Morgunblaðið - 02.02.1978, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. FEBRUAR 1978
35
— Áfengi
Framhald af bls. 13
fámennan hóp aö ræða. Það eru
oft stórir hópar unglinga, sem
biða utan við Tónabæ, kannski
nokkur hundruð unglingar, og
ástandið meðal þeirra er öllu
verra heldur en hjá þeim, sem eru
innan dyra, því neyzla áfengis er
bönnuð þar og því fá þeir ekki
aðgang eða er vísað á dyr ef upp
kemst um áfengisneyzlu.
Hvernig taka foreldrar því að
börn og unglingar þeirra neyti
mikils áfengis?
— Fólk vill yfirleitt ræða málið
við okkur og það er óneitanlega
dálítið áfall fyrir foreldra þegar
kannski 15—16 ára unglingur
kemur heim mikið drukkinn.
Sumir vilja ræða við okkur og
aðrir vilja ekkert við okkur tala,
það grípur suma stundum örvænt-
ing og ráðleysi en oft getum við
veitt nokkra hjálp í slíkum tilfell-
um.
Minnst var á afbrot og þau eru
nánar spurð um hversu mikið sé
um þau og hvernig þau séu með-
höndluð:
— Afbrot eru til í nokkrum
mæli, en það skal enn tekið fram
að þar er um fámenna hópa að
ræða, sem e.t.v. lenda í afbrotum
aftur og aftur. Ef við vitum að
þau hafa framið einhver afbrot er
farin sú leið að við fáum þau til að
gera upp sín mál við viðkomandi
beint, annaðhvort lögreglu eða
t.d. búðareigendur, sé um þá að
ræða og þannig má segja að við
vinnum að lausn slíkra mála með
unglingunum. Við viljum ekki
bregðast þeirra trúnaði, en við
bendum þeim á hvað rétt sé að
gera ög hvernig þau geti gert upp
sín mál.
Árangur?
Er hægt að tala um einhvern
árangur af þessu starfi, sjá þau
einhvers konar breytingar á ung-
lingunum?
— Við sjáum tvímæialaust
árangur af sfarfinu og sem dæmi
getum við nefnt hóp, sem við höf-
um haft töluverð afskipti af, ung-
linga, sem lent hafa í erfiðleikum,
komist í kast við lögin og lögregl-
una nokkuð oft í fyrravetur. I
sumar og í haust höfum við séð
það að þessi hópur hefur losnað
alveg við sín afbrot, hópurinn
hefur mikið rætt við starfsfólk
útideildarinnar og hann er nú að
reyna að hafa áhrif á aðra ungl-
inga, sem eru í sömu erfiðleikum
og hópurinn var í fyrir nokkrum
mánuðum. Á þann hátt hefur ein-
staklingurinn áhrif I sínum hópi
og getur smám saman breytt við-
horfum hópsins til ýmissa mála.
Unglingarnir hafa sagt að þeir
finni til öryggis við það að vita af
okkur og má segja að nærvera
okkar veiti ákveðið aðhald, en
annars er mjög erfitt að meta
árangurinn af þessu starfi.
— í þessum viðræðum við
starfsfólk útideildar kemur fram
að það verður að vita vel hvað
hægt er að gera fyrir þessa ung-
linga, hvaða stofnanir borgarinn-
ar geti komið þeim til hjálpar
eftir því í hvers konar erfiðleik-
um unglingarnir eiga og það fer
mikill hluti starfs útideildar í það
að leiðbeina á þennan hátt og visa
unglingunum á það fólk sem get-
ur hjálpað bezt.
J.
— Slysatrygging-
ar sameinaðar
Framhald af bls. 31.
ingar nemi um 0.4% af launaupp-
hæðinni á þvi ári, sem gjaldið er
iagt á en 0.50—0.55% af launa-
fjárhæð ársins á undan ef miðað
er við árið 1975—1977.
1 niðurfellingu áhættuflokk-
unnar og talningar vinnuvikna i
lífeyris- og slysatryggingum felst
að sjálfsögðu mikill vinnu-
sparnaður eftir sem áður á sér þó
stað talning vinnuvikna hvað
snertir atvinnuleysistryggingar,
sem að minu mati er nauðsynlegt
að breyta til samræmis.
Að svo stöddu sé ég ekki ástæðu
til þess að fjalla frekar um efnis-
atriði frumvarpsins enda er mál
mitt orðið all-langt, en i stað þess
vísa ég til frumvarpsins sjálfs
ásamt athugasemdum. Vænti ég
þess að frumvarpið hljóti góðar
viðtökur hér á Alþingi og legg til
að því verði að lokinni þessari
umræðu vísað til háttvirtrar heil-
brigðis- og tryggingamálanefnd-
ar.
