Morgunblaðið - 04.03.1978, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MARZ 1978
Dagsbrúnarmenn lok-
uðu benzínstöðvum
Spítalarnir störfuðu eðlilega
Aðeins röskun á
skurðstofuvinnu
Sjónvarps-
fólk felldi
niður vinnu
í einn dag
STARFSMANNAFÉLAG
Sjónvarpsins hélt félagsfund
árdegis fyrri verkfallsdaginn.
Fyrir fundinum lágu tvær
tillögur. Hin fyrri var um að
vinna ekki fyrri verkfallsdag-
inn, en hin sfðari var um það
að vinna, en halda siðan fund
á útsendingartíma, þannig að
útsending félli niður. Tillag-
an, sem fjallaði um að fella
niður vinnu 1. marz, var
samþykkt með 42 atkvæðum
gegn 41.
Síðari verkfallsdagurinn var
fimmtudagur og er það frídag-
ur sjónvarpsstarfsmanna. Þess
vegna féll niður sjónvarp á
miðvikudag og urðu því tveir
sjónvarpslausir dagar þessa
vikuna.
Starfsmenn hljóðvarps sam-
þykktu á fundi 28. febrúar að
fella ekki niður vinnu og var
hlutfall þeirra, sem komu til
vinnu báða verkfallsdagana,
Vinnuveitendasamband ís-
lands mótmælir harðlega samn-
ingsrofum og ólögmætum verk-
föllum ýmissa verkalýðsfélaga
nú í dag og lýsir fullri ábyrgð
á hendur þeim stéttarfélögum,
sem að slíku standa.
Verkföllin eru ekki einungis
gróf og skaðabótaskyld samn-
ingsrof gagnvart þeim, sem þau
bitna á, heldur eru þau einnig
brot á lögum um stéttarfélög og
vinnudeildur, sem banna verk-
MARGAR benzínstöðvar í
Reykjavik opnuðu að morgni
miðvikudagsins 1. marz, þ.e.
þær stöðvar þar sem starfsmenn
komu til vinnu. A fimm benzín-
stöðvum af 10 í Reykjavík og
Hafnarfirði komu flestir til
vinnu. sagði Magnús Magnússon
hjá Olíufélaginu Skeljungi, og
höfðum við allar stöðvarnar
opnar nema tvær. bví miður
kom áður til hreinnar verkfalls-
boðunar af hálfu Dagsbrúnar og
föll, sem gerð eru til að þvinga
stjórnvöld til tiltekinna athafna
eða athafnaleysis — segir í
fréttatilkynningu, sem Morgun-
blaðinu barst í gær.
Þá segir ennfremur: Þá mót-
mælir Vinnuveitendasamband
Islands sérstaklega óviðfelldn-
um hótunum og jafnvel ofbeldi,
sem forystumenn nokkurra fé-
laga og svokallaðir verkfalls-
verðir hafa sums staðar haft í
frammi við þá einstaklinga, sem
vildu vinna.
voru stöðvarnar heimsóttar ein
af annarri af um 20 manna hópi
Dagsbrúnarmanna og menn
neyddir til að leggja niður
vinnu. Við gripum ekki til
neinna gagnráðstafana, sagði
Magnús, en höfðum eins lengi
opið og stætt var, og tel ég að
þetta hafi verið rekið af meira
kappi en forsjá og orka þessar
aðgerðir tvímælis að mínu áliti.
— Það var 100% mæting hjá
okkur, sagði Guðjón Sigurðsson
hjá Olís, en síðan komu Dags-
brúnarmenn á vettvang og
hröktu mennina heim, þá menn
sem ekki töldu sig hafa efni á að
missa af kaupi sínu fyrir þessa
daga, kannski 20—30 þúsund
krónum. Ekki hefur heldur verið
dreift neinni olíu og hefði það
getað komið sér illa fyrir t.d.
loðnuskipin, en á stöðinni hjá
okkur á Laugarnestanga kom um
helmingur starfsmanna til vinnu.
