Morgunblaðið - 14.02.1978, Side 19

Morgunblaðið - 14.02.1978, Side 19
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRUAR 1978 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRUAR 1978 27 lltagfiitltftifeife Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar R itst jórna rf u lltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson Bjöm Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 1 700.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90.00 kr. eintakið J Höldum sama kaupmætti Þeir, sem hafa fylgzt með skrifum Morgunblaðsins um efnahagsmál frá þvl kaupgjaldssamningarnir voru gerðir í fyrrasumar, vita að efna- hagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar nú koma blaðinu engan veginn á óvart. Það var Ijóst þegar I upphafi, að samningarnir stæðust ekki án verulegra hækkana á íslenzkum fiskafurðum erlendis, en þær hækkanir hafa ekki orðið og þvf augljóst mál, að nauðsynlegt var að grípa í taumana, áður en við stæðum enn einu sinni andspænis rekstrarstöðvun, sem leiða mundi af sér mikinn samdrátt og ófyrirsjáanlegt atvinnuleysi. eins og nágrannaþjóðirnar hafa mátt reyna. Morgunblaðið benti á, að 60% kaupgjaldssamningar við launastéttirnar ættu eftir að draga dilk á eftir sér, hvað þá þegar samið var um allt að 76% kauphækkun opinberum starfsmönnum til handa Oft hefur verið bent á, að engin þjóð þolir slíkar kaupgjaldshækkanir og til samanburðar hafa m.a. verið tekin hér í blaðinu dæmi frá Sviþjóð, þar sem stjórnvöld telja ástandið þannig, að ekki sé unnt að veita kaupgjaldshækkanir, en verkalýðssamtökin krefjast 2% hækkana, miðað við 60—80% hér á landi! í fyrrasumar var að sjálfsögðu reynt að koma þvi inn hjá almenningi. að Morgunblaðið væri andsnúið hagsmunum launþega vegna þess að það reyndi að gera sér grein fyrir því, hvað verða mundi, horfði raunsæjum augum á þróunina og keypti sér ekki stundarvinsældir með þvi að vara ekki við þeim erfiðleikum, sem við blöstu. Þá var ennfremur — og ekki siður — reynt að ala á óánægju með Morgunblaðið i röðum opinberra starfsmanna, þegar blaðið benti á nokkrar augljósar staðreyndir og reyndi eins og i fyrri samningunum að leggja höfuðáherzlu á kauphækkanir þeirra, sem taka lægri laun en „topparnir", en þessi láglaunstefna náði i hvorugum tilfellunum fram að ganga — og það er ein af ástæðunum fyrir þvi. hvernig nú er komið. Sumir virtust jafnvel helzt vera þeirrar skoðunar, að unnt væri að leysa launamálin með fjandskap við Morgunblaðið, en nú eru þeir væntanlega komnir á aðra skoðun! Blaðið hefur ekki gert annað en að vara við óheillaþróun. Það hefur reynt að hvetja menn til að gera raunhæfa samninga. sem geti staðizt launafólki öllu til gagns og framdráttar. En það verður ekki gert með 60—80% kaupgjaldshækkunum. allra sízt þegar þær eiga ekki bakhjarl í miklum verðhækkunum islenzkra afurða á erlendum mörkuðum. En nú stöndum við ekki með alla sjóði tóma, 50—60% verðbólgu og hrunið efnahagslíf, eins og þegar Vinstri stjórnin kom fram með efnahagstil- lögur sinar 1974. Þá var stefnt að óhjákvæmilegri mikilli kjaraskerðingu vegna efnahagsástandsins i landinu, en nú er að þvi unnið að halda i horfinu. Og í raun og veru er ástæða til að ætla, að