Morgunblaðið - 09.02.1978, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FrMMTUDAGUR 9. FEBRUAR 1978 19
Harðir bardagar
geysa í Libanon
Beirut, 8. febrúar. Reuter AP
BARDAGAR miili sýr-
lenzkra hermanna í friðar-
gæzlusveitum f Líbanon og
líbanskra hermanna krist-
innar trúar brutust út í
morgun og urðu allsnörp
átök allan daginn. I yfir-
lýsingum stjðrna Líbanons
og Sýrlands segir að verið
sé að reyna að binda énda á
vopnaviðskiptin, en skot-
drunur heyrðust fram eft-
ir kvöldi í Austur-Beirut.
Herlið Palestínumanna og
sveitir vinstri sinnaðra Líbanon-
manna tóku ekki þátt í þessum
bardögum, en þeim var þó fyrir-
skipað að vera við öllu búnar.
Bardagarnir sem hófust í
nágrenni Austur-Beirut og
færðust smám saman nær
miðborginni, eru verstu skærur
sem orðið hafa i landinu frá því
borgarastyrjöldinni í landinu
lauk árið 1976 með tilkomu friðar-
sveita Sýrlendinga. A.m.k. 30 létu
lífið í þessum bardögum i dag og
jafnmargir særðust en í gær var
talið að 20 sýrlenzkir hermenn og
2 líbanskir hefðu látið lífið, en þá
byrjuðu þessir bardagar fyrst.
Hægri sinnaðir Líbanonmenn
breyttu í dag bækistöðvum sínum
í Austur-Beirut í virki og lokuðu
af þeim borgarhluta sem þeir
ráða yfir og komu fyrir leyni-
skyttum á húsþökum. Herbúðir
eins leiðtoga þeirra, Chamoun,
fyrrum forseta Libanons, urðu
fyrir stórskotaliðsárás Sýrlend-
inga, en Chamoun sakaði ekki.
Ekki er ljóst hver voru upptök-
in að þessum bardögum, en
væringar hafa að undanförnu ver-
ið með Sýrlendingum og hægri
mönnum í Líbanon vegna vega-
tálmana sem hinir fyrrnefndu
höfðu komið upp í kringum bæki-
stöðvar Líbanonmannanna.
Gemayel, leiðtogi falangista, sak-
aði fimmtu herdeildarmenn og
erlendar leyniþjónustur um að
reyna að koma af stað nýju
borgarastriði í landinu, en
Khaddam utanrikisráðherra Sýr-
lands, sem staddur er í Kuwait,
kenndi Egyptum og‘ísraelsmönn-
um um þessi átök.
Þrír Palestínumenn sem Sýrlendingar handtóku í Líbanon eftir átök sl. þriðjudag.
Mennirnir voru sakaðir um að hafa rænt og myrt tveimur kristnum frænkum í þorpi
í Suður-Líbanon.
30 manns dóu í
bílslysi
Lima Perú, 8. febr. AP. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti
þrjátíu manns munu
hafa látið lífið í Perú á
mánudag er fólksflutn-
ingabifreið fór út af veg-
inum og lenti í Mataro-
ánni í Andesfjöllum. Síð-
degis í dag höfðu ekki
fundizt nema sjö lík og
aðeins einn maður mun
Perú
hafa komist lífs af,
tvítugur piltur, Milton
Esteban Castro. Hann
sagði fréttamönnum að
honum hefði tekizt að
komast út úr bílnum er
hann var að sökkva, en
síðan hefði hann borizt
langar leiðir niður eftir
ánni áður en honum
tókst að komast á land.
Ceausescu
Demantur á
880 mÚlj. kr.
DEMANTUR sem Richard
Burton gaf Elizabeth Taylor er
þau voru á brúðkaupsferðalagi
sfnu f Afrfku 1969 er nú til
sölu. Demanturinn er metinn á
fjórar milljónir dala, eða jafn-
virði um 880 milljóna íslenskra
króna, en hann er 69.42 karata.
Ágóðann af sölu demantsins
ætlar Elizabeth að nota til bygg-
ingar á barnasjúkrahúsi í Bots-
wana.
Burton keypti demantinn á
308 milljónir króna af skart-
gripasala í Bandarikjunum árið
1969. Demanturinn var skorinn
og slípaður þar, en hann fannst
í námu í Suður-Afriku 1966 og
vó þá 240.80 karöt.
Seljendur demantsins neit-
uðu í dag að segja hve mörg
tilboð hefðu borist í eðalstein-
inn, en frestur til að skila til-
boðum rennur út í þessari viku,
ef einhver skyldi hafa áhuga.
Pundið minnkar
London, 8. febrúar. AP
NÝIR einspundsseðlar verða
teknir í notkun í Bretlandi f dag.
Nýju seðlarnir eru einum og hálf-
um sentimetra styttri en þeir
gömlu og hálfum sentimetra
mjórri.
Talið er að nú séu í umferð um
800 milljónir af gömlu seðlunum
og er gert ráð fyrir að það muni
taka upp undir ár að innkalla þá
alla. Þangað til verða gamlir og
nýir seðlar jafngildir.
