Morgunblaðið - 04.03.1978, Page 2

Morgunblaðið - 04.03.1978, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MARZ 1978 Landsbankamálið: Gögn send Hæstarétti SAKADÓMUR Reykjavíkur sendi í gær gögn um rannsókn Landsbankamálsins til Hæsta- réttar en réttargæzlumaður Ilauks Heiðar. kærði til Hæsta- réttar úrskurð sakadóms um að gæzluvarðhald Hauks skyldi framlengt um 15 daga til viðbót- ar. Rannsóknarlögreglan mun hafa krafizt íramlengingarinn- ar. þar sem hún telur ekki nægilega sannað að ekki sé um frekari fjárdrátt af hálfu Hauks að ræða. Á hinn bóginn hefur nú verið sannreynt að staðhæfingar Hauks um að hann geymdi fjármuni í banka í Sviss eru réttar. Eldsvoði á Eskifirði Eskifirði. 3. marz. UM hádegisleytið á miðviku- dag kviknaði í íbúðarhúsinu Kirkjuhlíð 1 hér í bæ og var all mikill eldur í íbúðinni þegar að var komið. Slökkvi- liðið kom strax á vettvang og réð niðurlögum eldsins á stuttum tíma. Miklar skemmdir urðu á íbúðinni og innbú hjónanna sem húsið eiga skemmdist mikið af reyk og eldi. Eldsupptök eru ókunn. íbúðarhúsið eiga þau hjónin Jónatan Helgason og Ólína Magnúsdóttir. Morgunblaðinu barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning frá Landsbanka íslands og réttar- gæslumanni Hauks, Sveini Snorrasyni, um þetta eftir: Sveinn Snorrason, hrl., réttar- gæslumaður Hauks Heiðar, og Barði Arnason, forstöðumaður erlendra viðskipta Landsbanka íslands, fóru um síðustu helgi til Sviss til þess að sannreyna þá staðhæfingu Hauks Heiðar að hann geymdi þar fjármuni, sem hann óskaði að rynnu til Lands- bankans upp í væntanlegar kröf- ur bankans á hendur honum. Samráð var haft við Rannsóknar- lögreglu ríkisins og gjaldeyris- eftirlit Seðlabankans 'um ferð þessa. Fjármunir þessir eru að hluta til í verðbréfum, sem enn hafa ekki verið seld vegna þeirrar óvissu, sem ríkir á verðbréfa- markaði í svissneskum frönkum. Fjármunir þessir eru nú í sam- eiginlegri vörzlu Landsbankans og Sveins Snorrasonar, hrl., og ætlaðir til ráðstöfunar til Lands- bankans þegar hann krefst þess. Verðmæti þessara fjármuna má ætla að sé liðlega 25 milljónir króna. Auk þess hefur Haukur Heiðar þ. 8. febrúar s.l. gefið út þinglýst- ar skuldbindingar um að ráðstafa ekki fasteignum sínum í Reykja- vík og Grafningi án samþykkis Landsbankans og afhent bankan- um til vörzlu hlutabréf að verð- mæti 6—7 millj. króna. Frá útifundinum á Lækjartorgi á miðvikudag. (Ljósm. RA'X 9) launafólks segir í dag álit sitt á aðgerðum ríkisstjóm- arinnar í efnahagsnlálum,, — sögðu ræðumenn á útifundinum á Lækjartorgi Alþýðusamband íslands. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, launamálaráð Bandalags háskóiamanna, Farmanna- og fiskimannasamband íslands og Iðnnemasamband íslands efndu á miðvikudag til útifundar á Lækjartorgi. Margt manna mætti á fundinum, þ.á m. margt skólafólk. Ræður fluttu Snorri Félagsstofnun stúdenta greiðir fullar vísitölubætur Hlaut á síðasliðnum fjárlögum 19 milljón króna styrk úr ríkissjóði FÉLAGSSTOFNUN stúdenta hefur ákveðið að greiða 42 starfsmönnum sínum fullar vísitölubætur á laun hínn 1. marz. Þessi ákvörðun var tekín á stjórnarfundi Félagsstofnunarinnar, Þar sem 4 af 5 stjórnarmönnum voru mættir. Akvörðunina tóku 3 stjórnar- menn, fulltrúar stúdenta, gegn at- kvæði Stefáns Svavarssonar endur- skoðanda. Stefán Gunnarsson, full- trúi menntamálaráðuneytisíns, sat ekki fundinn. Stefán