Morgunblaðið - 08.02.1978, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 08.02.1978, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR 1978 GRANI göslari Dásamiegt að geta kælt sig! Guði sé lof að ég skuli hafa haft þig til að tala við allan tfmann! BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Sagnir andstæðinga hafa oft mikil áhrif á val úrspilsaðferða. Og hætt er við, að sagnhafi hefði tapið spilinu hér að neðan hefði austur ekkl verið svo óheppinn að vera gjafari en allir voru utan hættu. Norður S. KD87 H. D83 T. D62 L. Á102 Vestur S 9 H. G742 T. G98753 L. 86 Austur S. 54 H. K106 T. AK4 L. KG974 Suður S. ÁG10963 H. Á95 T. 10 L. D53 COSPER ©PIB COPfNNMIN Ég vann þó ætíð veómálið um hver gæti hallað sér mest fram af svölunum! Um nafnbirtingu kyn- ferðisafbrotamanna „Tilefni þessa bréfkorns er bréf frá reykviskum saumaklúbbi sem inniheldur bón um að birt séu nöfn kynferðisafbrotamanna. Eg hefði nú haldið að fullþroska konur gerðu sér grein fyrir þvi að afbrot af þessu tagi eru ekki framin af fólki með heilbrigðar hvatir og oft af heilaskemmdum. Fólk sem sækist eftir kynferðis- afskiptum af börnum hefur ekk- ert að gera í fangelsi, það þarfn- ast hjálpar sálfræðinga og lækna, því það ræður ekki við þessar hvatir hjá sér og gerir sjálfsagt allt sem i þess eigin valdi stendur til að hamla á móti þessu. Svo eru líka til börn, sem gefa sig á vald svona fólki gegn greiðslu i formi sælgætis og pen- inga og þau koma alltaf aftur og aftur og þetta getur haldið áfram árum saman. Sjálf lenti ég f hönd- unum á svona manni fyrir 12 ár- um og hefur það engin áhrif haft á mitt sálarlif. Ég hef i það minnsta aldrei haft martröð vegna þessara atburða og hef full- komlega eðlilegt samband við hið gagnstæða kyn. Ég hef spurt þær þrjár stúlkur sem ég veit að hann átti einnig við um svipað leyti hvort þær telji þetta hafa haft einhver áhrif á sálarlíf þeirra og telja þær það ekki vera. Á sinum tíma tókum við það ráð að fara mörg saman í hópi ef við þurftum að eiga viðskipti við þennan mann, því við kærðum okkur ekki um þetta káf og pot og stundum hélt hann okkur svo fast að við meiddum okkur, það voru sem sé einu óþægindin sem ég hlaut af þessum manni. Nokkrum árum seinna vissi ég svo til að hann fékk útrás fyrir þessar hvat- ir sínar hjá tveimur systrum gegn borgun. Systur þessar voru um 6 ára og 8 ára og sáum við þær fara til hans aftur og aftur og koma þaðan með vörur sem við krakkarnir sóttumst hvað mest eftir og ekki skildum við hvernig r Nytin snarminnkar i kúnum: Mjaltakonur stút fullar við störf Moskvu, 26. jan. AP. MJÓLKURFRAMLEIÐSLA hefur dregizt hastarlega saman á samyrkjubúi I grennd við Moskvu og má rekja það allt tii drykkjuskapar og óreiðulifnað- ar mjaltakvennanna á bænum, segir f dagblaði f Moskvu f dag. Er löng grein um málið og segir þar að forstjóri búsins sem sé góður og merkur flokksmaður Strukov að nafni hafi reynt að ráða bót á þessu, en hann hafi átt við orfurefli að etja og sér- staktega hafi mjaltakonurnar orðið honum erfiðar f skauti. Komi þær þéttkenndar til mjalta og láti öllum illum lát- um f fjósinu, svo að kýrnar verði óstyrkar og nytin hrað-. minnki. Auk þess láti hinar kenndu mjaltakvinnur það ógert a mjólka nema þær kýr sem laus, mylkastar eru og hefur þetta^ haft í för með sér að nú er dagleg mjólkurframleiðsla bús-, ins ekki nema 1 kg á kú. Ráðist er harkalega að framkvæmda nefnd samyrkjubúsins og henm legið á hálsi fyrir ómyndar-' skapinn að geta ekki beint hin um óreglusömu mjaltakonum inn á farsælli brautir og leitt' þeim fyrir sjónir hversu liferni þeirra víki langt frá öllum flokkshugsjónum. Suður varð sagnhafi í fjórum spöðum eftir að austur hafði opn- að á einu laufi. Og vestur spilaði út laufáttu. Sagnhafi tók strax á ásinn í borðinu því eftir laufsögn austurs var ekki útilokað að áttan væri einspil. Haníi tók síðan tvisvar tromp og spilaði lágu laufi frá borðinu. Austur tók á kónginn og spilaði aftur laufi. Sagnhafi var ekki í vafa um hvar hjartakóngurinn væri. Og samkvæmt því undirbjó hann ein- angrun hjartalitarins með því að spila tígultíu frá hendinni. Vörn- in spilaði aftur tígli, sem suður trompaði. Síðan spilaði hann sig inn í borðið á tromp og trompaði aftur tígul á