Leifur Guðmundsson hjá Olíu-
félaginu sagði að af 10 benzín-
stöðvum félagsins í Reykjavík og
Hafnarfirði hefðu 8 verið opnað-
ar um morguninn og verið opnar
í stuttan tíma, en starfsmenn
voru fengnir til að hætta vinnu
sinni. Sagði hann að hins vegar
hefði verið áfram opið í Hafnar-
firði, og þannig var einnig hjá
hinum félögunum, og tóku þeir
einnig fram að ekki hefði verið
reynt að opna á fimmtudeginum.
YFIRLEITT skilaði fólk sér vel
til vinnu í sjúkrahúsin í Reykja-
vík þá tvo verkfallsdaga, sem
hvatt hafði verið til. Þó munu
hjúkrunarfræðingar ekki hafa
komið til vinnu og féll niður af
þeim sökum vinna á skurðstof-
um og við svæfingar. Þó var
höfð neyðarvakt, ef alvarleg
tilfelli bæri að höndum.
Borgarspítalinn var rekinn
eðlilega að öðru leyti en því að
skurðaðgerðir og svæfingar féllu
niður eins og áður er vikið að.
Allt starfsfólk skilaði sér nema
hjúkrunarfræðingar og ennfrem-
ur féll niður gæzla á barnaheimili
spítalans. Þetta olli í fyrstu
nokkrum erfiðleikum fyrir það
starfsfólk, sem nýtur þjónustu
heimilisins, en það bjargaði sér
þó furðu vel, að því er Morgun-
blaðið fékk upplýst á skrifstofu
forstöðukonu spítalans.
Hið sama er að segja um
Landspítalann. Þó féll þar vinna
niður á röntgendeild hinn síðari
verkfallsdaginn. Neyðarvika
NOKKRAR truílanir urðu a
flugi Flugleiða dagana 1. og 2.
marz og reyndar nokkra daga
áður, en lítið hefur verið flogið
innanlands í vikunni. framan af
vegna veðurs og síðan vegna
verkíallsaðgerða.
Sveinn Sæmundsson blaðafull-
trúi Elugleiða sagði að ekkert
hefði verið flogið til ísafjarðar
síðan á laugardag og ekkert til
sumra staða innan lands síðan á
sunnudag. Nokkuð hefði brugðið
til betra veðurs á miðvikudag og
voru þá teknar út vélar og fólk
bókað í eina vél og áhöfn var
komin út í vél, en þá óku menn
frá Dagsbrún bílum sínum inn á
flugvélastæðið, og lögðu þeim
fyrir vélina. Brutu þeir þannig
öryggisreglur, sagði Sveinn og
voru þeir beðnir að færa bíla sína
og gerði annar það fljótlega. Eg
var á Landakotsspítalanum.
Samkvæmt upplýsingum að-
stoðarforstöðukonu Landspítal-
ans mætti hjúkrunarfólk þar vel
til vinnu að öðru leyti en varðar
hjúrkunarfræðinga á skurðdeild.
Þar féll vinna niður, en neyðar-
vakt var, ef eitthvert slíkt tilfelli
kæmi upp, sem ekki þyldi bið. A
geðdeild Landspítalans við Dal-
braut féll öll vinna niður, en öllu,
sem mjög brýnt var, var þó sinnt.
Hlutfall þess fólks, sem kom til
vinnu á ríkisspítölunum, Land-
spítala, Kleppsspítala, Vífils-
staðaspítala, Kópavogshæli og á
skrifstofu ríkisspítalanna var
fyrri verkfallsdaginn 97%, en
hinn síðari 98%.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið aflaði sér, mun
annað starfsfólk spítalanna,
einkum læknar, hafa gagnrýnt
talsvert fjarvistir hjúkrunar-
fræðinga, þar sem fjarvistir
þeirra röskuðu öllum áætlunum
um aðgerðir á skurðstofum
spítalanna.
man ekki eftir svona hörku þrátt
fyrir verkföll.
