Morgunblaðið - 04.03.1978, Page 29

Morgunblaðið - 04.03.1978, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MARZ 1978 29 Veður víða um heim Amsterdam 12 skýjaö Apena 16 skýjaö Berlín 10 skýjað Brussel 14 rigning Chicago -2 snjókoma Frankfurt 12 skýjaö Genf 15 sólskin Helsinki 3 skýjað Jóh.borg 23 skýjaö Kaupm.h. 3 skýjaó Lissabon 16 rigning London 9 bjartvíðri Los Angeles 14 rigning Madrid 12 rigning Maiaga 16 skýjað Miami 23 skýjaö Moskva 2 skýjaö New York 0 snjókoma Ósló 2 skýjað Palma, Majorka 15 alskýjað París 11 bjartviðri Róm 15 bjartviðri Stókkh. 3 skýjað Tel Aviv 26 skýjað Tokýó 13 skýjað Vancouver 9 bjartviðri Vínarborg 9 skýjað Ihalds- flokkur- inn vann Ilford Ilford, 3. marz. AP. FRAMBJÓÐANDI íhalds- flokksins sigraði með yfir burðum í aukakosningu til þings í Ilford í gær. Er sigurinn talinn bera vott um vaxandi stuðning brezkra kjósenda vjð Margaret Thatcher og Ihaldsflokkinn. Segja fréttaskýrendur, að úrslitin í Ilford færi mönn- ym heim sanninn um að Ihaldsflokkurinn sigraði með yfirburðum í almennum þingkosningum í dag. Frambjóðandi íhalds- flokksins, Vivian Bendall, hlaut 22,548 atkvæði í auka- kosningunum á móti 17.051 atkvæði frambjóðanda Verkamannaflokksins. Full- trúi frjálslyndra hlaut 2,248 atkvæði og fulltrúi Þjóðfylk: ingarinnar 2,126 atkvæði. í síðustu þingkosningum vann Verkamannaflokkurinn þetta kjördæmi með aðeins 778 atkvæðum, en nú sigrar íhaldsflokkurinn með 5,497 atkvæðum. Efnt var til auka- kosninganna í kjördæminu þar sem fyrrverandi þing- maður þess lézt fýrir skemmstu. Thorneycroft lávarður, einn helzti leiðtogi íhalds- flokksins, fagnaði í dag úr- slitunum í Ilford. Sagði hann sigurinn ljósastan vott vax- andi vinsælda stefnu Thatcher. Þá er sigurinn tákn óánægju manna með stefnu Verkamannaflokksins í verð- lags-, mennta- og atvinnu- málu. Sigurinn er einnig táknrænn fyrir vinsældir Thatcher sem flokksforingja, sagði Thorneycroft. Búnaðarþing: r Atak til bættrar heyverkunar BÚNIADARÞING hcfur sam- þykkt ályktun þar sem það legííur ríka áhcrzlu á. að sert vcrði vcrulcfít átak til hættrar heyvcrkunar í landinu. I ályktun þinysins sckíi' að þar scni fóðuriðnaðarnefnil þcirri, er landbúnaðarráðherra skipaði á árinu 1976, hafi verið falið að taka heyverkunarmálin til meðferðar, fcli þingið st.jórn Húnaðarfclaps Islantls að hlutast tii unt við ncfntlina, að hún skili áliti um þcssi mál sem allivu fyrst. Jafn- framt l'clur þingið stjórn Húnaðar- fclagsins að efna til nánara samstarfs við Rannsóknastofnún htntlbúnaðarins og búnaðarsant- ltöntlin um rannsóknir og lciðbein- ingar til bættrar hcyverkunar hjá ba'ntlum. Margir hafa á undanförnum dögum lagt leið sína á bókamarkaðinn en honum Jýkur í dag kl. 18. Ljósm. Friðþjófur. Erum enn bókaþjóð — segja forsvarsmenn bókamarkaðarins BÓKAMARKAÐUR Bóksala- félags ísiands hefur nú staðið yfir í nokkra daga og átti Mhl. stutt samtal við þá Lárus Blöndal og Jónas Eggertsson. forsvarsmenn bókamarkaðar- ins. Þeir sögðu að aðsókn hefði verið mjög mikil um helgina. nánast fullt hús, og þá ka'mi einmitt öll fjölskyldan. „Við höfum opið samkvæmt sérstakri reglugerð og á síðasta degi, n.k. laugardag, er opið tii kl. 18. sögðu þeir félagar. Þeir kváðu staðinn vera góðan, nema að helzt vantaði fleiri bflastæði. — Við erum enn bókaþjóð, hér kemur fólk úr öllum stéttum og á öllum aldri og kaupir bækur, en hér eru ekki yngri bækur en tveggja ára. Hér er líka að finna allt sem til er af íslenzkum bókum og það er hér sem síðustu eintökin fara, sögðu þeir enn- fremur. Þá sögðu þeir að á bóka- markaðinn kæmi fólk frá öllu landinu nánast, fulltrúar bóka- safna gerðu oft stór innkaup á bókamarkaðinum og svo mætti lengi telja. Sem fyrr segir lýkur bóka- markaðinum í dag laugardag. Búnaðarþing að störfum. Sigmundur Sigurðsson, bóndi í Syðra-Langholti, talar. Ljósm. Mbl. Friðþjófur. Búnadarþing: Heyverkun bætt og útflutn- ingur á heyi verði kannaður BÚNAÐARÞING 1978 situr nú í Reykjavík. Þingið var sett 20. febrúar sl. af Asgeiri Bjarnasyni,, formanni Bún- aðarfélags íslands en einnig flutti landbúnaðarráðherra Halldór E. Sigurðsson ávarp. Búnaðarþing