Morgunblaðið - 05.03.1978, Page 1
48 SIÐUR
46. tbl. 65 árg.
SUNNUDAGUR 5. MARZ 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
47 manns fór-
ust í flugslysi
Caracas, 4. marz. AP.
BJÖIÍGUNARSVEITIR unnu
látlaust að því í nótt að leita að
17 manns. sem voru í skrúfuþotu
af Avro-gerð, en þotan steyptist
í sjóinn skömmu eftir flugtak
frá Caracas í gærkvöldi. 20 Iík
hafa fundizt og er nú fullvíst
taiið að enginn hafi komizt lífs
af í slysi þessu. Sjógangur hefur
torveldað mjög leitarstarfið, en
slysstaðurinn er skammt undan
landi.
Orsakir slyssins eru ókunnar,
en starfsmenn á Maiguetia-flug-
velli segja að um leið og þotan
var komin á loft hafi flugstjórinn
tilkynnt að hann yrði að snúa við
vegna óvæntra erfiðleika, en
sambandið rofnaði áður en hon-
um vannst tími til frekari útskýr-
inga.
Þotan var frá flugfélaginu
Aeropostal, sem er annað tveggja
ríkisrekinna flugfélaga, sem ann-
ast innanlandsflug í Venuzúela.
Það þykir mikil mildi að ekki
varð stórslys þegar DC-8 þotum
frá Iberia-flugfélaginu hlekktist
á í lendingu í gær. Þotan fór út
af flugbrautinni og kviknaði í
henni. Flugvallarstarfsmönnum
tókst að slökkva eldinn mjög
fljótlega, en 15 manns brenndust
þó illa. 210 farþegar-voru með
þotunni, auk 11 manna áhafnar.
Meðal hinna særðu eru flugstjór-
inn og menningarmálaráðherra
Spánar, Pio Cabanillas Gallas.
Þotan var á leið frá Madrid til
Santiago de Compostela þar sem
slysið varð.
Nýtt met í dvalar-
lengd í geimnum
Moskvu, 4. marz, Reuter.
SOVÉSKÚ geimfararnir Yuri Rom-
anenko og Georgy Grechko settu í
nótt met í dvalarlengd í geimnum.
Klukkan 02.36 aðfararnótt laugar-
dags höfðu þeir verið jafnlcngi í
geimnum og bandarísk áhöfn
dvaldi í geimstöðinni Skylab-4 á
árinu 1973. Ekkert hefur verið látið
uppi um hversu lengi geimfararnir
munu dvelja í geimnum til viðbótar.
en vestrænir vísindamenn telja
líklegt að Romanenko og Grechkov
eigi enn eftir að dvelja nokkrar
vikur í Salyut-6.
Það var 10. desember sl. að þeim
Romanenko og Grechkov var skotið
á loft í Soyuz-26 geimfarinu. í janúar
heimsóttu tveir landar þeirra þá í
Soyuz-27 og dvöldu fimm daga í
geimstöðinni. Var það í fyrsta sinn
að tvö geimför voru samtímis tengd
geimvísindastöð í geimnum. Sneru
þesair geimfarar til jarðar í
Soyuz-26.1 febrúar var ómannað far,
Progress-1, tengt Salyut-6, en talið
er að það far hafi m.a. flutt vistir til
geimstöðvarinnar.
Nokkrum klukkustundum áður en
Romanenko og Grechkov slógu
dvalarmetið í geimnum var geimfar-
ið Soyuz-28 tengt Salyut-6 geimstöð-
inni. Um borð í Soyuz-28 er einn
sovéskur geimfari og annar tékk-
neskur. Er það í fyrsta sinn að í
sama geimfari séu menn sitt af
hvoru þjóðerni.
Framhald á bls. 47.
