Morgunblaðið - 12.02.1978, Qupperneq 1
48 SIÐUR
36. tbl. 65. árg. SUNNUDAGUR 12. FEBRUAR 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Gengisfelling norsku krónunnar:
Finnar fella niður
gengisskráningu
— Verðstöðvun í Noregi
Helsinki, Ösló. 11. feb.
AP — Reuter
Finnlandsbanki tilkynnti í dag að
Trélíkneski það sem hér sést
fannst síðastliðið sumar á
suðurströnd Baffinseyju.
Líkncskið sem talið cr vera frá
því á 13. öld. er fimm og hálfs
scntimctra langt, og af manni í
norrænum klæðum sem
heldur á krossi. Sérfræðingar
telja að fundur líkneskisins sé
fyrsta sönnun þess að norræn-
ir vfkingar hafi komizt til
Norður-Ameríku, en aðrir
telja líklegra að það hafi
borizt með Eskimóum til
Baffinseyjar. Það voru tveir
bandarískir fornleifafræðing-
ar sem fundu líkneskið en til
stendur að koma því fyrir í
þjóðminjasafni í Ottawa.
gengi erlendra gjaldmiðla yrði
ekki skráð á mánudag f framhaldi
af 8% gengisfellingu norsku
krónunnar.
Mauno Koivisto bankastjóri
Finnlandsbanka sagði i dag að
gengisfelling norsku krónunnar
muni án efa hafa áhrif á finnska
markið. Sagði hann að bankinn
mundi reyna að gera sér sem fyrst
grein fyrir hver þessi áhrif yrðu
og ákvarðanir teknar i framhaldi
þess.
Danskir fjármálasérfræðingar
sögðu á laugardagsmorgun að
ólíklegt væri að gengisfelling
norsku krónunnar mundi kalla á
gengisfellingu þeirrar dönsku i
það minnsta ekki i hráð.
í gærmorgun setti norska rikis-
stjórnin á verðstöðvun í landinu
til að takmarka áhrif gengis-
fellingar norsku krönunnar.
Tekur verðstöðvunin þegar gildi.
Myndin var tekin í Islamahad í Pakistan er leiðtogi herstjórnar
Pakistans, Zia hcrshöfðingi (til hægri). tekur á móti Behari.
utanríkismálaráðherra Indlands. en þeir áttu fund með sér í
Pakistan til að ræða um samskipti ríkjanna.
Vínarborg, Búkarest,
Kuwait, 11. febr. AP. Reuter.
ANWAR Sadat Egyptalandsfor-
seti kom til Salzburg í Austurrfki
árla laugardags og um hádegið
héldu þeir með sér „vinnumáls-
verð“ Sadat, Kreisky kanzlari
Austurrfkis og Simon Peres
leiðtogi ísraelsku stjórnarand-
stöðunnar en Kreiskv mun hafa
átt mestan þátt í að koma þeim
fundi á. Sadat hafði ekki nema
þriggja stunda viðdvöl í Austur-
ríki, en flaug þá áleiðis til
Rúmeníu þar sem mikill við-
búnaður var til að taka á móti
honum.
Sadat fór með þyrlu frá gisti-
húsi þvi í Berchtesgaden í Vestur-
Þýzkalandi til Klesheimkastala
skammt fyrir utan Salzburg þar
sem viðræðurnar voru haldnar.
Peres hafði verið á alþjóðaþingi
Jafnaðarmanna í Hamborg þegar
Harry Martins-
son léztígær
Stokkhólmi 11. feb. AP
SÆNSKI rit höfundurinn
Ilarry Martinsson lézt í
morgun, laugardag. Hann var
73 ára gamall. Martinsson fékk
Nóbelsverðlaunin í bókmennt-
um 1974 og dcildi þeim með
landa sínunt Eyvind Johnson.
Veitingin var umdeild og sætti
gagnrýni í Svíþjóð og sérstök
athygli var vakin á því að báðir
Nóbelshöfundarnir sætu í aka-
dentíunni. Eyvind Johnson
sagði þá í símtali við Mbl., að
hann minntist þess varla að
logn og friður hefði verið um
Nóbelsverðlaunaveitingar og
auk þess hefðu þeir Martinsson
oft komið fyrr til greina.
