Morgunblaðið - 02.02.1978, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 02.02.1978, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. FEBRUAR 1978 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjóm og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavik. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjöm Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, simi 10100. Aðalstræti 6, simi 22480. Áskriftargjald 1 700.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið Stuðningur Magnús- ar Kjartanssonar við vaxtastefnu r í kisstj ómar innar Ríkisstjórnin hcfur unnið markvisst að því að bæta hag sparifjáreigenda undanfarna mánuði. S.l. sumar voru teknar upp nýjar vaxtareglur, sem þýða að vextir eru endurskoðaðir á nokkurra mánaða frcsti og hækkaðir tii samræmis við aukna verðbólgu. Þannig eru nú 29% vextir á vaxtaaukainnlánum og eru það þeir vextir, sem næst komast þvf að tryggja verðgildi sparifjár á tfmum óðaverðbólgu og gera það þó engan veginn alveg, þar sem verðbólgan er komin yfir 30% á ári. Þessi viðieitni ríkis- stjórnarinnar hefur leitt til þess, að spariinnlán hafa aukizt og þar með það fjármagn, sem atvjnnu- vegirnir hafa aðgang að til starf- semi sinnar. Fleiri og fleiri at- vinnurekendur gera sér nú Ijóst, að betra er að hafa aðgang að lánsfé og greiða fyrir það hærri vexti en að búa við stöðugan láns- fjárskort, þótt það fé kosti minna, sem hægt er að fá með stopulum hætti við þær aðstæður. Einn er sá maður, sem hefur öðrum fremur fjandskapazt við þá stefnu f vaxtamálum, að spari- fjáreigendur skuli a.m.k. geta viðhaldið verðmæti peninga sinna á verðbólgutfmum, þótt enn sé ekki farið að greiða þeim já- kvæða vexti af innstæðufé, en það er Lúðvfk Jósepsson, formaður Alþýðubandalagsins, sem hefur verið helzti boðberi iágvaxta- stefnunnar á óðaverðbólgutím- um. Mörgum hefur þótt þetta kyndugt vegna þess, að með þessu hefur Lúðvfk Jósepsson gerzt talsmaður þeirra verðbólgubrask- ara, sem rakað hafa saman auði og eignurn á undanförnum árum, en lagzt gegn hagsmunum þess launafólks, sem hefur lagt fé fyrir f innlánsstofnunum. Þegar haft er í huga það yfirlýsta mark- mið Alþýðubandalagsins, að vinna sérstaklega að málefnum launafólks og þeirra sem minnst eru megnugir f þjóðfélaginu veldur það óneitanlega furðu, að flokkurinn skuli hafa markað þá stefnu í vaxtamálum, að skulda- kóngar skuli fá lánsfé gefið f stór- um stíl, en raunar er þetta eitt með öðru til marks um það, að ekkert er að marka stefnuyfirlýs- ingar Alþýðubandalagsins. Nú sætir lágvaxtastefna Lúðvíks Jósepssonar vaxandi gagnrýni í eigin flokki og annar helzti leið- togi Alþýðubandaiagsins um langt árabil, Magnús Kjartans- son, hefur komið fram með ótví- ræðar yfirlýsingar um stuðning við þá vaxtastefnu, sem ríkis- stjórnin og Seðlahankinn hafa staðið að. f grein í Þjóðviljanum s.l. sunnudag segir Magnús Kjartansson um vaxtamálin: „Er nú svo komið, að opinberir vextir á fslandi eru orðnir fimmfalt hærri en hlutfall það, sem hét okurvextir í íslenzkum lögum fyrir tiltölulega fáum árum. Samt fer því fjarri, að þessi ávöxtunaraðferð jafngildi sfein- steypuaðferðinni. Þeir sem sí- fellt þurfa á lánum að halda eins og t.a.m. atvinnurekendur kvarta mjög undan því, að vext- irnir séu þungur baggi, sem at- vinnurekendur fái ekki undir risið, nema velta þeim út í verð- lagið og magna þannig verðbólg- una. Allt er þetta rétt. En það á ekki við um vexti frekar en ann- að. Öll aðföng atvinnufyrirtækja hækka jafnt og þétt, stundum stórlega og ófyrirsjáanlega og hækkunum er auðvitað velt út í verðlagið. Laun hækka árlega um tugi prósenta að krónutölu en ekki að verðgildi og hækkunum er velt út í verðlagið. Þannig mætti lengi telja. Að taka vextina eina út úr og ætlast til, að sparifé sé verr tryggt en önnur aðföng í atvinnurekstri, stenzt ekki. Af- leiðingar slíkrar stefnu yrðu þær einar, að frjáls sparifjármyndun hverfi, enginn vildi eiga fé held- ur skulda peninga.