Skákeinvígið verð-
ur á Filippseyjum
Amsterdam, Bugojno, 4.
marz. AP.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
einvígi þeirra Anatoly
Karpovs og Viktors Kortsnojs
um heimsmeistaratitilinn í
skák verði háð í borginni
Baguio á Filippseyjum.
Karpov hefur fallizt á þá
ákvörðun, en ekkert hefur
heyrzt frá Kortsnoj.
„Það skiptir mig litlu hvar
einvígið verður haldið," sagði
Karpov þar sem hann var
staddur á skákmóti í
Júgóslavíu í gær. „Ég er
bjartsýnn á úrslitin, en lengd
einvígisins leggst þó ekki vel í
mig þar sem ég held það muni
standa yfir í tvo mánuði,"
bætti Karpov við.
Alþjóða skáksambandið til-
kynnti í gær að einvígið færi
fram á Fillippseyjum, en áður
hafði verið talið líklegt að það
yrði háð í Graz í Austurríki.
Hafði Kortsnoj sett Graz núm-
er eitt á sínum lista, en Karpov
óskaði helzt eftir að keppnin
yrði háð í Hamborg. Báðir
völdu skákmennirnir Baguio
sem kost númer tvö.
Tæp 500 sovézk herskip á Eystrasalti
IIERNAÐARYFIRVOLD í
Danmörku hafa upplýst að í
höfnum austantjaldsríkj-
anna vð Eystrasalt séu um
þessar mundir tæp 500 so-
vézk herskip, auk um það bil
300 pólskra og austur-
þýzkra herskipa. Af þessum
skipaflota eru um 70 sovézk-
ir kafbátar, að því er danska
blaðið Politiken hefur eftir
yfirmanni leyniþjónustu
danska hersins, Preben Bor-
berg. Eldflaugar langflestra
kafbátanna draga milli 20 og
250 kílómetra, sem þýðir í
raun að þær eru ætlaðar
skipum og flugvélum á
Eystrasaltssvæðinu, en
kjarnorkueldflaugar sex kaf-
báta, sem Sovétmenn hafa nú
komið fyrir í Eystrasalti, að
því er virðist til frambúðar.
draga hins vegar 1200 kíló-
metra.
Karin Söder, utanrfkisráð-
herra Svía, hefur nýlega
látið í ljós áhyggjur vegna
þessa návígis sex kafháta,
sem bera kjarnorkueldflaug-
ar, en heimahöfn þeirra er í
Liepaya í Lettlandi.
Brottför Sómala frá Ogaden
f orsenda hernaðaraðstoðar
- segja starfsmenn í Pentagon
Washington, 4. marz. Reuter.
STARFSMENN bandaríska
varnarmálaráðuneytisins segja
að á meðan Sómalíuher sé á
cþíópsku yfirráðasva'ði geti
Bandaríkin fátt aðhafzt til að
sporna við hernaðarlegri íhlut-
un Sovétríkjanna á Afríkuhorn-
inu. Þessir hcimildamenn. sem
ekki vilja láta nafngreina sig.
tclja almenning í Bandaríkjun-
um þeirrar skoðunar að í
Ogaden-styrjöldinni séu það
Sómalir. sem eigi upptökin og
séu árásaraðili. Ilernaðarleg
ihlutun í' átökin af hálfu Banda-
rikjanna komi því ekki til
greina. né heldur vopnasending-
ar til Sómalíu. að minnsta kosti
ekki fyrr en Sómalir verði á
brott með herlið sitt.
Á hinn bóginn er haft eftir
sömu heimildamönnum að brott-
flutningur herliðs Sómala mundi
gera það að verkum að Banda-
ríkjastjórn yrði kleift að beita
Sovétríkin og Kúbu stjórnmála-
Somoza
Managua, 4. marz. AP.
ANASTASIO Somoza forseti
Nicaragua ætlar að leggja fram
tillögu um breytingar á
stjórnarskrá landsins, sem
mcðal annars verða í því fólgnar
að tryggja rétt manna til að
aðhyllast hvaða stjórnmála-
skoðanir sem vera skal.
kommúnisma þar með talinn.
