Morgunblaðið - 08.02.1978, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR 1978
Ragnar Júlfusson formaður útgerðarráðs Bæjarútgerðarinnar ásamt einni starfsstúlkunni
Bæjarútgerð Reykjavíkur:
Mun verðmætari hver fiskur
úr sjó í kjölfar mikilla breyt-
inga og endurskipulagningar
HJÁ Bæjarútgerð Reykjavíkur eiga sér nú stað miklar
breytingar og framkvæmdir til hagræðingar á starfsemi
fyrirtækisins. Standa nú yfir miklar framkvæmdir
vegna endurbóta á fiskiðjuveri fyrirtækisins og Bakka-
skemmu á Grandagarði. M.a. er þarna um að ræða
stórbætta starfsmannaaðstöðu, þar á meðal nýtt og full-
komið mötuneyti, endurbætur á flökunar- og pökkunar-
sölum, innrétting fiskmóttöku og kæld hráefnisgeymsla
í Bakkaskemmu og margt fleira. Af þessu tilefni svo og
til að skýra frá starfsemi fyrirtækisins boðaði stjórn
Bæjarútgerðarinnar blaðamenn á sinn fund í gær.
Á þessum fundi, sagði Ragnar
Júlíusson formaður útgerðarráðs
Bæjarútgerðar Reykjavíkur m.a.
að undanfarin ár hefði stjórn
Bæjarútgerðarinnar lagt mikla
áherzlu á enduruppbyggingu
fyrirtækisins og er í því sambandi
skemmst að minnast endurnýjun-
ar togaraflotans. Hins vegar
hefur nokkuð mikið vantað á það,
að aðstaða fiskvinnslunnar gæti
talist viðunandi. Hefur jafnvel
verið rætt um byggingu nýs
frystihúss í því sambandi. Eftir
nokkra athugun var snemma árs
1977 ákveðið að núverandi húsa-
kynni fiskiðjuversins skyldu
endurskipulögð á þann veg, að
þau gætu um nokkra framtíð full-
nægt þörfum útgerðarinnar, jafn-
framt því að nýrri fiskimóttöku
og kæligeymslu yrði komið fyrir á
hluta Bakkaskemmu.' Var strax
ljóst, að um kostnaðarsamar fram-
kvæmdir yrði að ræða og verkið
yrði að vinna í áföngum þannig að
sem minnst truflun yrði á starf-
ræskslu frystihússins. Strax og
ákvarðanir lágu fyrir var hafist
handa við undirbúning fram-
kvæmda.
I stórum dráttum felast fram-
kvæmdir þessar í eftirfarandi
verkþáttum:
ir Starfsmannaaðstaða, þ.e.a.s.
ný búnings- og snyrtiherbergi,
nýtt eldhús, nýr matsalur o.fl.
Unnið við flökun
Nú þegar hefur hið nýja eld-
hús og matsalurinn veriðtekin
í notkun.
if Stækkun, endurbætur og
endurskipulagning á flökunar-
og pökkunarsölum.
if Innréttuð fiskmóttaka og kæld
hráefnisgeymsla í Bakka-
skemmu.
if Endurskipulagning á móttöku
i fiskiðjuverinu, ásamt upp-
setningu á tvöföldu flutnings-
kerfi úr móttöku í flökunarsal.
if Ýmsar lagfæringar og viðbæt-
ur á húsakynnum, svo sem nýtt
lofthitunar- og loftræstikerfi,
endurnýjun raflagna, hita-
lagna, vatns- og frárennslis-
lagna, endurnýjun á gluggum
og margt fleira.
Þess má geta að þegar lokið
verður við framkvæmdir í Bakka-
skemmu við innréttingu fiskmót-
töku og komið fyrir kældri hrá-
efnisgeymslu gefur það í fyrsta
sinn tækifæri til að landa fiskin-
um á flutningatæki og flytja hann
beint í kælingu.