1 x 2 — 1 x 2
22. leikvika — leikir 28. janúar 1978
Vinningsröð: 1xx — 2xx — 12x — 1 1 x
1. vinningur: 10 réttir — kr. 1 67.000. —
17(Akranes) 2637 (Selfoss) 10437 (Kópavogur) 33990 (Mos-
fellssveit) 2. vinningur: 9 réttir — kr . 9.800. __
2372 5138 30233 32318 33889 40848(2/9) +
3676 5927 31094 32689 33993 54407
4679 6349 31116 32783 34441 54623
4804 6595 31519 33318 34445 -f-nafnlaus
5131 9236 31539 33353 34580
Kærufrestur er til 20 febrúar kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera
skriflegar. Kærueyðublóð fást hjá umboðsmönnum og aðalskrif-
stofunni. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til
greina.
GETRAUNIR — íþróttamiðstöðin — REYKJAVÍK
Morgunblaðið óskar
eftir blaðburðarfólki
VESTURBÆR
Ægissíða
AUSTURBÆR
Sóleyjargata.
Ingólfsstræti.
Lindargata,
Hverfisgata 63—125
ÚTHVERFI
Rauðagerði
Kópavogur
Skjólbraut
tfgtutWfafrifr
ilpplýcmjar j $jma 354Q8,
ÓDÝRAR
KULDAÚLPUR
no. 48 — 54.
kr. 7093 -
SOKKAR
með tvöföldum botni
STILL-LONGS
ULLARNÆRFÖT
Nælonstyrkt dökkblá
fyrir börn og fullorðna
V/INNUFATNAÐUR
REGNFATNAÐUR
SJÓFATNAÐUR
VINNUHANZKAR
• ,
VASALJOS
Fjölbreytt úrval
með rafhlöðum
SALTSKÓFLUR
ÍSSKÓFLUR
SNJÓSKÓFLUR
KLAKASKÖFUR
GÚMMÍMOTTUR
ÚTIDYRAMOTTUR
•
BLIKKFÖTUR
PLASTFÖTUR
•
GÚMMISLÖNGUR
SLÖNGUTENGI
SLÖNGUSTÚTAR
BRUNABOÐAR
ASBESTTEPPI
VÆNGJADÆLUR
BÁTADÆLUR
FEITISSPRAUTUR
OLÍUKÖNNUR
PLASTBRÚSAR
, •
OLIUOFNAR
ALADDIN
OG
VALOR
•
TVISTUR
í 25 kg böllum
TJÖRUHAMPUR
SKÓLPRÖRHAMPUR
Simi 28855
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 24 , 26. og 29 tölublaði
Lögbirtingablaðsins 1 977 á Ásbraut 5 — hluta
—, þinglýstri eign Gauts Stefánssonar, fer
fram á eigninni sjálfri miðvikudaqinn 8 febrúar
1 978 kl. 10.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Reglubundnar
ferðir alla mánudaga
frá Reykjavík til ísafjarðar og Akureyrar
Viðkoma á aukahöfnum eftir þörfum. Vörumót-
taka á föstudögum. í A-skála.
H.F Eimskipafélag íslands.
Norræni
Menningarsjóðurinn
veitir styrki til einleikara, einsöngvara,
kemmarflokka, kóra, hljómsveita eða óperu-
húsa, svo að þessir aðilar geti fengið nor-
rænt tónskáld frá öðru landi en sínu til þess
að semja fyrir sig.
Umsókn skal gerð í samráði við og með sam-
þykki viðkomandi tónskálds.
Umsóknarfrestur er til 1. marz 1978.
Nánari upplýsingar veitir Árni Kristjánsson sími
13229
Tísku-
sýning
Föstudag kl. 12.30—13.30
Sýningin, sem verður í Blómasal Hótels Loftleiða er
haldin á vegum Rammagerðarinnar, íslensks Heimilis-
iðnaðar og Hótels Loftleiða.
Sýndir verða sérstakir skartgripir og nýjustu gerðir
fatnaðar, sem unnin er úr íslenskum ullar- og skinn-
vörum. Módelsamtökin sýna.
Hinir vinsælu réttir kalda borðsins á boðstólum.
Verið velkomin.
HOTEL
LOFTLEIÐIR
Sími 22322