Morgunblaðið - 14.02.1978, Page 43

Morgunblaðið - 14.02.1978, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRUAR 1978 25 Þeir urou hlutskarpastir i meistaraflokki: Lárus Sverrisson, Om Ingi Gúslason, Guðmundur Örn Halldórsson. (Ljósm. Hermann Sigtryggsson). 30 KEPPENDUR ÍBORÐTENNIS ÁAKUREYRI KNATTSPYRNUFÉLAG Akureyrar á 50 ára afmæli á þessu ári og minnast KA-menn tímamótanna á margvís legan hátt. Fyrsta afmælismót fél- agsins var haldið 5. febrúar síðastlið- inn og var þá keppt ■ borðtennis. Keppendur voru alls 30 og er greini- legt að borðtennislþróttinni er að vaxa fiskur um hrygg á Akureyri, en borðtennisdeild KA átti ársafmæli keppnisdaginn. Keppt var i iþróttahúsi Glerárskóla og gáfu þau Halldór Lárusson og Kolbrún Guðmundsdóttir á Hótel Akureyri verðlaun til keppninnar og — Enska knattspyrnan Framhald af bls. 26 Brotherstone. Leikur þessi þótti nokkuó góður meö hliösjón af skilyrðunum. Blackburn er því ennþá nærri toppinum. Brighton er einnig með í slagn- um um þrjú efstu sætin, en sigur liðsins yfir Burnley, einu af neðstu liðum deildarinnar, var ekki sannfærandi og var raunar markverði Brighton að þakka. Foskett og Horton (víti) skoruðu fyrir heimaliðið en Derek Scott svaraði fyrir Burnley. —gg. stóðu straum af kostnaði við móts- haldið. Attu þau hjónin einnig tvo af keppendunum i mótinu Úrslit urðu sem hér segir: MEISTARAFLOKKUR: Örn InKÍ Uislason Guðmundur Örn Ilalidórsson Lárus Sverrisson FLOKKLR 14—17 ára: Lárus Halldórsson Jón Arni Jónsson Jakob Kristlnsson ELÖKKUR 13 ARA ÖG YNGRI: Jon Baldursson Þórarinn Stefánsson Asjrt-ir Herbertsson Skólamót í handbolta Handknattleikssamband ís- lands gengst fyrir handknattleiks- keppni framhaldsskólanna í marz- mánuði næstkomandi. Þátttöku- tilkynningar þurfa að berast skriflega til skrifstofu HSÍ fyrir 20. febrúar nk. ásamt 10.000 króna þátttökugjaldi. Einnig þarf að tilkynna nafn og simanúmer formanns íþróttafélags viðkom- andi skóla. Vöxtur í félagi þjálfara AÐALFUNDUR Knattsp.vrnu- þjálfarafélags Islands var hald- inn 5. janúar síðastliðinn. Á fund- inum kom fram mikill áhugi fyrir starfi félagsins og greinilegt er að mikill uppgangur er í félaginu. Hafin er útgáfa fréttablaðs, sem m.a. flytur fréttir af gangi mála hjá knattspyrnuþjálfurum. ásamt ýmiss konar fræðsluefni. A fund- inum kom fram áhugi fyrir að sinna í auknum mæli hinni fé- lagslegu hlið mcðal knattspyrnu- þjálfara. Fundinn sðttu fjölmargir þjálf- arar og urðu miklar og gagnlegar umræður á fundinum um mörg mál, sem hin nýkjörna stjórn fær til úrlausnar á komandi starfsári. Formaður Knattsp.vrnuþjálfara- félagsins var kjörinn Eggert Kr. Jóhannesson, en með honum I stjórn Lárus Loftsson, Guðmund- ur Þórðarson, Gunnar Valvers- soii, Theódór Guðmundsson, Jó- hannes Atlason og Jóhann Lar- sen. (Fréttatilkynning) Stúdínur ósigraðar EINN leikur fór fram á fimmtudaginn í . deild kvenna í körfuknattleik Áttust við i iþróttahúsi Kennaraháskólans íf> og Þórfrá Akureyri. Leikurinn var i upphafi mjög vel leikinn og auðsýnt. að þeir Dirk Dunbar og Mark Christiansen. þjálfarar lið anna, hafa komið liðum sinum upp á ..