Morgunblaðið - 02.02.1978, Síða 2
2
MORGUNBLAÐTÐ, FIMMTUDAGUR 2. FEBRUAR 1978
Brýtur innheimta opin-
berra gjalda í bág
við stjórnarskrána?
Opinber starfsmaður á Akranesi vill
fá úr þessu skorið fyrir dómstólum
OPINBER starfsmaður á Akranesi
telur það brot á stjórnarskrá, að
innheimt sé hjá honum fvrirfram
upp í skatta áður en álagning hef-
ur farið fram og þar með stofnað
til skuldar með lögformlegum
hætti. Hcfur starfsmaðurinn ósk-
að eftir gjafsókn, en dómsmála-
ráðuneytið hefur ritað honum
bréf til baka og óskað frekari upp-
lýsinga áður en tekin yrði afstaða
til gjafsóknar.
Verkamanna-
bústaðirnir:
Samningur við
Breiðholt vænt-
anlega undir-
ritaður i dag
„VIÐ höfum lagt fram tilskilda
bankatryggingu og það er búið að
ganga frá samningi milli Breið-
holts og stjórnar verkamannabú-
staðanna, en hann verður væntan-
lega undirritaður á morgun",
sagði Sigurður Jónsson, forstjóri
Breiðholts hf., í samtali við Mbl. í
gær.
Sigurður sagði, að eiginlega
mætti segja, að Breiðholt væri
byrjað á framkvæmdinni, því nú
væri unnið að smíði móta og
breytingum ér eldri mótum til
bygginga. „Við ætlum að einbeita
okkur að þessu verkefni", sagði
Sigurður, er Mbl. spurði, hvort
fleiri verkefni væru framundan
hjá Breiðholti hf. „Það koma til
greina tvö önnur verkefni með
vorinu, en ég vil ekkí skýra frá
þeim nú“, sagði Sigurður.
Q
iNNLEívT
Alþýðuflokkurinn:
Prófkjör
á ísafirði
ALÞVÐUFLOKKSFÉLAG Isa-
fjarðar hefur auglýst prófkjör
vegna bæjarstjórnarkosning-
anna, og á prófkjörið að fara
fram 26. febrúar n.k., en fram-
boðsfrestur rennur út 14.
febrúar. Kosið verður um þrjú
efstu sæti listans.
Öllum, sem orðnir eru 18 ára
á kjördegi, eiga lögheimili á
Isafirði og eru ekki flokks-
bundnir í öðrum stjórnmála-
flokkum er heimil þátttaka.
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla
fer fram 19. —25. febrúar.
I samtali við Morgunblaðið sagði
þessi Akurnesingur að hann hefði
seðil í höndunum frá innheimtu
ríkissjóðs um að hann skuldaði
ekkert af opinberum gjöldum
siðastliðins árs. Því telur hann að
ríkissjóður og hið opinbera eigi
ekkert inni hjá sér og enn hafi
ekki verið stofnað til skuldar með
lögformlegum hætti, þar sem
álagning hafi ekki farið fram.
Telur hann rikisvaldið brjóta
ákvæði stjórnarskrárinnar um
eignarrétt með því að krefjast þess
að fá hluta af þeim fjármunum,
sem hann vinni sér inn. Þá sagði
þessi opinberi starfsmaður að
hann hefði einnig seðil í höndun-
um um að fyrirframgreiðsla opin-
berra gjalda á árinu 1978 ætti að
verða 60% af gjöldum síðasta árs.
Raunin hafi síðan orðið 70% og
síðan spurði hánn: „Mér sýnist hér
um algjöra geðþóttaákvörðun
ríkisins að ræða. Þeir hefðu allt
eins getað ákveðið 80, 90 eða
100%“.
Leigubílar
hækka um 22%
TAXTI leigubifreiðastjóra
hækkaði í gær um 22% og
hækkaði startgjaldið úr 440 krón-
um í 550.
Ekki sama hvar loðnunni er landað:
Betri útkoma í Nor-
global en í Siglufirði
LOÐNUSJOMENN hafa kvartað
nokkuð nokkuð undan þvl síðustu
daga og vikur, að ekki sé sama
hvar Ioðnunni sé landað, því mik-
i11 munur sé á hvernig hann vigt-
ast miðað við tilkynntan afla til
Loðnunefndar. Á sumum stöðum
vigtast yfirleitt minna úr skipun-
um en þau tilkynna, en annars
staðar vigtast stundum meira en
tilkynnt er og stundum minna.
