Morgunblaðið - 01.02.1978, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRUAR 1978
Ágæt hlaup hjá Jóni ytra
JÖN Diðriksson, sem nú stundar
nám í Englandi, tók þátt f brezka
meistaramótinu f frjálsíþróttum
innanhúss nú um helgina og náði
ágætum árangri.
Jón náði öðrum bezta árangri
Islendings í bæði 800 og 1500
metrum, en bæði hlaupin hljóp
hann sama kvöldið. Hljóp Jón 800
á 1:54,6 mínútum og 1500 á 3:56,0
mínútum. 1 spjalli við Mbl. sagði
Þjálfari Jóns, Gordon Surtees, að
Jón hefði ekki komist í úrslit á
mótinu. ,,Jón er í góðu formi,
hann skortir hins vegar reynslu i
innanhússkeppnum og lenti því
oft í vandræðum í hlaupunum,
þ.e. lokaðist nokkuð inni.“
Lilja setti met
FRJALSlÞRÖTTAKONAN Lilja
Guðmundsdóttir IR setti nýverið
Islandsmet f 1000 metra hlaupi
innanhúss á móti f Norrköping f
Svfþjöð, en þar hefur hún dvalið
við æfingar og störf í nokkur ár.
Lilja hljóp 1000 metrana á
2:52,1 mfnútum, sem er nokkrum
sekúndum betri en Tslandsmet
Ml frestað
MEISTARAMÓTI Islands í atrennu-
lausum stókkum frjálsíþrótta. sem
átti að fara fram í sjónvarpssal 4.
febrúar, hefur verið frestað um fjórar
vikur, þ.e. mótið fer ekki fram fyrr
en 4. marz.
hennar utanhúss, en það met setti
hún fyrir 2 árum, einnig í Norr-
köping. I spjalli við Mbl. sagðist
Lilja vera óðum að komast í gott
form fyrir keppnir innanhúss en
hún mun á næstunni keppa m.a. á
innanhússmeistaramóti Finn-
lands. Skemmst er að minnast að
Lilja sigraði i 800 metra hlaupi á
finnska meistaramótinu innan-
húss í fyrra og varð þriðja í 1500
m. Lilja sagði það takmark sitt að
vera meðal keppenda á Evrópu-
meistaramótinu innanhúss, sem
fram fer í marz í Mílanó á Italíu.
Metið í Norrköping setti Lilja á
259 metra hringbraut, sem tekin
var þar í notkun í iþróttahöll í
haust.
Eitt heimsmet var sett á mótinu
og var þar að verki Deanis Coates,
bezti hindrunarhlaupari
Bretlands frá upphafi. Hljóp
hann 2000 metra vegalengdina
innanhúss á 5:24,6 mínútum. Atti
hann sjálfur fyrra heimsmetið
sem var 5:30,8 mínútur. Þjálfari
Coates er Gordon Surtes, sá sami
og þjálfar Jón Diðriksson og fleiri
ísienzka hlaupara. I 3000 metra
hindrunarhlaupi á Dennis Coates
8:19,0 mínútur sem er brezkt met,
en þeim árangri náði Coates er
hann sigraði í öðrum riðli hindr-
unarhlaupsins á Ölympíuleikun-
um í Montreal.
— ágás.
Samið um
leiki ■ EM
ELLERT B. Schram formaður
KSl og Gylfi Þórðarson stjórnar-
maður gengu um helgina frá leik-
dögum í Evrópukeppni landsliða.
Leikir tslands ( keppninni verða
sem hér segir:
tsland—Pólland
6. sept, 1978
Holland—tsland
20. sept. 1978
A-Þýzkal.—Island
4. okt. 1978
Sviss—Island
23. maí 1979
tsland—Sviss
9. júní 1979
tsland—Holland
5. sept. 1979
tsland—A-Þýzkal.
13. sept. 1979
Pólland—tsland
10. okt. 1979.
Reykvíkingur rauf
einveldið í göngu
PUNKTAMÖT í skíðagöngu fór
fram við Skíðaskálann í Ilvera-
dölum um sfðustu helgi. Var hér
Watson hefur
unnið í tveim-
ur fyrstu golf-
mótum vetrarins
BANDARISKI golfleikarinn Tom'
Watson hefur gert það gott það sem
af er þessu ári Hann hefur borið
sigur úr býtum í tyeimur stóru golf-
mótunum. sem fram hafa farið á
árinu. Tucson Open og Bíng Crosby
golfkeppninnt í Bandarikjunum
Bing Crosby-golfmótinu lauk i sið-
ustu viku og varm Watson eftir
mikla keppni við Ben Crenshaw.
