Morgunblaðið - 04.03.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MARZ 1978
29
Veður
víða um heim
Amsterdam 12 skýjaö
Apena 16 skýjaö
Berlín 10 skýjað
Brussel 14 rigning
Chicago -2 snjókoma
Frankfurt 12 skýjaö
Genf 15 sólskin
Helsinki 3 skýjað
Jóh.borg 23 skýjaö
Kaupm.h. 3 skýjaó
Lissabon 16 rigning
London 9 bjartvíðri
Los Angeles 14 rigning
Madrid 12 rigning
Maiaga 16 skýjað
Miami 23 skýjaö
Moskva 2 skýjaö
New York 0 snjókoma
Ósló 2 skýjað
Palma,
Majorka 15 alskýjað
París 11 bjartviðri
Róm 15 bjartviðri
Stókkh. 3 skýjað
Tel Aviv 26 skýjað
Tokýó 13 skýjað
Vancouver 9 bjartviðri
Vínarborg 9 skýjað
Ihalds-
flokkur-
inn vann
Ilford
Ilford, 3. marz. AP.
FRAMBJÓÐANDI íhalds-
flokksins sigraði með yfir
burðum í aukakosningu til
þings í Ilford í gær. Er
sigurinn talinn bera vott um
vaxandi stuðning brezkra
kjósenda vjð Margaret
Thatcher og Ihaldsflokkinn.
Segja fréttaskýrendur, að
úrslitin í Ilford færi mönn-
ym heim sanninn um að
Ihaldsflokkurinn sigraði
með yfirburðum í almennum
þingkosningum í dag.
Frambjóðandi íhalds-
flokksins, Vivian Bendall,
hlaut 22,548 atkvæði í auka-
kosningunum á móti 17.051
atkvæði frambjóðanda
Verkamannaflokksins. Full-
trúi frjálslyndra hlaut 2,248
atkvæði og fulltrúi Þjóðfylk:
ingarinnar 2,126 atkvæði. í
síðustu þingkosningum vann
Verkamannaflokkurinn þetta
kjördæmi með aðeins 778
atkvæðum, en nú sigrar
íhaldsflokkurinn með 5,497
atkvæðum. Efnt var til auka-
kosninganna í kjördæminu
þar sem fyrrverandi þing-
maður þess lézt fýrir
skemmstu.
Thorneycroft lávarður,
einn helzti leiðtogi íhalds-
flokksins, fagnaði í dag úr-
slitunum í Ilford. Sagði hann
sigurinn ljósastan vott vax-
andi vinsælda stefnu
Thatcher. Þá er sigurinn tákn
óánægju manna með stefnu
Verkamannaflokksins í verð-
lags-, mennta- og atvinnu-
málu. Sigurinn er einnig
táknrænn fyrir vinsældir
Thatcher sem flokksforingja,
sagði Thorneycroft.
Búnaðarþing:
r
Atak til bættrar heyverkunar
BÚNIADARÞING hcfur sam-
þykkt ályktun þar sem það
legííur ríka áhcrzlu á. að sert
vcrði vcrulcfít átak til hættrar
heyvcrkunar í landinu.
I ályktun þinysins sckíi' að þar
scni fóðuriðnaðarnefnil þcirri, er
landbúnaðarráðherra skipaði á
árinu 1976, hafi verið falið að taka
heyverkunarmálin til meðferðar,
fcli þingið st.jórn Húnaðarfclaps
Islantls að hlutast tii unt við
ncfntlina, að hún skili áliti um
þcssi mál sem allivu fyrst. Jafn-
framt l'clur þingið stjórn Húnaðar-
fclagsins að efna til nánara
samstarfs við Rannsóknastofnún
htntlbúnaðarins og búnaðarsant-
ltöntlin um rannsóknir og lciðbein-
ingar til bættrar hcyverkunar hjá
ba'ntlum.