Morgunblaðið reyndi í gær, að
afla sér nokkurra upplýsinga um
þetta mál og kom í ljós, að mun
minna hefur vigtast úr bátnum í
Siglufirði miðað við tilkynntan
afla en t.d. í Norglobal. Þá voru
blaðinu gefnar upp tvær landanir
í Krossnesi og á Raufarhöfn og
þar munaði ekki miklu á vigtuðu
magni og tilkynntu. Blaðið fékk
uppgefnar 18 Iandanir í Norglo-
bal og 5 á Siglufjörð og er niður-
staðan eftir farandi.
Norglobal tilk.vnnti: vigt:
HelgaGuðmundsdóttir BA 80 91.6
SkarósvfkSH 100 74.7
Stapavfk SI 250 220.0
GisliArniRE 400 421.8
Kap 2. VE 530 541.2
Gullberg VE 170 175.1
Iaiflur Baldvínsson EAi 600 598.1
Bergur VE
Skfrnir AK
GJafar VE
Ljósfari RE
200 200.1
200 231.7
80 79.0
150 153.0
Erlendar skuldir óbreyttar:
—-
Japanska lánið að
mestu tíl endurgreiðslu
óhagstæðari lána
Kvikmynda-
hátíð hefst
í dag
KVIKMYNDAHATIÐ í
Reykjavík 1978 verður form-
lega sett í dag. Birgir Isleifur
Gunnarsson borgarstjóri setur
hátíðina í Háskólabíóí, einnig
mun Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra ávarpa
gesti. Alls munu 19 myndir frá
14 þjóðlöndum verða sýndar á
hátíðinni sem lýkur sunnudag-
inn 12. febrúar n.k.
Mikið kapp hefur verið Iagt
á að fá til þessarar fyrstu kvik-
myndahátíðar á Islandi umtal-
aðar myndir og þekktar frá
ýmsum heimshornum. Sam-
hliða þessari kvikiiiyndáh'afíð
liggur nú. fyrir ffutnvarp tfL
laga' um kvikmyhdasjóð "Is*
lands og kyUunyndasfifn sem
jfif saiTl|5ykkl verður yrði mikil
"lyftiSTOi^jg íslenzkri kvik-
myndagerð.. I bígerð er að
halda hér slíka hátíð á tveggja
ára fresti hér eftir á sama hátt
og listahátíð. Miðaverð á hátið-
inni verður hið sama og á
venjulegar syningar.
Perúmenn
selja mjöl til
Póllands
LlTIÐ sem ekkert hefur verið
selt af mjöli og lýsi frá Islandi frá
því um áramót, og að þvf er mjöl-
seljendur segja eru mjög litlar
hreyfingar á mjölmörkuðunum í
Evrópu um þessar mundir, þrátt
fyrir að birgðir séu vfðast hvar
litlar.
Morgunblaðinu var tjáð í gær,
að Perúmenn hefðu selt nokkurt
magn af mjöli til Póllands siðustu
vikur á 6.85 dollara proteinein-
inguna. Ansjósuvetuveiðar í Perú
hafa verið nokkrar í janúar og
fengust um 100 þús. tonn á viku
eða 400 þús. tonn í mánuðinum.
Hins vegar voru ansjósuvetuveið-
arnar stöðvaðar á ný í gáer 1.
febrúar, þar sem ekki var talið
óhætt að ganga nær stofninum en
gert hefur verið undanfarnar vik-
ur.
Afli Olafs-
víkurbáta
í janúar
1018 lestir
Ólafsvik, 1. febrúar.
I JANUARMANUÐI var heild-
arafli Ólafsvíkurbáta 1018
lestir f 236 sjóferðum. Er það
betra en f fyrra, en þá fékkst
771 lest í 191 sjóferð. Gæftir
hafa verið góðar.
Þrettán bátar reru með línu.
Aflahæstir eru Jökull með 112
lestir i 20 sjóferðum, Garðar II
með 87 lestir í 16 sjóferðum og
Skálavík 87 lestir í 20 sjóferð-
um. Fjórir bátar lögðu þorska-
net eftir miðjan mánuðinn.
Mestan afla hafa Auðbjörg, 51
lest í 11 sjóferðum, og Matt-
hildur, 50 lestir í 11 sjóferðum.
Næg atvinna er hér þessa
dagana. I dag eru allir bátar á
sjó í sæmilegu veðri.
—Helgi.
