Morgunblaðið - 16.02.1978, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRUAR 1978
45
r
VELVAKANDI
l ’ 1 1 * S í
*' ‘íÆniitTfJiktAá
æm
SVARAR I SIMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MANUDEGI
Sigrún segir að kenna þurfi ungl-
ingunum að umgangast vin . . .
Mér finnst þetta vera eins og að
segja við barn sitt þegar maður
skilur það eftir eitt i húsinu: „Þú
mátt kveikja bál inni hjá þér en
passaðu þig bara að húsið brenni
ekki.“
Velvakandi getur ekki tekið
undir vandlætingarorð húsmóður
i Breiðholti vegna svars Sigrúnar
Stefánsdóttur og telur að það sé
einkar hófsamlegt og sýni glöggt
að viðkomandi telji að úr þurfi að
bæta.
Um þetta efni verða menn víst
seint á einu máli, en viðhorf al-
mennings til áfengismála og
áfengisvanda virðist Velvakanda
vera mun ábyrgara en áður og er
það vel.
0 Og svo er Junior
Camber þakkað ...
M.G. skrifar
Ég vil leyfa mér að svara
A.R., þar sem hann ásakar félagið
Ju ior Chamber Reykjavík fyrir
að birta óhugnaniegar myndir af
börnum sem lent hafa í bruna.
Þessu vil ég svara með þvi að
þakka Junior Chamber fyrir það
framtak að hafa einmitt birt
óhugnanlegar myndir, sem vekja
athygli og gefa okkur foreldrum
tækifæri til að tala við börn okkar
um eld, og hafa um leið svona
áhrifaríkar myndir til að sýna
þeim hvað getur skeð. Ég á sjálf
frænda sem lenti í eldi líkt og
stúlkan á myndunum sem Á.R.
segir að ekki séu allar af þeirri
sömu. Margur hefði getað sagt við
hann i dag, ef m.vndir af honum
fyrir og eftir slysið eru settar
saman, að hér sé ekki um sama
barn að ræða. Svo mikil breyting
varð á honum. Ég var sjálf vitni
að þessum atburði á sinum tíma.
Við vorum þá börn að leika okkur
að eldi. Svo ég tel mig hafa fengið
góða aðvörun. En nú hefi ég loks-
ins fengið myndir og tækifæri til
að sýna börnum minum hvað ég
hef verið að meina þegar ég tala
við þau um þetta mál. Svo virðist
sem þau hafi farið að hugsa um
afleiðingarnar Ég vil að lokum
þakka Junior Chamber Reykjavik
fyrir dyggilega baráttu fyrir eld-
vörnum. Samtökin eiga hrós skil-
ið. Við megum ekki lifa i svo
vernduðu umhverfi að ekki megi
sýna okkur sannlcikann um lifið.
M.G.
Þessir hringdu . . .
Þátturinn um boð og bönn á
kvikmyndahátíð sem var í sjón-
varpi á mánudagskvöld varð hvati
að allmörgum hringingum til Vel-
vakanda i gær.
Móðir í Kópavogi sagði: ,,Ég vil
biðja fyrir þakklæti til prestsins
fyrir góðan málflutning, þar sem
hann átti við ofurefli að etja og
var engu likara en hann sæti á
sakamannabekk. Mér sýnist að nú
eigi að fara að velja þann kostinn
að safna saman mörgun óhugnan-
legustu myndunum og kalla það
hátið. Það væri fróðlegt að heyra
hvað biskupinn hefur til málanna
að leggja, því að mér skilst honum
hafí verið boðið. Ég geri að tillögu
minni að þessir listamenn sjái
myndir af þessu tagi i utanlands-
ferðum sínum en séu ekki að
flytja þær hingað fyrir ærinn
gjaldeyri.
I.R. var einnig á þeirri skoðun
að orð prestsins hefðu verið orð
að sönnu. Það sem manninum
væri heilagt, ástin og lífið sjálft,
mætti ekki troða niður i svaðið en
það væri gert með því að búa til
myndir þar sem þessar guðsgjafir
væru drengar niður i sorann og
það sem fólk mæti mikils gert að
afskræmi. Við skyldum forðast að
láta það illa spilla okkur og I.R.
sagðist vilja hvetja til að við
vernduðum það sem hjarta okkar
væri heilagt.
Kvikmyndahátíðin hefur einnig
orðið Magnúsi Jóhannssyni tilefni
til að setja saman visu og skýrir
hana svo, að hún sé gerð vegna
ummæia Thors Vilhjálmssonar i
sjónvarpsviðtali þar sem hann
sagði að tilgangurinn með kvik-
myndahátið væri m.a. sá að gefa
fólki tækifæri til þess að næra
sálina.
Lag: Komdu ok skoðaðu í kistuna mina.
Nú næra þeir sálina nevtendur ,.lista“.
(Jr nó«u er að moða frá Hrafni «k Thor
af náó þeirra barst hingað næriiiKarkista.
sem nesti vort geymir vid andlegum hor.
I handraða kistunnar hitt og þetta er
við hæfi er „listamenn" skemmta sér.
því alvarlegt væri ef andann nú fýsti
upp fyrir mittið að hætta sér.
HÖGNI HREKKVÍSI
Er þér sama þó ég mongi loftið og fái mér
sígarettu?