Svavarsson. sem Morgun- blaðið ræddi við í gær, kvaö meirihluta stjórnar hafa, með þessu viljað lýsa vanþóknun sinni á ákvörðun ríkis- stjórnarinnar um að skerða verðbóta- ákvæði. Hann kvaðst hafa bent á — án þess að láta bóka ummaeli sín — að hann væri þessu andvígur, þar sem hann liti svo á að ríkisstjórnin gæti sett lög um slíkt efni. Auk þess ætti Félagsstofnun stúdenta undir ríkis- valdið aö sækja um eitt og annað er varðar rekstur stofnunarinnar og þeirrar þjónustu, sem hún tætur stúdentum í té. Þá ræddi Morgunblaðið einnig við Jóhann Scheving. framkvæmdastjóra félagsstofnunarinnar. Hann kvaö um 6% af ársveltu Félagsstofnunar stúdenta koma frá ríkinu í formi styrkja, en á síðastliðnu ári var stofnunni veittur styrkur úr rikissjóöi, 19 milljónir króna. Að öðru leyti stendur rekstur stofnunarinnar undir sér eða sú þjónusta, sem hún selur. Nefndi hann sem dæmi að bóksala Siglfirð- ingar fá aftur hita HITAVEITUMÁL Siglfiróinga eru sem óóast aó komast í viðunandi horf, og aó sögn Snorra Björns bæjarritara var verið aö tengja hitaveituna í síðustu húsin seinnipart dagsins. Aðaldælan reyndist óskemmd og um leið og búið var að slá flekahúsi yfir dæluna hófst viðgerð, sem tók skamma stund. Hins vegar sagði Snorri að þetta verk hefði verið unnið við ótrúlega erfiðar aöstæöur, því að blindbylur hefði verið svo að naumast sást út úr augum. Sagöi Snorri því að þeir sem aö þessu unnu, hefðu því unnið hreint þrekvirki. Snorri tók sem dæmi, að vinnuhópur sem farið hefði úr Skútudal áleiðis í bæinn kl. 2 hefðu verið kofnnir kl. 8, og væri þessi leið aöeins um 5 km og hópurinn hefði haft sér til fulltingis jarðýtu og dráttarvélargröfu. stúdenta hefði á síðastliðnu ári skilað hagnaði. Hins vegar væri mötuneytið erfiðast í rekstri og hefur tekizt að minnka reksturshalla þess undanfarin 2 ár. Fær félagsstofnunin eftirgefinn söluskatt af þeirri þjónustu sem hún veitir svo serp önnur mötuneyti ríkisins, en mötuneytið greiðir hins vegar söluskatt af hráefni. Þau 6% af veltunni, sem koma frá ríkissjóöi fara í ýmsa útgjaldaliði stofnunarinnar, sem eru af ýmsum toga. Á síöastliðnu ári óskaði Félagsstofn- un stúdenta eftir tæplega 65 milljón króna fjárveitingu, en hún fékk 19 milljónir þrátt fyrir það að mennta- málaráðuneytið hefði mælt með _40 milljónum til hennar. Styrkbeiðnin var þannig sundurliðuö að fariö var fram á 14,7 milljónir króna til sameiginlegs reksturs skrifstofu og félagsheimilis og 3 milljónir króna til stúdentaheimilis. Þá var farið fram á styrk til greiðslu á afborgunum, en þar var vitnað til loforös, sem Magnús Jónsson, fyrrver- andi fjármálaráðherra, hafði gefið um styrki á árunum 1970 til 1980. Farið var fram á styrk vegna endurbóta á stúdentagörðum að upphæð 25 rnilljónir króna og til reksturs matstofu að upphæð 1,7 milljónir. Þá kvað Jóhann Ijóst að leigutekjur af hjóna- görðum stæðu ekki undir afborgunum af lánum, sem á þeim hvíldu og var Framhald á bls. 30. Jónsson, varaíorseti ASÍ, Kristján Thorlacius, formaður BSRB, og Jón Hannesson, for- maður launamálaráðs BHM, en fundarstjóri var Jónas Sigurðs- son, starfsmaður INSÍ. Við upphaf og lok fundar, sem stóð í um 25 mínútur, lék Lúðrasveit verkalýðsins. í ræðu sinni á fundinum gerði Snorri Jónsson að umtalsefni lög þau um efnahagsráðstafanir er fyrir skömmu voru samþykkt á Álþingi. Taldi hann tillögur ríkisstjórnarinnar vera