Morgunblaðið - 08.02.1978, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR 1978
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 VINN. S.B. RÖÐ
1 HELGI OLAFSSON. É 0 0 '/4 V4
2 WILLIAM LOMBARDY. 1 W' V4
3 BENT LARSEN. 1 1 0
4 VLASTIMIL HORT. '/m wh i V4 V4
5 LEIFOGAARD. m V4 0 0
6 WALTER BROWNE. m. m 1 1 1 V4
7 JON L. ARNASON. M m 0 0 V4
8 ANTHONY MILES. i 'M/Á V4 1 V4
9 LEVPOLUGAEVSKY. 0 i V4 1
10 JAN SMEJKAL 0 '/4 0
11 MARGEIR PÉTURSSON. 0 14 0
12 GENNADY KUZMIN. 0 V4 1 ‘/2
13 FRIÐRIK OLAFSSON. ‘/2 1 '/4 1 m
14 GUÐMUNDUR SIGURJONSSON. '/4 0 m
— Forskot
Brownes
Framhald af bls. 36.
sonar og Jóns L. Arnasonar og
Lombardys og Larsens fóru í bið.
í gær vann Guðmundur Sigur-
jónsson biðskákina við Lombardy
úr þriðju umferð.
í dag eiga skákmennirnir frí,
nema hvað þeir Ögaard og
Smejkal tefla skák sína úr fyrstu
umferð, sem frestað var, þar sem
Smejkal komst ekki til landsins í
tæka tíð fyrir fyrstu umferðina.
Mesta athygli áhorfenda í gær
vöktu skákir Helga Ölafssonar og
Horts og viðureign þeirra Kuzmin
og Browne. Helgi náði betra tafli
gegn Hort, en staðan var víða
varasöm svo Helgi bauó jafntefli
eftir 34 leiki, sem Hort var fljótur
að þiggja. ,,Eg hef sennilega verið
með hagstæðara tafl, en þetta var
engan veginn auðvelt og tapið fyr-
ir Larsen sat í mér,“ sagði Helgi
Ólafsson við Mbl. að lokinni skák-
inni. Hort sagði, að Helgi hefði
allan tímann staðið betur. ,,Mér
urðu á mistök svo ég er ánægður
með jafnteflið,“ sagði Hort.
Viðureign þeirra Kuzmin og
Browne var mjög spennandi.
Browne lenti í miklu tímahraki
við 30 leikja mörkin og hafði að-
eins nokkrar sekúndur til að
ljúka síðasta leiknum. Sem fyrr
iðaði Browne allur í skinninu, en
Kuzmin var hinn rólegasti og
brosti bara að hamaganginum í
andstæðingi sínum. Browne tókst
þó að halda sínum hlut í tíma-
hrakinu og þegar kom að síðari
tímamörkunum lenti hann aftur í
tímahraki. Þegar 11 leikir voru
eftir í 50 átti Browne eftir 9 mín-
útur en Kuzmin 27 mínútur.
Browne tefldi aftur mjög örugg-
lega í tímahraki og að loknum 45
leikjum áttu þeir svipaðan um-
hugsunartima; milli 3 og 4 mínút-
ur. Kuzmin tók svo þann kostinn
að þráleika og eftir nokkra um-
hugsun féllst Browne á jafntefli.
Reyndar hafði landi Kuzmin,
Polugaevsky, sagt Mbl., að
Kuzmin ætti vinning í skákinni og
var greinilegt, að Polugaevsky
var ekki alls kostar ánægður með
úrslit skákarinnar.
Friðrik vanrvögaard í 27 leikj-
um. Friðrik náði betri stöðu, en
lék svo ónákvæmt, en Norðmaður-
inn lenti í tímahraki og gafst upp,
þegar hrókur hans króaðíst inni.
Polugaevsky vann Guðmund
nefndarálitinu, en hins vegar
kvaðst Björn ekki geta sagt um
það á þessu stigi. Þá hefur ASl
óskað eftir fundi með vinnuveit-
endum í dag til þess að ræða
hugsanlega riftun á kjara-
samningum og afstöðu vinnuveit-
enda, brjóti væntanlegar efna-
hagsráðstafanir í bága við efni
kjarasamninganna. Verður sá
fundur haldinn klukkan 4.
Aðspurður sagði Björn Jónsson,
að ASI hefði ekki í einstökum
atriðum fengið upplýst hvað
fælist í hugmyndum ríkisstjórn-
Sigurjónsson örugglega. Guð-
mundur missti peð og lenti í
nokkru tímahraki við 30 leikja
mörkin, en þá hafði Polugaevsky
50 mínútur upp á að hlaupa.