Margir hafa á undanförnum dögum lagt leið sína á
bókamarkaðinn en honum Jýkur í dag kl. 18. Ljósm. Friðþjófur.
Erum enn
bókaþjóð
— segja forsvarsmenn bókamarkaðarins
BÓKAMARKAÐUR Bóksala-
félags ísiands hefur nú staðið
yfir í nokkra daga og átti Mhl.
stutt samtal við þá Lárus
Blöndal og Jónas Eggertsson.
forsvarsmenn bókamarkaðar-
ins. Þeir sögðu að aðsókn hefði
verið mjög mikil um helgina.
nánast fullt hús, og þá ka'mi
einmitt öll fjölskyldan. „Við
höfum opið samkvæmt sérstakri
reglugerð og á síðasta degi, n.k.
laugardag, er opið tii kl. 18.
sögðu þeir félagar. Þeir kváðu
staðinn vera góðan, nema að
helzt vantaði fleiri bflastæði.
— Við erum enn bókaþjóð, hér
kemur fólk úr öllum stéttum og
á öllum aldri og kaupir bækur, en
hér eru ekki yngri bækur en
tveggja ára. Hér er líka að finna
allt sem til er af íslenzkum
bókum og það er hér sem síðustu
eintökin fara, sögðu þeir enn-
fremur.
Þá sögðu þeir að á bóka-
markaðinn kæmi fólk frá öllu
landinu nánast, fulltrúar bóka-
safna gerðu oft stór innkaup á
bókamarkaðinum og svo mætti
lengi telja.
Sem fyrr segir lýkur bóka-
markaðinum í dag laugardag.
Búnaðarþing að störfum. Sigmundur Sigurðsson, bóndi í Syðra-Langholti, talar. Ljósm. Mbl. Friðþjófur.
Búnadarþing:
Heyverkun bætt og útflutn-
ingur á heyi verði kannaður
BÚNAÐARÞING 1978 situr
nú í Reykjavík. Þingið var
sett 20. febrúar sl. af Asgeiri
Bjarnasyni,, formanni Bún-
aðarfélags íslands en einnig
flutti landbúnaðarráðherra
Halldór E. Sigurðsson
ávarp. Búnaðarþing sitja 26
fulltrúar búnaðarsamband-
anna í landinu og er gert ráð
fyrir að þingið standi fram
í miðja næstu viku. Alls hafa
verið lögð fram 33 mál á
þinginu og þar af hafa 8
þeirra hlotið endanlega af-
greiðslu en önnur eru til
umfjöllunar hjá nefndum.
Meðal þeirra mála, sem
Búnaðarþing hefur afgreitt, má
nefna ályktun um verulegt átak
til bættrar heyverkunar, þeirri
áskorun er beint til markaðs-
nefndar, að hún láti nú þegar
fara fram frekari athugun á
markaðsmöguleikum fyrir ís-
lenskt hey í næstu nágrannalönd-
um okkar, samþykkt var ályktun
um merkingu hrossa og einnig
hefur þingið afgreitt ályktun þar
sem mótmælt er frumvarpi því,
sem nú liggur fyrir Alþingi um
breytt eignarráð yfir landinu og
skorað á Alþingi að fella frum-
varpið.
Samþykkt hefur verð ályktun
um viðbótarákvæði við frumvarp
það sem síðasta Búnarðarþing
samþykkti um vinnuaðstoð í
sveitum. Er þessi viðbót gerð þar
sem í fyrra frumvarpið skorti
ákvæði um vinnuaðstoð við heim-
ilisstörf þannig að makar bænda
ættu einnig kost á afleysinga-
þjónustu. Þarf því að gera ráð
fyrir heimild til ráðningar heldur
fleiri starfsmanna til að sinna
þessu. Einnig hefur þingið sam-
þykkt áskorun til sveitarstjóra
um hvort ekki sé unnt að bæta
aðstöðu ferðamanna í sveitum.
