Morgunblaðið - 04.03.1978, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MARZ 1978
19
Reykjavíkurborg:
Forföll ekki meiri
en í meðalflensutíð
Nokkur skip hafa taf-
izt vegna aðgerðanna
SVO TIL allir félagsmenn Starfs-
mannafélags Rcykjavíkurborgar
komu til vinnu báða verkfallsdag-
ana, enda hafði félagsstjórnin hvatt
menn til þess að sækja vinnu og lýst
þeirri skoðun sinni, að vinnustöðv-
un þjónaði ekki hagsmunum fólks-
ins. Að sögn Magnúsar óskarsson-
ar, hæstaréttarlögmanns og vinnu-
málastjóra borgarinnar, voru for
föll starfsfólks hjá Reykjavíkur
borg ekki meiri en í meðalflensutíð
og jafnvel betri.
Magnús kvað í raun mestu forföll-
in vera á Borgarspítalanum í einum
starfshópi þar, hjúkrunarfræðing-
um. Varð að loka þar skurðstofu eins
og fram kemur í frétt um sjúkrahús-
in annars staðar í blaðinu í dag. A
Borgarspítalanum starfa um 700 til
800 manns, en þessir hjúkrunarfræð-
ingar, sem ekki sóttu vinnu, eru á
bilinu 50 til 60. Læknar tóku þessum
Gekk á ýmsu
segir for-
maður Hlífar
— ÞAÐ MÁ eiginlega segja
að hafi gengið á ýmsu hér í
Hafnarfirði, sagði Hallgrím-
ur Pétursson formaður verka-
mannafélagsins Hlífar en við
skírskotuðum, til hvers og
eins um að leggja niður vinnu
þessa daga.
Öll vinna lá niðri í Álverinu
og frystihúsum í Hafnarfirði
svo og í fiskmjölsverksmiðj-
unni og hafnarvinna, en þær
tvær bensínstöðvar sem hér
eru voru opnar. Ég tel að þetta
hafi verið samtals um 500
manns án þess þó að það sé
vandlega talið hjá okkur og
hvað varðar verkakvennafé-
lagið Framtíðina má segja að
svo til allir félagsmenn hafi
lagt niður vinnu, a.m.k. í
frystihúsunum, en það eru
stærstu vinnustaðirnir.
forföllum heldur illa, þar sem það
fólk, sem áætlað hafði verið að færi
í aðgerðir og skurði, var búið að
fasta. Ennfremur fóru allar bókanir
á skurðstofur spítalans úr skorðum.
Þá urðu einnig nokkur vanhöld á
fólki á barnaheimilum borgarinnar
og mun um helmingur þeirra hafa
verið lokaður. Á öðrum varð að
takmarka fjölda barna, en allmörg
voru þó opin. Þá urðu talsverð
vanhöld í sálfræðideild skóla og
einnig í Félagsmálastofnun borgar-
innar. Var þó á báðum stöðum aðeins
um nokkra einstaklinga að ræða.
Sem dæmi má nefna að aðeins
vantaði einn starfsmann hjá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur, 4 hjá
Borgarbókasafninu af 60 starfs-
mönnum og af starfsmönnum borg-
arinnar í skólum komu allir til
vinnu. í þessu sambandi verður þó að
geta þess að allir kennarar eru
ríkisstarfsmenn. Strætisvagnar
gengu allir eðlilega, þar sem engan
starfsmann þeirra vantaði.
Þau vanhöld, sem urðu meðal
fólks, sem vinnur fyrir Reykjavíkur-
borg, voru öll frá félagsmönnum
Verkamannafélagsins Dagsbrúnar.
FÉLAG ísenzkra iðnrekanda lét
fara fram könnun á þátttöku
fólks í þeim verkfellsaðgerðum,
sem launþegafélögin beittu sér
fyrir, hjá þeim fyrirtækjum, sem
aðild eiga að Félagi íslenzkra
iðnrekenda. Gerð var úrtaks-
könnun 30 fyritækja af þeim 200
sem aðild eiga að félaginu.
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar munu um 20% starfs-
manna að meðaltali hafa verið
fjarverandi. Hins vegar sagði
Björn Bjarnason, formaður
Landssambands iðnverkafólks,
að talið væri að um helmingur
félagsmanna Iðju í Reykjavík
hefði tekið þátt í verkfallinu.
