Morgunblaðið - 10.03.1978, Síða 1

Morgunblaðið - 10.03.1978, Síða 1
32 SÍÐUR 50. tbl. 65. árg. FÖSTUDAGUR 10. MARZ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Samstaða Banda- ríkjamanna og Breta um Rhódesíu London. 9. marz. Reuter. AP. OWEN utanríkisráðherra Breta kum til London í dag eftir örstutta ferð til Bandarikjanna þar sem hann átti viðræður við Vanee utanríkisráðherra og Cart- er forseta um Rhódesíumálið. Við heimkomuna lýsti Owen því yfir að Bandaríkih og Bretland væru nákvæmleKa sama sinnis um hvernig meðhöndla ætti málið og leita varanlegs friðar í landinu. en um tíma leit svo út að yfirlýsing Young sendiherra Bandaríkjanna hjá S.Þ. hefði valdið ágreiningi milli landanna. Stórþingið fellst á sam- komulagið um Barentshaf Ósló, 9. marz. Reuter. NORSKA Stórþingið sam- þykkti í dag með 65 atkvæðum gegn 61 samkomulag sem ríkis- stjórnin. háfði gert við Sovét- ríkin um fiskveiðar í Barents- hafi. íhaldsflokkurinn, Mið- flokkurinn og Kristilegi þjóðar- flokkurinn voru andvígir sam- komlaginu, en Verkamanna- flokkurinn, Frjálslyndi. flokk- urinn og sósíalistar hlynntir því. Andstæðingar samkomu- lagsins töldu að það léti Sovét- mönnum of mikið eftir og mundi spilla fyrir Norðmönn- um þegar landgrunninu á þessu svæði verður endanlega skipt. Þeir sem studdu samkomulagið töldu það nauðsynlegt til að koma á skipulegri stjórn fisk- veiða á Barentshafi og koma í veg fyrir árekstra og væringar á miðunum. Young sakaði Breta um að vilja hlaupa frá Rhódesíudeilunni. en hann dró þessi ummæli sín síðar til baka að skipan Carters og Vanee. Owen sagði að Bretar og Banda- ríkjamenn hefðu sameiginlega stefnu í málinu og að hann gleddist yfir því að Young hefði dregið ummæli sín til baka. Young er mjög andvígur samkomulagi því sem Smith forsætisráðherra Rhódesíu hefur gert við þrjá leiðtoga blökkumanna í landinu og telur að varanleg lausn verði ekki fundin án samkomulags við skæruliðaleiðtogana Nkomo og Mugabe. Owen sjálfur hefur hvorki viljað verja samkomulag Smiths og leiðtoganna þriggja né hafna því. Stjórnarandstaðan í Bretlandi hefur tekið mjög harða afstöðu Framhald á bls. 18 Símamynd AP Franski forsætisráðherrann. Raymond Barre. heilsar ungum stúlkum í þjóðbúningum Elsass-héraðs á kosningaferðalagi í borginni Mulhouse. Kosningabaráttan í Frakklandi er nú í hámarki og aðeins tveir dagar til fyrri umferðar þingkosninganna. Skoðanakannanir benda enn til sigurs vinstri flokkanna. en Barre sagði enn í blaðaviðtali í dag. að’ efnahagsstefna þeirra mundi koma franska ríkinu á vonarvöl eftir örfá ár. Sómalir hörfa með allt sitt lið frá Ogaden MoKadishu. WashinKton. 9. marz. Reuter AP. STJÓRN Sómalíu tilkynnti í dag að hún myndi kalia til baka allt herlið sitt frá Ogaden-eyðimörk- inni í því skyni að koma á friði á svæðinu og vegna áskorana víða að úr heiminum. Segir Sómalíu- stjórn að hún vænti þess nú að Sovétmenn og Kúbanir geri slíkt hið sama. Jafnframt segir Sómalíustjórn að hún krefjist þess enn að aðilar að ófriðnum í Ogaden fallist á rétt þeirra sem þar búa til að ákveða sjálfir um framtíð sína. Tilkvnning stjórnar Sómalíu kom mjög á óvart, en með henni hafa Sómalir í fyrsta sinn viður- kennt opinberlega að herlið þeirra sé í Ogaden-auðninni. Aður hafa þeir alltaf haldið því fram að frelsishreyfing heimamanna, en þeir eru af sama kynstofni og Sómalar, berðist ein við Eþíópíu- Brottflutningur herliðs Sóntala frá Ogaden hrindir úr vegi helzta skilyrði Eþíópíumanna fyrir því að Karamanlis og Ecevit hittast í dag í Sviss Montreux. Sviss. 