Morgunblaðið - 16.02.1978, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRUAR 1978
EINN ÍSLENZKUR KEPPANDI
Á HM f NORRÆNUM GREINUM
HEIMSMEISTARA-
KEPPNIN í norrænum
greinum skíðaíþróttarinn-
ar hefst í Lahti í Finnlandi
á morgun og meðal kepp-
enda er einn Islendingur,
Halldór Matthíasson.
Hann keppir í 30 og 15 km
göngu og verður í barátt-
unni á sunnudag og þriðju-
dag, en kemur varla til
með að verða í fremstu
röð; til þess að svo megi
vera eru andstæðingarnir
einfaldlega of góðir.
í göngugreinunum er líklegast
aö baráttan standi á milli Norð-
manna, Svía, Finna og Sovét-
manna. 1 stökkinu er hins vegar
trúlegast að A-Þjóðverjar og
Austurríkismenn verði fremstir í
flokki. Þar gætu keppendur ann-
arra þjóða þó hæglega blandað
sér í toppbaráttuna, t.d. Japanir
og Finnar.
Fjögur hundruð keppendur frá
29 þjóðum hafa tilkynnt þátttöku
í keppninni og er það meiri fjöldi
en nokkru sinni áður í HM í norr-
ænum greinum, en þetta er í 32.
skipti, sem slíkt mót er haldið.
Finnar hafa lagt í mikinn kostnað
vegna mótshaldsins og nemur
hann um hálfum milljarði ís-
lenzkra króna. Þetta er ekki í
fyrsta skipti, sem Finnar eru gest-
gjafar fyrir HM í þessum greinum
Fram 70 ára
Knattspyrnufélagið
FRAM verður 70 ára 1.
maí næstkomandi. í til-
efni afmælisins býður
aðalstjórn félagsins vin-
um og velunnurum Fram
til móttöku í Atthagasal
Hótel SögU næstkomandi
sunnudag, 19. febrúar,
klukkan 15.
og árin 1925,1938 og 1958 var HM
haldið í Lahti.
Til að mæta kostnaði við HM
reikna Finnar með að þeir þurfi
250 þúsund áhorfendur saman-
lagt og telja að sú tala náist auð-
veldlega. Dýrasta mannvirkið,
sem reist hefur verið í sambandi
við keppnina núna eru þrír stökk-
pailar og glæsileg áhorfenda-
svæði. Kostnaður við þessa hluti
eina sér er reiknaður á 1,8 millj-
arða króna, en HM á ekki að
greiða öll þessi mannvirki, því
þau eru einnig notuð á sumrin
fyrir knattspyrnu og aðrar sumar-
íþróttir.
1 Lahti búa um 100 þúsund
manns og undirbúningurinn fyrir
HM hefur staðið nær samfleytt í
tvö ár. Borgin er um 100 km norð-
ur af Helsinki og skógar og vötn
umkringja borgina á alla kanta.
Það var í Lahti veturinn 1975,
sem eitt hroðalegasta slysið í sögu
skíðastökksins átti sér stað. Ung-
ur v-þýzkur skíðastökkvari,
Anton Angerer, féll í aðrennslinu
og ranh á snjóplóg, sem stóð á
brún pallsins. Angerer var á tals-
verðri ferð og lamaðist er hann
lenti á tækinu og lést skömmu
síðar.
Finnar kappkosta að vanda til
allra mannvirkja og undirbúnings
svo að allt gangi snurðulaust fyrir
sig. Það eina sem þeir óttast er að
vindar blási óhagstætt, en séu
vindar af ákveðinni átt getur það
skapað hættu fyrir skiðastökkv-
arana.
Þó svo að HM í norrænum
greinum hefjist á morgun er ekki
víst að sjónvarpsáhorfendur í Svi-
þjóð, Noregi, Sviss og víðar í Evr-
ópu geti fylgst með keppninni í
sjónvarpi heima í stofum sínum,
eins og þeir höfðu ætlað sér. Sjón-
varpsstöðvar i 9 löndum Evrópu
hafa mótmælt miklu magni aug-
lýsinga, sem settar hafa verið upp
fyrir keppnina, til að vega upp á
mósti kostnaði. Mál þetta er
óleyst og allt útlit fyrir að sjón-
varpsstöðvar sendi algjört lág-
mark af efni frá HM í Lahti og
Finnar tapi miklum tekjum.