Kapparnir voru jafnir eftir 72 hol-
urnar á vellinum i Pebble Beach á
280 höggum og þurftu að leika
bráðabana og vann Watson á 2.
holu Hann hlaut i verðlaun 45
þúsund dollara eða tæpar 1 0 millj-
óntr islenzkra króna og hann hefur
hlotið 18.5 mill|ónir króna í verð
laun fyrir sigrana i þessum tveimur
fyrstu mótum ársins hjá atvinnugolf-
mönnum
Margir fraegir kappar voru þarna
meðal keppenda, svo sem Hubert
Green. Tom Weiskopf, Tony
Jacklin. Jack Nicklaus, Bruce Devlm
og fleiri Johnny Miller var einnig
meðal þátttakenda en hann dæmdi
sjálfan sig úr leik eftir fyrsta daginn
Hann kvittaði undir kort með vitlaus-
um höggafjölda og uppgötvaði sið-
an sjálfur mistökin þegar hann las
blöðin daginn eftir Fór hann að þvi
búnu til mótsstjórnarinnar, sem ekki
hafði tekið eftir neínu og tilkynnti
mistökin og var hann að sjálfsögðu
dæmdur úr leik
um að ræða storkasta göngumót,
sem haldið hefur verið sunnan
heiða f manna minnum og á móti
þessu gerðist það merkilegast að
Reykvíkingur sigraði í fyrsta
skipti í punktamóti f göngu og
rauf þar með einveldi Norðlend-
inga og Vestfirðinga í greininni.
Var það Ingólfur Jónsson, sem
skaut öllum helztu göngugörpum
landsins aftur fyrir sig f flokki
fullorðinna.
Keppendur í mótinu voru 35 að
tölu frá Isafirði, Siglufirði, Ölafs-
firði og Reykjavik og þótti mótið
heppnast sérstaklega vel. Harð-
fenni var og 13 stiga frost. Gengið
var á svæðinu neðan skálans og
lagði Haraldur Pálsson göngu-
brautirnar en Jónas Asgeirsson
var mótsstjóri.
Urslit t einstökum flokkum
urðu þessi:
13—14 ára, 5 km gengnir:
1. Egill Rögnvaldss. S 18.55.0
2. Finnur Gunnarss. Ö 19.05.0
3. Þorvaldur Jónsson Ö 19.17.0
15—16 ára, 7,5 km gengnir:
1. Gottlieb Konráðss. Ö 28.42.0
2. Einar Ólafsson í 30.38.0
3. Sveinn Guðmundss. R 31.20.0
17—19 ára, 10 km gengnir:
1. Jón Konráðsson Ó 37.48.0
2. Jón Björnsson í 39.39.0
3. Guðmundur Garðarsson
Ö 39.58.0
20 ára og eldri, 15 km gengnir:
1. Ingólfur Jónsson R 56.02.0
2. Haukur Sigurðsson Ó 56.30.0
3. Magnús Eiríksson S 56.56.0
Hin góða þátttaka sýnir að mik-
il gróska er nú í skíðagöngu hér-
lendis og er það vel því fáar
íþróttir eru hollari. Að mótslok-
um bauð Skíðafélag Reykjavíkur
til kaffidrykkju í Skíðaskálanum,
en félagið sá um framkvæmd
mótsins og voru 70 manns í skál-
anum. Páll Samúelsson formaður
SR flutti ræðu en Jónas Ásgeirs-
son mótsstjóri afhenti verðlaun.
15 ára stúlka sú
fyrsta til að vinna
Lovísu síðan 1961
UM HELGINA var í fyrsta skipti
haldið Tropicana-mótið á vegum
Tennis- og badmintonfélags
Reykjavíkur. Til að lífga upp á
mótið var boðið til landsins
tveimur enskum badmintonleik-
urum, þeim Brian Wallwork og
Dunchan Bridge, sem báðir eru
frábærir spilarar og vöktu þeir
mikla athygli.
Þá vakti 15 ára gömul stúlka,
Kristín Magnúsdóttir, verðskuld-
aða hrifningu fyrir leik sinn en
hún sló Lovísu Sigurðardóttur út
úr keppninni en hún hefur ekki
tapað leik fyrir íslenskri badmin-
tonkonu í tvo áratugi. Sigraði
Kristín 11—8 og 11—7, í úrslitum
sigraði svo Kristín Hönnu Láru
Pálsdóttur 11—-6 og 11—4.
I einliðaleik karla var viðureign
Sigurðar Kolbeinssonar og Brians
Wallwork mjög skemmtileg. Var
Sigurður í miklum ham og veitti
Brian harða kreppni, sigraði Bri-
an 15—9 og 15—12.
Brian sigraði siðan Jóhann
Kjartansson í úrslitum í einliða-
leik karla með 15—4 og 15—2.
í tvíliðaleik karla sigruðu Engl-
endingarnir svo Jóhann og Sigurð
Haraldsson örugglega.
Þ.H.
Walcher vann
AUSTURRIKISMAÐURINN Josef
Walcher bar sigur úr býtum i bruni
heirnsmeistaramótsins á skíðum,
sem nú stendur yfir I Garmisch-
Partenkirchen i Þýzkalandi. Athygli
vakti, að landi hans Franz Klammer.
hafnaði í fimmta sæti. en hann hefur
verið svo gott sem ósigrandi í þess-
ari grein undanfarin ár. Ekki var
hægt að keppa á mótinu i gær vegna
þoku,
^^íuotuimMníiui^^
nrnmiifu