við getum haldið i horfinu, ef spyrnt verður við fótum og við afsölum okkur þeim umframtekjum. sem efnahagslífið hefur ekki bolmagn til að greiða. Þetta ætti ekki að vera of mikil fórn i landi, þar sem svo vel árar og hagsæld fólks er jafn mikil eins og hér á íslandi. Við höfum ekki efni á því að hér fari allt í kalda kol. En við höfum aftur á móti vel efni á þvi að fórna einhverju, svo að við getum haldið rauntekjum heimilanna og verndað kaupmáttinn. sem hefur aukizt verulega á siðasta ári. þrátt fyrir ranga kjarasamninga og aukna verðbólgu. Við getum haldið Í horfinu vegna þess, að ástandið i þjóðfélaginu er nú betra en var t.a.m. '74 og kjaraskerðing á ekki að þurfa að verða eins tilfinnanleg og þá. Munurinn á ástandinu nú og 1974 er m.a. sá, að Vinstri stjórnin tók við mjög góðu búi af Viðreisnarstjóm Jóhanns Hafsteins, en lengst af á viðreisnarstjórnartímabilinu var verðbólgunni að miklu leyti haldið i skefjum. eins og kunnugt er, og hún blossaði ekki upp fyrr en i tið Vinstri stjórnarinnar. Þá var verðbólgan hér á landi að nálgast heimsmet eins og kunnugt er. Núverandi ríkisstjórn tók aftur á móti við tómum sjóðum og grfurlegri verðbólgu eins og allir muna. Á þvi kjörtimabili, sem senn er að Ijúka, hefur tekizt að minnka verðbólguna um helming, enda þótt hún sé nú enn á uppleið, eins og fyrr segir. Þó að ríkisstjóminni hafi ekki tekizt það, sem hún ætlaði sér i upphafi, þ.e. að vinna bug á verðbólgunni verðum við að viðurkenna, að það hefur verið verulegt spor i rétta átt að koma henni undir 30%. Og ef ráðstafanir i efnahagsmálum nú bera þann árangur, sem vonazt er til. ætti að vera unnt að stöðva nýja verðbólguöldu og halda i horfinu. Það sem er nýjast i tillögum ríkistjórnarinnar er sú ákvörðun að afnema ekki vísitölubæturnar, eins og Vinstri stjórnin gerði á sinum tíma, heldur að láta grunnkaupshækkanir halda sér og helminginn af þeirri kaupgjaldsvísi- tölu, sem ráð var fyrir gert. Enda þótt það sé ávallt slæmt að þurfa að ógilda einhverja þætti kaupgjaldssamninga, er með þessu reynt að taka tillit til þess óumdeilanlega réttar. sem launþegar og raunar vinnuveitendur hafa og nefnt hefur verið: „Frjáls samningsréttur". Launþegasamtök, sem gripu ekki til neinna aðgerða 1974, hljóta þó að fagna þvi, að efnahagsástandið er ekki verra nú en svo, að unnt er að fara þessa leið og taka þannig tillit til gerðra samninga Rfkisstjórnin hefur farið með löndum til að geta haldið í horfinu Þeir, sem tekjulægstir eru, verða verndaðir skv. frumvarpinu, þannig að skerðing verðbóta leggst léttar á þá en aðra launþega. Þetta er enn eitt nýmæli. í aths. frv. segir: „Með lágmarksverðbótaákvæði i 2. gr. er svo komið i veg fyrir að skerðing verðbóta skv. 1. gr. komi fram af fullum þunga gagnvart hinum tekjulægri i hópi launþega, sem aðallega hafa tekjur af dagvinnu einni saman. Þannig verður hækkun lægstu kauptaxta 1. marz, ef eingöngu er unnin dagvinna, rúmlega 8% miðað við að verðbótavisitalan hækki um 10%, og hækkun meðaldagvinnukauptaxta verkafólks verður um 7Vi%. Hækkun allra annarra launa verðurá bilinu 5—7Vi% 1. marz" Til hinna tekjulægstu er þannig tekið sérstakt tillit og hefði mátt gera það fyrr. Þá er það einnig