æðra plan" kvennakorfuknattleiks ÍS stúlkurnar tóku forystuna i byrjun, en Þórs-stúlkurnar hleyptu þeim aldrei of langt frá sér Var staðan i hálfleik 30 23 ÍS í vil I seinm hálfleik tóku stúdínur mikinn sprett og gerðu út um leikinn um miðjan hálfleikinn Urðu lokatölur 66 44 ÍS-konum i hag Lið ÍS er vafalaust besta korfuknatt leiksiið kvenna. sem við höfum átt og stefnir liðið nú að sigri í íslandsmótinu eftir þennan ágæta sigur gegn Þór Bestar i liði ÍS voru Guðný Eiriksdóttir og Kolbrún Leifsdóttir I liði Þórs eru margar ágætar stúlk u; sem gætu náð góðum árangri ef þær halda áfram á somu braut og fram til þessa Em stúlknanna bar þó af hvað boltameðferð og hittni snerti, en það var Maria Guðnadóttir Þá má nefna Þórunni Rafnar, sem átti einnig góðan leik og Ástu Pálmadóttur Stig ÍS skoruðu: Guðný 20, Kolbrún 14. Sigurlaug Karlsdóttir 11. Anna Aradóttir 10. Þórdis Kristjánsdóttir 8. Ragnhildur Steinbach og Ester Adams- dóttir 2 stig Stig Þórs Þórunn 13. Ásta 11. Helga Helgadóttir 8 Maria og Alice Jóhannsdóttir 6 stig Dómarar voru Sigurður Valur Hall dórsson og Stefán Kristjánsson og dæmdu þeir mjög vel Skólastrákurinn meistarana Elo Hansen (t.v.) þykir skemmtilegastur danskra badmintonspil- ara, en hann tapaði úrslitaleiknum í tvíliðaleik ásamt félaga sinum og Bo Kjærgaard fyrir Delfs »g Skovgaard. frysti Danmerkurmeistaramótið í badminton fór fram í KB- höllinni í Kaupmannahöfn dag- ana 4.—7. febrúar sl. Undanrás- ir gengu mjög Ifkt fyrir sig og gert hafði verið ráð fyrir, en f undanrásum, gerðust óvæntir atburðir. Þar vann Morten Frost Hansen félaga sinn í tví- liðaleik, Svend Pri, 15:5 og 18:13. Var það í fyrsta skipti á keppnistfmabilinu, sem Pri tapaði í einliðalcik. Morten Frost var þó meiddur og hafði tekið verkjastillandi töflur fyr- ir leikinn. Frost átti enn eftir að koma á óvart og vann að lokum Flemming Delfs í úr- slitaleiknum, lék eins og sá sem valdið hefur og sýndi enga vanmáttarkennd. I leiknum við Pri stjórnaði Frost gangi leiksins og er fljót- lega kom í ljós að Pri var eitt- hvað miður sin gekk Frost á lagið og notaði sér það eins og hann framast gat með því að senda flata boíta á Pri, sem hafði þær afleiðingar að meist- arinn fyrrverandi náðl ekki sín- um ógnvekjandi skellum. I hin- um undanúrslitaleiknum vann Flemming Delfs auðveldan sig- ur gegn Jesper Helledie, 15:9 og 15:2. í tvíliðaleik karls unnu Flemming Delfs og Steen Skov- gaard þá Svend Pri og Morten Frost Hansen 15:9 og 15:7, eftir að Pri og Frost höfðu leitt 8:6 í fyrri leiknum og 6:4 í þeim síðari. Allt gekk á afturfótun- um hjá Svend Pri i úrslitum tvíliðaleiksins, hann braut spaða og var sífellt að slíta girn- ið í spöðum sínum. Fór þetta mjög í taugar hans og í lok seinni leiksins lék hann af miklum hálfkæringi. Þegar staðan var orðin 13:7 gaf hann kæruleysislega upp á Steen Skovgaard. Þá var Morten Frost nóg boðið, gekk útaf vell- inum meðan leiknum var lokið. en barðist greinilega við tárin. I hinum undanúrslita- leiknum léku Elo Hansen og Bo Kjærgaard við Henrik Farhren- holz og Poul Nielsen og sigruðu þeir fyrrnefndu 4:15, 15:12 og 17:16. Var aukalotan sérlega jöfn og spennandi og náði Han- sen hinum ótrúlegustu boltum á yfirnáttúrulegan hátt hvað eftir annað. í