Morgunblaðið - 01.03.1978, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1978
17
Teikning af húsinu eins og þvi er ætlað að verða
Athugasemd frá Hrafnseyramefnd
Husið eins og það er nú.
Þjóðminjavörður birti í
Morgunblaðinu 17. febrúars I.
grein með nafninu Hrafnseyrar-
kirkju beðið griða. Nokkurs
ókunnugleika gætir þar svo að
ástæða er til smávegis athuga-
semda.
Hús það sem nú stendur á
Hrafnseyri er ekki fullbyggt og
vantar á það endann með
stafni fram á hlað svo sem er á
hinum endanum Þannig var
húsið teiknað upphaflega og í
samræmi við það ætlar Hrafns-
eyrarnefnd að láta Ijúka bygg-
ingunni. Þegar þjóðminjavörð-
ur talar um hala á bygginguna
mun það eiga við annað en það
sem nú er ráðgert.
Stofurnar sem ætlaðar voru
til skólahalds eru óbyggðar enn
og notast því hvorki við sam-
komuhald né annað Nú á ein-
mitt að byggja þann hluta
hússins sem ætlaður var til
kennslunnar. Gert er ráð fyrir
að þar verði samkomusalur
sem nota megi til ýmiskcnar
mannfunda, — þar á meðal
helgiathafna, og gæti hann
jafnvel gilt sem sóknarkirkja ef
svo sýndist.
Vísir að minjasafni um líf og
starf Jóns forseta er nú þegar á
Hrafnseyri og ætlunin að auka
það eins og þjóðminjavörður
segir. Hitt er sagt af ókunnug-
leika að nægileg aðstaða sé til
fundahalda á staðnum i þeim
húsakynnum sem nú eru þar í
sambýli við safnið.
Ástæðulaust er að óttast að
einhver leynd hvíli yfir störfum
Hrafnseyrarnefndar og að hún
fari i laumi bak við þá sem
gæta skulu almennra hags-
muna i héraði, sóknarnefnd,
sóknarprest o.s.frv
Hrafnseyrarkirkja tilheyrir
ekki Hrafnseyrarnefnd og
nefndin hefur ekki ráðið henni
nein fjörráð eða torveldað að
hún njóti griða. Þyki ástæða til
að vernda hana vegna stíls eða
sögu mun Hrafnseyrarnefnd
ekki spilla þvi.
Hrafnseyrarnefnd mun birta
almenningi áætlanir sínar og
ráðagerðir. í samræmi við það
fylgir þessum orðum mynd af
húsinu eins og það er og þvi er
ætlað að verða.
Hrafnseyrarnefnd.
Þórhallur Ásgeirsson
Ágúst Böðvarsson
Hannibal Valdimarsson
Halldór Kristjánsson
Sturla Jónsson
í dag hefst hin arlega
RÝMINGARSALA
á gólfteppum og bútum
••
AFSLATTUR
Viö erum ^
aðeins aö rýma
fyrir nýjum birgðum
STENDUR I NOKKRA DAGA
lÉPPRLfíND
GRENSASVEGI 13.
Símar 83577 og 83430.
3. landsþingi
Eikar lokið
EININGARSAMTÖK kommún-
ista (marx-lenínista) — EIK (m-
1) héldu þriúja landsþing sitt í
febrúar ad því er segir í fréttatil-
k.vnningu samtakanna. Fulltrúar
deilda og starfseininga samtak-
anna sátu þingið i réttu hlutfalli
vid félagafjölda hverrar einingar.
Ályktanir og önnur vinnuplögg
þingsins höföu flest veriö lijgð
fram til skipulegrar umræöu í
öllum samtökunum í apríl í fyrra.
Landsþingiö fjallaöi um skýrslu
miöátjórnar ;EIK (m-lj ura starf
og stefnu samtakanna 'dg sam-
þykkti skýksluna. Vai* f henni sett
fram kjörorö um stöfnun
kommúnistaflökks1 íslensfcrar
verkalýösstéttar og annai'rar
alþýðu fyrir átslok 1979.
Þingiö afgreiddi drög aö grúnd-
vallarstefnuskrá kommúnista-
fiokksinS til lokaumræðu innan
EIK (m-1). Þá kaus það nýja mið-
stjórn EIK (m-1) og er formaður
hennar Ari T. Guðmundsson og
varaformaður Sumarliði R. Is-
leifsson.
LEIÐRÉTTDJG
Þau leiðinlegu mistök áttu sér stað I
blaðinu i gær að hinn landskunni
Guðmundur Jónasson bifreiðastjóri
var rangfeðraður. Var hann þar sagð-
ur Jónsson, en hann er auðvitað
Jónasson. Leiðréttist það hér með,
og biðjum við hlutaðeigandi velvirð-
ingar.
Svonavilég hafaþao-
skapar þægilegt andrúmsloft,
hann er nýtískulegur
og fer alls staðar vel.
í>að alnýjasta er DAMASK
STRIGINN, sem er gullfallegur.
Lítiðinn
og skoðið sjálf
úrval okkar.
Síðumúla15 sími 3 30 70