Morgunblaðið - 08.03.1978, Qupperneq 1
32 SÍÐUR
48. tbl. 65. árg.
MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sómalíumenn á
flótta í Ogaden
Mogadishu. 7. marz. Reuter. AP.
MOHAMED Siad Barre, forseti Sómalíu. játaði í dag að
Sómalíumenn hefðu orðið að hörfa í Ogaden-eyðimörkinni en sagði
að þeir hefðu ekki verið sigraðir og að þeir mundu halda baráttunni
áfram og berjast til síðasta manns.
Siad forseti hefur aldrei áður
viðurkennt opinberlega að
Sómalíumenn hafi neyðzt til að
hörfa. Hann sagði á útifundi sem
um 25.000 manns sóttu í
Mogadishu, að Sómalíumenn
hefðu ekki hörfað fyrr en eftir að
Eþíópíumenn fengu hjálp frá
Kúbumönnum og Rússum þar
sem þeir hefðu rambað á barmi
ósigurs.
Eþíópíumenn halda því fram
Carter
heitir Tito
stuðningi
Washington, 7. marz. Reuter.
TITO Júgóslavíuforseti kom
til Hvita hússins í dag og
Carter forseti hrósaði honum
íyrir að standa vörð um frelsi
lands síns.
Talsmaður Ilvíta hússins
sagði eftir fund þeirra að
Bandaríkin væru skuldhund-
in til að styðja sjálfstæði og
fullveldi Júgóslavíu.
Tito sagði við komuna að
samskipti Júgóslavíu og
Bandaríkjanna mundu aukast
þrátt fyrir ágreining landanna
í nokkrum málum.
Forsetarnir munu meðal
annars ræða á fundum sínum
um samskipti austurs og
vesturs, ástandið í Miðaustur-
Framhald á bls. 18
að þeir hafi náð bænum Jijiga í
Ogaden-auðninni á sitt vald en
Frelsifyiking Vestur-Sómalíu
(WSLF), sem stjórnin í
Mogadishu styður, hefur ekki
staðfest að bærinn sé fallinn.
Siad forseti sagði að Sómalía
mundi halda áfram stuðningi
sínum við WSLF og lýsti enn
óánægju vegna þess að Vestur-
veldin, einkum Bandaríkin, neit-
uðu að veita Sómalíu hernaðarað-
stoð.
Sómalskur skæruliðaforingi
sagði í dag að enn væri barizt
umhverfis Jijiga en vildi ekki
láta uppi hvort bærinn væri
fallinn. Hann sagði að fjarskipta-
samband við Sómalíumenn í
Jijiga hefði rofnað.
Símam.vnd AP
TITO við komuna til Hvíta hússins í gær ásamt Carter forseta og konu hans.
Rhódesíuherlið gerir
mikla árás á Zambíu
Salisbury. 7. marz. Reutcr.
ZAMBÍUMENN sögðu í dag að Rhódesíumenn hefðu gert umfangsmestu árás sína á Zambíu til
þessa og að bardagar geisuðu enn nálægt landamærunum.
Ráðherrar
hóta að hætta
Jerúsalem. 7. marz. Reuter.
TVEIR ráðherrar í fsraelsku
stjórninni hótuðu að segja af sér
1 dag vegna búsetu Gyðinga á
arabískum svæðum.
Samkvæmt fréttum ísraelskra
fjölmiðla frá New York hótaði
Ezer Weizman landvarnaráð-
Framhald á bls. 18
Rhódesíumenn staðfestu að
þeir hefðu sent herlið yfir
Zambezifljót inn í Zambíu en
sögðu að tilgangurinn hefði verið
sá að koma í veg fyrir mikla árás
skæruliða blökkumanna á Rhó-
desíu. Þeir sögðu að allt herfið
þeirra væri komið aftur til
Rhódesíu.
Zambíumenn sögðu að þeir
hefðu skotið niður sex flugvélar
fyrir Rhódesíumönnum. Þeir
sögðu að árásin hefði hafizt í gær
og hún hefði verið ástæðulaus.