Þá hefur þingið falið stjórn
Búnaðarfélagsins að beita sér
fyrir því, að aftur verði tekinn
upp í útvarpi þátturinn Spjallað
við bændur.
Fyrir Búnaðarþingi liggja nú
ýmis mál, sem bíða afgreiðslu og
má þar nefna þrjár tillögur um
skipulags- og framleiðslumál,
tillögu um fækkun hreindýra,
breytingu á verðhlutfalli neyslu-
mjólkur og unninna mjólkurvara,
eftirlit með tilbúnum áburði og
tillaga þar sem átalinn er sá
dráttur, sem orðið hefur á að
lögum um Stofnlánadeild land-
búnaðarins verði breytt.
Búnaðarþingsfulltrúar eru
kjörnir til fjögurra ára og er
þetta síðasta þingið á þessu
kjörtímabili. Kosningar til Bún-
aðarþings fara fram á komandi
sumri.
Prentar-
ar unnu á
2 vinnu-
stöðutn
nyrðra
MORGUNBLAÐIÐ haíði aí
því spurnir. að verkíallsdag-
ana tvo hafi einhver brögð
orðið að því að féiagsmenn
Hins íslenzka prentarafé--
lags ynnu. Sums staðar í
litlum fyrirtækjum munu þó
prentarar og vinnuveitend-
ur hafa komizt að samkomu-
lagi og í stað þess að vinna
dagana tvo. verður unnið nú
um helgina, og því ekki
dregið af launum við næsta
launaútreikning.
Morgunblaðið ræddi í
gær við Olaf Emilsson,
formann HIP, og spurði hann
um framkvæmd verkfallsins,
en HIP var eitt þriggja
félaga á landinu, sem boðaði
verkfall. Ólafur kvað fram-
kvæmd verkfallsins hafa
gengið frekar vel, en þegar
frá væri talið verkfallsbrot í
tveimur prentsmiðjum á
Akureyri — í Skjaldborg og
Valprent. I Skjaldborg var
haft samband við prentarana
strax fyrri verkfallsdaginn
og lögðu þeir niður vinnu.
Einnig var rætt við þá þrjá
prentara, sem unnu í Val-
prent.
Morgunblaðið spurði þá
Ólaf, hvað félagið myndi gera
í tilfelli þessara félags-
manna. Hann kvaðst ekki
geta svarað því á þessari
sundu, en á mánudag yrði
fulltrúaráðsfundur HÍP, sem
eflaust myndi taka afstöðu til
þessa máls.
50 ára leikaf mæli
Þóru Borg leikkonu
Á frumsýningu á „Refunum"
hjá Loikfélagi Reykjavíkur á
miðvikudaginn kcmur verður
minnst 50 ára leikafmælis Þóru
Borg leikkonu.
Þóra Borg lítur á þessu leikári
aftur til 50 ára leikferils, en hún
byrjaði að leika reglulega með
Leikfélagi Reykjavíkur haustið
1927 og tók þá þátt í sex af sjö
nýjum sýningum félagsins. Á
langri starfsævi hefur Þóra Borg
leikið ótal hlutverk hjá Leik:
félaginu og í Þjóðleikhúsinu. I
sýningu Leikfélagsins fer hún
með hlutverk negrakonunnar
Addie, sem er í þjónustu hjá
„refunum“. Þóra Borg lék áður
þetta hlutverk fyrir 30 árum,
þegar Anna Borg systir hennar
og Poul Reumert mágur hennar
komu hingað til lands með
gestaleik á dönsku á „refunum" á
vegum Norræna félagsins
Þóra Borg er önnur af tveim
núlifandi íslendingum, sem geta
litið til baka til hálfrar aldar
Þóra Borg í búningsherbergi
sínu hjá Leikfélagi Reykjavíkur
að setja á sig negragervi á
æfingu á „Refunum".
leikferils. Hinn er Valur Gísla-
son, sem hélt upp á afmæli sitt
í fyrra.