9. marz. Reuter. AP. Forsætisráðherrar Grikk- lands og Tyrklands, Kon- stantin Karamanlis og Bul- ent Ecevit, komu til Mon- treux í dag, en fundur þeirra hefst þar á morgun, föstudag. Þetta verður í fyrsta sinn í langan tíma sem æðstu menn þessara nágrannaríkja hittast, en sambúð ríkjanna hefur verið afar stirð hin síðari ár. Búizt er við að á fundum ráðherranna verði einkum fjallað um þau mál sem ágreiningur er um milli landanna, þ.e. Kýpurdeil- una, yfirráð yfir landgrunni og lofthelgi Eyjahafs, sam- starfið innan NATO og fleiri mál. Karamanlis hafði upphaf- lega neitað að eiga fund með Ecevit nema hann hefði verið rækilega undirbúinn af emb- ættismönnnum áður, en féllst síðan á að hitta hann með því skilyrði að engin ákveðin umræðuefni yrðu á dagskrá viðræðnanna. Ráðherrarnir sögðu báðir í dag að ekkki mætti vænta of mikils árangurs í þessum viðræðum, sem þó vonandi yrðu gagnlegar. Ecevit sagði við komuna til Sviss að engir raunverulegir hagsmuna- árekstrar væru milli land- anna sem ekki væri hægt að leysa og að löndin tvö ættu sameiginlegra hagsmuna að gæta á mörgum sviðum. Karamanlis viðhafði var- færnislegri ummæli við blaðamenn áður en hann hélt frá Aþenu. Hann sagðist halda að hægt væri að finna friðsamlega lausn á öllum deilumálum landanna ef góð- ur vilji væri fyrir hendi. Kolanámuverk- fallið í USA: Carter leitar dómsúrskurðar Washington. 9. marz. AP. Reuter. CARTER Bandaríkjaforseti fól í dag dómsmálaráðherra sínum að fá dómsúrskurð sem fyrir- skipaði kolanámumönnum að hefja aftur vinnu í samræmi við ákvæði Taft- Hartley-lag- anna um rétt forsetans til að binda enda á vinnustöðvanir. Forsetinn tók þessa ákvörðun eftir að hafa fengið umsögn rannsóknarnefndar sem komst að þeirri niðurstöðu að samn- ingaviðræður deiluaðila væru komnar í algjöra sjálfheldu. Verkfall kolanámumanna hefur staðið í rúma þrjá mánuði og er nú orðinn mikiil kolaskortur víða í Bandaríkjunum. Kafbátur fastur á botni (Norðursjó Leirvík, Hjaltlandi, 9. marz. AP. LITILL kafbátur sem í eru tveir menn festist í vír við olíuathug- anir í Norðursjó í dag og situr nú á hafsbotni á 100 metra dýpi og kemst ekki upp á yfirborðið. Að sögn fyrirtækisins sem gerir út bátinn eiga vistir og súrefni kafbátsins að endast í átta daga. Mennirnir tveir, sem báðir eru Bretar, eru alvanir því að vinna í kafbátum þessarar tegundar, og eru þeir sagðir bíða þess rólegir að þeim verði bjargað. Björgunarskip er á leið á staðinn og verður komið þangað á morgun, föstudag, með búnað sem notaður verður til að ná kafbátnum aftur upp á yfirborð- ið. Að svo stöddu er mönnunum tveimut- því ekki talin nein hætta búin. samið verði um vopnahlé í stríðinu og setzt að samningaborði. Brott- flutningurinn opnar einnig mögu- leika á því að Bandaríkjamenn og aðrar vestrænar þjóðir selji Sómölum varnarvopn. Carter Bandaríkjaforseti sagði frá því.á blaðámannafundi í dag að Siad Barre forseti Sómalíu hefði tilkynnt sér í gærkvöldi að Sómal- ir áformuðu að draga lið sitt út úr Ogaden. Carter sagðist vona að þessi ákvörðun yrði til þess að átökun- um og blóðbaðinu á þessum slóðum linnti. Talsmaður bandaríska utan- ríkisráðuneytisins gaf i dag í skyn við fréttamenn að Bandaríkja- stjórn kynni að senda vopn til Sómalíu ef her Sómalíu hörfaði frá Ogaden, en ekkert hefur verið staðfest i þessu efni. A vígstöðvunum í dag gerðist __________Framhald á bls. 18 Dollarinn styrkist London. 9. marz. AP DOLLARINN sótti heldur í sig veðrið gagnvart evrópskum gjaldmiðlum í dag en lækkaði enn frekar gagnvart japanska yen- inu. Á sama tíma lækkaði gull- verð nokkuð frá því sem verið hefur undanfarna daga. en gull- verð er nú hærra en nokkru sinni undanfarin þrjú ár. Fukuda forsætisráðherra Japans sagði í dag að Bandaríkja- menn yrðu að gera ráðstafanir til að styrkja greiðslujöfnuð sinn og ná tökum á gengi dollarans. Hann lagöi einnig áherzlu á nauðsyn þess fyrir Japan að landsmönnum tækist að minnka hinn risastóra afgang sem þeir hafa af viðskipt- um við önnur lönd.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.