nýmæli að stefna að þvi að taka óbeina skatta út úr vísitölunni frá næstu áramótum og lækka voruqjald um 2%-stig, en hvort- tveggja eru nýjungar sem vonandi gefa góða raun, ef samþykktar verða. í ráði er svo að afnema vörugjaldið Gengisfelling er i senn gamalt úrræði og óvinsælt. En ríkari þjóðir en Islendingar hafa þurft að gripa til þeirra, s.s. Norðurlandaþjóðir og Bretar, en brezka pundið hrundi ekki alls fyrir longu, eins og menn muna Rikisstjórnin taldi sér ekki annað fært en færa gengi íslenzku krónunnar til raunverulegs verðs, svo að útflutningsframleiðsluvegir okkar geti borið sig. Það hlýtur fyrst og siðast að vera hagsmunamál launþega að tryggja næga atvinnu í landinu með þvi að koma í veg fyrir stöðvun atvinnufyrirtækja og atvinnu leysi. Ef ekkert hefði verið að gert, þá hefði fiskiðnaðurinn smátt og smátt stöðvazt og atvinnuleysi orðið. Að þessu leyti þurfum við einnig að halda i horfinu, þ.e. að tryggja útflutningsfyrirtækjunum rekstrargrundvöll og al þýðu manna i landinu næga atvinnu. Mað efnahagsaðgerðum ríkisstjórnar innar nú ætti það að vera hægt. Það er kjarni málsins. En til þess verða launþegar að sætta sig við óbreytt lífskjör út þetta ár. Rök hafa verið færð fyrir þvi, að ekki sé grundvöllur fyrir frekari kjarabótum að sinni. í staðinn fyrir miklar kjaraskerðingar 1974 er nú reynt að tryggja kaupmáttinn, sem fyrir er. Vonandi tekur verkalýðsforystan þátt í þeirri tryggingarstarfsemi, enda hefur kaupmátturinn hér aldrei verið meiri en meðaltalskaupmáttur s.l. árs. Reykjavíkurskákmótið; Larsen er efstur með 6/2 vinníng BENT Larsen hefur nú tekið forystu á Reykjavík- urskákmótinu og er kom- inn með 6‘A vinning eftir 9 umferðir, Miles er með 6 vinninga, þá kemur Hort með 5lA vinning, Friðrik er með 5 vinninga, Browne og Polugaevsky eru með 4'A, þá kemur Lombardy með 4 vinninga, Smejkal er með 3 lA, Guðmundur, Helgi, Kuzmin og Ögaard eru aíl- ir með 3 vinninga, síðan kemur Jón L. með 2A vinn- ing og Margeir er með 2 vinninga. Attunda og níunda umferð Reykjavíkurskákmótsins voru tefldar um helgina og kom oft til mikilla sviptinga í skákunum, eins og i fyrri umferðum, sérstak- lega þegar nálgaðist fyrir tíma- mörkin. A laugardag urðu úrslitin þau, að skák Browne og Lombar- dy fór í bið, sem Lombardy vann síðan á sunnudagskvöid. Jón L. og Helgi sömdu um jafntefli eftir aðeins 40 mínútna tafl, skák Miles og Friðriks fór í bið, en stórmeist- ararnir sættust síðan á jafntefli án þess að tefla skákina frekar, Smejkal vann Margeir, Hort vann Guðmund og Ögaard og Larsen sömdu um jafntefli, og ennfrem- ur Polugaevsky og Kuzmin. I áttundu umferð, sem tefld var á sunnudag, gerðu Kuzmin og Smejkal jafntefli, sömuleiðis Friðrik og Polugaevsky, Helgi og Miles, Lombardy vann Jón L., Larsen vann Browne og Hort vann Ögaard, þeir Guðmundur og Margeir sömdu um jafntefli. Fyrsta stórmeistara- jafnteflið Ahorfendur urðu á fimmta hundrað á Loftleiðahótelinu á laugardag, en ekki voru margir komnir þegar fyrstu skákinni lauk, en það var skák Jóns L. Arnasonar og Helga Ólafssonar. Endaði hún með jafntefli eftir aðeins 17 ieiki og var sagt að þetta væri fyrsta stórmeistarajafntefli mótsins. Þegar Helgi kom úr keppnissalnum