“ Eins og sjá má af þessum til- vitnuðu orðum tekur Magnús Kjartansson eindregið undir það sjónarmið ríkisstjórnarinnar, að það standist ekki að hafa vexti á verðbólgutímum eins lága og þeir lengst af hafa verið hér. Hann bendir á, að afleiðing slíkrar stefnu yrði einfaldlega sú. að sparifé mundi hverfa, enda cr það staðreynd, að fram til vaxta- umbótanna á sl. hausti dró úr aukningu spariinnlána í banka- kerfi landsmanna og það ástand, sem fram að þeim tfma ríkti, stuðlaði fremur að því, að menn vildu skulda peninga en eiga þá. En staðreyndir bfta hins vegar ekki á formann Alþýðubandalags- ins, Lúðvík Jósepsson. Hann segir nýlega f blaðagrein: „Vexti á að lækka í áföngum, þannig að þeir verði ekki hærri en almennt ger- ist f okkar viðskiptalöndum og tryggja verður, að atvinnuvegirn- ir og þá alveg sérstaklega þeir, sem framleiða fyrir erlenda markaði njóti hagstæðari lána- kjara. Auka þarf framleiðslu og gera ráðstafanir til, að stærri hluti vinnuaflsins vinni að slfk- um störfum." Lúðvík Jósepsson gerir hins vegar enga grein fyrir því, hvern- ig tryggja eigi hagsmuni launa- fólks og sparifjáreigenda í land- inu. En kjarni málsins er auðvit- að sá, að með yfirlýsingu Magnús- ar Kjartanssonar um vaxtamál er augljóst, að vaxtastefna rfkis- stjórnarinnar og Seðlabankans nýtur yfirgnæfandi stuðnings ekki aðeins stjórnarflokkanna heldur áhrifamikilla aðila í stjórnarandstöðunni. Stjórnar- andstaðan er gersamlega sundr- uð, í veigamiklum þætti efr.a- hagsmála, en ríkisstjórnin hefur hlotið mikilsverðan stuðníng frá einum áhrifamesta þingmanni stjórnarandstöðunnar. Það er pólitfsk staða, sem báðir stjórnar- flokkarnir geta verið ánægðir með, en hið sama verður ekki sagt um stjórnarandstöðuflokkana. Dómnefndin f hugmyndasamkeppninni. Frá vinstri: Gylfi Guðjónsson, Helgi Hjálmarsson, Jón M. Guðmundsson, Aðalsteinn Júlíusson, Magnús Sigsteinsson, Anna S. Gunnarsdóttir og Sæberg Þórðar- son. Hugmyndasamkeppni um skipulag Mosfellshrepps Fyrir skömmu ákvað Mos- fellshreppur að efna til hug- myndasamkeppni um aðal- skipulag Mosfellshrepps 1978—'98. A blaðamannafundi í gær, sem hreppsnefnd Mos- fellshrepps og dómnefnd boðuðu til, var samkeppnin kynnt sem og aðdragandi henn- ar. Kom þar fram að á undan- förnum árum hefur þéttbýli í Mosfellshreppi aukizt mjög og fólksfjölgun orðið mikil. Fyrsta desember 1976 mun fbúatalan hafa verið sem næst 2.000 manns, en var um 1970 um 1.000 og aukningin því ver- ið nálega 100% á þessum sex árum. Gert er ráð fyrir 10,9% meðaltalsfjölgun á ári frá 1976—1980. Byggðin hefur þró- ast að mestu samkvæmt bráða- birgðaskipulagi, en heiidar- skipulag ekki legið fyrir og samþykkti sveitarstjórnin því á sfðastliðnu ári að gert skyldi heildarskipulag af-hreppnum og eins konar landnýtingar- áætlun, en Mosfellshreppur er nú um 20.000 hektarar að stærð. Var samþykkt að verk þetta skyldi boðið út í sam- keppni. I tillögum Skipulagsnefndar hreppsins er gert ráð fyrir aó taka fyrir þann hluta, sem fyr- irsjáanlega byggist þéttri byggð á næstu árum, en það er svæðið í námunda við Vesturlandsveg, i þar sem hann liggur um hrepp- inn. Ennfremur er gert rá^ fyr- ir að gerðar verði tillögur um önnur byggileg