Sovétmaðurinn tefldi mjög mark-
visst og gafst Guðmundur upp eft-
ir 37 leiki.
Miles tefldi mjög örugglega
gegn Smejkal, sem gafst upp eftir
46 leiki.
I biðskákunum eru þeir Larsen
og Margeir taldir eiga vinnings-
líkur og er Margeir peði yfir Jón
L. Arnason.
Biðstöðurnar eru;
Lombardy — hvítt: Kb2, Df2,
ÍVloskva. 7. feb., Rcuter.
SOVÉTRÍKIN hafa loks nú eign-
ast sjóher sem fullnægt geturýtr-
ustu kröfum, segir Sergei Gorsh-
kov aðmíráll, yfirhershöfðingi
sjóhers Sovétríkjanna, í grein í
Red Star, daglegu málgagni varn-
armálaráðuneytis landsins. t
grein sinni var Gorshkov bjart-
sýnn í skrifum og sagði að sér-
staklega væri kafbátaflotinn öfl-
ugur.
„Land okkar hefur yfir öflug-
um sjóher að ráóa, sjóher sem er
fær um að vernda hagsmuni
Sovétríkjanna á heimshöfunum,"
segir Gorshkov í grein sinni.
Gorshkov segir að kafbátafloti
Sovétríkjanna hafi eflst mjög
með tilkomu kjarnorku, vegna
framfara í fjarskiptatækni, með
tölvutækni og með þróun eld-
flauga. Sagði hann kafbátaflöta
Sovétríkjanna færan um að sinna
10 líflátnir
i Zaire
Brazzaville. 7. feb. Reufer.
TtU menn voru líflátnjr hér f
dag, en þeir hlutu dauðadóm sinn
fyrir að eiga þátt í morðinu á
Marien Mígouabi í marz, að þvf er
rfkisst jórnin skýrði frá í dag. Ell-
efti maðurinn var dæmdur til
dauða en hann verður tekinn af
Iffi sfðar.
arinnar varðandi efnahagsmálin.
Kvað Björn þó hafa verið rætt
almennt um vandamálin á fund-
um með stjórnvöldum. .
Morgunblaðið ræddi einnig við
Davíð Ólafsson bankastjóra Seðla-
bankans í gærkvöldi og spurði
hann, hvort sala á gjaldeyri
hæfist f dag. Kvaðst Davíð ekki
reikna með þvf að gjaldeyrissala
hæfist í dag, en forsenda fyrir því
væri afgreiðsla frumvarps á
Alþingi um ráðstöfun gengismis-
munar. Kvað Davíð það mjög
slæmt að hafa gjaldeyrissöluna
lengi lokaða.
Rc3 og peð á b4, c5, d4, e3, f4 og
h3. Larsen svart: Kf7, Dg8, Rf3 og
peð á b5, c6, e6, e4, f5 og h6.
Margeir — hvítt: Ke4, Be5 og
peð á a2, c3, f4, g3 og h4. Jón L. Á.
Svart: Kc4, Bf8 og peð á a7, c5, g6,
og h5.
Biðskákirnar verða tefldar á
fimmtudag og þá verður tefld
fimmta umferð Reykjavíkurskák-
mótsins. Þar eigast við: Hort og
Lombardy, Ögaard og Helgi Olafs-
son, Browne og Friðrik, Jón L.
Arnason og Kuzmin, Miles og
Margeir Pétursson, Polugaevsky
og Smejkal og Larsen og Guð-
mundur Sigurjónsson.
margs konar kröfum nútímahern-
aðar hvar sem væri á heimshöfun-
um.
Svíþjóð:
Stjórnin vill
eftirlit með
kjarnorku-
knúnum gervi-
hnöttum
Frá Jakobi S. Jónssyni,
fréllamanni IV!bl. f Svíþjóð.
utanrikisráðherra
sænsku ríkisstjórnarinnar, Karin
Söder, sagði f dag í viðtali við
sænska útvarpið að stjórnin ætl-
aði ásamt ríkisstjórnum Kanada
og Japans, og ef til vill fleiri
ríkisstjórnum, að eiga frumkvæði
að þvf innan Sameinuðu þjóð-
anna að komið yrði á alþjóðlegu
eftirliti með kjarnorkuknúnum
gervihnöttum.
Fyrst og fremst skiptir máli að
komið verði á laggirnar varnar-
kerfi ef slys á borð við það sem
átti sér stað í Kanada kæmi fyrir
aftur, sagði utanríkisráðherrann.
Einnig þarf að kanna hættuna
sem fylgir kjarnorkuknúnum
gervihnöttum og koma á upplýs-
ingaskyldu gagnvart þeim lönd-
um sem á hættusvæðum liggja.