sitja 26 fulltrúar búnaðarsamband- anna í landinu og er gert ráð fyrir að þingið standi fram í miðja næstu viku. Alls hafa verið lögð fram 33 mál á þinginu og þar af hafa 8 þeirra hlotið endanlega af- greiðslu en önnur eru til umfjöllunar hjá nefndum. Meðal þeirra mála, sem Búnaðarþing hefur afgreitt, má nefna ályktun um verulegt átak til bættrar heyverkunar, þeirri áskorun er beint til markaðs- nefndar, að hún láti nú þegar fara fram frekari athugun á markaðsmöguleikum fyrir ís- lenskt hey í næstu nágrannalönd- um okkar, samþykkt var ályktun um merkingu hrossa og einnig hefur þingið afgreitt ályktun þar sem mótmælt er frumvarpi því, sem nú liggur fyrir Alþingi um breytt eignarráð yfir landinu og skorað á Alþingi að fella frum- varpið. Samþykkt hefur verð ályktun um viðbótarákvæði við frumvarp það sem síðasta Búnarðarþing samþykkti um vinnuaðstoð í sveitum. Er þessi viðbót gerð þar sem í fyrra frumvarpið skorti ákvæði um vinnuaðstoð við heim- ilisstörf þannig að makar bænda ættu einnig kost á afleysinga- þjónustu. Þarf því að gera ráð fyrir heimild til ráðningar heldur fleiri starfsmanna til að sinna þessu. Einnig hefur þingið sam- þykkt áskorun til sveitarstjóra um hvort ekki sé unnt að bæta aðstöðu ferðamanna í sveitum. Þá hefur þingið falið stjórn Búnaðarfélagsins að beita sér fyrir því, að aftur verði tekinn upp í útvarpi þátturinn Spjallað við bændur. Fyrir Búnaðarþingi liggja nú ýmis mál, sem bíða afgreiðslu og má þar nefna þrjár tillögur um skipulags- og framleiðslumál, tillögu um fækkun hreindýra, breytingu á verðhlutfalli neyslu- mjólkur og unninna mjólkurvara, eftirlit með tilbúnum áburði og tillaga þar sem átalinn er sá dráttur, sem orðið hefur á að lögum um Stofnlánadeild land- búnaðarins verði breytt. Búnaðarþingsfulltrúar eru kjörnir til fjögurra ára og er þetta síðasta þingið á þessu kjörtímabili. Kosningar til Bún- aðarþings fara fram á komandi sumri. Prentar- ar unnu á 2 vinnu- stöðutn nyrðra MORGUNBLAÐIÐ haíði aí því spurnir. að verkíallsdag- ana tvo hafi einhver brögð orðið að því að féiagsmenn Hins íslenzka prentarafé-- lags ynnu. Sums staðar í litlum fyrirtækjum munu þó prentarar og vinnuveitend- ur hafa komizt að samkomu- lagi og í stað þess að vinna dagana tvo. verður unnið nú um helgina, og því ekki dregið af launum við næsta launaútreikning. Morgunblaðið ræddi í gær við Olaf Emilsson, formann HIP, og spurði hann um framkvæmd verkfallsins, en HIP var eitt þriggja félaga á landinu, sem boðaði verkfall. Ólafur kvað fram- kvæmd verkfallsins hafa gengið frekar vel, en þegar frá væri talið verkfallsbrot í tveimur prentsmiðjum á Akureyri — í Skjaldborg og Valprent. I Skjaldborg var haft samband við prentarana strax fyrri verkfallsdaginn og lögðu þeir niður vinnu. Einnig var rætt við þá þrjá prentara, sem unnu í Val- prent. Morgunblaðið spurði þá Ólaf, hvað félagið myndi gera í tilfelli þessara félags- manna. Hann kvaðst ekki geta svarað því á þessari sundu, en á mánudag yrði fulltrúaráðsfundur HÍP, sem eflaust myndi taka afstöðu til þessa máls. 50 ára leikaf mæli Þóru Borg leikkonu Á frumsýningu á „Refunum" hjá Loikfélagi Reykjavíkur á miðvikudaginn kcmur verður minnst 50 ára leikafmælis Þóru Borg leikkonu. Þóra Borg lítur á þessu leikári aftur til 50 ára leikferils, en hún byrjaði að leika reglulega með Leikfélagi Reykjavíkur haustið 1927 og tók þá þátt í sex af sjö nýjum sýningum félagsins. Á langri starfsævi hefur Þóra Borg leikið ótal hlutverk hjá Leik: félaginu og í Þjóðleikhúsinu. I sýningu Leikfélagsins fer hún með hlutverk negrakonunnar Addie, sem er í þjónustu hjá „refunum“. Þóra Borg lék áður þetta hlutverk fyrir 30 árum, þegar Anna Borg systir hennar og Poul Reumert mágur hennar komu hingað til lands með gestaleik á dönsku á „refunum" á vegum Norræna félagsins Þóra Borg er önnur af tveim núlifandi íslendingum, sem geta litið til baka til hálfrar aldar Þóra Borg í búningsherbergi sínu hjá Leikfélagi Reykjavíkur að setja á sig negragervi á æfingu á „Refunum". leikferils. Hinn er Valur Gísla- son, sem hélt upp á afmæli sitt í fyrra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.