony Jacklin. Jack Nicklaus, Bruce Devlm og fleiri Johnny Miller var einnig meðal þátttakenda en hann dæmdi sjálfan sig úr leik eftir fyrsta daginn Hann kvittaði undir kort með vitlaus- um höggafjölda og uppgötvaði sið- an sjálfur mistökin þegar hann las blöðin daginn eftir Fór hann að þvi búnu til mótsstjórnarinnar, sem ekki hafði tekið eftir neínu og tilkynnti mistökin og var hann að sjálfsögðu dæmdur úr leik um að ræða storkasta göngumót, sem haldið hefur verið sunnan heiða f manna minnum og á móti þessu gerðist það merkilegast að Reykvíkingur sigraði í fyrsta skipti í punktamóti f göngu og rauf þar með einveldi Norðlend- inga og Vestfirðinga í greininni. Var það Ingólfur Jónsson, sem skaut öllum helztu göngugörpum landsins aftur fyrir sig f flokki fullorðinna. Keppendur í mótinu voru 35 að tölu frá Isafirði, Siglufirði, Ölafs- firði og Reykjavik og þótti mótið heppnast sérstaklega vel. Harð- fenni var og 13 stiga frost. Gengið var á svæðinu neðan skálans og lagði Haraldur Pálsson göngu- brautirnar en Jónas Asgeirsson var mótsstjóri. Urslit t einstökum flokkum urðu þessi: 13—14 ára, 5 km gengnir: 1. Egill Rögnvaldss. S 18.55.0 2. Finnur Gunnarss. Ö 19.05.0 3. Þorvaldur Jónsson Ö 19.17.0 15—16 ára, 7,5 km gengnir: 1. Gottlieb Konráðss. Ö 28.42.0 2. Einar Ólafsson í 30.38.0 3. Sveinn Guðmundss. R 31.20.0 17—19 ára, 10 km gengnir: 1. Jón Konráðsson Ó 37.48.0 2. Jón Björnsson í 39.39.0 3. Guðmundur Garðarsson Ö 39.58.0 20 ára og eldri, 15 km gengnir: 1. Ingólfur Jónsson R 56.02.0 2. Haukur Sigurðsson Ó 56.30.0 3. Magnús Eiríksson S 56.56.0 Hin góða þátttaka sýnir að mik- il gróska er nú í skíðagöngu hér- lendis og er það vel því fáar íþróttir eru hollari. Að mótslok- um bauð Skíðafélag Reykjavíkur til kaffidrykkju í Skíðaskálanum, en félagið sá um framkvæmd mótsins og voru 70 manns í skál- anum. Páll Samúelsson formaður SR flutti ræðu en Jónas Ásgeirs- son mótsstjóri afhenti verðlaun. 15 ára stúlka sú fyrsta til að vinna Lovísu síðan 1961 UM HELGINA var í fyrsta skipti haldið Tropicana-mótið á vegum Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur. Til að lífga upp á mótið var boðið til landsins tveimur enskum badmintonleik- urum, þeim Brian Wallwork og Dunchan Bridge, sem báðir eru frábærir spilarar og vöktu þeir mikla athygli. Þá vakti 15 ára gömul stúlka, Kristín Magnúsdóttir, verðskuld- aða hrifningu fyrir leik sinn en hún sló Lovísu Sigurðardóttur út úr keppninni en hún hefur ekki tapað leik fyrir íslenskri badmin- tonkonu í tvo áratugi. Sigraði Kristín 11—8 og 11—7, í úrslitum sigraði svo Kristín Hönnu Láru Pálsdóttur 11—-6 og 11—4. I einliðaleik karla var viðureign Sigurðar Kolbeinssonar og Brians Wallwork mjög skemmtileg. Var Sigurður í miklum ham og veitti Brian harða kreppni, sigraði Bri- an 15—9 og 15—12. Brian sigraði siðan Jóhann Kjartansson í úrslitum í einliða- leik karla með 15—4 og 15—2. í tvíliðaleik karla sigruðu Engl- endingarnir svo Jóhann og Sigurð Haraldsson örugglega. Þ.H. Walcher vann AUSTURRIKISMAÐURINN Josef Walcher bar sigur úr býtum i bruni heirnsmeistaramótsins á skíðum, sem nú stendur yfir I Garmisch- Partenkirchen i Þýzkalandi. Athygli vakti, að landi hans Franz Klammer. hafnaði í fimmta sæti. en hann hefur verið svo gott sem ósigrandi í þess- ari grein undanfarin ár. Ekki var hægt að keppa á mótinu i gær vegna þoku, ^^íuotuimMníiui^^ nrnmiifu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.