Morgunblaðið - 04.03.1978, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MARZ 1978
KAFf/NO '
/i ,
JUr'-v n ~r\te
TJj
GRANI göslari
liflir art hraurtristin kom úr virtjíorrt, hoppar hún í loft upp,
rn snoirtarnar lij;>íja á horftinu.---------
Kjörbarn eða
tökubarn?
Borist hefur rabb frá konu
nokkurri þar sem hún ræðir um
hugtakarugling að henna áliti þar
sem verið er að tala um kjörbörn
og tökubörn, en tilefnið er mynd í
sjónvarpi er sýnd var í byrjun
vikunnar:
„Heiðraði Velvakandi.
I tilefni af útdrætti, er þulur
flutti, á efni sjónvarpsleikrits er
sýnt var í sjónvarpinu mánudag-
inn 27. febr. , vil ég benda á
meinlegan hugtakarugling, er þar
kom fram. Sagt var aö leikritið
fjallaði um stúlku er væri
tökubarn og einnig minnst á
fósturforeldra hennar. Hins vegar
fjallaði leikritið um kjörbarn og
þá auðvitað um kjörforeldra þess.
Þetta kom greinilega fram í þýdda
textanum með myndinni.
Því miður er hliðstæður rugling-
ur og þarna kom fram mjög
algengur, en þar sem sjónvarpið
er sá sterki miðill sem það er,
verða svona mistök því verri.
I Islenzkri orðabók handa skól-
um og almenningi, gefinni út af
Bókaútgáfu Menningarsjóðs árið
1976 segir svo um þessi atriði:
Kjörbarn — áettleitt barn; ætt-
leiða — taka sér í sonar (dóttur)
stað, gera að kjörbarni sínu, veita
óskilgetnu barni réttindi skil-
getins barns; kjörforeldri — karl
eða kona sem ættleiðir barn.
Hér vil ég bæta við, að kjörbarn
kennir sig við kjörföður sinn, er
sonur (dóttir) hans og er lögerfingi
kjörforeldra sinna.
Um tökubarn segir í sömu bók:
barn sem elst upp hjá vandalaus-
um; en er ekki fósturbarn, og
ennfremur: fóstur — uppeldi (hjá
öðrum en foreldrum): láta barn
sitt í fóstur, taka barn í fóstur,
algengt sem forliður samsetningar
um slík uppeldi: fóstur/bróðir e-s
sá sem hefur alizt upp með e-m, en
er ekki bróðir hans, -systir,
-systkin, fósturdóttir e-s stúlka
alin upp hjá e-m (á vegum hans)
-sonur, -barn, -foreldrar.
Slíkar ábendingar virðast ef til
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
I dag spreyta lesendur sig á
sama vanda og svíinn Morath
leysti í leik Svfþjóðar við Kanada
á síðasta Olymíumóti. llann var í
norður og þurfti að finna útspil
gegn hörðum lokasamningi.
Norður
S. A104
H. 63
T. K64
L. G8762
Suður gaf en aðeins austur og
vestur voru á hættu. Vestur opn-
aði á einu hjarta, sem austur
hækkaði í fjögur. Það varð loka-
sögnin og hvaða útspil velur þú?
Norður
S. A104
H. 63
T. K64
L. G8762
Vestur
S. KG
H. ÁG1087
T. Á973
L. K5
Suður
S. D953
H. 2
T. D102
L. A10943
A hinu borðinu spilaði kanada-
maðurinn Murray út laufi eftir
sömu sagnir og það sama skeði á
flestum hinna borðanna en spilað
var á sömu spil í öllum leikjum
hverrar umferðar. Ekki gafst það
vel. Eftir það nægði að láta tígul í
laufkónginn og spila upp á ásana
skipta á höndum norðurs og suð-
urs. 620 til Svíþjóðar.
En Morath spilaði út lágum tígli
og þá varð kanadamaðurinn að
fara rétt í spaðann til að sleppa
með einn niður.
Margt mælir með tígulútspil-
inu. Eftir þessar sagnir gæti verið
nauðsynlegt að búa til slagi strax
áður en sagnhafa tekst að fría
hugsanlegan hliðarlit í borðinu.
Og tígulútspilíð krefst minna frá
makker eins og sjá má á því að
suður í 4 punkta í laufi en aðeins
2 í tígli. Og laufið getur reynst
óheppilegt komi upp í borðinu
D10 á móti Áx á hendi sagnhafa.
Þetta er eitt af mörgum vel
heppnuðu spilum Evróþumeistar-
anna Anders Morath og Hans
Göthe, sem spila einmitt um þessa
helgi við úrval íslenskra spilara i
Krystalsal Hótel Loftleiða um
þessa helgí.