En Svíar virtu Martinsson þó
mjög fyrir ritstörf sin og að
makleikum. Hann var þekktur
bæði fyrir ljóð sín og skáld-
sögur. Martinsson var af
fátæku fólki kominn og það
setti mark á ritverk hans og þó
einkum framan af ævi. Meðal
bóka hans má nefna Resor utan
Mál frá 1932 og Kap Farvál sem
kom út árið eftir. Er af mörgum
litið svo á að frásagnarlist
Martinssons rikis hvað hæst í
þessum bókum. Hann vakti og
athygli á sér ungur fyrir ljóða-
gerð. Meðal þekktari verka
hans er Aniara frá 1956 þar
sem hann yrkir um geimskip á
leiðinni út í tómið.
1 grein sem Jóhann Hjálmars-
son skáld ritaði um Martinsson
í tilefni Nóbelsverðlaunanna
sagði hann í niðurlagi:
„Skáldverk Harry Martins-
son eru í rfkara mæli en verk
annarra sænskra skálda mótuð
af því lífi, sem hann hefur lifað
sjálfur, eigin reynslu. Þetta á
einkum við um æskúverk hans.
Með aldrinum hefur hann orðið
heimspekilega sinnaður, leitað
vizku í gömlum bókum. Það
Harry Martinsson
sem er kannski mest heillandi
við skáldskap hans eru
minningarnar frá farmennsku-
árunum. 1 þeim er hreint og
nærandi sjávarloft.“
Allmörg ljóð Martinssons
hafa verið þýdd á íslenzku og
ein skáldsaga eftir hann,
Netlurnar blómgasf, en hún
kom út hjá Almenna bókafélag-
inu árið 1957.
Sadat
fundurinn var ákveðinn. Sadat
sagði við komuna til kastalans að
þessi fundur væri góðs viti og
hann væri bjartsýnn og hann
kvaðst vonast til að senn kæmi að
því að lokatakmarkinu væri náð.
í fréttum frá Kuwait segir að
Framhald á bls. 47.
17 fórust
í flugslysi
Richland, II. fpb. Reuter. AP.
TVEGGJA hreyfla farþegavél
hrapaði til jarðar skömmu eftir
flugtak í Richland síðdegis á
föstudag og fórust með henni 17
manns. Ókunnugt er um orsakir
slyssins en sjónarvottar segja, að
svo hafi virzt sem flugvélin hafi
greinlega stöðvazt í klifrinu og
steypzt til jarðar.
Flugvélin, sem var af Beech-
craft-gerð, var í eigu Columbia-
Pacific flugfélagsins og var á leið
til Seattle er slysið varð. Hún var
fullhlaðin, þ.e. í henni voru 15
Framhald á bls. 47.
Sadat og Peres
ræddust við í gær
Egyþtalandsforseti hélt síðan til Rúmeníu
Dvalar-
met í
geimnum
Moskvu, 11. febrúar.
AP — Reuter.
SOVÉSKU geimfararnir Yuri
Romanenko og Georgy
Grechko settu skömmu eftir
miðnætti í nótt nýtt sovéskt
dvalarmet í geimnum. Hófst þá
þeirra 64. dagur um borð í
Salyut-6 geimvísindastöðinni,
en fyrra met sovéskra geim-
fara var 62 dagar, 23 klukku-
stundir og 20 mfnútur. Til að
slá met bandarfskra geimfara,
sem er 84 dagar, verða þeir
Romanenko og Grechko að
dvelja a.m.k. þrjár vikur í
geimnum í viðbót. Talið er að
eitt af markmiðum ferðar
þeirra sé að slá dvalarmet
Bandaríkjamanna í geimnum.
Utanríkis-
ráðherra
Sýrlands
til Beirut
Beirut. Sidon 11. febr.
Reuter AP.
UTANRÍKISRAÐHERRA Sýr-
lands, Abdel Ilalim Khaddam,
var væntanlegur til Beirut sfðdeg-
is á laugardag til viðræðna við
ráðamenn þar og er stefnt að því
að reyna að stöðva átökin sem
hafa orðið milli sýrlenzkra og
líbanskra hersveita en í bardög-
um þeini hafa hátt í 200 manns
látizt á fjórum dögum.
Framhald á bls. 47.
Los Angeles:
17 látnir, 400
heimilislausir
Los Angeles, 11. feb.
Reuter.
BJÖRGUNARMENN leita nú 9
manna sem saknað er eftir miklar
rigningar sem valdið hafa miklu
tjóni hér. Er veðrið hið mesta
sem dunið hefur yfir Los Angeles
á öldinni. Óttazt er, að 17 manns
hafi farizt og 400 hafa misst heim-
ili sín í vatnselgnum. Veðurfræð-
ingar segja að hætta sé á meira
vatnsveðri um helgina.
Hvassviðri mikið af hafi, vind-
hraði um 130 km/klst., og 8 senti-
metra úrkonta hafa valdið gífur-
Framhald á bls. 47.