Morgunblaðið - 14.02.1978, Side 32

Morgunblaðið - 14.02.1978, Side 32
40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRUAR 1978 V*K> MORejK/-sv< KAFF/NO ,! GRANI göslari ' rr Það er óhætt að fullvrða að þetta er smitandi. Ég er nefnilega orðin 10 kg léttari, — ætlaði bara fá að sjá hve mikið fer fyrir þvf. Hvað má bjóða börnunum upp á? „Hvað má bjóða börnum upp á? Hvað eftir annað sýnir sjónvarpið myndir sem ekki eru við hæfi barna að mati sjónvarpsins. En sorglegast er það þó að sjónvarpið skuli vera að halda fram að ýmsar biómyndir séu ekki við barna- hæfi, sem ekkert ógeðslegt kcmur fyrir í. Á ég þá sérstaklega við „vestr- ana“. Má þá þannig nefna þættina um heimsstyrjöldina síðari, þó þar komi fyrir eitthvað pinulítið af ógeðslegum atriðum en þetta er fróðlegt og um þetta ættu börn að fræðast. Þó Stundin okkar sé fyrir ungri krakkana að mestu leyti þá var þó nokkuð af efni hennar fyrir eldri börn, t.d. þegar Páll Vilhjálmsson var annar þulanna, en þegar dúkkuhausinn Begga var annar þulanna þá var Stundin okkar að þynnast út.. Og núna er hún svo þunn að upp á hana ætti ekki að bjóða. Til dæmis má nefna að hún er að mestu byggð upp á þvi að eitthvert lag er spilað af plötu eða segulbandi og teikningar eru sýndar með. Einnig það að farið er I heimsókn i einhvern skóla eða barnaheimiii og svo er þetta sýnt i langan tima. En meginund- irstaðan i cinum þætti eru tvær stofnanir sem sýndar eru alveg heil ósköp af. Þetta sýnir að stjórnandi þáttarins getur ekki fundið fjölbreytt efni. Og má nefna sem dæmi að tvivegis hefur verið farið i heimsókn i tónlistar- skóla. Snorri Gunnarsson.*' Hann er ákveðinn i skoðunum á sjónvarpinu þessi ungi maður er ritar þetta bréf, en af skriftinni má sem sé ráða að hann er sjón- varpsáhorfandi af yngri kynslóð- inni og hefur sinar meiningar. Forráðamönnum sjónvarpsins verður að sjálfsögðu gefinn kost- ur á að svara þessu sjái þeir ástæðu til þess. # Logandi stjarna „Biómyndina Logandi stjörnu ætti að sýna aftur hjá sjónvarpinu vegna rafmagnsleys- is. Ég er viss um að það eru marg- ir sem vilja sjá myndina, þeir sem ekki sáu hana er hún var sýnd. Ég var búin að biða spennt í heila viku eftir að sjá þessa mynd þvi margir höfðu sagt mér að þetta BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson I FJÖRÐU hendinni opnar suður á fjórum hjörtum í úrspilsæfingu vikunnar. Vestur spilar út tígu- drottningu og hendur norðurs og suðurs eru þessar. Vestur / allir á Norður Suður S. Ad93 S. 8 H. 83 H. ADGl09652 T. 98765 T. A L. G9 L D32 Sjá lesendur örugga vinnings- leið? Það kann að vera freistandi að spila lágu laufi strax i öðrum slag og svína níunni. Gerum í fyrstu ráð fyrir að það takist ekki. Og austur, þegar hann er inni á lauf- tíuna, skiptir í hjarta. Þá getum við svínað en séum við svo óheppin að vestur eigi kónginn og vörnin geti spilað hjarta aftur áður en við spilum laufi í þriðja sinn er jú hugsanlegt að spaða- sviningin takist. Misheppnist þessi úrspilsaðferð verða hendurnar að vera þessu líkar. Norður S. AD93 H. 83 T. 98765 L. G9 Vestur S. G76 H. K4 T. DG.10 L. A7654 Austur S. K10542 H. 7 T. K432 L. K108 Suður S. 8 H. ÁDG109652 T. A L. D32 Var þá lausnin tengd þessum þremur svíningarmöguleikum? Nei, auðvitað ekki. Til er nær aiveg örugg leið. Strax í 2. slag spílum við spaða á ásinn og spil- um síðan laufniunni frá blindum. Geta austur og vestur þá gert okk- ur nokkuð? Nei. Taki austur á ás eða kóng er spilið öruggt. Og á tíuna látum