Björn Bjarnason sagði að
félgsmenn hefðu verið hvattir til
þátttöku í verkfallinu, en hins
vegar hefði ekki verið haldið uppi
verkfallsvörzlu. Um framhald
FRAMLEÐSLUSTÖÐV-
UN varð báða verkfalls-
dagana í álverinu við
Straumsvík. Þó var þar
starfskraftur, sem hélt
heitu á kerjum álversins á
meðan á verkfallinu stóð.
aðgerða kvað Björn ekkert ákveð-
ið enn, en kvaðst búast við að
fundir yrðu haldnir um þær á
næstu dögum.
Morgunblaðið fékk í gær upp-
lýsingar um mætingu starfsfólks
í nokkrum iðnfyrirtækjum þessa
tvo verkfallsdaga. Hér á eftir
verður mæting gefin upp í
prósentutölum.
Málmstrypa Ámunda 100%. Prjónastofa
Borgarness 90%, Lofturka. Borgarnesi 100%,
Dúkur 100%, Lexa 100%, Klæði 100%, Vinnu-
fatagerðin rúmlega 90%, Kassagerðin 100%,
Sápugerðin Frigg 100%, Stálumbúðir 15%,
Bikarbox 100%, Hamiðjan — mismunandi eftir
eldum eða frá 20 í 100%, Sportver 50%, Solido
100%. Smjörlíki 100%. Henson 25%, Alís 100%,
Málning 50%, Fóðurblandan 50%, Sigurplast
90%. Álafoss — mismunandi eftir deildum eða
frá 50% í 100%, Dósagerðin 25%, Ölgerðin Egill
Skallagrímsson 85%. Nói. Síríus 100%, Oína-
smiðjan 85%. Sindri — mismunandi eftir
deildum allt frá 0 og upp í 100%. Járniðnaðar
menn mættu ekki til vinnu. Plastprent —
enginn prentari mætti og talsverð vanhöld urðu
meðal félagsmanna Iðju. Harpa 90% og Vírnet.
Borgarnesi. 20%.
MORGUNBLAÐIÐ leitaði til nokk-
urra fyrirtækja í Reykjavík og
spurðist fyrir um hveraig starfsemi
þeirra hefði verið þá daga sem
aðgerðir launþegasamtaka stóðu
yfir.
Hjá Eimskipafélagi íslands fékk
blaðið þær upplýsingar að allt
skrifstofufólk hefði komið til vinnu,
en vörugeymslum hefði verið lokað
og ekki hefðu skip verið afgreidd þar
sem verkamenn hefðu lagt niður
vinnu. Af þessum sökum hafa þrjú
skip félagsins tafizt, en aðrir þættir
starfseminnar eru með eðlilegum
hætti.
Starfsemi Sambands ísl. sam-
vinnufélaga hefur verið með eðlileg-
um hætti, hvað skipadeildina áhrær-
ir, þ.e. að vöruafgreiðslan er lokuð,
Borgarnesi
Patreksfirði,
Sauðárkróki
Akureyri
Neskaupstað
Vestmannaeyjum
Selfossi
en skip hafa ekki tafizt þar sem þau
héldu úr höfn í Reykjavík að kvöldi
28. febrúar.
Hjá Mjólkursamsölunni vinna
einkum Dagsbrúnarmenn óg Sóknar-
konur að framleiðslunni og var því
starfsemi mjólkurstöðvarinnar í
lágmarki. — Við gerðum ráð fyrir
þessu verkfalli sagði Guðlaugur
Björgvinsson og ókum meira magni
af mjólkurvörum í búðir á mánudag
og þriðjudag. Á fimmtudaginn var
ekið nokkru magni til okkar frá,
Selfossi og við höfum getað leyst úr
málefnum einstakra spítala og
stofnana sem þurft hafa að leita til
okkar um mjólk. Að framleiðslunni
og dreifingunni vinna um 100 manns
og eru langflestir þeirra í verkfalli,
þ.e. einnig bílstjórar og starfsmenn
á bílaverkstæði.