Aðspurð kvað Karin Söder ekki
trúlegt að stórveldunum tækist að
leyná svonefndum njósnahnött-
um sínum, því tölvutækni nútím-
ans ætti hæglega að geta séð til
þess að væntanlegum alþjóðaregl-
umyrðifylgt.
Einnig kvað Karin Söder
sænsku stjórnina stefna að þvi að
fá sem flest ríki til fylgis við
tillöguna. Að visu mætti búast við
andstöðu einhverra rikja en hún
taldi þó að slysið í Kanada hefði
sýnt að það væri einnig hagur
stórveldanna að taka'virkan þátt í
slíku alþjóðaeftirliti sem fyrr um
ræðir.
Frumvarp um ráðstöf
un gengismismunar
Framhald af bls. 36.
Yfirhershöfðingi sjóhers Sovétríkjanna:
Höfum loks eignast
sjóher sem fullnægt
getur ýtrustu kröfum
— Reiðubúinn
að greiða
Landsbanka
Framhald af bls. 36.
réttar f máli þessu segir, að fé
þetta sé geymt í Sviss. í gögnum
málsins eru hins vegar engar nán-
ari upplýsingar um hvaðan fé
þetta sé runnið, hve mikið það sé
og hvar það sé geymt. Við fyrri
yfirheyrslur hafði varnaraðili
skýrt svo frá, að hann hefði eytt
til eigin þarfa fé þvf, er hann
kvaðst hafa dregið sér.
I skýrslum, sem tveir fram-
kvæmdastjórar Sindra-Stáls h/f
(Einars Ásmundssonar Imp-Exp)
gáfu rannsóknarlögreglu 27. og
28. desember s.l. kemur fram, að
varnaraðili hafi fyrr í þeim mán-
uði reynt að fá þá til að afhenda
sér skjöl, er vörðuðu brot hans.
Við yfirheyrslu 29. desember
.kannaðist varnaraðili við, að hér
væri rétt með farið, og komst svo
að orði, að um hefði verið talað, að
annar framkvæmdastjóranna
kæmi með skjöl til hans „og léti
laga þau“.
Með þessum athugasemdum og
að öðru leyti með skírskotun til
forsendna hins kærða úrskurðar
ber að staðfesta hann.
Rannsóknarlögreglustjóri ríkis-
ins krafðist þess hinn 31. janúar
1978, að gæsluvarðhald varnar-
aðilja yrði framlengt til 1. mars
s.á„ en því átti að ljúka þann dag.
Nauðsynlegt er, að héraðsdómari,
sem ekki hefur fylgst með rann-
sókn máls, fái nægan tíma, eftir
því sem kostur er, til að kanna
rannsóknargögn og meta máls-
ástæður áður en hann úrskurðar
kröfu.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður á að vera
óraskaður."
— Fram-
leiðsluráð
Framhald af bls. 2
Leitað hefur verið um sáttir í
máli þessu, en án árangurs,-
Dómsorð dómara, sem var
Auður Þorbergsdóttir borgar-
dómari, var á þessa Ieið:
„Stefndu, Framleiðsluráð land-
búnaðarins og sexmannanefnd
skulu vera sýkn af kröfum stefn-
anda, Alþýðusambands Islands, í
máli þessu. Málskostnaður fellur
niður."
Lögmaður Framleiðsluráðs í
málinu var Benedikt Blöndal, en
Iögmaður ASl var Egill Sigur-
geirsson.
— Banaslys
á loðnumiðum
Framhald af bls. 36.
höfði og ætti hann erfitt um and-
ardrátt. Slysavarnafélagið hafði
þegar samband við varnarliðið og
fór þess á leit að björgunarþyrla
og eldsneytisflugvél yrðu send til
móts við Arna Friðriksson. Varn-
arliðið brá við skjótt og átti að
senda lækni með þyrlunni. Þegar
svo vélarnar voru að fara í loftið
kl. 6.42, komu boð frá Árna Frið-
rikssyni um að maðurinn væri
látinn.
Árni Friðriksson hélt með lík
mannsins til Neskaupstaðar í gær.
Garðar Eymundsson var fædd-
ur árið 1931. Hann lætur eftir sig
eiginkonu, 14 ára son og aldraðan
föður. Garðar var búinn að vera
skipverji á Eldborgu í fjölda ára.
— Sadat
Framhald af bls. 1.
að kröfur Sadats um fullkominn
vopnabúnað frá Bandaríkjunum
hafa valdið ágreiningi meðal
þingmanna, en hingað til hafa
Bandaríkjamenn takmarkað
vopnasölu til Egypta við hergögn
sem ekki geta talizt mannskæð,
eins og til dæmis C-130 flutninga-
vélar.
