Morgunblaðið - 14.02.1978, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRUAR 1978
23
Karl Jóhannsson ásamt eiginkonu sinni, Unni Óskarsdóttur og sonunum Karli Ómari og Jóni Hafsteini.
Mvndina tók Friöþjófur í leikhléi 600. meistaraflokksleiks í handknattleik og eins og sjá má voru þeir
margir sem sendu Karli blóm og aðrar gjafir er hann náði þessum einstæða árangri.
„Er einn af strák-
unumí HK-liðinu"
— Ég held áfram í þessu meðan ég hef gaman af og eins og málin standa í dag er ég ekkert á þeim
buxunum að fara að ha>tta í handknattleiknum, sagði Karl Jóhannsson að loknum sfnum 600. meistara-
flokksleik í handknatt leik. Lék HK þá gegn KA á laugardaginn og hélt Karl upp á þessi einstæðu tímamót
með því að skora 7 mörk í leiknum og vera beztur leikmannanna á vellinum. Karl er 44 ára, en mjög
snjall handknattleiksmaður eigi að síður og væri hann flestuni liðuni 1. deildar styrkur.
— Eg finn ekki fyrir því að ég láta verja frá mér í hraðaupp- liðinu og eiginkonum þeirra, frá
er gamli maðurinn í HK-liðinu,
segir Karl. — Ég er einn af
strákunum og meðan ég kemst í
liðið og hef gaman af þessu verð
ég áfram í íþróttinni. HK-liðinu
hefur gengið ágætlega í vetur og
„mórallinn" í hópnum er einstak-
lega góður.
— Því er ekki að neita að ég
kveið nokkuð fyrir þessum leik,
blómaleikir eru alltaf erfiðir, en
þetta gekk ágætlega þrátt fyrir
allt. Eg byrjaði að vísu á því að
hlaupi, en síðan kom þetta allt
saman. Yfirleitt er ég ekki tauga-
óstyrkur fyrir leiki, en þá frekar
þegar við leikum á móti lélegri
andstæðingum. Eg þoli ver að
tapa fyrir liði, sem ,álitið er
lélegra en við, þá er betra að tapa
fyrir sterku liði. Þetta hefur verið
svona hjá mér alla tíð, segir Karl.
Fyrir leikinn við KA var Karl
heiðraður á margvíslegan hátt.
Hann fékk blóm og gjafir frá
stjórn HK, frá félögum sinum í
KAURLEIK
Í2.DEILD
KA-MENN komu suður til tveggja leikjaí 2. deildinni í Imndknattleik
um helgina. Þegar þeir lögðu af stað voru þeir eitt liðanna í toppbarátt-
unni í deildinni, en er þeir héldu norður á nýjan leik voru þeir hins
vegar orðnir á meðal neðstu liða deildarinnar. Á föstudaginn töpuðu
þeir fyrir Stjörnunni í Garðabæ, en á laugardaginn fyrir HK I
Laugardalshöllinni. Sá leikur verður fyrst og fremst minnisstæður
vegna þess að þar lék Karl Jóhannsson sinn 600. meistaraflokksleik og
átti stórleik. HK sigraði 23:20 í leiknum, en sá munur hefði hæglega
getað orðið meiri, því ekki var spurning um hvort liðið væri betra.
KA sýndi á sér sparihliðarnar í Jóhannsson aðalmaðurinn í liði
Handknattleikssambandinu, sínu
gamla félagi KR, andstæðingun-
um í KA og síðast en ekki sízt frá
kollegum sínum í dömarastétt.
Auk þess að vera fyrirliði og
einn snjallasti leikmaður HK er
Karl snjall kylfingur og siðastlið-
ið sumar vann hann sigur í 2.
flokki á Islandsmótinu i Grafar-
holti. I HK-liðinu eru fleiri sjallir
kylfingar, t.d. bræðurnir Ragnar
og Kristinn Ölafssynir.