Um millilandaflugið sagði
Sveinn að felld hefði verið niður
ein ferð til New York og vél á leið
til Chicago hefði flogið yfir vegna
veðurs á þriðjudag, en kom við á
miðvikudag og fékk lágmarks-
þjónustu. Þá voru tvær vélar í
Kaupmannahöfn tepptar vegna
veðurs á þriðjudag, vél kom frá
Luxemborg á miðvikudag og á
fimmtudag var allt millilanda-
flug komið í eðlilegt horf, 'enda
engar aðgerðir á Suðurnesjum
nema á miðvikudaginn.
Um mætingar starfsfólks sagði
Sveinn, að af 97 starfsmönnum á
stöðinni á Reykjavíkurflugvelli
hefði vantað 24 og af 160
starfsmönnum á Keflavíkurflug-
velli hefðu allir komið nema
tveir.
99%.
VSÍ lýsir ábyrgd
á hendur verka-
lýdsfélögunum
Truflanir urðu á
flugsamgöngum
Misjöfn þátttaka
un á skólastarfinu vegna þess, en
flestir kennarar skólans mættu
til starfa. — Sv.P.
Húsavík
Starfsemi frystihússins var
alveg lömuð báða dagana og
Skaftafell varð að bíða eftir
útskipun til miðnættis aðfarar-
nótt föstudagsins. Starfsmenn
áhaldahúss bæjarins mættu ekki
til starfa, en aðrir bæjarstarfs-
menn unnu allir með tölu. Full
kennsla var í barnaskólanum, en
í gagnfræðaskólanum var aðeins
kennt í níunda bekk. Starfsemi
sjúkrahússins gekk eðlilega fyrir
sig og verzlunarmenn fóru ekki í
verkfaíl.
Hjá embætti sýslumannsins
mættu allir fyrri daginn, en
síðari daginn enginn, nema sýslu-
maður sjálfur og fulltrúi. Starfs-
menn pósts og síma mættu allir.
Iðnaðarmenn voru nokkuð
skiptir; sumir í verkfalli og aðrir
ekki, til dæmis voru bílaverk-
stæðin lokuð. — Fréttaritari.
Kópasker
Hér hafa aðeins tveir menn
farið í verkfall; skólastjóri barna-
skólans og starfsmaður fyrir-
tækisins Rafafls. Aðrir kennarar
héldu uppi kennslu báða dagana
og einnig var eðlileg kennsla í
miðskólanum Lundi, Öxarfirði,
og í Skúlagarði í Kelduhverfi. —
Fréttaritari.
Raufarhöfn
Allt starfsfólk loðnúbræðsl-
unnar, um 50 manns, lagði niður
vinnu báða dagana. Vöktum í
bræðslunni var þó ekki slitið og
unnu þar 4—5'menn til að ekki
yrði tjón af stöðvuninni. Eftiy var
um hálfs þriðja sólarhrings
hráefni og- var vinnsla hafin
strax og verkfalli lauk á miðnætti
aðfaranótt föstudags. Ekkert
hráefni var í frystihúsinu, en
starfsemi saltfiskverkenda var í
fullum gangi. Skip, sem hér átti
að les.ta á fimmtudag, var vísað
frá.
Allir kennarar á staðnum
lögðu niður vinnu, en verzlanir
voru opnar. Iðnaðarmenn unnu
allir og einnig starfsmenn Raf-
afls.
Á fundi verkalýðsfélagsins var
samþykkt að taka þátt í verk-
fallsaðgerðunum, en tillaga um
að atvinnurekendum yrði til-
kynnt um verkfallið skriflega,
Vopnafjörður
„Hér er öll vinna rneð eðlileg-
um hætti hjá verkafólkinu", sagði
Gunnar Sigmarsson á Vopna-
firði. „Af opinberum starfsmönn-
um mættú tveir kennarar ekki til
starfa, en að öðru leyti hefur
bæjarlífið verið fullkomlega eðli-
legt þessa tvo daga.“
Borgarfjörður
eystri
Starf barna- og unglingaskól-
ans lá niðri þessa daga, þar sem
hvorki skólastjórinn né fastráð-
inn kennari mættu til starfa. Að
öðru leyti er það að segja, að hér
er enga atvinnu að hafa eins og
er, nema hvað 2—3 menn vinna
við höfnina og unnu þeir báða
dagana.
