Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR
42. tbl. 65. árg. SUNNUDAGUR 26. FEBRUAR 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
WAVERLY — Allt er nú á tjá og tundri eftir hina geysiöflugu sprengingu sem
varð þar í gær er fljótandi gasi var dælt úr járnbrautarvögnum, sem farið höfðu af
teinunum.
J árnbr autarv agn
springur í loft upp
Waverly —25. febrúar
AP — Reuter.
SEX MANNS létu lífið, yfir
hundrað særðust og 17 b.vggingar
lögðust í rústir þegar járnhraut-
arvagn með 75 þúsund lítrum af
fljótandi gasi sprakk í loft upp í
smábænum Waverly í Tennessee
í gærkvöldi. Svo öflug var spreng-
ingin að stjónarvottar segja að
hún hafi helzt minnt á kjarnorku-
sprengingu.
Logar, reykur og brak þeyttust
mörg hundruð metra i loft upp, og
litlu munaði að annar járnbraut-
arvagn, sem einnig var hlaðinn
gasi, færi sömu leið. Eldur náði að
læsast í þann vagn, en slökkviliði
tókst að ráða niðurlögum hans i
tæka tið.
Vagnarnir tveir höfðu farið af
teinunum i járnbrautarslysi s.l.
miðvikudag, en í gær var verið að
dæla af þeim gasinu i öryggis-
skyni og varð sprengingin vegna
mistaka við þær ráðstafanir.
Miðbærinn í Waverly er lokað-
ur almenningi í dag þar sem
sprengihætta er ekki um garð
gengin. Fyrstu fregnir af slysinu
bentu til þess að mun fleiri hefðu
látið lífið en siðar kom í ljós.
Hinir særðu eru flestir með
brunasár.
Fordæma hergagnasölu
Bandaríkiamia tíl Eþíópíu
Ogaden-deilan til Öryggisráðs SÞ?
ÍUogadishu — Washington
25. febrúar AP. Reuter.
STJÓRN Sómalfu hefur fordæmt
harðlega þá ákvörðun Banda-
rfkjastjórnar að senda Eþíópum
hergögn, en þar er um að ræða
herflutningabíla og tengivagna,
sem sölusámningur var gerður
um f fyrra. Bandaríkjastjórn til-
kynnti s.l. miðvikudag, að þessi
flutningatæki, að andvirði 700
þús. dala, væru hluti af 6 milljón
dala hergagnasölu, sem samið
hefði verið um, og hefði verið
ákveðið að afhcnda þann hluta
gagnanna, sem ekki gæti valdið
manntjóni.
1 ljósi þeirrar fjölgunar sem
orðið hefur í liði Kúbumanna í
styrjöldinni um Ogaden undan-
farið hefur Bandaríkjastjórn nú
til athugunar að leggja málið fyr-
ir Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna.
Talsmaður bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins segir, að stjórn
Carters sé enn þeirrar skoðunr að
deiluefni Afríkuþjóða eigi að
leysa án íhlutunar utanaðkom-
andi aðila, Yfirlýsing
Brzezinskis öryggismálaráðgjafa
Carters forseta í gær um að milli
10—11 þúsund Kúbumenn séu nú
í Eþíóþíu, eða um helmingi fleiri
en fyrir aðeins viku, svo og sú
staðreynd að þekktur sovézkur
Bróðir „Che
Guevara fangi
Buenos Aires. 24. feb. Reuter.
YNGRI bróðir hins látna skæru-
liðaforingja Ernesto „Che“ Gue-
vara situr f fangelsi fyrir stjórn-
málaskoðanir í Argentfnu sam-
kvæmt heimildum herstjórnar-
innar þar I landi.
Nafn Juan Martin Guevara kom
fram á lista stjórnarinnar yfir 511
fanga, sem nú sitja í fangelsi án
undangenginna réttarhalda í
Sierra Chica-fangelsinu um 500
kílómetra suðvestur af Buenos
Aires. Alls munu pófitískir fangar
í landinu vera 2.434 að sögn yfir-
valda.
Samkomu-
lag náðist
í kolanámu-
verkfallinu
Washington. 25. febr. Reuter.
LEIÐTOGAR námuverka-
manna og vinnuveitendur hafa
náð bráðabirgðasamkomulagi
sem bindur endi á lengsta
kolanámuverkfall í sögu
Bandaríkjanna, en námarekst-
ur getur ekki hafizt aftur að
fullu fyrr en eftir þrjár vikur.
Dagskrá sjónvarpsstöðva var
rofin í gærkvöldi svo að Carter
forseti gæti skýrt frá sam-
komulaginu, tveimur klukku-
stundum áður en hann áetlaði
að ávarpa þjóðina til að skýra
frá fyrirætlunum sínum um að
neyða námumenn til að hefja
aftur vinnu.
Carter skoraði á námumenn
að sámþykkja samkomulagið
fljótt og varaði þá við því að
hann mundi gera róttækar ráð-
stafanir ef þeir felldu það. Frá
þvi hafði verið skýrt í Hvíta
húsinu að Carter ætlaði að
beita Taft-Hartley-lögunum til
þess að neyða námumenn til að
vinna í 80 daga meðan reynt
Framhald á bls. 47.
hershöfðingi stjórni aðgerðum
stjórnarhersins á hendur Sómöl-
um, er talin ástæðan fyrir því að
Bandaríkjastjórn hyggist nú láta
öryggisráðið fjalla um málið.