-áij
STAÐAN
upphafi og liðið komst í 4:2, en
HK sneri blaðinu fljótlega við og
komst í 9:5 og 14:8 i hálfleik. I
seinni hálfleiknum dró heldur
saman með liðunum, en hand-
knattleikurinn, sem liðin sýndu
þá var mun lélegri en i fyrri hálf-
leik. Hálfgerður stórfiskaleikur.
Undir lokin varð munurinn að-
eins tvö mörk, 22:20, en HK átti
siðasta orðið í leiknum og úrslitin
urðu 23:20.
Með þessum sigri sínum á HK
enn góða möguleika á sæti í 1.
deild á næsta ári. Liðið nær þó
tæplega fyrsta sæti deildarinnar,
en ætti hins vegar að vera nokkuð
öruggt með að verða númer 2 og
þýðir það sæti aukaleik við næst-
neðsta lið 1. deildar um sæti í L
deildinni. I þessum leik var Karl
HK, aðalmarkvörður liðsins átti
góðan leik og þeir bræður Krist-
inn og Ragnar Ólafssynir stóðu
vel fyrir sínu í vörn og sókn.
Af leikmönnum KA átti enginn
virkilega góöan leik og það var
grátlegt að sjá hvernig sumir
aðalmenn liðsins nýttu dauðafæri
í leiknum. Jón Árni komst einna
bezt frá leiknum, en í heildina
virkar lið KA þungt og æfingalit-
ið. Lið með jafn góða einstaklinga
og KA-liðið ætti að geta mun
meira.
Mörk HK: Karl 7 (lv), Ragnar 5
(4v), Kristinn 3, Jón 3, Hilmar 2,
Björn 2, Vignir 1.
Mörk KA: Jón Árni 5, Þórleifur
5, Jón Hauksson 4 (3v), Sigurður
A. 2, Páll 2, Alfreð 1, Jóhann 1.
- áij
Staðan í 2. deild er nú þessi:
Fylkir 12 8 1 3 235:219 17
HK 13 73 3 287:248 17
Stjarnan 11 6 1 4 232:210 13
Þróttur 11 6 1 4232:221 13
KA 104 1 5 214:207 9
Þór 94 0 5 180:203 8
Leiknir 12 3 2 7 247:267 8
Grótta 10 1 1 8 182:229 3
NÆSTU
LEIKIR
Æ
Ovœntur sigur
KR gegn Fram
MÖGULEIKAR kvennaliðs Fram á lslandsmeistaratitli í handknatt-
leik jukust til muna á föstudaginn er Armann vann FH. Vonir
Framstúlknanna urðu hins vegar mjög litlar á sunnudaginn er þær
töpuðu fyrir KR með tveggja marka mun, 9:11. Hefur Fram nú tapað 6
stigum, FH hefur tapað 4 óg Valur stondur með pálmann í höndunum,
hefur aðeins tapað 2 stigum.
KR-stúlkurnar höfðu forystu
allan leikinn við Fram og leiddi
liðið með einu marki í hálfleik,
7:6. í seinni hálfleiknum vai1 mik-
il taugaspenna í báðum liðum, en
KR tókst að halda forskoti sínu og
vann verðskuldað 11:9. Fram-
stúlkurnar voru alltof bráðar í
leik sínum og gáfu sér sjaldnast
tíma til að leika upp á markið, en
skutu í tíma og ótíma. KR-liðið lék
þennan leik alls ekki vel og liðinu
var t.d. fyrirmvnað að skora úr
dauðafærum af línunni.
Af Framstúlkunum var Guðríð-
ur skást, en hjá KR voru þær
Karólina, Hjördís og Ása mark-
vörður beztar.
Mörk KR: Hjördís3, Karólína 2,
Olga 2, Jónína 1, Birna 1, Nína 1,
Anna Lind 1.