— Skólarann-
sóknadeild
Framhald af bls. 13.
rannsóknadeildar er þetta gífur-
legur niðurskurður. Þá nefndu
fulltrúar skólárannsóknadeildar
tölur, sem sýna, að fjárveitingar
til grunnskóla haf hlutfallslega
lækkað á siðastliðnum þremur ár-
um miðað við áætlun skólarann-
sóknadeildar og var lækkunin
48,1 % á þessu ári.
Ölafur H. Öskarsson hafði á
orði að ráðstafanir stjórnvalda til
að draga úr framlögum til
deildarinnar væru óskynsamlegar
þar eð það fjármagn, er þegar
hefði verið varið í þessum efnum,
nýttist illa ef ekki yrði framhald
á. Mætti í rauninni lita á það sem
sparnað að hækka framlög til
skólarannsóknadeildar, því þá að-
eins væri tryggt að því starfi, sem
unnið hefur verið fram til þessa,
væri ekki á glæ kastað.
A fundinum kom fram að á
landinu öllu eru nú um 270
grunnskólar og væri viða skortur
á kennurum, sem réttindi hefðu
eða æskilega starfsreynslu. Var
bent á að skólum, er störfuðu við
slík skilyrði, væri mjög mikilvægt
að fá til liðs við sig hjálp þeirra,
sem öllum hnútum væru kunnug-
ir. Má því ætla að margir skólar
úti á landsbyggðinni verði illa fyr-
ir barðinu á skertum fjárframlög-
um. Þá sögðu fundarmenn náms-
stjórnarþáttinn mjög veigamik-
inn í starfi skólarannsóknadeild-
ar og námsstjórar nauðsunlegir
tengiliðir milli skóla og mennta-
málaráðuneytis. í lok yfirlýsingar
Félags skólastjóra og yfirkennara
á grunnskólastigi segir: „Allt
bendir til að rjúfa eigi þessi litiu
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
v \
Al'íiLÝSINGA*
SÍMINN ER:
22480
tengsl með þvi að skera niður
fjármagn til námsstjórnar og
námsefnisgerðar og hljóta stjórn-
endur skóla að vara við :fleiðing-
um þeirrar stefnu."
— Minning
Benedikt
Framhald af bls. 35
Kolgrafarfjörð. Benedikt var i frii
og lék á alls oddi. Borði var slegið
upp og tekið til við að spila, glóð-
arsteiktur matur fram borinn, og
krakkarnir i berjamó. Síst grun-
aði okkur þá að Benedikt myndi
feigur, og að þetta yrði í siðasta
sinn sem við yrðum samvistum
við hann.
Minningarathöfn um Benedikt
og Braga Þór Magnússon fór fram
3. des. sl. frá Grundarfjarðar-
kirkju við mikið fjölmenni eins
og vænta mátti. Ég votta öllum
sem um sárt eiga að binda vegna
þessa hörmulega slyss innilega
samúð. Frænka mín hefur nú á
sama árinu misst föður sinn
Magnús Riehardson, og Benedikt
mann sinn. Ekki sé ég ástæðu til
að óttast um afkomu hennar. Hún
hefur fengist við skrifstofustörf
siðan hún fluttist vestur og verið
liðtæk til fleiri starfa ef á hefur
þurft að halda. Við sem þekkjum
hana best biðjum þess nú að
kjarkurinn og lifsorkan sem guð
gaf henni i vöggugjöf megi verða
henni styrkur i mótlætinu enn
sem fyrr. Blessuð sé minning
Benedikts Gunnlaugssonar.
Auður Matlhiasdóttir.
— Verst hvað
menn ljúga
Framhald af bls. 15
bjórinn gerir engum mein ef
menn drekka hann rétt,“ sagði
Alan er hann var spurður hvort
hann saknaði einhvers sérstak-
léga frá fyrri heimkynnum. „Mér
þótti sá einn ljóðurinn á Bretum
j hvað þeir drukku mikinn bjór,“
bætti Þóra hér við.
Að lokinni ljúffengri máltíð
gafst tóm til að smella myndum af
fjölskyldunni, áður en Alan varð
að halda til vinnu. Vaktin átti að
hefjast klukkan 8 og fyrir honum
lá að standa til klukkan fjögur um
nóttina. Það má segja að það sé
ekki beint sældarbrauð að vinna
við bræðsluna, staðið er 8 tíma í
senn og hvilzt í 8 áður en næsta
vakt hefst. Þannig gengur fyrir
sig hver sólarhringurinn á eftir
öðrum. „Hverju ætli þeir ljúgi á
þessari vakt,“ sagði Alan og kímdi
er hann lagði af stað út í verk-
smiðju á vakt sína. „Ég segi þeim
að það komi í Morgunblaðinu."
Sveinn
Davið
VIÐTALSTIMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæöisflokksins
í Reykjavík
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins verð'a til viðtals i Sjálf-
stæðishúsinu Háaleitisbr. 1 á laugardög-
um frá klukkan 1 4:00 til 1 6:00 Er þar
tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og
ábendingum og er öllum borgarbúum
boðið að notfæra sér viðtalstíma þessa
Laugardaginn 18. febrúar verða til viðtals
Guðmundur H. Garðarsson, alþingismaður,
Davið Oddsson, borgarfulltrúi og
Gústaf B. Einarsson, varaborgarfulltrúi.