Sovétmenn sitja nú i forsæti í
Öryggisráðinu, og er ólíklegt að
Bandarikjastjórn vísi málinu til
ráðsins fyrr en um mánaðamótin,
pn þá taka Bretar við formennsku
þar.
Upplýsingamálaráðherra Sóma-
liu, Abdisalam Hussein, sagði á
fundi með fréttamönnum að
stjórn Sómalíu gæti með engu
móti skilið mótsagnakennda af-
stöðu Bandarikjastjórnar til
styrjaldarinnar i Ogaden. Það
kæmi í rauninni ekki málinu við
hvers konar hergögn Bandaríkja-
menn sendu Eþíópum, þar sem
hér væri um að ræða grundvallar-
atriði. „Fyrst lýsir Carter forseti
því yfir að Bandaríkin muni láta
Sómölum í té aukna aðstoð til að
vega upp á móti hergagnaflutn-
ingum Rússa og Kúbumanna,"
sagði Hussein. „Næst segir hann
að Bandaríkin muni hvorki láta
Sómölum né Eþíópum i té vopn
meðan þeir eigi í átökum, og nú er
Bandaríkjastjórn farin að senda
hergögn til Eþíópíu."
Lýðhylli
Carters
dvínandi
New York. 24. feb. AP.
ENNÞA virðist halla undan
fæti fyrir Carter Bandarikja-
forseta hvað vinsældir varðar
ef marka má skoðanakönnun
fréttastofunnar „Associated
Press“. Virðist svo sem
frammistaða forsetans í friðar-
viðræðum I M-Austurlöndum
og verkfalli kolanámumanna
hafi síður en svo orðið til að
bæta hlut hans.
Af 1600 manns, sem spurðir
voru, svöruðu 34% þvi til, að
Carter hefði unnið „ágætt“ eða
„gott“. starf. Þetta er 7% færra
en skoðanakönnunin sýndi að
væru ánægðir í janúar. Þeir,
sem töldu að forsetinn hefði
staðið sig „sæmilega“ eða „lak-
lega“, voru 63%, en 3% sögð-
ust ekki vera viss. Þetta er
lélegasta útkoma Carters i
skoðanakönnun síðan hann tók
við embætti forseta.
Tölur þessar renna einnig
stoðum undir þá skoðun að
jafnt og þétt saxist á fylgi for-
setans. Stefnan hefur að þvi er
virðist verið í þessa átt æ síðan
í maí en þá leiddi skoðana-
könnunin í ljós að 61% að-
spurðra var ánægt með störf
forsetans.
Fundin 3.5 milljón
ára ntannsspor?
Washington, 25. feb. AP
REYNIST grunur mannfræðinga
réttur hafa nú komið f leitirnar
fótspor a.m.k. 3.5 milljón ára
gamallar mannveru, sem
varðveitzt hafa í steini í
Tanzaníuríki í Afríku. Það hefur
þó ruglað visindamenn nokkuð í
ríminu að á sama stað hafa
fundizt för eftir apa eða skepnu,
sem stuðzt hefur við arma eða
framfætur.
Fram að þessu hefur verið talið
að elztu fótspor, sem fram hafa
komið og er að finna í Frakklandi,
Framhald á bls. 47.
Fy lkiskosningar
hafnar á Indlandi
Nýju-Delhi, 25. feb. Reuter.
FYLKISKOSNINGAR byrjuðu á Indlandi f dag en talið er að þær muni ráða miklu um hvort framhald
verður á yfirráðum Janata-flokksins eða hvort andstæðingum hans f hinum tvfskipta Kongressflokki
tekst að rétta hlut sinn. Kosið er til þings f fimm fylkjum. A meðal þeirra eru Karnataka. Andhra
Pradesh og Maharashtra á Suður- og Mið-Indlandi og norðausturfylkið Arunachal Pradesh.
Samkvæmt nýjustu fréttum
hefur þátttaka í kosningunum
verið með liflegra móti i sveitum.
Kosningar þessar verða fyrsti
prófsteinninn á vinsældir Indiru
Gandhi, fyrrverandi forsætisráð-
herra, eftir að hún klauf Kon-
gressflokkinn i siðasta mánuði.
Kosningarnar munu einnig leiða í
ljós hve raunverulegt fylgi hins
opinbera Kongressflokks er. sér-
staklega í höfuðvígjum hans i
Mamarashtra og Andhra Pradesh.
Það. sem skiptir væntanlega
mestu fyrir forsætisráðherra
landsins, Moraji Desai, i þessum
kosningum er að þær munu sýna
árangurinn af viðleitni hans til að
gera Janataflokkinn að eins kon-
ar allsherjar-Indlandsflokki.
Fylgi flokksins hefur hingað til
verið mest á hindí-mælandi svæð-
um N-lndlands. Hefur það kapp.
er forsætisráðherrann leggur á
kosningarnar. berlega komið i
Ijós i áróðursherferð flokksins á
siðustu vikum. I heild mun vera
um 5.804 frambjóðendur að ræða.
Talning atkvæða mun hefjast i
Karnataka á sunnudag en í öðrum
fylkjum á mánudag.