Skarðsvík SH 420 436.1
Arsæll KE 450 459.0
Pétur Jónsson RE 280 288.4
Kap 2. VE 500 480.0
Gullberg VE 480 481.2
Siglufjördur
Glsli Arni RE 550 535.9
Pétur Jónsson RE 440 422.5
Skarósvfk SH 200 188.4
Kap 2. VE 130 108.9
Pétur Jónsson RE 250 242.1
Krossnes
Loftur Baldvinsson EA 230 197.4
Raufarhöfn
Skfrnir AK 280 278.4
Þótt útkoman á löndun sé
kannski hagstæðust í Norglobal
þá hefur verið kvartað undan að
Framhald á bls. 33.
Nýr fundur
eftir helgi
FYRSTI samningafundur í kjara-
deilu blaðamanna við blaðaútgef-
endur, sem haldinn er fyrir milli-
göngu sáttasemjara ríkisins, var
haldinn í gærdag og stóð í tvær
klukkustundir. A fundinum voru
kröfur blaðamanna reifaðar og
sfðan boðað til nýs fundar á
mánudag klukkan 14.
„MEIRIHLUTI þessa fjár, eða
um 60%, fer til endurgreiðslu á
eldri og óhagstæðari lánum, hvað
vexti og tímalengd varðar, og
40% fara til almennra fram-
kvæmda á vegum rfkisins sam-
kvæmt lánsfjáráætlun", sagði Da-
víð Ólafsson seðlabankastjóri, er
Mbl. spurði hann til hvers nota
ætti þá 4.5 milljarða króna, sem
fengjust með 5 milljarða yena
lánsf járútboðinu í Japan.
Samkvæmt lánsfjáráætlun er
ríkissjóði heimilt að taka erlend
lán að upphæð samtals 4 milljarð-
ar 866 milljónir króna og skal
þeim peningum varið til endur-
greiðslu á eldri lánum og íil fram-
kvæmda á vegum ríkisins, en
lánsfjáráætlunin byggir á því, að
heildarupphæð erlendra skulda
aukist ekki á árinu 1978.
Norglobal á
Öxarfjörð
Bræðsluskipið Norglobal hefur
undanfarna daga legið við Hrísey
á Eyjafirði og tekið á móti loðnu
og brætt þar. Nú þegar loðnan
hefur færst mikið austur á bóg-
inn, var ákveðið að færa skipið í
gærkvöldi og átti það til að byrja
með að leggjast á Öxarfjörð.
Lítil loðnuveiði í fyrrinótt:
„Lítið af loðnu í
fyrstu göngunni”
—segir Eyjólfur Friðgeirsson fiskifræðingur
ÞRATT fyrir að töluvert magn
fyhdist af loðnu um 50—60 s!m.
NNA af Langanesi í fyrradag,
varð veiðin í fyrrinótt tiltölu-
lega rýr, og tilkynntu aðeins 5
bátar um veiði eftir nóttina.
Loðnan virðist nú ganga hægt
og sfgandi austur og suður með
landinu og hefur veiðisvæðið
ekki verið austar en það var f
fyrrinótt.
Rannsóknarskipið Arni Frið-
riksson var í gær statt yzt í
Seyðisfjarðardýpi, út af Dala-
tanga. Þegar Morgunblaðið
ræddi við Eyjólf Friðgeirsson,
leiðangursstjóra á skipinu,
sagði hann, að þeir hefðu leitað
að loðnu úti fyrir öllum Aust-
fjörðum og ætlunin væri að
kanna svæðið suður undir
Stokksnes til að byrja með.
„Við höfum lítillega orðið varir
Yió loðnu hér j kantinum suður
með Austfjörðum, og hefur
smápeðringur komið fijam á
asdikinu, en hins vegar er vart
hægt að finna þennan peðring á
dýptarmæli. Magnið sem við
höfum fundið er þvi ekki mik-
ið, en ekki er ósennilegt að eitt-
hvað af dreifðri loðnu sé nú að
ganga suður með Austfjörð-
um“, sagði hann.
Þá sagðist Eyjólfur telja, að
loðnan, sem nú væri verið að
veiða norður af Langanesi væri
úr göngu 2, en tiltölulega mjög
lítið magn væri nú í göngu 1,
sem væri á leið suður með Aust-
fjörðum.
Skip sem tilkynntu um afla
til Loðnunefndar í gær eru
þessi: Óskar Halldórsson RE
360 lestir, Gisli Arni RE 500,
Guðmundur RE 350, Harpa RE
590 og Faxi GK 140 lestir.