var hann spurður hvers vegna þeir hefðu ekki hald- ið lengur áfram. „Vorum búnir að tefla þessa skák áður,“ svaraði hann að bragði. Helgi tók strax til óspilltra mála við að athuga biðskák sína við Browne, en hann hafði ivið betri Nœr Helgi alþjóðlegum meistara- titli? stöðu þegar skákin fór i bið. Helga tók'st þó ekki að knýja fram vinning, og sætti sig við jafntefli. Hins vegar er sagt að Browne hafi átt verr með að sætta sig við jafn- teflið og verið frekar óhress, þeg- ar hann stóð upp frá borðinu. Friðrik bjargaði í horn Miles hafði hvítt á móti Friðrik i 7. umferðinni og náði fljótlega rýmri stöðu og miklum sóknar- möguléikum, engu að síður var staða svarts nokkuð traust, þar til Miles lék h4 og þá var eins og svarta staðan ætlaði að hrynja til grunna. Þegar þessi leikur kom, voru aðeins búnir 9 leikir af skák- inni og Friðrik hugsaði sig um í 30. mínútur fyrir næsta leik og lék þá leik sem flestir sættu sig við. Þegar leið á skákina tókst Friðrik að knýja hvítan til upp- skipta, en hann hafði áður fórnað riddara. Eftir öll uppskiptin fékk Friðrik riddarann aftur en hafði engu að síður tveimur peðum minna, en nú var komið að Miles að leika illa. Friðrik lék nú mjög nákvæmlega og skyndilega hafði hann jafnað metin og náð peðun- um aftur og nokkru síðar var hann kominn með peði meira en Miles. Menn fóru nú að hallast að því, að Friðrik ætti vinnings- möguleika í skákinni, en þegar skákin fór í bið var staðan mjög jöfn og án þess að setjast til að tefla biðskákina sömdu stórmeist- ararnir um jafntefli. 3 jafntefli úr 4 skákum Það voru margir sem fylgdust með þeim Ögaard og Larsen og áttu flestir von á að Larsen myndi eiga auðvelt með að ná vinningi af Norðmanninum unga, en Ögaard var á annarri skoðun. Um tíma hafði hann rýmra tafl en Larsen, en Larsen tókst að verjast öllum hótunum, og að lokum var samið um jafntefli. „Þetta er í fjórða sinn, sem ég tefli við Larsen á mótum,“ sagði Ögaard að lokinni skákinni, „þrisvar hefur verið samið um jafntefli, en einu sinni hef ég tapað. Þegar ég hef náð jafntefli við hann hef ég verið með hvítt. Annars er Larsen alltaf hættuleg- ur, það skiptir engu hvort hann beitir hvítu mönnunum eða þeim svörtu.“ Gott mót — góð verðlaun Aðspurður sagði ögaard, að hann kynni nokkuð vel við hið nýja keppnisfyrirkomulag, sem gilti á Reykjavíkurmótinu, og þegar hann væri orðinn vanur þessu fyrirkomulagi, ætti árangur að verða enn betri og eins skák- irnar. „Ég hef tekið þátt í mörgum mótum heima í Noregi að undan- förnu, en þar er nú skákáhugi mjög vaxandi og margir efnilegir unglingar hafa þar litið dagsins ljós. Mótið hér í Reykjavík er það sterkasta, sem ég hef tekið þátt í, fyrir utan skákmótið á Manilla á Filipseyjum. Það eru 4 ár liðin síðan ég varð alþjóðlegur meist- ari, en siðan hefur árangurinn verið upp og ofan. Að sjálfsögðu vonast ég til að ná góðum árangri á mótinu hér í Reykjavík, en engu að siður á ég von á að þetta mót sé of sterkt til þess að ég geti bland- að mér í röð efstu manna,“ sagði Ögaard. £ Þeir Friðrik Ólafsson og Bent Larsen hafa komið mikið við sögu á Reykjavíkur- skákmótinu, og virðast báðir vera I góðu formi þessa dagana. Þeir hafa oft teflt saman og samanlagt