BADMINTONFJÖLSKYLDA — Óskar Guðmundsson var hér á árum
áður einn okkar albezti badmintonspilari og er reyndar enn í dag í
fremstu röð í iþróttinni. Dætur hans virðast ætla að feta í fótspor
föðurins og Þórunn dóttir hans sigraði bæði í einliða- og tvíliðaleik í
meyjaflokki í unglingameistaramótinu, sem haldið var fyrir nokkru.
Guðný er einnig byrjuð að sveifla spaðanum, þó hún sé aðeins sex ára
og ekki má gleyma móður þeirra, Erlu Friðriksdóttur, sem að sjálf-
sögðu spilar einnig badminton.
HAFNARFJAROAR-
LIÐIN BERJAST í
1. DEILD í
HAFNARFJARÐARLIÐIN FH og Haukar leika í
1. deildinni I handknattleik í kvöld og ef að líkum
lætur verður hart barist. FH-ingarnir hafa staðið
sig mjög vel í keppninni f fyrstu deild og eru eina
liðið, sem ekki hefur tapað stigi. Hefur lið FH
unnið KR, Fram og Armann. Haukarnir hafa
sömuleiðis staðið sig vel og hafa ekki tapað lcik.
Þeir hafa unnið Val, en gert jafntefli við IR,
Fram og Víking.
Hafnarfjarðarliðin þurfa ekki að vera í topp-
baráttu til að hart sé barist þegar þau mætast Þó
svo að annað liðið sé á botni en hitt á toppi ná
bæði iðulega fram sinu bezta og það heyrir alls
KVÖLD
ekki til undantekninga þó blóðið leki í leikjum
þeirra. Leikur FH og Hauka hefst klukkan 21 i
Iþróttahúsinu i Hafnarfirði i kvöld.
Klukkan 19 hefst leikur FH og Vikings i 1. deild
kvenna og þó svo að FH liðið sé i 2. sæti 1. deildar
kvenna, en Víkingur um miðja deild, má reikna
með baráttuleik. FH-liðið hefur ekki sýnt sitt
bezta i siðustu leikjum, en Vikingsstúlkurnar
verið að sækja i sig veðrið. I seinni kvennaleikn-
um, sem hefst klukkan 20, mætast Haukar og
Fram og einnig þar má reikna með baráttulcik, en
þvi er þó ekki að neita að F'H og Fram eru
sigurstranglegri i kvennaleikjunum.
HINIR YNGSTU
í SKÁLAFELLI
I STEFANSMÓTI yngsta skíða-
fólksins, sem fram fór íSkálafelli
á laugárdaginn, áttu KR-ingar tvo
sigurvegara, Ármenningur varð i
fyrsta sæti í einum flokkanna og i
fjórða flokkinum sigraði Akur-
eyringur. Margt efnilegt skiða-
fólk var þarna meðal keppenda og
má nefna að Bryndís Viggósdóttir
fékk betri tíma, en jafnaldrar
hennar I strákaflokki, sem þó
fóru sömu braut. Sömuleiðis stóð
Tinna Traustadóttir sig vel og að-
eins einn strákanna fékk betri
tfma en hún.
Urslit urðu sem hér segir:
Stúlkur 10 ára or yngri: sek.
1. Bryndls Viggósdóttir KR 38.6 39.2 77.8
2. Kristín Ólafsdóltir KR 41.2 42.0 83.2
3. Guðrún Jóna Magnúsd.
AK. 59.8 44.0 103.8
Drpngir 10 ára og yngri: sek
1. Smári Kristinsson AK 38.9 39.2 78.1
2. Kristján Valdimarss. fR 39.9 41.6 81.5
3. Yilbergur Jóhanss. KR 44.6 47.1 91.7
Stúlkur 11—12 ára: sek
1. Tinna Traustadóftir Á 40.7 41.9 82.6
2. Halla Marteinsd. KR 48.5 50.3 98.8
3. I.inda llauksdóttir KR 52.1 47.9 100.0
Drengir 11—12 ára: sek
1. Ingólfur H. Glslas. AK 38.2 40.2 78.4
2. Haukur Þorsteinss. Á 43.3 43.8 87.1
3. Ragnar Sigurðsson KR 43.4 45.1 88.5
Tinna Traustadóttir.