Ilér er um að ræða verulega
breytingu á afstöðu Somoza, sem
hefur vcrið yfirlýstur and-
skodanafrelsi
sta>ðingur kommúnista alla tíð.
en samkvæmt stjórnarskrá
landsins er sú stjórnmálastefna
óhcimil með öllu.
Ofriðaröldur í Nicaragua er nú
mjög tekið að lægja eftir átök og
götubardaga milli hermanna og
andstæðinga stjórnarinnar
undanfarnar vikur. í blaðaviðtali
í gær sagði Somoza að óeirðirnar
væru „ólögleg uppreisn".
I bænum Monimbo hafa átökin
orðið hvað alvarlegust, en þar
ríkir mikil fátækt og vesöld.
Rærinn hefur orðið nokkurs
konar tákn andófsins gegn
Sornoza forseta, sem heita má
einráður í landinu, en fjölskylda
hans hefur setið á valdastóli í 45
ár samfle.vtt. í Monimbo er
umhorfs eins og á yfirgefnum
vígvelii, að sögn fréttamanna.
Götur og torg eru þakin braki og
göt eftir b.vssukúlur eru á hús-
veggjum.
legum þrýstingi í því skyni að fá
þá til að draga saman seglin á
Afríkuhorninu, en Cyrus Vance
utanríkisráðherra taldi í gær að
nú væru um 11 þúsund Kúbu-
menn í Eþíópíu, auk 1100
sovézkra hermanna.
Að undanförnu hefur því verið
haldið fram af opinberri hálfu í
Washington, að nauðs.vnlegt sé
að Sómalir, Kúbumenn og Sovét-
menn verði á brott með herlið sitt
frá Ogaden, en nú telja starfs-
menn varnarmálaráðuneytisins
að viöhorf Bandaríkjástjórnar til
vopnasendinga til Sómalíu
mundu gjörbreytast ef Sómalir
flyttu brott herlið sitt, og ýrnis-
legt bendir til að stjórnin í
Washington leggi aukna áherzlu
á að hvetja Sómali til undanhalds
í Ogaden á næstunni.
Spassky er efstur á
skákmóti í Júgóslavíu
Bugojno, 4. marz. AP. Reuter.
BORIS Spassky hefur nú tekið
forystu á alþjóðlega skákmótinu
sem nú stendur yfir í Bugojno í
Júgóslavíu. Heimsmeistarinn
Anatoly Karpov tapaði fyrir
hollenska stórmeistaranum
Timman í fimmtu umferð.
Eftir fimm umferðir er
Spassky efstur með 3,5 vinninga.
í 2.-5. sæti eru Mikhail Tal frá
Sovétríkjunum, Hort frá
Tékkóslóvakíu, Ljuboievic frá
Júgóslavíu og Timman með 3
vinningá.’ í 6—10. sæti eru
Karpov, Ivkov frá Júgóslavíu.
Daninn Larsen, Húbner frá
V-Þýzkalandi og Miles frá Bret-
landi með 2,5 vinninga. Miles á
óteflda biðskák. Alls taka 16
skákmenn þátt í mótinu, en í
neðsta sæti er Robert Byrne frá
Bandaríkjunum með einn vinn-
ing.
Jan Timman var fagnað mjög
af fjölmörgum áhorfendum móts-
ins, segir í fréttaskeytum, er
Karpov felldi kóng sinn til
merkis um uppgjöf. Timman
hafði hvítt í skákinni við Karpov.
Fórnaði hann peði í 17. leik og
virtist það koma Karpov hálfveg-
is úr jafnvægi. Eftir fórn
Timmans hallaði stöðugt á
Karpov. Undir lokin stóðu báðir
hrókar Timmans sterkt og stóðu
ýmsar hótanir á Karpov.
Boris Spassky