Morgunblaðið - 01.02.1978, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRUAR 1978
31
Ólafur með
gegn Haukum?
ÖLAFUR Einarsson handknatt-
leiksmaður úr Víkingi, sem
meiddist rétt fyrir heimsmeist-
arakeppnina með þeim afleiðing-
um að hann gat ekki leikið þar
með, fór í gær i læknisskoðun á
slysadeild Borgarspítalans. Öttazt
var að Ólafur hefði handarbrotn-
að en við skoðun í gær kom í ljós
að svo er líklega ekki, en endan-
legur úrskurður mun liggja fyrir
innan fárra daga. Ef Ólafur reyn-
ist ekki brotinn mun hann vænt-
anlega leika með Vikingi gegn
Haukum i Islandsmótinu 11.
febrúar.
!
%
■
QPR vann West Ham f gærkvöldi f bikarnum 6:1. A laugardaginn skildu liðin jöfn 1:1 og var þá þessi
mynd tekin og sjást þeir kljást um boltann Billy Bonds og Martin Busby. Myndin sýnir vel hve vellirnir f
Englandi eru I slæmu ásigkomulagi um þessar mundir.
FYRSTU leikirnir I milliriðlum
heimsmeistarakeppninnar í
handknattleik fóru fram í gær-
kvöldi og gerðist það merkilegast,
að Danir unnu Pólverja 25:23 í
frábærum leik. Er nú allt á öðr-
um endanum í Danmörku vegna
sigurs landsliðs þeirra í gær-
kvöldi og eru dönsku landsliðs-
mennirnir nánast orðnir dýrling-
ar vegna frammistöðu sinnar I
keppninni. Danir eiga enn mögu-
leika á því að komast í úrslit
keppninnar en þó er meiri Itkur á
því að það verði Sovétmenn, sem
hreppi sigur f riðlinum og keppi
til úrslita við annað hvort Austur-
eða Vestur-Þýzkaland, en þessi
tvö Iönd skildu jöfn í l.eik sínuni í
gærkvöldi, 14:14. Heimsmeistarar
Rúmena eru úr leik í keppninni.
Berg í studi
Danir og Pólverjar léku í Rand-
ers og Danir náðu fljótt góðri for-
ystu og nutu við það góðrar að-
stoðar rúmen'sku dómaranna, sem
dæmdu leik þeirra og íslands á
dögunum, en svo virðist sem þetta
dómarapar hafi verið sérpantað
af Dönum. En hvað um það, ekki
nægði aðstoð dómaranna ein Dön-
um til framdráttar, heldur var
það góður leikur þeirra, sem
stuðlaði að sigrinum fyrst og
fremst. I þessum frábæra leik var
Januz aðstoð-
ar Pólverjana
ÍSLENZKU landsliðsmennirnir,
þjálfarar og fararstjórar héldu
flestir frá Danmörku eftir tapið
fyrir Spánverjum. Einn varð þó
eftir, landsliðsþjálfarinn Janusz
Cerwinski. Hann hélt strax til liðs
við landa sína f pólska iandslið-
inu og mun aðstoða þá í leikjun-
um sem eftir eru. Er ekkert vafa-
mál að hann kemur þar að miklu
gagni og væntanlega meira gagni
en hjá íslenzka liðinu þótt svo
hafi átt að heita að hann væri
þjálfari þess.
mest hugsað um sóknarleikinn og
þeir voru í milu stuði Michael
Berg, Thomas Pazyj og Thor
Munkager í þessum leik. Einkan-
lega var Berg i miklum ham I
seinni hálfleik en þá skoraði hann
hvorki meira né minna en 7 mörk.
Pólverjarnir treystu á stórskytt-
una Klempel í sókninni en hann
var í strangri gæzlu og skoraði
aðeins 5 mörk.
Mörk Dana: Michael Berg 8,
Munkager 5, Anders Dahl-Nielsen
4, Thomas Pazyj 4, Heine Sören-
sen 2, Erik Bue Pedersen 1 og
Jesper Petersen 1.
Mörk Pólverja: Klempel 5,
Kaluzinski 5, Brzozowski 3,
Przybysz 3, Gatti 3, Gmyrek 2 og
Sokolowski 1 mark.
Varnarleikur í fyrirrúmi
í Bröndbyhallen í Kaupmanna-
höfn léku Austur-Þjóðverjar við
Vestur-Þjóðverja og þar var
varnarleikurinn í fyrirrúmi.