Framkvæmdir hófust í marz á
s.l. ári við að koma upp nýju
mötuneyti (eldhúsi og matsal) á
3. hæð suðurhluta húss fiskiðju-
versins, en þar hafði áður verið
óupphitað geymslurými. Byrja
þurfti á því að byggja um 900
fermetra þak á alla suðurhluta
hússins og einangra það. Þá var
jafnframt gerð greiðari aðkoma
að matsalnum um nýja tengibygg-
ingu á þaki norðurhluta hússins,
sem er einni hæð lægri milli aðal-
inngangs í húsið og matsalarins. I
þessari tengibyggingu er komið
fyrir snyrtiaðstöðu fyrir þá, sem
einungis eiga erindi í mötuneytið.
Framkvæmdum við þessa verk-
þætti lauk í desember s.l. og var
mötuneytið opnað milli jóla og
nýárs.
Auk þessara framkvæmda
hefur verið unnið að stækkun á
flökunarsal, en svo háttaði til að
við enda flökunarsalarins var ís-
klefi frá þeirri tið, er ísfram-
leiðsla fór fram í fiskiðjuverinu.
Eftir að mötuneytið var flutt á
3. hæð hússins var unnt að hefjast
handa við breytingar á vinnslusöl-
um. Var öll fiskvinnsla stöðvuð 6.
janúar síðastliðnum og þá þegar
hafist handa við breytingarnar.
Þá var reiknað með því, að
vinnsla gæti hafist á nýjan leik
23.—25. janúar. Framkvæmdir
reyndust þó vera öllu viðameiri
en ráð var fyrir gert, en vinnsla í
fiskiðjuverinu hófst aftur 31.
janúar.
Á þessum lengri stöðvunartíma
en upphaflega hafði verið ráð-
gerður var unnt að vinna að ýms-
um verkþáttum, sem upphaflega
voru ráðgerðir síðar, svo sem upp-
setningu rúllubrauta í pökkunar-
sal, málningarvinnu í pökkunar-
sal, vinnu verið verkstjóraklefa
o.fl.
Á þessum þremur vikum var
unnið að lagningu gólfefnis á alla
vinnusali og unnið að endurupp-
setningu allra véla í móttöku- og
flökunarsal ásamt tilheyrandi
flutningsböndum, borðum og öðr-
um útbúnaði þeim tengdum. Enn-
fremur var hluti flökunarsalar
einangraður á nýjan leik og múr-
húðaður, gamla mötuneytið rýmt,
vinnusalir og móttaka málað, raf-
kerfi allt endurnýjað, svo og
vatnslagnir f vinnusölum. Þá var
jafnframt unnið að hleðslu og
múrhúðun veggja í snyrti- og bún-
ingsherbergjum kvenna, ásamt
ótal smærri verkliðum. Ennfrem-
ur var unnið að uppsetningu loft-
hitunar- og loftræstikerfis.
Frágangsverkum ýmsum er enn
ólokið, bæði í flökunarsal, pökk-
unarsal og móttöku, en þau
hindra ekki það, að nú er unnið
með fullum afköstum i fiskiðju-
verinu. Vinna við búnings- og
snyrtiherbergi ásamt aðalinngang
í húsinu verður að vinnast í
ákveðinni framkvæmdaroð og
verður þeim verkum væntanlega
lokið í maí næstkomandi. Nokkru
siðar er áætlað að framkvæmdum
við fiskmóttöku og kæligeymslu í
Bakkaskemmu verði lokið að
fullu, en þær framkvæmdir eru
nú nýhafnar.
Við stækkun pökkunarsalar
fiskiðjuversins eykst afkastaget-
an þar um 10—15%, en pökkun-
arsalurinn ræður, undir flestum
kringumstæðum, afkastagetu
hússins. I flökunarsal hefur verið
bætt við þorskflökunarvél og
hausara. Sú viðbót ásamt tveimur
flutningsleiðum úr móttöku gerir
það kleift að nýta betur heildaraf-
kastagetu hússins við blandaða