Morgunblaðið - 01.03.1978, Síða 1

Morgunblaðið - 01.03.1978, Síða 1
40 SÍÐUR 44. tbl. 65. árg. MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Glistrup- málið fyrir hæstarétt Kaupmannahöfn, 28. febr. AP. MOGENS Glistrup, leiðtogi danska Framfaraflokksins, hætti á þriðjudag öllum tilraunum til að knýja fram umræðu í danska þinginu um það hvort honum væri að eiga áfram sæti í lög- gjafarsamkundu þjóðarinnar eft- ir að fram kom ákæra á hendur honum um stórfelld skattsvik. Glistrup lét af beiðni sinni eftir að ríkissaksóknari tilkynnti að úrskurður borgardóms í máli Glistrups fyrr i þessum mánuði yrði tekin fyrir f hæstarétti. Kannsókn málsins er einhver sú lengsta, er fram hefur farið í Dan- mörku, og. tók alls fjögur ár. Henni lauk með þvi að Glistrup, upphafmaður annars stærsta Framhald á bls. 22 Park mætir íWashington A meðfylgjandi mynd má sjá Tongsun Park, milljónamæring og hrísgrjónasala frá Kóreu, koma til yfirheyrslu í Capitol Hill í Washington ásamt lög- manni sínum, William Hundlev. á þriðjudagsmorgun. Er Park þangað kominn til að svara spurningum siðanefndar þingsins fyrir luktum dyrum. Milljónamæringurinn er grun- aður um að hafa reynt að kaupa sér áhrif f bandaríska þinginu. Nefndarmönnum er forkuður á að vita um einstök atriði í sam- bandi við 100.000 dollara borg- un, sem Park er grunaður um að hafa laumað í vasa nokkurra fyrrverandi þingmanna og öld- ungadeildarþingmanna. „Eg ætla að stíga þarna inn og leyfa þeim að spyrja mig þeirra spurninga, sem þeim þóknast. Ég ætla að gera mitt bezta til að fá mál þetta á hreint," sagði Park fréttamönnum. A mynd- inni með honum sjást öryggis- verðir hans meðan á dvöl hans í Washington stendur. Símamynd AP Reynt að sameina K ongressflokkinn Nýju-Delhi, 28. feb. AP. Reuter. INDIRA Gandhi sagði á þriðju- dag að hún væri ekki ginnkeypt fyrir því að verða forsætisráð- herra landsins á nýjan leik eða þó ekki væri nema forseti neðri deildar þingsins. Eftir stórsigur flokksarms hcnnar í indversku fylkiskosning- unum voru í dag gerðar tilraunir til að bræða saman flokkinn í heild og sögðu formenn hins opin- bera Kongressflokks, að þeir væru viljugir til að ganga til sam- starfs við Indiru. A fundi með fréttamönnum „Associated Press“ fréttastofunn- ar skýrði Indira frá því, að sigur hennar í kosningunum hefði síð- ur en svo komið henni á óvart. „Við sigruðum af því að fólkið stóð í aðalatriðum okkar megin", sagði hún. Drslit kosninganna Framhald á bls. 22 Rhodesísk árás inn í Botswana (•aboront*. 28. febrúar AP. HERSVEITIR frá Rhódesíu réð- ust inn í grannlandið Botswana í gær og felldu 15 Botswanaher- menn og tvo óbreytta borgara og Verðbréfahrun á mörkuðum í Sviss Genf, 28. febr. AP. MIKIÐ hrap varð á svissneskum verðbréfamörkuðum á þriðjudag, meira en dæmi eru til um áður þar f landi. Atburðir þessir koma f kjölfar hafta, sem svissneska stjórnin setti við kaupum útlendinga á skuldabréfum f Sviss. Vísitala tuttugu og fimm mikil- vægra verðbréfa hrapaði um 11.8 stig eða um 4.3 prósent. Að sögn bankafyrivalda er hér um að ræða meira fall en varð 23. nóvember 1973 en þá voru afleiðingar oliu- kreppunnar i hámarki. Það munu hafa verið bankar, sem verst urðu úti á verðbréfamarkaðinum í dag, með 6,5 prósent fall, en önnur fyrirtæki urðu einnig fyrir áfalli og á meðal þeirra flugfélagið Svissair. Mikil verðbréfasala var einnig á mörkuðum í Sviss í dag, en að -sögn vildu hluthafar selja af ótta við að ráðstafanir stjórnarinnar gerðu það að verkum að verðbréf þeirra féllu enn í verði eða að gengi svissneska frankans sjálfs kynni enn að falla. Atburðirnir á þriðjudag höfðu einnig sin áhrif á dollarann á heimsmörkuðum og hrapaði hann snarlega gagnvart svissneska frankanum og tapaði þannig þeirri uppbót, sem hann hlaut með aðgerðum svissneskra stjórn- valda á mánudag. Mun hann hafa tapað um tveimur og hálfu pró- senti af verðgildi sinu gagnvart svissneska frankanum. Á síðastliðnum tólf mánuðum hefur dollarinn tapað sjö prósent- um af verðgildi sínu gagnvart helztu gjaldmiðlum heimsins og má þar um kenna gifurlegum við- skiptahalla Bandarikjamanna á siðasta ári, en hann nam 26.7 milljörðum dollara, og vegna þess að orkufrumvarp Carters náði ekki fram að ganga á þingi. Mbl. sneri sér til Jónasar Haralz Framhald á bls. 22 Platrán á ítaliu? Mílanó, 28. feb. Reuter. TOLLLÖGREGLA á Ítalíu telur sig hafa áreiðanlegar heimildir fyrir því, að einn ítalskur iðjuhöidur að minnsta kosti hafi nýlega sett á svið sitt eigið brotthvarf til að svíkja fé út úr crlcndu tryggingafélagi. Þykir lögreglumönnum for- vitnilegt að af þeim u.