árás á launafólk, sem hann sagði mundu segja álit sitt á þeim 1. og 2. marz. Kristján Thorlacius vék einnig að efnahagsráðstöfunum ríkis- stjórnarinnar. Sagði hann lög þau, er samþykkt voru á Alþingi, rifta kjarasamningum sem gerðir hefðu verið á síðasta ári. „Á þessum degi hefur allur þorri launafólks lagt liiður vinnu tíl þess að mótmæla ógildingu gerðra kjarasamninga," sagði Kristján. Kristján Thorlacius sagði á útifundinum á Lækjartorgi að rangt væri að jafnrétti ríkti á íslandi. Sagði hann þróun síðustu ára í þá átt að færa alræðisvald í hendur atvinnurekenda. Sagði hann atvinnurekendur ráða Is- landi í skjóli bankavaldsins, eins og hann komst að orði. Sagði hann í því efni sama hvaða ríkisstjórn hefði farið með völd. Jóni Hannessyni varð tíðrætt um lögin um aðgerðir í efnahags- málum sem nýlega voru sam- þykkt á Alþingi. Taldi hann þau skerða frelsi launafólks til að semja um kaup sitt og kjör. Lauk Jón máli sínu með því að segja: Sameinaðir stöndum vér — launafólk til valda. Samþykkti Framhald á bls. 30. Bensín hækk- ar í 119 krónur BENSÍNHÆKKUN tekur gildi í dag. Hækkar bensín- lítrinn um 6 krónur í 119 krónur. Er það 5.3% hækkun. 25 þús. tonn af loðnu síðustu 3 sólarhringa LÍTIL loðnuveiði var í gær vegna brælu á miðunum, en aðalveiðisvæðið hefur lítið breytzt frá því s.l. sunnudag. Á fimmtudag fengu um 40 skip alls 17. þús. tonn, en á miðviku- dag var tilkynnt um 7 þús. tonna afla. Þau 6 skip sem höfðu tilkynnt um afla í gær voru með aðeins 1650 tonn alls. Þessi skip tilkynntu um afla á fimmtudag og föstudag: Hilmir SU 530 Vonin KE 150 Sárafáir borgarstarfsmenn frá vinnu” sagði borgarstjóri Á fimmtudagskvöldíð kvaddi Sigur- jón Pétursson (Abl) sér hljóðs utan dagskrár á fundi borgarstjórnar. Lagði hann til, „aö ekki skuli gripiö til neinna hefndarráðstafana gegn peim einstaklingum sem orðið hefðu við áskorun launpegasamtakanna“. Borgarstjóri svaraði pví til, að hér væri alls ekki um hefndarráðstafanir aö ræða heldur væri hér farið eftir reglu sem áöur heföi veriö sampykkt ágreiningslaust í borgarstjórn. Hann sagði allar skýringar til réttlætingar hinum ólöglegu aðgerðum algerlega falla um sjálfar sig. í máli borgarstjóra kom fram, aö sárafáir borgarstarfsmenn heföu ekki mætt til vinnu og rekstur Reykjavíkur- borgar heföi aö mestu leyti gengiö eölilega. Albert Guömundsson tók einnig þátt í umræöunum og sagöi, aö ef talsmenn Alþýöubandalagsins eygöu tækifæri til aö skapa óróa þá reyndu þeir þaö. Þátttaka í þessum aögeröum sannaöi enn einu sinni aö almenningur óskaöi ekki eftir forystu Alþýöubandalagsins. Stapavík SI Pétur Jónsson RE Skarösvík SH Albert GK Guðfinna Steinds. ÁR Guðm. BA Helga II RE Hrafn GK Grindvíkingur GK Huginn VE Heimaey VE óskar Halldórs. RE Helga RE Kap VE Örn KE Bjarnarey VE Hrafn Sveinbj. GK Narfi RE Súlan EA Arnarnes HF Gísli Árni RE Hákon ÞH Fífill HE Andvari VE ísleifur IV ÁR ísleifur VE Datffari ÞH Rauðsey AK Sandafell GK Guðmundur Kristj. SH Loftur Baldv. EA Náttfari ÞH Þórshamar GK Guilborg VE Borkur NK Víkurberg GK Þórður Jónasson EA Bylgja VE Eldborg GK Sigurbjörg ÓF Hilmir SU Gjafar VE Faxi GK Ljósfari ÞH Arney KE 500 660 620 570 180 400 530 600 570 580 140 400 260 580 550 140 130 700 630 420 420 650 470 170 150 270 50 350 340 250 620 210 470 500 470 250 320 150 480 250 400 240 290 320 150

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.