Morgunblaðið - 04.03.1978, Page 39
f
\
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MARZ 1978
39
Minning:
ffans von Ahnen
Hansen, Akureyri
Vinur minn Hans von Ahnen
Hansen, er látinn. Hann lést á
sjúkrahúsinu á Akureyri laugar-
daginn 25. febrúar eftir stutta
legu.
Hans var fæddur í Noregi 5.
apríl 1913, sonur hjónanna Sess-
elíu Stefánsdóttur frá Krækl-
ingahlíð og Hans Hansens,
norsks manns er verið hafði
framkvæmdastjóri síldarverk-
smiðjunnar á Dagverðareyri í
nokkur 4r. Hans var 6 mánaða,
þegar faðir hans féll frá.
Skömmu eftir andlát föður síns
var Hans skírður í höfuðið á
föðurafa sínum og þaðan kom
ættarnafnið von Ahnen en afinn
var af þýsku bergi brotinn.
Sesselía fluttist til íslands
alfarið 1914 með 5 ung börn:
Guðrúnu, Ingu, Borghildi, Stefán
og Hans. Eins og gefur að skilja
voru það ekki auðveldir tímar
fyrir ekkju með 5 ung börn en á
Akureyri settist hún að með
barnahópinn.
I innbænum ólst Hans upp og
15 ára gamall hóf hann störf hjá
ullarverksmiðjunni Gefjun og
vann þar til æviloka eða í
hartnær 50 ár. Hans byrjaði í
spunadeild verksmiðjunnar og
vann þar allan tímann. Hann
varð verkstjóri Loðbandsdeildar
' 937 og stjórnaði henni þar til
1972 er hann vegna veikinda
hætti verkstjórn og tók við
öðrum störfum í deildinni,
Árið 1944 kvæntist hann eftir-
lifandi konu sinni, Sóleyju
Tryggvadóttur, mikilli ágætis-
konu og eignuðust þau fjögur
börn: Hans Herbert, búsettur í
Þýskalandi, Borghildi, gift Gylfa
Kristjánssyni er rekur bílaverk-
stæði, Harald, framkvæmda-
stjóra Dynheima, Tryggva
stúdent s.l. vor, er við nám í
Myndlista- og handíðaskólanum.
Hans Hansen var sérlega lag-
tækur maður og veittist létt að
sjá um hinar flóknu kembi- og
spunavélar sem hann hafði um-
sjón með. Þegar endurbygging
Gefjunar hófst 1949 sá Hans
ásamt bróður sínum Stefáni um
uppsetningu allra véla í spuna-
deildinni og var það ekki einfalt
verk. Alla tíð hélt hann dyggan
vörð um hag fyrirtækisins.
Hans var mikill drengskapar-
•maður og vildi öllum vel gera.
Hann var skemmtilegur sam-
kvæmismaður, fullur af fjöri og
húmor. Hann starfaði mikið að
félagsmálum, var virkur félagi í
Lúðrasveit Akureyrar í fjölda
mörg ár, svo og Karlakór Ákur-
eyrar. En mest og best voru störf
hans að félagsmálum innan
starfsmannafélagsins. Það var
stofnað 1935 og var Hans einn af
aðalhvatamönnum að stofnun-
inni og í stjórn þess í mörg ár.
Félagslíf hefur löngum verið
mikið og gott hjá SF/SÍS /Akur-
eyri og er enn. Hins vegar fer,
varla milli mála að rismest var
starfsemin fyrstu 10—15 árin. Þá
voru meðal annars mörg leikrit
tekin til meðferðar og sýnd ekki
aðeins starfsfélögunum heldur
einnig bæjarbúunum á Akureyri
og í nágrannabæjum. Vart mun
nokkurt leikrit hafa verið tekið
til meðferðar án þess, að Hans
væri með. Þá var hann aðalsmið-
ur skemmtiefnis á árshátíðum
félagsins og flutningsmaður
ágætur. Hann safnaði efni til
birtingar í Hlyni, blaði sam-
vinnustarfsmanna, fyrstu árin
eftir að það fór að koma út
reglulega. Hann var kostinn
heiðursfélagi starfsmannafélags-
ins á 40 ára afmæli félagsins
1975. Okkur starfsfélögunum er
mikill sjónarsviptir að Hans
Hansen.
Við hjónin sendum Sóleyju ob
börnum innilegar samúðarkveðj-
ur og biðjum þeim guðs blessun-
ar.
Hjörtur Eirfksson
Hans Hansen var fæddur 5. 4.
1913 í bænum Asken í Noregi.
Faðir hans var Hans Hansen frá
Stokke í S-Noregi. Hann kom til
Islands rétt fyrir aldamótin og
gerðist framkvæmdastjóri síldar-
verksmiðju á Dagverðareyri við
Eyjafjörð. Móðir hans hét
Sesselja Stefánsdóttir, eyfirsk
bóndadóttir. Þeim hjónum varð
fimm barna auðið og eru nú
aðeins tvö þeirra á lífi, en það eru
þau Guðrún, búsett í Reykjavík,
og Stefán, búsettur á Akureyri.