hendinni. Þar með var hjartaliturinn orð- inn einangraður og suður spilaði lágu hjarta frá hendinni. Hann ætlaði auðvitað að láta áttuna frá borðinu og festa austur inni. Hann hefði þá orðið að spila ann- aðhvort hjarta frá kóngnum eða laufi í tvöfalda eyðu. En vestur skemmdi þessa laglegu áætlun með því að láta gosann. H:nn ætlaði sko ekki að dæma félaga sinn til að spila frá kóngn- um. En sagnhafi dó ekki ráðalaus. Austur verður bara að eiga tíuna líka, hugsaði suður um leið og hann lét drottninguna á gosann. Austur fékk á kónginn en sagn- hafa varð að ósk sinni þegar aust- ur varð að spila hjarta frá tíunni. Unnið spil. En það hefði verið óeðlilegt að vinna spil þetta hefði suður verið gjafari. Enda austur þá ekki tekið þátt í sögnum. jT Framhaldssaga eftir HUS MALVERKANNA a— 65 '25. kafli Jörgen Skov rannsóknarlög- reglumaður leit upp úr spjald- skfánni. — BHIinn er skráður á nafn frú Dorrit Hendberg. Það er hún sem er gift Carli Hend- berg. Furðulegt að hún skuli taka upp á þvf að fremja sjálfs- morð á einhverjum hliðarvegi. — Frú Hendberg. Jörgensen yfirlögregluþjónn leit upp frá vinnu sinni. — Mig minnir að þið segið að unga stúlkan sem þið funduð væri milli tvltugt og þrltugs. Eftir því sem ég man bezt gift- ist Carl Hendberg fertugri konu f fyrra. Ég man það, vegna þess að konunni minni varð tfðrætt um það... já, hvað sagði hún nú aftur... eitthvað um að þau væru svo falleg og sæl á brúðarmyndunum og að hann væri glæsilegur... nei, það var ekki það. Hún sagði það væri furðulegt að hann hefði ekki i þetta sinn reynt að gift- ast dálítið yngri konu svo að Ifkurnar væru að minnsta kosti meiri á því að hún lifði hann. — Hann getur hafa fengið sér nýja konu sfðan. Það er fljótlegt að.skipta um eigin- konu nú til dags, sagði Jörgen Skov. — Nei, fjárakornið að það gangi svo greitt, tautaði yfirlög- regluþjónninn. Stöðuar nóvemberrigningar og kuldi, grátt f gráu hvert sem litið er, kvölds og morgna og um miðjan dag. Það er kannski furða að ekki skuli fleira fremja sjálfsmorð. — Við erum alltaf að tala um sjálfsmorð. Skov settist við skrifborðið og dró fram skýrslu og náði sér f kaffibolla. Kaffið skvettist upp úr og hann bölvaði þegar brúnn dropi fór niður á hvftan pappfr- inn. — Eftir þvf sem ég fæ séð af skýrslunni hefur frú Hendberg verið eiturlyfjaneytandi lengi. Það var það fyrsta sem læknir- inn veitti athygli... þakin stungum eftir sprautur. Senni- lega eiturlyfjaneytandi f aftur- bata sem hefur sk.vndilega fall- ið fyrir freistingu og fengið sér of stóran skammt. — Ohapp. — Sennilegast. En það væri eiginlega skárra að segja mann- inum frá þessu en væri um sjálfsmorð að ræða. — Og fyrst við vitum nú hver hún var, hljótum við að skýra Hendberg frá þvf snarlega. — Leiðindaverk það. — Við vitum auðvitað ekki hvort það var hún ... ég á við, hvort þetta er frú Hendberg. Ung stúlka á þrftugsaldri... Kannski við ættum að fletta upp f manntalinu hvað frú Hendberg er gömul. Svona til vonar og vara. Jörgensen yfirlögregluþjónn tók upp sfmtólið. — Fólk á bara að láta ógert að leggja sig út af og deyja f bfl, þegar það hefur hvorki skilrfki né veski á sér. Hann talaði f sfmann. Hlust- aði og skrifaði niður. Skov settist á borðröndina og kveikti sér f sfgarcttu meðan hann horfði út f endalausa rigninguna. — Auðvitað ... éiturlyfja- neytandi... óheppni... Hann vissi ekki hvaða drauma hann hafði alið með sér þegar hann ákvað að ganga f lögregluna, en það var að minnsta kosti ekki f ætt við þetta. AIIs konar sorglegír at- burðir, sem voru svo ömurlegir og óskiljanlegir. Hörmulegir atburðir, þegar varð að tilkynna ástvinum hvað gerzt hefði. Hann hafði alið með sér einhvern draum sem fæðzt hafði við að horfa á sjón- varpið. Sniðugan rannsóknar- lögrcglumann sem leysti með einni handarsveiflu úr öllum vanda. Skov andvarpaði. Og nú varð hann að hringja og skýra Carl Hendherg frá þvf að konan hans væri dáin. Það var á stundum auðveldara þegar fólk hringdi sjálft og var að leita að ættingjum og aðstandendum. Þeir sem hringdu voru að nokkru undir það búnir að eitt- hvað hefði komið fyrir og gátu þvf tekið sorgartfðindum skár. Hann leit á klukkuna. Hún var kortér yfir nfu og frú Ilend-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.