þ.b. þrjátíu iðjuhöldum, sem tryggt hafa sig gegn mannrán- um, hafa 10 horfið og verið greitt fyrir þá lausnargjald skömmu síðar. 1 frétt frá Reuter- fréttastofunni segir, að mann- rán séu nú einhver arðbærasti atvinnuvegur, sem um geti á Italiu og hafi mannræningjum tekizt að hafa út jafnvirði 36 milljóna dollara þar í lausnar- gjald fyrir gisla sina. Tollyfir- völd standa nú að rannsókn á Framhald á bls. 22 særðu átta hermenn að því er stjórn landsins sagði í dag. Quett Masire varaforseti sagði á þingi að barizt hefði verið i Kazungula, afskekktu útvirki þar sem landamæri Rhódesiu, Botsw- ana, Zambíu og Suðvestur-Afríku mætast. Hann sagði að atburður- inn gæti orðið til þess að stjórn Botswana neyddist til að endur- skoða afstöðu sína til Rhódesiu- málsins. Botswana er eina blökku- mannarikið er liggur að Rhódesíu sem hefur ekki lýst yfir styrjaldarástandi gagnvart stjórn hvita minnihlutans í Salisbury og hefur ekki leyft rhódesiskum skæruliðum að hafa bækistöðvar i landinu. I Sailsbury var staðfest að her- sveitir hefðu ráðizt inn í Botsw- ana, en rhódesiska herstjórnin sagði að hersveitirnar hefðu verið að veita eftirför skæruliðum blökkumanna sem hefðu ráðizt á rhódesískan varðflokk innan landamæra Rhódesíu. Um bardagana sagði herstjórn- in að rhódesísku hersveitirnar hefðu hörfað jafnskjótt og í ljós hefði komið að þær áttu ekki í höggi við skæruliða heldur her- menn Botswana-stjórnar. Masire varaforseti hélt því hins vegar fram að engir skæruliðar hefðu fundizt á svæðinu sem bar- izt var á og kallaði átökin „grimmilega og tilhæfulausa Ófridaralda í Niceragua Managua, Nicaragua 28. febrúar. AP. Rruter. AÐ MINNSTA kosti 12 létust og um 40 særðust f miklum öeirðum í Managua í gær. Óeirðirnar hóf- ust eftir að Anastasio Somoza, forseti, hafði sagt að hann hygðist ekki leggja niður völd, fyrr en kjörtfmabil hans rennur út 1981. Nemendur við Nicaragua- háskóla fóru i mótmælagöngu til að krefjast þess að Somoza legði þegar niður völd. Kom til átaka milli þjóðvarðliða og nemenda, sem lauk með því að 3 nemenda létu lifið og tveir særðust. Auk þess voru nokkur hundruð þeirra handteknir. Talsmaður þjóðvarð- liðsins neitaði þeim sögusögnum Framhald á bls. 22 Kafbátalið Rússa gerir Svium órótt Slokkhólmi 2*. febr. AP. Sænsk stjórnvöld hafa látið í ljós áhyggjur út af nærveru sex sovézkra kjarnorkukafbáta í Eystrasalti sem þar virðast vera til frambúðar. Kafbátar þessir eru útbúnir meðaldrægum eldflaugum með kjarnorkuoddum og hafast þeir nú við f höfn borgarinnar Liepaja í Lithaugalandi. I opinberri tilkynningu frá sænska utanríkisráðherranum, Karin Söder, segir að Svium hafi verið fullljóst er Sovét- menn fluttu sex gamla kjarn- orkukafbáta með kjarnorku- vopnum til Eystrasalts fyrir ári. Kafbátarnir eru knúnir með dieselolíu og virðast nú vera notaðir til eins konar strand- gæzlu. Karin sagði að með hlið- sjón af stærð eldflauganna þá væri þeim beint að mörkum í Evrópu. „Um nokkurra ára bil höfum við horft upp á það með skelfingu er Sovétmenn hafa í síauknum mæli flutt alls kyns kjarnorkuvopn nær og nær Norðurhöfum og sérstaklega Eystrasalti,*' sagði Söder. Sviar hafa ekki enn sem komið er hreyft máli þessu formlega við sovézk stjórnvöld. Að sögn tals- manns sænska utanríkisráðu- neytisins er engin lagaleg leið til að þjarma að Sovétmönnum svo lengi sem þeir halda sig við alþjóðlegar og eigin siglinga- leiðir. Eldflaugar af þeirri stærð. er um ræðir, má senda allt að 1.200 kílómetra vegalengd og gætu þær spannað svæði t.d. frá París til nyrztu byggða á Norðurlöndum. Kafbátarnir eru að sögn smíðaðir í lok sjötta áratugarins og í byrjun þess sjöunda. Talsmenn finnska utanrikis- ráðuneytisins greindu einnig frá því á þriðjudag að þeim hefðu borizt upplýsingar um sovézka kjarnorkukafbáta á Framhald á bls. 22

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.