Samtímis situr Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna á fundum
um Rhódesíumálið og fjallar um
samkomulag það sem náðist á
föstudag milli stjórnar hvíta
minnihlutans og þriggja blökku-
mannaleiðtoga. Kurt Waldheim
framkvæmdastjóri flýtti sér að
fordæma árásina og sagði að
slíkar aðgerðir gætu stofnað friði
og öryggi í þessum heimshluta í
hættu.
í Salisbury var sagt að 38
skæruliðar hefðu fallið og að
mikið magn sovézkra vopna og
skotfæra hefði verið tekið her-
fangi og eyðilagt en aðeins einn
rhódesískur hermaður hefði fallið.
Arásin kom blökkumannaleið-
Framhald á bls. 18
Kolanámumenn neita
að hefja aftur vinnu
Charleston. VesturVirífiníu.
7. marz. Reuter.
KOLANÁMUMENN, sem hafa
Iagt niður vinnu í Vestur-Virgin-
íu. aðalkolanámufylki Banda-
ríkjanna. sögðust ætla að
óhlýðnast skipun. sem Carter
forseti ætlar að biðja dómstóla
Mendens-France falið
að mynda ríkisstjóm?
París. 7. marz. marz. Reuter. AP.
FRANSKI kommúnistaleiðtoginn Georges Marchais lét í dag í ljós ugg um að reynt væri að fá
Pierre Mendes-France fyrrverandi forsætisráðherra til að mynda þjóðstjórn eftir kosningarnar
sem fara fram tvo næstu sunnudaga.
Marchais sagði í forsíðugrein skorað yrði á Mendes-France
kommúnistamáigagninu
L’humanité að tilgangurinn
með þessu væri sá að róa
íhaldssöm öfl ef vinstri
flokkarnir sigruðu í kosningun-
um.
Hann benti á að bláðið Le
Matin, sem venjulega túlkar
skoðanir jafnaðarmanna, gengi
lengst í því að gefa í skyn að
að mynda stjórn.
Marchais hefur oft gefið í
skyn að hann gruni jafnaðar-
menn um að vilja hætta
þátttöku í bandalagi vinstri-
flokkanna og ganga í stað þess
í bandalag með umbótaöflum
þeim sem nú styðja stjórnina.
Jafnaðarmannaleiðtoginn
Francois Mitterand hefur gefið
í skyn, síðast í viðtali í
bandaríska tímaritinu New-
week, að hann muni ekki gera
það að skilyrði að hann verði
forsætisráðherra ef vinstri
flokkarnir sigra í kosningun-
um.
Mendes-France er hófsamur
vinstrimaður, 71 árs að aldri.
Vitað er að Giscard d.Estaing
Framhald á bls. 18
MendesFrance.
að samþykkja um að hefja aftur
vinnu og sumir þeirra hótuðu að
grípa til ofbeldisaðgerða og
skemmdarverka.
Verkfallsmenn fóru hörðum
orðum um þá yfirlýsingu Carters
að hann muni beita
Taft-Hartley-lögunum frá 1947
til þess að neyða þá til að hefja
vinnu á ný. „Hann vill gera okkur
að þrælum," sagði Terry Hodges,
einn af leiðtogum verkfalls-
manna. „En enginn fær okkur til
að hefja aftur vinnu með
Taft-Hartley-lögunum. Enginn
getur sagt okkur fyrir verkum"
Annar leiðtogi námumanna,
Sam Watts, spáði því að lítið yrði
hægt að framleiða af kolum þótt
Carter tækist að neyða nokkra
námumenn til að taka aftur upp
störf eða fengi aðra verkamenn
en námumenn til að fara niður í
námurnar.
Ríkisstjóri Vestur-Virginíu,
Jay Rockefeller úr flokki demó-
krata, vildi ekkert um það segja
í dag hvernig hann mundi fram-
fylgja skipun forsetans. En hann
Framhald á bls. 18