Aðalástæðan fyrir því að
ákveðið var að prenta nýja seðla
er su ao prentun þeirra er ódýran
en þeirra gömlu. Á framhlið nýju
seðlanna er mynd af Elísabetu
drottningu, eins og var á gömlu
seðlunum, en breytt hefur verið
um mynd á baksíðunni. í stað
skjaldarmerkis Bretlands er nú
komin mynd af visindamanninum
Isac Newton er uppi var á 18. öld.
Nýju seðlarnir eru gulir, grænir
og bláir á litinn.
Þess má geta að verðgildi
pundsins nú er 300 sinnum
minna, en það var á tímum New-
tons.
Ceausescu
til Banda-
ríkjanna
í vor
Vínarborg 8. febr. Reuter
NICOLAE Ceausescu, for-
seti Rúmeníu, mun fara í
heimsókn til Bandaríkj-
anna í vor, sennilega I
apríl, og eiga viðræður við
Jimmu Carter Bandaríkja-
forseta að því er dipló-
matískar heimildir greindu
frá í dag. Ceausescu fór
síðast í heimsókn til Banda-
ríkjanna fyrir þremur ár-
um. Hann er nú einnig að
undirbúa för til Peking og
ákveðin hefur verið ferð til
Bretlands í júní.
Helga Bachmann og Gunnar Eyjólfsson f hlutverkum Jóköstu
drottningar og Ödipusar konungs.
Odipus konung-
ur Sófóklesar
í Þjóðleikhúsinu
„ÞAÐ sem hefur staið í vegi
fyrir því, að Þjóðleikhúsið gæti
glímt við hin frægu grfsku leik-
húsverk, var skortur á þýðing-
um f bundnu máli, en nú hefur
Helgi Hálfdanarson þýtt Ödi-
pus konung eftir Sófókles, en
áður hefur Helgi þýtt annað
leikrit Sófóklesar, Antfgónu,
m Leikfélag Reykjavfkur
sýndi fyrir nokkrum árum,“
sagði Sveinn Einarsson þjóð-
leikhússtjóri í samtali við
Morgunblaðið um væntanlegá'
frumsýningu á Ödipusi í Þjóð-
leikhúsinu 17. febr. n.k. Eina
grfska leikhúsverkið sem hér
hefur verið sýnt, er gaman-
leikurinn Lýsistrada.
Helgi Skúlason er leikstjóri,
Gunnar Bjarnason gerir leik-
tjöld og Guðrún Svava Svavars-
dóttir gerði búninga verksins.
Helztu hlutverk leika Gunnar
Eyjólfsson, Helga Bachmann,
Rúrik Haraldsson og Valur
Gíslason, en alls koma um 30
leikarar fram í sýningunni.
Ödipus konungur telst til
öndvegisverka leikbókmennt-
anna og er þekktasta verk
Sófóklesar.
Drangsnes;
Minningarathöfn
um skipverja á
Pólstjörnunni
Drangsnesi, 8. febrúar.
LAUGARDAGINN 4. febrúar
sl. fór fram minningarguðs-
þjónusta á Drangsnesi um skip-
verjana tvo er fórust með
rækjubátnum Pólstjörnunni
17. desember sl., þá Jóhann
Snæfells og Loft Ingimundar-
son. Sóknarpresturinn sr.
Andrés Ólafsson flutti minn-
ingarræðu og fór með kveðju-
ljóð eftir Jörund Gestsson á
Hellu.
Karlakór Hólmavíkur söng
við athöfnina, og Ólafía Jóns-
dóttir lék á orgel. Fjölmenni
var við athöfnina þrátt fyrir
slæmt veður og margir voru
langt að komnir.
Bílfært er nú til Drangsness,
bæði um Selströnd og Bjarnar-
fjörð, en hálka er mikil á veg-
um. Rækjuveiðar fjögurra
Drangsnesbáta ganga vel og er
rækjan unnin í Hraðfyrstihúsi
Drangsnes hf. Ekkert sam-
komuhús er á Drangsnesi sem
stendur, en þorrablót er fyrir-
hugað að Laugarhóli í Bjarnar-
firði innan tiðar. __ Þórir
Rit um tékka og
notkun þeirra
SAMVINNUNEFND banka og
sparisjóða hefur í nfunda sinn
gefið út bækling er nefnist
Tékkar og notkun þeirra. Að
þessu sinni er hann gefinn út f
20 þúsund eintökum.
Bæklingurinn á að vera al-
menningi til upplýsingar um
tékka og notkun þeirra og mun
verða afhentur öllum nýjum
tékkareikningshöfum. Þá mun
hann einnig liggja frammi i af-
greiðslum banka, bankaútibúa
og sparisjóða. I bæklingnum,
sem er 12 síður í litlu broti, er
að finna alhliða leiðbeinar um
notkun tékka, opnun reikninga,
meóferð tékkaheftis, útgáfu
tékkanna og greint er frá lög-
um um misnotkun tékka.