Morgunblaðið - 08.02.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR 1978
29
félk í
fréttum
+ Hamingja Sharon og James Nelson er vissulega skiljanleg. Þau hafa eignast erfingja, litla dóttur.
En um tfma var ekki ástæða fyrir þau að brosa, litla stúlkan var með hjartagalla þegar hún fæddist og
var dauðans matur Hjarta hennar sló aðeins um 40 slög á mfnútu, en eðlilegt er að hjarta ungbarna
slái 120—140 slög á mínútu. En læknavísindin komu hér til hjálpar eins og svo oft áður. Litla stúlkan
var ekki nema þriggja tíma gömu), þegar hún var lögð á skurðarhorðið og í hana var settur gangráður,
lítið tæki sem gengur fyrir rafhlöðum og sér um að hjartað slái nógu oft.
+ Nú er ekki lengur nauðsynlegt
fyrir konur að fara til læknis til
að fá svar við þvf hvort þær séu
barnshafandi eður ei. A markað-
inn er komið „próf“ sem hægt er
að nota heima og er sagt nokkuð
áreiðanlegt.
+ Nelson Roekefeller, fýrrver-
andi varaforseti Bandarfkjanna,
hefur valdið nágrönnum sfnum í
N'ew York miklum vonbrigðum
og jafnvel reiði. Hann hefur selt
stóra landspildu sem hann átti og
kaupandinn hefur f hyggju að
byggja um 100 einbylishús á
staðnum. En nágrannarnir kæra
sig ekki um svona „lítil ódýr hús“
nálægt sér. „Litlu ódyru húsin“
koma til með að kosta 30—40
milljónir hvert.
+ Hver man ekki eftir
þessu brosi? Þetta er
einn af meðlimum
hljómsveitarinnar The
Monkees, sem varð mjög
vinsæl hér fyrir nokkr-
um árum. Einkum vegna
sjónvarpsþáttanna sem
sýndir voru með þeim fé-
lögum. Þessa dagana
heldur hann sig í London
og spilar f hijómsveit-
inni The Point og með
honum þar er líka annar
Monkee meðlimur, Dav-
ey Jones.
Reykjavíkurdeild R.K.Í.
afhendir merki á neðantöldum
útsölustöðum frá kl. 9.30.
Börnin fá 10% sölulaun og þau
söluhæstu fá sérstök verðlaun.
Merkjasala
í dag
öskudag
VESTURBÆR:
Öldugötu 4
Verzlunin Vesturgötu 53
Melaskólinn v/Furumel
Skólakjör, Sörlaskjóli 42
Skerjaver, Einarsnesi 36
Verzl. Perlon, Dunhaga 20
AUSTURBÆR:
Skrifstofa Rauða kross, íslands Nóatúni 21
Verzlunin Barmahlíð 8
Silli og Valdi, Háteigsveg 2
Sunnikjör v/Skaftahlíð (Lídó)
Hlíðaskóli v/Hamrahlíð
Austurbæjarskólinn
Verzl. Skúlaskeið, Skúlagötu 54
SMAÍBÚÐA- 0G F0SSV0GSHVERFI:
Fossvogsskóli
Breiðagerðisskóli
Álftamýrarskóli
LAUGARNESHVERFI:
Laugarnes-apótek, Kirkjuteig 21
Laugalækjarskóli v/Sundlaugaveg
KLEPPSHOLT:
Langholtsskóli
Vogaskóli
Þvottahúsið Fönn, Langholtsvegi 113
ÁRBÆR:
Árbæjarskóli
Hraðhreinsun Árbæjar, Rofabæ 7
BREIÐH0LT:
Breiðholtsskóli, Arnarbakka 1
Fellaskóli — Breiðholti III
Hólabrekkuskóli v/Suðurberg/Vesturberg
Ölduselsskóli v/Öldusel.