Morgunblaðið - 02.02.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. FEBRUAR 1978
5
Fyrirspum
til ríkis-
skattstjóra
SAMKVÆMT leiðbeiningum um
skattframtal nú í ár skal marg-
falda með kr. 64.00 þann daga-
fjölda, sem sjómenn eru skráðir á
skip, til að finna út frádrátt
þeirra vegna fæðiskostnaðar.
1. spurning: Hvaða ár var
byrjað að margfalda með þessum
64 krónum?
2. spurning: Hvernig var sú
krónutala fundin?
3. spurning: Hvers vegna hefur
þessi tala, — ein krónutalna til
útreiknmgs á framtali, — ekki
breytzt?
Guðríður Kristjánsdóttir
Hornafjörður:
745 tonn
af bolfiski
í janúar
Hornafirði 31. jan.
Hórnafjarðarbátar fóru alls 125
róðra i janúarmánuði og var
heildarafli þeirra 745 tonn.
Hæstu bátar eru Hvanney með
125 tonn í 18 róðrum, Gissur hvíti
með 123 tonn í 16 róðrum og
Freyr með 97 tonn i 17 róðrum. 1
fyrra var afli í janúarmánuði að-
eins 290 tonn, en þá var aðeins 1
bátur á línu, 3 á trolli og að auki
einn skuttogari en nú hefur einn
bátur byrjað á netum og aflað
mjög lítið.
—Gunnar
Weissauer
sýnir í Háhól
Akureyri 31. jan.
RUDOLPH Weissauer opnar mál-
verkasýningu í Gallerí Háhól n.k.
laugardag kl. 15. Hér er um að
ræða nokkurs konar yfirlitssýn-
ingu á verkum málarans sem áður
hefur sýnt á Akureyri. Flestar
myndirnar eru unnar i vatnslit,
en einnig verða á sýningunni
pastelmyndir og grafikmyndir
unnar með margvislegu móti. Alls
eru myndirnar rúmlega 60 og eru
allar til sölu. Sýningin verður op-
in til 12. feb., virka daga kl.
20—22, en um helgar frá kl.
13—22.
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
í fullum gangi
verzl. samtímis \A
Alltnýjar ^
og nýlegar
vöruri^fl
Látið ekki happ
úr hendi
^ sleooa JÉ^ ^ c
Við viljum vekja athygli á því að
við létum framleiða terelyne ullarbuxur
beint á vetrar-söluna
Mikið úrval af hljómplötum