Morgunblaðið - 14.02.1978, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 14.02.1978, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRUAR 1978 Járnblendiverksmiðjan við Grundartanga heimsótt: „Þriðjungi framkvæmda þegarlokið” Morgunhlaðinu gafst í s.l. viku tækifæri til að kynnast þeim framkvæmdum sem nú fara fram við járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga í Hvalfirði, en um þessar mundir er um þriðjungi framkvæmda þar lokið. Við þefta tækifæri kynnti Jón Sigurðsson framkvæmdastjóri verksmiðjunnar nokkuð ýmsa þætti svo sem aðdraganda að stofnun verksmiðjunnar, aðstöðu ísiands sem framleiðanda á járnblendi, stað- arval verksmiðjunnar, Grundartangahöfn, fjármögn- un og ýmsa aðra þætti. Þá sagði Jón Sigurðsson m.a.: Upphaflega var ætlunin að reisa kísiljárnverksmiðjuna í samvinnu við bandaríska fyrir- tækið Union Carbide Corporation. Er undirbúningur að þeirri byggingu var nokkuð á veg kominn, dró þetta fyrir- tæki sig hins vegar í hlé. ts- lenska járnblendifélagið hafði þá þegar verið stofnað sam- kvæmt sérstökum heimildar- lögum þar um, en Union Carbide hvarf frá aðild að þvi og greiddi skaðabætur vegna þeirrar riftunar á samningum til bótagreiðslna vegna riftunar ásamningum félagsins við Landsvirkjun um orkusölu. Það var síðan vorið la76, að hafnar voru viðræður við norska fyrirtækið Elkem- Spigerverket a/s um þátttöku þess í íslenska járnblendifélag- inu hf. sem hluthafa á móti ríkinu og var samningum um slíka samvinnu lokið að áskildu samþykki Alþingis í árslok 1976. Heimildarlögin, sem stað- festa aðalsamning ríkisstjórn- arinnar og Elkem-Spigerverket voru síðan samþykkt á Alþingi vorð 1977. Elkem-Spigerverket a/s var stofnað árið 1972 með samruna tveggja gamalla og gróinna fyrirtækja, Kristiania Spiger- verk, sem stofnað var 1853 og Elkem a/s, sem stofnað var 1904. Hið sameinaða fyrirtæki er hlutafélag með hlutabréf að nafnverði 195 milljónir norskra króna. Hlutafjáreign í félaginu er mjög dreifð, hluthafar eru um 15000 talsins. Nær allir hluthafar eru norskir og er tal- ið að um 9% hlutafjárins sé í eigu aðila, að mestum hluta fyrirtækja, sem skrásett eru í Noregi, en að nokkru leyti í eigu útlendra aðila. Elkem-Spigerverket fæst við fjölbreyttan atvinnurekstur, að verulegu leyti í járn- og stáliðn- aði, en einnig við álframleiðslu, framleiðslu ýmissa neytenda- vara eins og verkfæra, lása og annarra járnvara, einangrunar- efnis, trefjaglervara o.fl., auk þess sem fyrirtækið rekur nokkurn námugröft og fram- leiðslu og sölu á bræðsluofnum Unnið að framkvæmdum við Járnblendivcrksmiðjuna á Grundartanga. í þungaiðnaði. Arssala fyrir- tækisins er hálfur þriðji mill- jarður norskra króna og hefur málmablendi af ýmsu tagi lengst af verið stærsti þáttur þeirrar sölu. Hjá félaginu starfa rúmlega 9000 manns á 30 verksmiðjustöðum. Hlutafé Islenska járnblendi- félagsins hf. er ákveðið jafn- virói 24 milljóna bandaríkja- dollara og er eignarhluti ís- lenska ríkisins 55% af því, en hluti Elkem-Spigerverket 45%. Járnbelndifélaginu er ætlað að hafa með höndum fram- leiðslu á kísíljárni og tengdan atvinnurekstur. Kísiljárn er ein af mörgum tegundum málm- blendis, sem notað er í alls kyns málmiðnaði til framleiðslu á mismunandi málmblöndum til ýmissa nota. Járnblendi- er mjög orkufrekt í framleiðslu og þarf 9—10 þúsund kílówatt- stundir af raforku til að fram- leiða hvert tonn af kísiljárni. Raforka á tiltölulega hagstæðu verði er því forsenda fyrir kísil- járniðnaði. Kísiljárn er meðal tiltölulega fárra efna, sem eru svo orkufrek í framleiðslu og koma þess vegna til álita, þegar sú stefna verður uppi hér í landinu að nýta orkulinir þess til framleiðslu útflutningsvara. í rauninni er framleiðsla og út- flutningur kfsiljárns þannig fyrst og fremst aðferð til að flytja út orku. Til þessarar framleiðslu hef- ur ísland i rauninni ekki upp á neitt annað áð bjóða en orkuna. Orkuverðið verður þar á ofan að vera lægra en gerist i ná- grannalöndunum til að bera uppi það óhagræði og kostnað, sem stafar af fjarlægð landsins frá hráefnalindum og markaðs- svæðum