hefur Friðrik betra vinningshlutfall. Myndirnar tvær, sem hér eru birtar, eru teknar með 23 ára millihili. Þá eldri tók Ól.K.M. árið 1955 þegar Larsen hafði sigrað í einvígi þeirra félaga um Norðurlandameistaratitilinn í skák, en einvígið fór fram í Sjómannaskólanum. Þá voru þeir Friðrik og Larsen báðir tvítugir. Nýrri m.vndina tók Ólafur K. Magnússon á Reykjavíkurskákmótinu á laugardag. Friðrik fylgist þarna með Larsen, þegar hann teflir við Norðmanninn Ögaard. Nær Helgi titli alþjóðameistara? Helgi Ólafsson tefldi á móti Miles á sunnudag og var alls óhræddur við hinn unga enska stórmeistara — Miles er næst yngsti stórmeistari í heiminum. Fékk Helgi fljótlega rýmri stöðu og þegar upp var staðið var Helgi peði yfir Miles, en það dugði hon- um ekki til vinnings. Helgi er nú kominn með 3 vinninga eftir átta umferðir. Hann á því möguleika á að hljóta alþjóðlegan meistaratitil á þessu móti, en til þess þarf hann 5lA vinning, eða 2‘A vinning til viðbótar í siðustu 5 umferðunum. Larsen yfir- spilaði Browne Larsen sýndi enn einu sinni, að hann er í miklu stuði þessa dag- ana, er hann tefldi við Browne á sunnudag, og fátt eitt getur nú komið í veg fyrir að hann verði í röð efstu manna eða efstur á þessu móti. Larsen tefldi rólega sókn á móti Browne, sem reyndi að koma góðri vörn við. Hægt og bitandi braut Daninn niður allar varnir Bandaríkjamannsins og gafst Browne upp eftir 50 leiki. Browne reyndi lengi að þrjóskast við, og gaf ekki skákina fyrr en 2—3 leikir voru í mátið. Það er ekki hægt að segja að Guðmundur Sigurjónsson sé í miklu stuði á þessu móti. Hann er nú kominn með 3 vinninga ásamt þeim Kuzmin, Helga Ólafssyni og Ögaard. Guðmundur gerði jafn- tefli við Margeir á sunnudag, og komst hvorugur langt áleiðis í skákinni. Níunda umferð Reykjavíkur- skákmótsins verður tefld á Hótel Loftleiðum í dag kl. 18. Þá eigast við Browne og Hort, Jón L. Arna- son og Larsen, Miles og Lom- bardy, Helgi og Polugaevsky, Smejkal og Friðrik, Margeir og Kuzmin og Ögaard og Guðmund- ur. Þ.Ó. Rafmagnað loft Það fór ekki milli mála hvaða skák var veitt mest athygli í 8. umferðinni, sem tefld var á sunnudag, en það var skák Frið- riks Ólafssonar og Polugaevsky. Friðrik hafði hvítt og upp kom Najdorf-Polugaevsky afbrigði af Sikileyjarvörn. Öllum á óvart kom fljótlega að því, að Friðrik fórnaði riddara. „Hvað er maður- inn að storka Polugaevsky, mann- inum sem þessi vörn er m.a. kennd við,“ sagði einhver. En það kom í ljós að fórn Friðriks var djúpt hugsuð og tilgangurinn kom smátt og smátt i ljós. Staðan varð fljótt í miklu uppnámi og kóngsstaða svarts varð mjög veik. Polugaevsky rataði þó alltaf á réttu leikina, og að lokum fórnaði hann drottningunni fyrir hrók og biskup, og hafði fyrir riddarann, sem Friðrik fórnaði, þannig að nú komst staðan í nokkurt jafnvægi. Þegar leiknir höfðu verið 32 leik- ir í þessari æsispennandi skák, sömdu kapparnir um jafntefli. Þá hafði Friðrik drottninguna á móti tveimur hrókum og einu peði meira. Eftir skákina sagðist hann vissulega hafa getað teflt eitthvað áfram, en vinningur hefði vérið langsóttur. Á sjötta hundrað manns voru i Loftleiðahótelinu á sunnudag og fylgdust með skákinni og hafa áhorfendur