— Hvernig mættu...
að Hallormsstað 100%
að Laugarvatni 100%
Vélskóli íslands 70%
Akureyri 100%
Vestmannaeyjum 100%
Hótel- og veitingaskólinn 100%
Stýrimannaskólinn Reykjavík 93%
Stýrimannaskólinn í
Vestmannaeyjum 100%
Fiskvinnsluskólinn 40%
Hjúkrunarskóli íslands 100%
Nýi hjúkrunarskólinn 100%
Fóstruskóli íslands 45%
íþróttakennaraskóli íslands 100%
Iðnskólar
Reykjavík
Hafnarfirði
EINS og sést af pessum listum, er listinn yfir menntamála-
ráðuneytið og stofnanir pess ófullkominn. Vantar Þar skóla
í Reykjavík og nágrenni, svo og á Noröurlandi.
97%
90%
100%
100%
100%
100%
0%
100%
100%
Góð mæting Iðjufólks
á Breiðdalsvík. „Og því var allt í
gangi, eins og venjulega.
Hjá opinberum starfsmönnum
voru einu afföllin þau, að einn
eða tveir kennarar mættu ekki og
varð því ekki haldið uppi fullri
kennslu."
Djúpavogur
„Hér kom ekki til verkfalls hjá
verkafólki," sagði Einar Gíslason
á Djúpavogi. “Einu mennirnir,
sem lögðu niður vinnu, voru tveir
kennarar, en hér eru fjórir
kennarar í það heila.“
Hornafjörður
Allir karlmenn mættu til vinnu
í frystihúsinu báða dagana, en
aðeins 20% kvenanna. í saltfisk-
verkunina vantaði 4 af 43 starfs-
mönnum, en hjá skipaafgreiðsl-
unni mættu allir til starfa báða
dagana. Vélsmiðjan var lokuð
fyrri daginn, en þann síðari
vantaði tvo af 22 starfsmönnum.
Fiskimjölsverksmiðjan starfaði
eðlilega og mættu þar allir til
vinnu.
Hjá Rarik mættu ekki línu-
menn né rafvirkjar. I gagnfræða-
skólann mætti enginn kennara,
en skólastjórinn kom til starfa,
og í barnaskólanum samþykktu 5
kennarar af 13 að vinna báða
dagana. Starfsemi hreppsskrif-
stofunnar og sýslumanns-
embættisins var með eðlilegum
hætti sem og á öðrum skrifstof-
um. Allar verzlanir voru opnar.
Róðrar voru með eðlilegum
hætti. — Fréttaritari.
Hella,
Hvolsvöllur
Á Hellu og Hvolsvelli var alls
staðar unnið báða dagana, nema
í skólunum. Helmingur kennara
við skólann á Hellu mættu ekki
til starfa og var skólastarf því
fellt niður, og á Hvolsvelli féll
kennsla að mestu niður vegna
fjarvista kennara. — Jón.
Selfoss
Hér var eitthvað unnið á
flestum stöðum báða dagana. Hjá
einkafyrirtækjum var starfsemin
með eðlilegum hætti. Hjá tré-
smiðju kaupfélaganna vantaði 5
starfsmenn, en bílaverkstæðið
var lokað. Unnið var í mjólkurbú-
inu og mjólk sótt út um sveitir.
I verzlunum kaupfélagsins og á
skrifstofunum gekk allt sinn
vanagang. Talsvert vantaði af
starfsfólki Sláturfélags Suður-
lands og hjá Glettingi var alveg
lokað báða dagana.
Lögreglan starfaði eðlilega,
sömuleiðis sjúkrahúsið, sýslu-
mannsembættið, hreppsskrifstof-
urnar, vegagerðin og áhaldahús-
ið.
Talsvert var kennt í gagn-
fræðaskólanum og mun aðeins
einn fastur kennari þar hafa fellt
niður vinnu, en aftur á móti var
lítil kennsla í barnaskólanum. —
Fréttaritari.
Stokkseyri
Forysta verkalýðsfélagsins
Bjarma fyrirskipaði öllu fisk-
vinnslufólki að fara í tveggja
daga verkfall hjá frystihúsinu,
aðrir félagar þurftu ekki að fara
í verkfall, og því starfaði
verzlunarfólk, skrifstofufólk og
starfsfólk mötuneytis frystihúss-
ins, sem allt er í Bjarma.
Opinberir starfsmenn unnu á
skrifstofum, en í skólanum
mættu aðeins skólastjóri og einn
stundakennari, en fjórir kennar-
ar og fleiri stundakennarar
mættu ekki.