einliðaleik kvenna vann Lena Köppen auðveldan sigur gegn Lonny Bostofte 11:2 og 11:1 og Inga Borgström vann Piu Nielsen 11:3 og og 11:1. í tvíliðaleik kvenna unnu Lena Köppen og Imre Rietveld Niel- sen þær Helle Guldborg og Mariönnu Christiensen 15:6 og 15:3, en í hinum undanúrslita- leiknum unnu Inga Borgström og Pia Nielsen þær Liselottu Göttiche og Charlottu Pile- gaard 15:2 og 15:6. i tvenndarleik unnu Jesper Helledie og Inga Borgström þau Steen Fladberg og Piu Nielsen 15:13, 9:15 og 15:11 i leik þar sem dömurnar léku Hörður Ragnarsson skrifar frá Kaupmannahöfn um DM í badminton. stórt hiutverk og komu aftur á völlinn til að skella til jafns við karlmennina. i hinum undan- úrslitaleik tvenndarkeppn- innar lentu heimsmeistararnir Steen Skovgaard og Lena Köpp- en óvænt í nokkrum erfiðleik- um með Mogens Neergaard og Liselottu Göttiche en unnu 18:14 og 15:8. Fyrir úrslitaleikinn í einliða- ieik karia var Morten Frost mjög taugaóstyrkur. Hann var hræddur um að handleggurinn þyldi ekki álagið og að hann hefði eyðilagt spennu úrslita- leiksins með því að vinna Pri í undanúrslitum. í upphafi leiks- ins leit reyndar út fyrir að svo hefði verið. Delfs komst i 5:0, en síðan varð jafnt 7:7, 10:7 og 10:9 fyrir Delfs, sem tók þá af skarið og vann 15:9. i annarri lotunni komst Delfs í 5:2, en Morten Frost fékk 12 næstu punkta, staðan varð 14:5 og lokastaðan 15:6. Í þriðju lot- unni leiddi Morten Frost allan tímann og stóð 8:3 þegar þeir skiptu um völl. Frost vann síð- an með glæsibrag 15:4. Morten Frost er 19 ára gamall menntaskólanemi og hefur ekki áður náð svo góðum árangri. Honum hefur þó nokkrum sinnum tekizt að ógna Pri og Delfs áður, en þetta er i fyrsta skipti, sem hann vinnur þá. i tvíliðaleik karla unnu Delfs og Skovgaard þá Elo Hansen og Kjærgaard með 15:9 og 15:5, en það var Elo Hansen, sem átti hylli áhorfenda eins og vant er. i einliðaleik kvenna vann Lena Köppen Ingu Borgström 11:0 og 11:6. Var hún í 8:0 í fyrri lotunni áður en Borg- ström fékk sendingu. 1 seinni lotunni veitti Inga Borgström meiri mótspyrnu og fékk Lena Köppen þá tækifæri til að sýna snilli þá, sem gert heur hana að heimsmeistara. í tvíliðaleik kvenna unnu Inga Borgström og Pia Nielsen þær Lenu Köppen og Imre Riet- veld Nielsen með 15:11, 3:15 og 15:5 í mjög góðum leik á köfl- um, en með mistökum á milii. Það var gaman að sjá hvað stúlkurnar léku þennan leik af mikilli hörku, krafti og skyn- semi. Þar að auki eru þær hver annarri fallegri, en það er önn- ur saga. 1 tvenndarleik unnu svo heimsmeistararnir Steen Skov- gaard og Lena Köppen þau Jesper Hellidie og Ingu Borg- ström 15.9 og 15:4. Tvennt er það sem mest kem- ur á óvart í þessu móti. 1 fyrsta lagi að Lena Köppen vinnur ekki þrefalt „eins og vant er “ og í öðru lagi sigur Morten Frost Hansens i einliðaleik. Þann 9.—12. marz nk. fer fram hér í Danmörku alþjóðlega danska meistaramótið og ætla Indónesar að senda í það allt sitt bezta fólk að undanskildum Rudi Hartono. Hætt er við að sigur Frosts veki nokkurn ugg i herbúðum þeirra, því þeir þekkja ekkert til hans — hafa varla heyrt hann nefndan á nafn. GG

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.