Sadat forseti hitti ennfremur
alþjóðamálanefnd fulltrúadeild-
arinnar að máli í dag, og var hon-
um hlýlega tekið á þeim vett-
vangi.
Sadat var að því spurður hver
viðbrögð hans yrðu ef Banda-
ríkjaþing neitaði honum um
vopn, og svaraði hann þá á gáska-
fullan hátt: „Ef þeir fallast ekki á
þetta, held ég að ég geti sagt í
fullri vinsemd, að þá geri ég allt
vitlaust.“
— Addis Abeba
Framhald af bls. 1.
Fikre Selassie hefur varað
Súdani alvarlega við því að láta
aðskilnaðarsinnum í Erítreu í té
frekari aðstoð. Upplýsingamála-
ráðherra stjórnarinnar í Addis
vísaði i dag á bug staðhæfingum
um að Eþíópar hygðust ráðast yfir
landamæri Sómaliu á næstunni.
Heimildarmenn Reuters í
Mogadishu telja að milli 3 og 6
þúsund Kúbumenn séu á leiðinni
til Eþíópíu, til liðs við þá 3 þús-
und Kúbumenn, sem séu fyrir í
landinu, ásamt um 1500 sovézkum
hernaðarráðgjöfum. Talsmaður
herforingjastjórnarinnar sagði í
Róm í dag, að Sovétmenn og
Kúbumenn hefðu aðeins sent 100
ráðgjafa og lækna til Eþíópíu
hingað til, og næmi fjárhagsað-
stoð þessara þjóða ekki nema sem
svaraði einni milljón bandarlkja-
dala. Talsmaðurinn fullyrti að
Egyptar, Saudi-Arabar og iranir
hefðu á hinn bóginn flutt um 7
þúsund manna lið til aðstoðar
Sómölum í átökunum.
Ummæli Moshe Dayans utan-
ríkisráðherra Israels í gær varð-
andi hernaðaraðstoð Israels við
stjórnina í Addis Abeba, hefur
víða vakið furðu. Óstaðfestar
heimildir herma, að Israelsmenn
hafi fært Eþíópum el'dflaugar,
sem hægt er að nota bæði gegn
skriðdrekum og flugvélum,
napalm og stórvirkar sprengjur,
en af opinberri hálfu í Israel er
því haldið fram að vopnaflutning-
ar þaðan takmarkist við skotfæri
og hjúkrunargögn.
— Israelsmenn
Framhald af bls. 17.
Eþíópíustjórnar og aðskilnaðar-
sinna í Eritreu þar sem sigur
þeirra síðarnefndu þýddi stofnun
arabísks ríkis í Eritreu, ríkis sem
yrði fjandsamlegt ísrael. Styðja
Israelsmenn því Eþíópíumenn
þar sem þeir hafa hernaðarlegt
tangarhald á Bab E1 Mandeb
sundinu sem er aðgangur að
Rauða hafinu. Mestur hluti þeirar
olíu sem Ísraelsmenn kaupa fer
um sundið að sögn embættis-
mannanna.
Moshe Dayan gerði ekki grein
fyrir hvaða hergögn væru send til
Eþíópíu, sagði þó að hvorki her-
sveitir né árásarflugvélar væru
sendar þangað. Blaðið Haaretz
skýrði frá í dag að engin þunga-
vopn væru i sendingunum til
Eþfópíu. Sagði blaðið ísraela
senda Eþfópiumönnum skot og
aukabúnað, svo sem svefnpoka,
skotbelti o.s.frv.
Með stuðningi við Eþíópíumenn
í Ogaden-stríðinu eru ísraelar að
veita þeim stríðsaðila stuðning
sem hefur stuðning hefðbund-
inna óvina ísraela, þ.e. Sovétríkj-
anna, Kúbu og Líbýu.
— Neyðarástand
Framhald af bls. 17.
urðu vandræði í sambandi við
samgöngur í lofti, á vegum og
með járnbrautarlestum. I New
York hafa skapast einna mest
vandræði f samgöngumáium
vegna fannkomu og veðurhams.
Strandgæsluskip. leituðu f
dag í blindhríð að þremur skip-
um með 42 innanborðs. Á haf-
inu undan Massachusetts er
vindhraði um 100 km/klst og
ölduhæð um 10 metrar. Eitt
þeirra skipa sem leitað er að, er
gríska risaolíuskipið Global
Hope sem er með 32 manna
áhöfn og 3500 tunnur af olíu
innanborðs. Mun það vera
strandað um 30 km norður af
Boston.