Morgunblaðið - 04.03.1978, Side 35

Morgunblaðið - 04.03.1978, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MARZ 1978 35 85 ára - Jón Ólafsson hæstaréttarlögmaður Mánudaginn 27. febrúar s.l. varð Jón Ólafsson hæstaréttarlögmað- ur áttatíu og fimm ára. Hann er með elztu núlifandi íslenzkum lögfræðingum og sá eini eftir úr hópi þeirra Islendinga, sem luku lagaprófi við Kaupmannahafnar- háskóla. Jón Olafsson fæddist 27. febrúar 1893 í Brimnesgerði í Fáskrúðs- firði, sonur Ólafs bónda þar Finnbogasonar og Sigríðar Bjarnadóttur konu hans. Jón lauk stúdentsprófi 1915 og sigldi þá til Leiðrétting I minningum mínum frá Menntaskólaárum, sem fluttar hafa verið í útvarpi undanfarið, er skýrt frá heimsókn okkar þriggja skólafélaga, sumarið 1918, til höfðingsmanns á Isa- firði, Jóns að nafni. Er hann talinn hafa verið Jón Eyfirðing- ur, kunnur maður þar vestra. Nú er það hinsvegar komið upp úr kafinu, að hér var ekki um Jón Eyfirðing að ræða, heldur annan dánumann með sama fornafni. Eru því ættingjar og afkomendur Jóns Eyfirðings hér með mjög beðnir afsökunar á þessu mis- hermi. 3.3. 1978. Jón Skagan. Átthagafélag Stranda- manna 25 ára UM ÞESSAR mundir er Átthaga- félag Strahdamanna 25 ára og verður afmælisins minnzt í dag, 4. marz, á árshátíð félagsins er haldin verður í Domus Medica. Starfsemi félagsins hefur verið allmikil á þessum árum, jafnan staðið fyrir þorrablóti á hverjum vetri, spilakvöldym og árshátíð. Þá er jólatrésfagnaður fyrir börnin og á ári hverju kaffiboð fyrir eldri Strandamenn. Einnig er flest sumur efnt til skemmti- ferðar. Blandaður kór hefur starfað um árabil og síðan 1967 hefur verið gefið út ársritið Strandapósturinn. Kaupmannahafnar, þar sem hann fékk vist á Garði. Var þá enn Garðprófastur hinn kunni danski lagamaður prófessor Julius Lass- en, en hann lét sér alla tíð sérlega annt um þá íslenzku stúdenta, sem á Garði bjuggu. Var Jón meðal síðustu stúdentanna, sem gengu upp til prófs hjá próf. Lassen í Rómarrétti, nú fyrir réttum sextíu árum. Lagaprófi frá Kaupmanna- hafnarháskóla lauk Jón 1923 og starfaði í bæjarráði Kaupmanna- hafnarborgar næstu þrjú árin. 1926 kom hann heim til íslands og var um hríð fulltrúi á málflutn- ingsskrifstofu Jóns Ásbjörnssonar hrl. og Sveinbjarnar Jónssonar hrl., en árið 1931 opnaði hann eigin lögmannsskrifstofu hér í Reykja- vík, sem hann hefur rekið síðan. Jón gerðist 1929 forstjóri ís- landsdeildar lífsábyrgðarfélagsins Andvöku og forstjóri líftrygginga- félagsins Ándvöku var hann frá því það félag var stofnað sem alíslenzkt fyrirtæki í árslok 1949. Frá árslokum 1954 varð hann einnig forstjóri Samvinnutrygg- inga og stjórnaði báðum félögun- um til haustsins 1958, er hann sagði af sér störfum vegna heilsu- brests. Árið 1928 kvæntist Jón Margréti Jónsdóttur í Skólabæ hér við Suðurgötuna, dóttur Jóns Valda- sonar og Sigríðar Jónsdóttur, sem þar bjuggu. Fósturdóttir þeirra hjóna er dr. Olafía Einarsdóttir, fornleifa--og sagnfræðingur, gift dönskum manni, Bent Fuglede, er starfar við Polyteknisk Lærean- stalt í Kaupmannahöfn. Frú un sína til Kaupmannahafnarháskóla var hugur hans og Margrétar konu hans slíkur til Háskóla Islands að þau hjón gáfu Háskólanum hús- eignir sínar tvær hér í borg, Suðurgötu 26 og gamla Skólabæ- inn. Ber sú gjörð vott um rausn og örlyndi þeirra hjóna. Jón ber háan aldur með afbrigð- um vel og þessar vikurnar er hann staddur í Suðurlöndum í boði þeirra fyrirtækja, sem hann áður stýrði. Vinir og kunningjar Jóns, innan lögfræðingastéttarinnar sem utan, senda honum hugheilar kveðjur og árnaðaróskir á þessum tímamótum og biðja hann vel að lifa. G. Opiö í kvöld Opiö í kvöld Opið i kvöid HÓT«L TA<iA SÚLNASALUR Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar og söngkonan Þuríður Sigurðardóttir Dansað til kl. 2 Borðpantantr i sima 20221 eft- tr kl 4. Gestum er vmsamlega bent á að áskilinn er réttur til að ráðstafa fráteknum 20 30 borðum eftir kl Opið í kvöld Opiö í kvöld Opið í Dansaði eMri c/ansaMúUurinn ddvzíj Félagsheimili HREYFILS í kvöld kl. 9—2. (Gengið inn frá Grensásvegi.) Fjórir félagar leika Aðgöngumiðar i sima 85520 eftir kl. 8. Fjölmennið á gott ball Athugið þetta verður kanski eina ballið með Brimkló á Suðurnesjum á árinu Sætaferðir frá B S I oq torqi Keflavik Handknattleiksráð Keflavikur EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU SUN Grís ) Hótel Sögu sunnudagskvöld 5. mars Húsið opnað kl. 19 1 Hinn stórkostlegi griski þjóðarréttur „Adjhem Pila'ff" á aðeins kr. 2850. 2. Stutt ferðakynning. Sagt frá fjölbreyttum og spennandi ferðamöguleikum i Sunnuferð- um 1978 til SPANAR, GRIKKLANDS, ÍTALÍU, PORTÚGAL, NORÐURLANDA oq AMERÍKU. 3 Litkvikmyndasýning. Sýnd ný mynd frá Grikklandi 4. Tískusýning. Karon samtök sýningarfólks sýna það nýjasta úr tískuheiminum. 5 Fegurðarsamkeppni íslands keppt um titilinn ungfrú Reykjavík, 1978. Forkeppni. Atkvæðagreiðsla. 5 Fegurðarsamkeppni íslands Keppt um titilinn ungfrú Reykjavik, 1 978. Forkeppni Atkvæðagreiðsla 6. Hinir óviðjafnanlegu skemmtikraftar HALLI og LADDI flyja nýjan og sprenghlægilegan skemmtiþátt. 7. Bingó. Vinningar: Glæsilegar sólarlandaferðir. og rétturinn til þess að keppa um aukavinninginn á Sunnukvöldum vestrar- ins ítalska sportbilinn Alfa Romeo. 8 Dansað til kl. 1. Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar ásamt söngkonunni Þuríði Sigurðardóttur. Velkomin á Sunnuhátí Aogangur öllum frjáls og ókeypis nema rúllugjald. Missið ekki af glæsilegri skemmtun og pantið borð í tíma hjá yfirþjóni í síma 20221 eftirkl. 16daglega

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.