þessarar vöru. i greinargerð með frumvarpi til Iaga um járnblendiverk- smiðju í Hvalfirði, sem var til meðferðar 1974/75 kemur fram, að ein af ástæðunum til þess að kísiljárn var valið sem aðferð til að flytja út orku var á þeim tíma sú, að álverið í Straumsvík var þegar til í land- inu og þótti æskílegt, að orku- frekur útflutningsiðnaður sé af' fleiri en einni tegung. Annað mikilvægt atriði, þegar járn- blendiiðnaður var á þessum tíma tekinn fram yfir frekari áliðnað var sú staðreynd, að orkueftirspurnarkröfur járn- blendiiðnaðar eru ekki eins strangar og áliðnaðar. Þannig getur járnblendi að talsverðu leyti nýtt afgangsorku, sem á hverjum tíma er fyrir hendi í orkuveitukerfinu. Því er orku- sala raforkukerfisins til beggja þessara framleiðslugreina sam- hliða talin hagstæð. Járnblendifélagið hefur gert samning við Landsvirkjun um kaup á raforku. Gert er ráð fyrir 68 MW afli að meðaltali, þegar verksmiðjan er komin að fullu í rekstur og 550 GWst orku á ári. Af þessari orku er gert ráð fyrir 306GW st af- gangsorku, en 244 GWst grunn- orku. Til samanburðar tekur ál- verið í Straumsvík 140 MW og um 1100 GWst á ári, allt grunn- orku. í greinargerð með upphaf- lega frumvarpinu um þessa verksmiðju var við staðarval hennar gengið út frá þeirri for- sendu, að orkufrekur iðnaður, sem nýtti orku frá Sigöldu, hlyti að verða suðvestanlands. Síðan voru gerðar samanburð- arathuganir á fjórum stöðum Framhald á bls. 33. Starfsmenn ánægðir með vinnuaðstöðuna A VINNUSVÆÐINU við járn- blendiverksmiðjuna hitti Morgunblaðið fyrir þrjá unga menn. Sigurð Arnar Sigurðs- son, Guðmund Inga Gunnars- son og Sverrir Valsson og innti þá eftir þ\ í hvernig háttað væri vinnuaðstöðu og vinnu almennt þar. Voru þeir félagarnir sam- mála um að vinnuaðstaða væri öll með ágætasta möti, þó segja mætti að meira af vcrkfærum og tækjum mætti vera, því stundum kæmi sú slaða upp t.d. hjá þeim, að þcir þyrftu að bíða þö nokkurn tíma eftir þ\í að geta haldið áfram. Þá sögðu þeir félagar jafnframt að starfsmannaskálar væru ágadir svo og mötunevtið á staðnum. - Það eina seni félagarnir kvörtuðu yfir var það að æði olt væru þarna á vinnusvæðinu mjög leiðinlegt veður, kuldi og há\ aðarok. Félagarnir Sigurður Arnar Sigurðsson, Guðmundur Ingi Gunnars- son og Sverrir Valsson. Allt ad 20000 tonna skip munu geta lagzt ad í Grundartangahöfn Hér munu geta lagzt að allt að 20000 tonna skip. t SAMBANDI við bygg- ingu verksmiðjunnar er stöðugt unnið að hafnar- framkvæmdum á vegum Hafnarmálastofnunar á Grundartanga sjálfum, en Grundartangahöfn er þó álveg sjálfstætt fvrirtæki sem á engan hátt tengist framkvæmdum við Járn- blendiverksmiðjuna sjálfa. Þar hittum við fyrir Jön Guðmundsson frá Hafnarmálastjórn og báð- um hann að lýsa þessum framkvæmdum. „Hafnarbakkar verða tveir, einn 120 metra lang- ur bakki móti norð-austri, þar sem dýpi verður 7.5 metrar, miðað við meðal stórstraumsfjöru og 55 metra langur bakki mót suðaustri þar sem dýpi verður 10 metrar. Við norðaustur-bakkann geta lagzt skip að stærð allt að 6000 DWT, en að hinum skip allt að 20000 DWT, þó er gert ráð fyrir að lengja megi SA-bakkann um allt að 200 metrum og hafa dýpi fyrir skip allt að 40000 DWT, ef þörf yrði fyrir slíkt. Aætlað er að þessum framkvæmdum l.júki i lok þessa árs,“ sagði Jón. Hafnarbakkarnir eru stálþilsbakkar og fara um þaö bil 1000 tonn af stáli i þá. Ofan á stálþilið veröur steyptur kantur og undir- staða fyrir spor hafnar- krana. Ergert ráð fyrir að í það fari um 1400 rúmmetr- ar af steypu og um 70 tonn af steypustyrktarstáli. Magn fyllingarefnis i hafn- argarðinum er um 120000 rúmmetrar af möl og um 18000 rúmmetrar af sprengdu grjóti. Byggt verður hafnarhús um 150 fermetrar að flatar- máli, þar sem hafnarstarfs- menn munu hafa aðstöðu. Þar verður einnig aðstaða fyrir toll og lögreglu. Heildarkostnaður við hafnarmannvirkin var áætlaður um 600 milljónir króna þegar framkvæmdir hófust í maí 1977, en í dag hljóðar áætlunin upp á 700 milljónir króna á verðlagi miðað við janúar 1978.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.