Mörk Fram: Guðríður 4, Oddný
3, Jóhanna 1, Sigrún 1.
— áij
NÆSTU leikir i 1. deildínni i hand-
boltanum fara fram i Höllinni á mið-
vikudagskvóldið og hefst sá fyrri
klukkan átta. Fyrst leika Valur og
Fram og siðan Vikingurog ÍR
Á fimmtudagskvóldið fara siðan
fram þrir leikir i Í þróttahúsinu i
Hafnarfirði. Fyrsti leikurinn hefst
klukkan sjö og er það viðureign FH
og Vikings i fyrstu deild kvenna.
Siðan leika Haukar og Fram einnig i
fyrstu deild kvenna og að lokum
leika erkifjendurnir FH og Haukar i
fyrstu deild karla
Næstu leikir i 2. deild verðar leik-
ur Fylkis og Þórs i Höllinni á laugar-
daginn kl. 18 05 og leikur HK og
Þórs á sunnudag.
Þórengin hindr-
un fyrir Valsara
LIÐ VALS vann öruggan sigur á Þór frá Akureyri í 1. deild kvenna á
laugardaginn. Úrslitin uróu 18:11 eftir að staðan hafði verið 11:4 i
hálfleik og lauk senii hálfleiknum því með jafntefli. 7:7.
ValsliðiÓ þurfti alls ekki að taka
á honum stóra sinum i þessum
leik og sigur liðsins hefði getað
orðið enn stærri af kæruleysi
hefði ekki ríkt í seinni hálfleikn-
um. Beztar í leiknum á laugardag
voru Oddný, sem skoraði nokkur
skemmtileg mörk, og Harpa, sem
mætti þó nota stöllur sínar meira.
Sigurbjörg verði og vel í marki
Vals. Anna Gréta var skást i liði
Þórs að þessu sinni.
Mörk Vals: Harpa 7, Oddný 4,
Elín 4, Hulda 1, Björg 1, Halldóra
1.
Mörk Þórs: Anna Gréta 3,
Magnea 3, Dýrfinna 2, Soffía 2,
Freydís 1. - áíj
Margrét Theodórsdóttir er snjallasta handknattleikskona Ilauka. en
þarna virðist hún hafa brugðið fyrir sig kanttspyrnunni í baráttunni
við Þór á sunnudaginn. (Ijósm. Friðþjófur).
Auðvelt hjá Hauk-
um á móti Þór
HAUKASTÚLKURNAR voru ekki í vandra'ðum með að krækja sér í
tvö stig i leik sínum við Þór frá Akure.vri í 1. deildar keppninni í
Hafnarfirði á sunnudaginn. Allan tímann hafði Haukaliðið forystu í
þessum leik og sigraði með 16 mörkum gegn 13 eftir að staðan hafði
verið 9:7 í hálfleik.
Leikurinn við Þór var oft ágæt-
lega leikinn miðað við það sem
gerist í kvennahandknattleik hér-
lendis. Það var séð þegar á fyrstu
mínútum þessa leiks hvert
stefndi og um miðjan hálfleikinn
var staðan orðin 8 mörk gegn 4
fyrir Hauka. I seinni hálfleik
réttu Þórs stúlkurnar svo hlut
sinn og náðu að jafna 10:10 en
þeim tókst ekki að fylgja því eftir
og Haukar sigruðu örugglega.
Bestan leik i Haukaliðinu átti
Margrét Theodórsdóttir og skor-
aði hún alls 9 mörk, þá átti Kob
brún Jónsdóttir allgóðan leik. Hjá
Þór var Anna G. Halldórsdóttir
best.
Mörk Hauka: Margrét 9,
Sesselía 2, Sjöfn 1, Kolbrún 1,
Halldóra 1, Hrafnhildur 1, Guð-
rún 1.
Mörk Þórs: Anna 4, Soffía 3,
Hanna 3, Magnes 2, Dýrleif 1. — þr j