aldrei verið fleiri, það sem af er mótinu. A meðan skák Friðriks og Polugaevskys stóð yf- ir, má segja að loftið í húsinu hafi verið rafmagnað, þrátt fyrir að sum skákséníin væru búin að spá jafntefli þegar í byrjun skákar- innar. „Eg átti alls ekki von á þessari riddarafórn Friðriks, satt að segja bjóst ég við öllum öðrum leikjum í stöðunni," sagði Lev Poluga- evsky þegar við hittum hann að máli er hann var farinn að slappa af eftir átökin við Friðrik. „Ég þurfti sífellt að klóra í bakkann í þessari skák og alltaf tókst mér að hitta á réttu Ieikina en það var hreint ekkert gaman að vera með kónginn svona berskjaldaðan. Skákin var skemmtilega tefld hjá Friðrik." Þegar Polugaevsky var spurður hvort hann væri farinn að kunna við hin nýju tímatakmörk, sem gilda á mótinu, sagði hann, að hann hefði gert of mörg mistök til þess að hann gæti verið ánægður með þau. Loðnuaflinn 141 þús. lestir á laugardag Gísli Árni RE kominn með 6700 lestir Ný frímerki Ungmennafélagið Reykdælir: Sýnir Klukkustrengi Jökuls Jakobssonar að Logalandi Heildarloðnuaflinn var orðinn 141.813 lestir sl. laugardagskvöld, en á sama tíma f fyrra var heild- araflinn 200.852 lestir. Sam- kvæmt skýrslu Fiskifélags Is- lands var vitað um 65 skip sem fengið höfðu einhvern afla á laug- ardagskvöld og í síðustu viku öfI- uðust alls 60.241 lest af loðnu. Þá segir að á sama tfma í fyrra hafi 73 skip verið búin að fá einhvérn afla. Aflahæstu loðnuskipin í viku- lokin voru þessi: Gísli Árni RE 6742 lestir, Börkur NK 6074 lest- ir, Örn KE 5925 lestir, Grindvík- ingur GK 5412 lestir og Víkingur AK5262 lestir. Loðnu hefur nú verið landað á 15 stöðum, auk bræðsluskipsins Norglobal. Mestu hefur verið landað í Siglufirði, samtals 32. 544 lestum, og þá kemur Raufar- höfn með 22.304 lestir. Meðfylgjandi er skýrsla yfir þá báta, sem fengið hafa einhvern afla, svo og skýrsla yfir löndunar- hafnir. Gísli Arni RE 375 ................ 6742 Börkur NK 122 .................... 6074 örn KE 13 ........................ 5925 Grindvíkingur GK 606 ...............5412 Vlkingur AK 100.....................5262 Pétur Jónsson RE 69 ................4802 Gullberg VE 292 ....................4511 tsafold HG 209 4247 Öskar Halldérsson RE157 ...$1.......4074 Harpa RE 342 ................... 3924 Alberf GK 31 ................... 3825 Guðmundur RE 29 .................. 3597 Huginn VE 55 ..................... 3577 Loftur Baldvinsson EA 25 ...........3530 Skarðsvfk SH 205 ............... 3503 Súlan EA 300 .......................3462 Eldborg GK 13.......................3394 HilmirSU líl ................... 3339 Breki VE 61 ........................3304 Þórshamai GK 75 .................. 3276 Húnaröst AR 150 .................. 3052 Kap II VE 4 ...................... 2964 StapavíkSI4 ........................2732 Rauðsey AK 14 ......................2590 Hákon ÞH 250 ...................... 2622 HelgaH RE373........................2573 Hrafn GK 12 ....................... 2571 Náttfari ÞH 60 ................... 2221 Isleifur VE 63 .....................2061 Fífill GK 54 .......................2053 Arsæll KE 17 ..................... 1934 Þórður Jónasson EA 350 ........... 