Látin eru þau Ingi Arnvig fyrir
tæpl. tuttugu árum, frá eiginkonu
og ungum börnum, Borghild, er
lézt í æsku, og nú'Hans sem var
yngstur þeirra systkina.
Lengst af búskaparárum sínum
bjuggu þau Hans og Sesselja í
Asken í Noregi en vegna starfs
síns dvaldi Hans oft langdvölum
hér á Islandi. Mjög kært var með
þeim hjónum, en ekki leyfðu
örlög þeim langa damvist, því
sama ár og Hans yngri sá
dagsins ljós lézt faðir hans í Ósló.
Eftir lát manns síns flutti
Sesselja aftur til íslands með
börn sín. Er óhætt að fullyrða að
lífið var henni ekki alltaf létt
eftir það. En eitt var þeirri konu
gefið fram yfir annað, var það
bjartsýni og glaðlyndi ásamt
einlægri guðstrú. Hans ólst
upp hjá móður sinni ásamt
tveimur hálfsystrúm sínum
ungum: Soffíu, sem búsett er í
Reykjavík, og Mörtu, sem búsett
er í Kristiansand í Noregi og
nýlega er orðire ekkja. Hans
fór snemma að vinna fyrir sér. 16
ára gamall hóf hann störf hjá
Ullarverksmiðjunni Gefjuni á
Akureyri. Stefán bróðir hans
gerðist einnig starfsmaður
Gefjunar og hafa báðir starfað
þar síðan, verkstjórar þar urðu
þeir báðir. Árið 1943 giftist Hans
eftirlifandi konu sinni, Sóley
Tryggvadóttur. Eignuðust þau
fjögur börn: Borghildi, síðan
Hans Herbert, Harald Geir og
Trygga Gunnar sem er yngstur.
Við sem þessar línur skrifum
minnumst elskulegs frænda okk-
ar með hlýhug og söknuði.
Glaðværð hans og hlýlegt viðmót
mun okkur aldrei gleymast. Hans
var fríðleiksmaður og hrókur alls
fagnaðar. Tónlistargáfur hafði
hann miklar. I Lúðrasveit Akur-
eyrar lék hann til margra ára.
Einnig lék hann á píanó. Fáa
höfum við heyrt leika af meiri
mýkt og tilfinningu og hann.
Tunglskinssónata Beethovens
mun okkur sérstaklega bundin
minningu hans. En Hans gat
einnig brugðið á léttari nótur og
fram af fingrum hans runnu þá
bæði valsar og polkar. Ekki átti
hann langt að sækja þessa
hæfileika, móðir hans var söng-
elsk mjög og faðir hans framúr-
skarandi fiðluleikari.
Þér, Sóley mín, börnum þínum
og öðrum aðstandendum vottum
við okkar dýpstu samúð. Guð
styrki ykkur öll.
Inga og Borghild.
Stuóningsmenn
Jóhannesar Proppé
Jóhannes Proppé
vilja minna kjósendur á, aö
hann er í framboði í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins til borgarstjórnar
4., 5. og 6. marz 1978.
í Esbjerg eru útskrifaðir
bygg'ngatSBknifraeðingar, i
Sönderberg, rafmagns-
tæknifræðingar og vél-
tæknif ræðingar.
ingeni0rskol@rne
í Esbjerg og Sönderborg
útskrifa:
byggingatæknifræðinga
rafmagnstæknifræðinga
véltæknifræðinga
Tækninámið tekur 3. ár.
Sértu faglærður
(minnst 2 ár) í bygginga- og raflögnum eða i járn- og málmiðnaði og hafir
námsþekkingu samsvarandi gagnfræðaprófi eða UTF verður þú fyrst að taka 1
árs undirbúningsnámskeið fyrir tækniskólann
Ef þú ert stærðfræðistúdent eða HF
með námsbraut i stærðfræði og eðlisfræði. verður þú fyrst að taka 1 árs verklegt
sérnám •••-
Kennsluárið hefst í ágúst. Við aðstoðum með ánægju með allar upplýsingar
um aðgang. framkvæmd, námsaðstoð, húsnæði, námsefni, atvinnumógu-
leika o.fl. . '
Hringið eða skrifið eftir nánari upplýsingum eða komið og heimsækið okkur.
ingeniorskolerne
Esbjerg Teknikum
Ole Römers Vej
6700 Esbjerg
(05) 127666
Sönderborg Teknikum
Voldgade 5,
6400 Sönderborg,
(04) 425550
Clwvrolet Nova Custom'78
Þinn bíll 15. apríl n.k.,
- sértu hinn heppni áskrifandi Dagblaðsins.
Verðmæti er 4.4 miljónir króna.
Gerstu áskrifandi að Dagblaðinu strax í dag.
Áskriftarsíml 27022. Opiö til 10 í kvöld.
SBUBIB
frfálst, óháð dagblað