Austur
S. 8762
H. KD954
T. G85
L. D
HÚS MÁLVERKANNA
Framhaldssaga eftir
ELSE FISCHER
Jóhanna Kristjónsdóttir
þýddi
78
lögreglunnar. Borgitte snökti;
hún stóð dti f rigningunni.
Lögreglan.
Dorrit hafði gengið eftir
þjóðveginum ... en svo hafði
hún fundist rétt við hús henn-
ar. Var það óheppni og tilvilj-
un... eða var þetta morðtil-
raun. Henni hafði verið dröslað
drjúgan spotta.. Morðtil-
raun ... og morðinginn hafði
heyrt þau koma ... og hafði flú-
fð inn f skóginn.
Hún glennti upp augun f
skelfingu og horfði á skóginn.
1 þessum skógi bjó fjárkúg-
arí og morðingi.
Hún varð að komast inn til
sfn.
Hún varð að komast inn og
læsa sig inní þangað til þau
kæmu aftur með bflinn hennar.
Hún varð að komast héðan.
Hún skyldi fara til lögreglunn-
ar ... það hafði þegar bitnað á
tveimur manneskjum að þær
sögðust vita hver fjárkúgarinn
var. Tvær manneskjur sem
höfðu ætlað að grfpa til sinna
ráða án þess að blanda lögmál-
ið.
Og Morten gat verið örugg-
ur... auðvitað gat hann verið
öruggur á meðan ekki var hægt
að rekja neitt til hans. Þvf að
hann mátti vita að Carl Hend-
berg myndi ekkert segja. Að
minnsta kosti meðan Carl
Hendberg trúði þvf að dauði
Susie kæmi þessu máli ekkert
við.
Björn ... Björn yrði fram-
seldur og tekinn af Iffi... þeg-
ar sannleikurinn kæmi f
Ijós ... Og af þvf að hún ól með
sér þennan grun ætlaði hún að
senda tvær manneskjur f dauð-
ann ... Björn og móður hans.
Loks var hún komin inn.
Hún lokaði og læsti ramm-
lega. Dró af sér stfgvélin og
horfði niður á grútskltuga lóf-
ana.
Björn framseldur herrétti
sem myndi dæma hann til
dauða ... en fyrst nú völin var
að aðrir urðu að Ifða dauða, af
þvf að enginn sagði neitt. Hún
hafði ekkert um að velja. Hún
varð að fara til lögreglunnar
með það sem hún vissi.
— Og ég geri það.
I herberginu var sem rödd
hennar bergmálaði og hún
hrökk við.
32. kafli
— Björn ... mikið er ég glöð
að þú komst.
Hún grét af feginleika er hún
togaði f hann fnn f húsið. Grét
af fögnuði yfir þvf að það var
ekki Morten sem kom ... held-
ur Björn, þvf að auðvitað varð
hún að segja lögregiunni hvað
hún vissl, en hún gerði sér Ijóst
að hún gat ekki gert það nema
vara Bjöm við. Hann varð að
fara ... úr landi... áður en lög-
reglan hefðí hendur f hári
Mortens.
— Ég kom til að vita hvort
þú hefðir hugmynd um hvar
allir eru ... Ég hélt kannski að
þau væru hjá þér. Dorrit og
Carl Hendberg ... og systirin,
þessí Emma Dahlgren.
— Veistu að Susie er dáin?
— Já.
Hann settist og fékk sér
sfgarettu.
— Veslings Susie.
— Susie er dáin ... og Dorrit
hefur hrasað hér fyrir utan ...
Hún grét beizklega.
— Bara að ég gæti komist f
burtu. En þau tóku bflinn
minn, Carl Hendberg og
Emma. Þau óku með hana á
sjúkrahúsiö.
— Dorrit Hcndberg.
Hann greip f handlegg henn-
ar.
— Ertu að segja að Dorrit
Hendberg sédáin...
— Nei, hún var með Iffs-
marki, en mér skildist það liti
illa ú... Carl Hendberg reyndi
blástursaðferðina ... og okkur
sýndist eins og hún væri með
einhverju Iffi, en við vitum það
ekki.
— Guð minn aimáttugur...
Ég verð að fara á sjúkrahús-
ið ... aðgæta hvort ég get gcrt
eitthvað til að hjálpa ...
Hann reis mjög snöggt upp.
— Neí, nei... Hún greip
hönd hans. — Björn, þú verður J
að bfða þangað til ég hef sagt