1894 Sandafell GK 82 .....................1819 Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 ....... 1765 Svanur RE45..........................1548 Bjarni ölafsson AK 70 ...............1413 Magnús NK 72.........................1412 VikurbergGK 1........................1408 Narfi RE 13..........................1401 Faxi GK 44 ..........................1398 HelgaGuðmundsdóttir BA 77 .......... 1369 Frevja RE 38 ..................... 1268 Sigurbjörg OF 1 .....................1185 Skírnir AK 16 .......................1109 Arne.v KE 50 ....................... 1059 Guðmundur Kristinn SU 404 ............865 Vörður ÞH 4...........................685 Jón Finnsson GK 506 ................ 647 Gjafar VE 600 ...................... 633 Arnarnes HF 52 .......................610 Ljósfari RE 102 ..............i.......581 Gunnar Jónsson VE 555 ............... 550 Andvari VE 100..........j.yi...... 534 Helga RE 49........................ 488 ölafur Magnússon EA 250 .......... 485 Bergur II VE 144 ................. 400 Eyjaver VE 7 ........................ 397 Vonin KE 2 ...........................377 Bylgja VE 75 .........................292 Heimaey VE 1 .........................251 Dagfari Þll 70 ..................... 223 Bergur VE 44 ....................... 200 Stfgandi II VE 44 ....................200 Stígandi II VE477 ................. 161 Isleifur IV AR 66 ....................149 Bjarnare.v VE 501 .....................82 Skipafjöldi 65 Vikuafli 60241 lestir Heildarafli 141813 lestir. Nafnstaðar Vikuafli Heildarafli (lestir) (lestir) Siglufjörður 4713 32544 Raufarhöfn 3870 22304 Framhald á bls. 28 TVÖ frímerki í flokknum „Merkir Islendingar“ verða gefin út 8. marz n.k. Á 50 króna frímerki verður mynd af Þorvaldi Thorodd- sen og á 60 króna frímerki mynd af Bríet Bjarnhéðs- dóttur. Frímerkin eru prentuð hjá Frímerkjaprentsmiðju frönsku póstþjónustunnar. UNGMENNAFÉLAG Reykdæla sýnir um þessar mundir leikritið „Klukkustrengi“ eftir Jökul Jak- ubsson í félagsheimilinu Loga- landi. Æfingar hafa staðið frá því snemma í vetur undir leikstjórn Guðrúnar Alfreðsdóttur, sem hefur stýrt nokkrum leikritum út um landsbyggðina undanfarið. „Klukkustrengi“ samdi Jökull upphaflega fyrir Leikfélag Akur- eyrar og var hann á starfslaunum hjá Leikfélaginu. Var leikritið frumsýnt leikárið 1971—72. Það var svo sýnt í Þjóðleikhúsinu í uppsetningu Brynju Benedikts- dóttur. Uppsetning Guðrúnar Al- freðsdóttur í Logalandi er því þriðja uppfærsla Klukkustrengja og jafnframt sú fyrsta hjá áhuga- mannaleikflokki. Með helztu hlut- verk fara Ingibjörg Helgadóttir, Gréta Ingvarsdóttir, Kristófer Kristinsson, Páll Guðnason, Hug- rún Hauksdóttir, Þorsteinn Pét- ursson, Sigurður Jónsson og Brandur Högnason. Næsta leik- sýning verður föstudaginn 17. febrúar kl. 21. Miðapantanir eru í gegnum símstöðina í Reykholti. Ungmennafélag Reykdæla er eitt aðildarfélaga Ungmennasam- bands Borgarfjarðar. Var U.M.F. Reykdælir stofnað á sumardaginn fyrsta árið 1908. Hefur félagið því lagt að baki sjö áratugi á komandi vori. Verður þess minnst sérstak- lega. Núverandi stjórn félagsins skipa: Kristófer Kristinsson, Val- gerður Jónasdóttir og Bernhard Jóhannesson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.