Verkalýðsfélagið heldur fund
um samningamálin á föstudags-
kvöld. — Fréttaritari.
Seyðisfjörður
Hér vann verkafólk alls staðar
báða dagana, nema í Vélsmiðju
Seyðisfjarðar, sem var lokuð.
Full afköst voru hjá báðum
bræðslunum, báðum frystihúsun-
um og vélsmiðjunni Stál.
Sjúkrahúsið var fullmannað,
en fjórðungur kennara mætti
ekki til starfa og dagheimilið var
starfrækt að takmörkuðu leyti.
Starfsfólk bæjarskrifstofunnar
mætti ekki, utan bæjarstjórinn,
en á skrifstofu sýslumanns-
embættisins var eðlileg starf-
semi. — Sveinn.
Egilsstaðir
Um helmingur kennara mætti
ekki til starfa og einnig um
helmingur starfsfólks prjónastof-
unnar Dyngju. Útivinnumenn
Pósts og síma unnu heldur ekki,
en að öðru leyti gekk atvinnulífið
snurðulaust, m.a. var 100% mæt-
ing hjá stærsta atvinnurekand-
anum, Brúnási. — Steinþór.
Reyðarfjörður
Hér unnu allir, bæði verka-
menn og opinberir starfsmenn
undantekningarlaust. — Frétta-
ritari.
Eskifjörður
Á fundi verkalýðsfélagsins á
þriðjudagskvöld var fellt með 53
atkvæðum gegn 24 að grípa til
verkfallsaðgerða. Hér var því
unnið báða daga í öllum fiskverk-
unarstöðvum, bræðslunni og hjá
því opinbera, nema í skólanum
mættu aðeins tveir af níu kenn-
urum. — Ævar.
Neskaupstaður
Hjá bræðslunni mættu 12 af 45
starfsmönnum og unnu þeir til
skiptis að loðnumóttöku báða
dagana. Af um 100 manna
starfsliði frystihússins mættu 3
og til saltfiskverkunar mætti
enginn. Af iðnaðarmönnum lögðu
málm- og skipasmiðir niður
vinnu, en trésmiðir voru skiptir,
sumir unnu en aðrir ekki. Allir
vörubílstjórar unnu.
Af bæjarstarfsmönnum mætti
einn starfsmaður til vinnu hjá
bæjarsjóði. Einn kennari mætti í
barnaskólanum, en enginn í
gagnfræðaskólanum eða iðn-
skólanum. Unnið var eins og
venjulega í báðum bönkunum og
á sjúkrahúsinu og hjá bæjar-
fógeta mættu einnig allir til
starfa. — Ásgeir.
Fáskrúðsfjörður
Hér fóru kennarar í verkfall,
en þó var kennt í níunda bekk
vegna samræmdu prófanna. Önn-
ur opinber starfsemi var með
eðlilegum hætti báða dagana.
Verkalýðsfélagið samþykkti að
félagsmenn þess skyldu leggja
niður vinnu þessa tvo daga.
Loðnubræðsla stöðvaðist, en þó
var tekið á móti loðnu til klukkan
9 á miðvikudagsmorgun og
klukkan 8 á fimmtudagsmorgun-
inn var byrjaö að vinna bein, en
um helmingur starfsmanna verk-
smiðjunnar vildi vinna.
Um helmingur starfsfólks
frystihúss kaupfélagsins mætti
til vinnu, en saltfiskverkun lá
niðri. Hjá frystihúsi Pólarsíldar
var enginn fiskur til vinnslu, en
þar voru flestir karlmenn að
vinna í síld, en mæting þar var
um 80%. Meðan Pólarsíld hefur
ekki hráefni er fiski frá kaup-
félagshúsinu ekið til Breiðdals-
víkur.
í Trésmiðju Austurlands vant-
aði einn starfsmann og af 6
starfsmönnum Búðahrepps sátu
tveir heima. — Fréttaritari.
Breiðdalsvík
„Hér kom ekki til verkfalls
verkafólks," sagði Rafn Svansson