Á fundi hjá verkalýðsfélaginu
á sunnudaginn mættu sex menn;
þrír stjórnarmenn og þrír al-
mennir félagsmenn. — Stein-
grímur.
Vestmannaeyjar
Ein kæra barst lögreglunni
vegna verkfallsmáls, en 16 ára
piltur kærði vegna átaka, sem
urðu milli hans og verkfalls-
varða. Verkfallsvarzla var nokk-
uð stíf og voru bæði trésmiðir og
járnsmiðir reknir frá vinnu, en
sveinafélag járniðnaðarmanna
samþykkti verkfall með eins
atkvæðis meirihluta og einnig
samþykkti trésmiðafélagið verk-
fall. í smiðjunum unnu því bara
eigendur og verkstjórar. Fisk-
vinnsla má segja að hafi legið
niðri báða dagana, að mes'tu fyrri
daginn og alveg þann síðari.
Landað var úr bátum, sem fóru
á sjó, og einnig var landað loðnu
báða dagana og tóku verksmiðj-
urnar báðar á móti. Netamenn
voru allir að störfum.
Allt skólahald í stýrimanna-
skólanum, vélskólanum og iðn-
skólanum var með eðlilegum
hætti, en barna- og gagnfræða-
skólinn voru alveg lokaðir.
Verzlanir og skrifstofur voru
allar opnar og þar unnið með
eðlilegum hætti. Fastráðnir
bæjarstarfsmenn unnu allir og
allir mættu til starfa á sjúkra-
húsinu og elliheimilinu. Hjá
bæjarstarfsmönnum fór fram
skoðanakönnun varðandi verkfall
og voru 3A hlutar þeirra á móti
verkfalli. Einhver vanhöld urðu
varðandi barnagæzlu og lausráð-
ið fólk hjá bænum, sem á aðild
að öðrum félögum en félagi
bæjarstarfsmanna, mætti ekki til
vinnu. — Sigurgeir.
Þorlákshöfn
Á fundi í verkalýðsfélaginu hér
nýlega var samþykkt að leggja
niður vinnu í einn dag til að
mótmæla efnahagsaðgerðum
ríkisstjórnarinnar. Stöðvunin
kom til framkvæmda í gær þegar
allt starfsfólk í fiskvinnslustöðv-
unum, í frystihúsunum og í
Síldarverksmiðjunni lagði niður
vinnu. Verkfall þetta var nær
algjört að sögn Þórðar Ólafsson-
ar formanns verkalýðsfélagsins á
staðnum.
Allt kennaralið við grunnskól-
ann lagði niður vinnu bæði í gær
og í dag. Ekki eru til frekari
samþykktir að sinni. Þess má
geta að landsímastöðin var opin
eins og venja er og við landshöfn-
ina mættu fastamenn til vinnu.
Allar verzlanir hér voru opnar. —
Ragnheiður.
Grindavík
Verkalýðsfélagið hér sam-
þykkti að ekki skyldi koma til
vinnustöðvunar og vann því allt
verkafólk báða dagana.
Af 28 opinberum starfsmönn-
um mættu tólf til vinnu, þar af
fimm kennarar af 21. — Guðfinn-
ur.
Sandgerði
Öll vinna r fiskvinnslustöðvun-
um lá niðri annan daginn, 1.
rnarz, en síðari daginn var ekkert
um fjarvistir frá vinnu,- nema
hvað 4 kennarar skólans af sjö
mættu ekki. — Jón.
Keflavík
Hjá iðnfyrirtækjum og fyrir-
tækjum í fiskiðnaði var stöðvun
fyrri daginn, en samkomulag
varð milli verkalýðsfélaganna og
atvinnurekenda um eins dags
stöðvun og voru fyrirtækin lokuð,
en allt í fullum gangi aftur á
fimmtudag. Engin vinna var við
höfnina fyrri daginn, en ,á
fimmtudag var unnið að losun
þriggja kaupskipa og tveggja
togara.
Allflestir starfsmenn bæjarins
mættu til vinnu báða dagana og
einnig aðrir opinberir starfs-
menn, nema hvað helmingur
kennara fjölbrautaskólans mætti
ekki. Níu af 27 kennurum barna-
skólans mættu ekki og í gagn-
fræðaskólanum vantaði tvo kenn-
ara. — IÞF.