svæði, og hvernig nýta skuli fellin og heiðina, það er Mosfellsheiði. Má í raun segja að hugmynda- samkeppnin sé þríþætt, því í fyrsta lagi skulu samkeppnistil- lögurnar fjalla um landnotkun- armöguleika hreppsins. I þeim hluta skal gera grein fyrir notk- un lands, meðal annars til íbúðarbyggðar, iðnaðarsvæða, landbúnaðar, útivistar, sumar- bústaðabyggðar, o.s.frv. og grófum tengslum Mosfellssveit- ar við aðliggjandi sveitarfélög. Þá skal í tillögunum ekki gert ráð fyrir neinni verulegri byggð ofan 100 metra hæðar- línu. Með þessum hluta sam- keppninnar á að fylgja upp- dráttur á mælikvarðanum 1:20.00 ásamt stuttri greinar- gerð og skýringarmyndum. Annar hluti hugmyndasam- keppninnar er aðalskipulagstil- laga afmarkaðs hluta Mosfells- hrepps. í þeim hluta skal gerð grein fyrir notkun lands, nýt- ingarhlutfalli, umferðarkerfi o.s.frv. Uppdráttur skal einnig fylgja þessum hluta samkeppn- innar og á hann að vera í mæli- kvarðanum 1:5.000 með stuttri greinargerð og skýringarmynd- um. Þriðji hluti samkeppnirtnar er tvískiptur. Annars vegar er gert ráð fyrir deiliskipulagi á svæði sem takmarkast af Vest- urlandsvegi, landi Blikastaða, Leirubogi og byggð 1 landi Bjargarstaða. Hins vegar er um að ræða deiliskipulag á svæði innan aðalskipulagsins, og hafa keppendur frjálsar hendur um val þess svæðis. Svæðið á ekki að vera minna en 100 hektarar og ekki stærra en 200 hektarar. Uppdrættir fyrir bæði svæðin eiga að fylgja og eiga þeir að vera i mælikvarðanum 1:2.000. Þeim eiga að fylgja fjarvíddar- uppdrættir, sneiðingar eða aðr- ar skýringarmyndir ásamt greinargerð. Verðlaun fyrir beztu hug- myndina nema alls fimm milljónum króna og er gert ráð fyrir að fyrstu verðlaun verði um tvær og hálf milljón krónur. Verða hugmyndirnar dæmdar í heild, en liðirnir þrír ekki metnir hver fyrir sig, og áskilur dómnefnd sér rétt til að nota verðlaunahugmyndirnar að ein- hverju leyti. Auk þess hefur dómnefndin eina milljón króna til umráða til kaupa á tillögum. Mosfellshreppur leggur mikla áherzlu á að gert sé ráð fyrir göngustigum í aðalskipu- laginu, og öðrum leiðum fyrir fólk, sem áhuga hefur á að ferð- ast öðru vísi en f bifreiðum. Sem dæmi má nefna að hrepps- nefndin gerir ráð fyrir að reið- slóðir verði skýrt afmarkaðar frá götum, og að hægt verði að komast yfir Vesturlandsveg á auðveldan og þægilegan hátt. Dómnefnd var kosin á síðast- liðnu hausti í samráði við Skipulagsstjórn ríkisins og Arkitektafélag Islands, sem unnið hefur að því að semja útboðslýsingu fyrir samkeppn- ina. Gert er ráð fyrir að þátttak- endur skili tillögum eigi síðar en 17. maí 1978. Dómnefnd skipa af hálfu Skipulagsstjórn- ar ríkisins, Aðalsteinn Júlíus- son, vita- og hafnamálastjóri, sem er formaður nefndarinnar, af hálfu Arkitektafélags Is- lands Helgi Hjálmarsson og Gylfi Guðjónsson arkitektar, en af hálfu Mosfellshrepps þeir Jón M. Guðmundsson oddviti og Magnús Sigsteinsson, for- maður skipulagsnefndar hreppsins, en varamenn þeirra eru Sæberg Þórðarson og Anna S. Gunnarsdóttir. Þá hafa starf- að með nefndinni þeir Jón Baldvinsson sveitarstjóri, Magnús Ölafsson byggingar- fulltrúi, Róbert Pétursson arki- tekt og Zóphanías Pálsson skipulagsstjóri, en hann er ritari nefndarinnar. Trúnaðarmaður dómnefndar er Ölafur Jensson fram- kvæmdastjóri, Kjartansgötu 2, Reykjavík og afhendir hann samkeppnisgögn gegn 10.000 króna skilatryggingu, en þátt- tökurétt hafa allir Islendingar og útlendingar, sem starfa hér á landi. Róbert Pétursson, arkitekt, útskýrir samkeppnisgögnin fyrir gestum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.