Austur-Þjóðverjarnir voru betri
lengst af og þeir höfðu ætið yfir-
höndina, þetta 2—3 mörk og var
það ekki sízt að þakka markverði
þeirra, Schmidt, sem var frábær.
Hoffman, aðalmarkvörður vestur-
þýzka liðsins, brást alveg en undir
lok leiksins fór varamarkvörður-
inn, Rauer, að verja eins og
berserkur og það var hann öðrum
fremur sem sá til þess að lið hans
náði að skora tvö síðustu mörkin
og jafna metin 14:14.
Mörk V-Þjóðverja: Kluhsties 5,
Framhald á bls. 18
NOTTINGHAM STEFNIR AÐ
SIGRI í DEILD OG BIKAR
LEIKNIR TÓK
STIG AF HK
TVEIR leikir fóru fram í
2. deild íslnadsmótsins í
Michael Berg hefur verið atkvæðamestur f sókninni hjá Dönum. Hann
skorar bæði með hægri og vinstri hendi eins og sjá má.
ensku deildarkeppninni og
bikarkeppninni. í gær-
kvöidi ruddi liðió úr vegi
erfiðri hrindrun á leiðinni
að bikarsigri með því að
sigra Manehester City á
heimavelli sínum 2:1.
Leikurinn átti að fara fram á
laugardaginn en var þá frestað.
Liðin reyndu sfðan með sér i gær-
kvöldi á Velli Nottingham og
komst heimaliðið í 2:0 með rhörk-
um John Robertsson og Peter
Withe en undir lokin minnkaði
Brian Kidd muninn með góðu
marki. Nottingham mætir næst
QPR á útivelli. Forysta liðsins i 1.
deild er nú 6 stig.
Tvö Lundúnalið unnu stórt á
heimavelli, Queens Park Rangers
vann Westham 6:1 og Chelsea
vann Burnley 6:2. Chelsea mætir
næst Orient.
Millwall vann Luton övænt 4:0
og skoraði Ian Person þrjú mörk
fyrir Millwall, sem er neðst i 2.
deild. Þá vann Notts County
athyglisverðan sigur yfir
Brighton á útivelli 2:1 og mætir
næst Millwall á útivelli.
handknattleik í Laugar-
dalshöll í gærkvöldi.
Fylkir vann Gróttu 19:16
og Leiknir og HK gerðu
jafntefli 16:16. Nánar á
morgun.
NOTTINGHAM Forest
stefnir að sigri bæði í
riðlunum
ÚRSLIT í fyrstu leikjum í milliriðlum
heimsmeistarakeppninnar í Danmörku,
sem fram fóru í gærkvöldi, og staóan í
I milliridlunum:
I RIÐILL 1.
I V-Þý/.kaland — A-Þy/kaland .
14:14 (7—9)
Júgóslavía — Rúmenía
17:16 (9:10)
V'-Þý/kaland 2 1 1 0 32:27 3
A-Þý/kaland 2 1 1 0 32:30 3
Júgóslavía 2 1 0 1 30:34 2
Rúmenfa 2 0 0 2 32:35 0
RIÐILL2:
Sovótríkin —Sviþjóó
24:18 (10:5)
Danmörk — I'ólland
25:23 (14:12)
Sovótrfkin 2 1 1 0 40:34 3
Danmörk 2 1 1 0 41:39 3
Pólland 2 1 0 1 45:42 2
Svíþjóó 2 0 0 2 35:46 0
I KEPPNI l'M 9 —12. SÆTIÐ:
1 Spánn—Japan
26:15(14:10)
I Ungverjal.—Tókkóslóvakfa
| 18:18(12:11)
4 keppa á
HM á skíðum
FJÖRIR íslenzkir skfðamenn
eru skráðir til þátttöku í
heimsmeistaramótinu í alpa-
greinum skíðaíþrótta, sem nú
stendur yfir i Garmisch-
Partenkirchen í V-Þýzkalandi.
Þetta eru þau Steinunn Sæ-
mundsdóttir, Hafþór Júlfus-
son, Haukur Jóhannsson og
Sigurður Jónsson, sem keppa
munu í svigi og stórsvigi.
A sunnudaginn var keppt f
bruni karla og f gær átti að
keppa í bruni kvenna, en
keppninni varð að fresta vegna
óhagstæðra veðurskilyrða.
Svig- og stórsvigkeppnin tekur
við af brunkeppninni og munu
þá augu fslendinga beinast að
keppninni og frammistöðu Is-
lendinganna þar.
Hörkukeppni á HM í Danmörku:
DANIR DNNU PÚLVERJA
- RÚMENAR ÚR LEIK