við drottninguna en vestur getur ekki spilað hjarta án þess að gefa okkur tíunda slaginn. HÚS MÁLVERKANNA Framhaldssaga eftir ELSE FISCHER Jóhanna Kristjónsdúttir þýddí 70 ur. Þess vegna erum við að spyrja. Atti frænka yðar ein- hverja óvini? — Atti stúlkan einhverja óvini? Þetta var eins og upphaf- ið að rannsókn á morðmáli og við borð lá að hún brunaði út úr sér öllum sannleikanum I sím- ann. Já... já, hún átti einn óvin og það var ég sjálf... ég þoldi hana ekki. Ég óskaði þess eins að losna við hana... nógu langt burt. Hún var fölsk og óþolandi. En hún hafði bara staðið með tólið f höndum sér og svarað kalt og rólega. — Ekki svo að ég viti til. En ég þekki ekki þá sem hún um- gekkst í Alaborg... en þér vilj- ið kannski að ég komi á stöðina, svo að við getum talað betur saman. — Nei, þér þurfið ekki að ómaka yður til þess. Við kom- um kannski sfðar og spyrjum yður um smáatriði. — Eg hélt að þetta væri sjálfsmorð... hún hefði tekið of stóran skammt. — Það gæti Ifka verið,.. en þegar dópistar eiga í hlut þýðir ekki annað en athuga allt. Fingraför óg svoleiðis. Og við furðum okkur á að öll fingraför skyldi vanta... Til dæmis á húnunum í bflnum... Ilún hafði skolfið eíns og strá í vindi þegar hún lagði sfmann á og fyrsta hugsun hennar hafði verið að hlaupa upp til Emmu... segja henni allt af létta... og leita ráða hjá henni. En hún gat ekki farið á fund Emmu núna. Dauði Susie þurfti ckki að standa f neinu sambandi við... allt hitt... hún varð að sýna Carli trúnað... Bara að bfða þar til hann kæmi heim... bfða og spyrja hann. Og þá varð henni allt f einu Ijóst að hún gat ekki setið og beðið. Ifún varð að levsa málin eftir sfnum leiðum. — Já, en hvað vitið þér eigin- lega? Rödd herinar bar vitni um botnlausa örvæntingu. Tauga- óstyrkum fíngrum sneri hún hringnum sfnum. Sneri honum og sneri. — Ég veit að maður segir ekki til sinna ef maður er elsk- ur að f jölskyldu sinni. Birgitte var reið. Hún hugsaði um það eitt að setja niður og komast héðan, en hvernig gat hún gert það, þegar tryllt og blaut kvenvera, frú Hendberg f eigin persónu, stóð á miðju góifi. Hún gat varla fengið af sér að henda henni út, en hún gat heldur ekki hugsað sér að leyfa henni að tefja sig. — Ég kom hingað til að fá vinnufrið ... ég hef aldrei beð- ið um samvistir við yður ... aldrei beðið um að vera boðið til veizlu hjá yður... Ég hef orðið fyrir ónæði á hverjum degi sfðan þá. — Ég bauð yður... af þvf... af þvf... Dorrit Hendberg þagnaði. — Af þvf að þér vilduð kom- ast að einhverju sem ég veit ekki hvað er. Ef maður er elskur að fjöl- skuldu sinni. Hvað áttuð þér við með þvf... Þér haldið kannski að maðurinn minn ... Dorrit horfði reiðilega á hana. — Nei, maðurinn yðar reyn- ir bersýnilega með öllum ráð- um að breiða yfir hina ýmsu veikleika fjölskyldunnar. Mjög svo léttvægt mál eins og það að einhvcr frændi hans gerist lið- hlaupi f Víetnam. Ég gct full- vissað yður um að þó svo að öll fjölskylda yðar hefði stungið af frá tunglinu... eða guð veit hvaðan. Birgittc skellti aftur tösk- unni og lagðist á hnén meðan hún læsti. — Þér heyrðuð skýringu mannsins mfns. — Já, maður scgir ekki til sinna. Skýringin rak smiðs- höggið á verkið. Það var út af fyrir sig, þótt myndin hefði ver- ið tekin niður, en þegar maður- inn yðar fór að gefa yfirlýsing- ar um að hann hefði verið skot- inn... af sfnum mönnum... Hann hlýtur að halda að við séum bjálfar öll upp til hópa cf

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.