Morgunblaðið - 10.03.1978, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
50. tbl. 65. árg. FÖSTUDAGUR 10. MARZ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Samstaða Banda-
ríkjamanna og
Breta um Rhódesíu
London. 9. marz. Reuter. AP.
OWEN utanríkisráðherra Breta
kum til London í dag eftir
örstutta ferð til Bandarikjanna
þar sem hann átti viðræður við
Vanee utanríkisráðherra og Cart-
er forseta um Rhódesíumálið. Við
heimkomuna lýsti Owen því yfir
að Bandaríkih og Bretland væru
nákvæmleKa sama sinnis um
hvernig meðhöndla ætti málið og
leita varanlegs friðar í landinu.
en um tíma leit svo út að
yfirlýsing Young sendiherra
Bandaríkjanna hjá S.Þ. hefði
valdið ágreiningi milli landanna.
Stórþingið
fellst á sam-
komulagið um
Barentshaf
Ósló, 9. marz. Reuter.
NORSKA Stórþingið sam-
þykkti í dag með 65 atkvæðum
gegn 61 samkomulag sem ríkis-
stjórnin. háfði gert við Sovét-
ríkin um fiskveiðar í Barents-
hafi. íhaldsflokkurinn, Mið-
flokkurinn og Kristilegi þjóðar-
flokkurinn voru andvígir sam-
komlaginu, en Verkamanna-
flokkurinn, Frjálslyndi. flokk-
urinn og sósíalistar hlynntir
því. Andstæðingar samkomu-
lagsins töldu að það léti Sovét-
mönnum of mikið eftir og
mundi spilla fyrir Norðmönn-
um þegar landgrunninu á þessu
svæði verður endanlega skipt.
Þeir sem studdu samkomulagið
töldu það nauðsynlegt til að
koma á skipulegri stjórn fisk-
veiða á Barentshafi og koma í
veg fyrir árekstra og væringar
á miðunum.
Young sakaði Breta um að vilja
hlaupa frá Rhódesíudeilunni. en
hann dró þessi ummæli sín síðar
til baka að skipan Carters og
Vanee.
Owen sagði að Bretar og Banda-
ríkjamenn hefðu sameiginlega
stefnu í málinu og að hann
gleddist yfir því að Young hefði
dregið ummæli sín til baka. Young
er mjög andvígur samkomulagi því
sem Smith forsætisráðherra
Rhódesíu hefur gert við þrjá
leiðtoga blökkumanna í landinu og
telur að varanleg lausn verði ekki
fundin án samkomulags við
skæruliðaleiðtogana Nkomo og
Mugabe. Owen sjálfur hefur
hvorki viljað verja samkomulag
Smiths og leiðtoganna þriggja né
hafna því.
Stjórnarandstaðan í Bretlandi
hefur tekið mjög harða afstöðu
Framhald á bls. 18
Símamynd AP
Franski forsætisráðherrann. Raymond Barre. heilsar ungum stúlkum í þjóðbúningum Elsass-héraðs
á kosningaferðalagi í borginni Mulhouse. Kosningabaráttan í Frakklandi er nú í hámarki og aðeins
tveir dagar til fyrri umferðar þingkosninganna. Skoðanakannanir benda enn til sigurs vinstri
flokkanna. en Barre sagði enn í blaðaviðtali í dag. að’ efnahagsstefna þeirra mundi koma franska
ríkinu á vonarvöl eftir örfá ár.
Sómalir hörfa með
allt sitt lið frá Ogaden
MoKadishu. WashinKton. 9. marz. Reuter AP.
STJÓRN Sómalíu tilkynnti í dag
að hún myndi kalia til baka allt
herlið sitt frá Ogaden-eyðimörk-
inni í því skyni að koma á friði
á svæðinu og vegna áskorana víða
að úr heiminum. Segir Sómalíu-
stjórn að hún vænti þess nú að
Sovétmenn og Kúbanir geri slíkt
hið sama. Jafnframt segir
Sómalíustjórn að hún krefjist
þess enn að aðilar að ófriðnum í
Ogaden fallist á rétt þeirra sem
þar búa til að ákveða sjálfir um
framtíð sína.
Tilkvnning stjórnar Sómalíu
kom mjög á óvart, en með henni
hafa Sómalir í fyrsta sinn viður-
kennt opinberlega að herlið þeirra
sé í Ogaden-auðninni. Aður hafa
þeir alltaf haldið því fram að
frelsishreyfing heimamanna, en
þeir eru af sama kynstofni og
Sómalar, berðist ein við Eþíópíu-
Brottflutningur herliðs Sóntala
frá Ogaden hrindir úr vegi helzta
skilyrði Eþíópíumanna fyrir því að
Karamanlis og Ecevit
hittast í dag í Sviss
Montreux. Sviss. 9. marz. Reuter. AP.
Forsætisráðherrar Grikk-
lands og Tyrklands, Kon-
stantin Karamanlis og Bul-
ent Ecevit, komu til Mon-
treux í dag, en fundur
þeirra hefst þar á morgun,
föstudag. Þetta verður í
fyrsta sinn í langan tíma
sem æðstu menn þessara
nágrannaríkja hittast, en
sambúð ríkjanna hefur verið
afar stirð hin síðari ár.
Búizt er við að á fundum
ráðherranna verði einkum
fjallað um þau mál sem
ágreiningur er um milli
landanna, þ.e. Kýpurdeil-
una, yfirráð yfir landgrunni
og lofthelgi Eyjahafs, sam-
starfið innan NATO og fleiri
mál.
Karamanlis hafði upphaf-
lega neitað að eiga fund með
Ecevit nema hann hefði verið
rækilega undirbúinn af emb-
ættismönnnum áður, en féllst
síðan á að hitta hann með því
skilyrði að engin ákveðin
umræðuefni yrðu á dagskrá
viðræðnanna.
Ráðherrarnir sögðu báðir í
dag að ekkki mætti vænta of
mikils árangurs í þessum
viðræðum, sem þó vonandi
yrðu gagnlegar. Ecevit sagði
við komuna til Sviss að engir
raunverulegir hagsmuna-
árekstrar væru milli land-
anna sem ekki væri hægt að
leysa og að löndin tvö ættu
sameiginlegra hagsmuna að
gæta á mörgum sviðum.
Karamanlis viðhafði var-
færnislegri ummæli við
blaðamenn áður en hann hélt
frá Aþenu. Hann sagðist
halda að hægt væri að finna
friðsamlega lausn á öllum
deilumálum landanna ef góð-
ur vilji væri fyrir hendi.
Kolanámuverk-
fallið í USA:
Carter leitar
dómsúrskurðar
Washington. 9. marz. AP. Reuter.
CARTER Bandaríkjaforseti fól
í dag dómsmálaráðherra sínum
að fá dómsúrskurð sem fyrir-
skipaði kolanámumönnum að
hefja aftur vinnu í samræmi
við ákvæði Taft- Hartley-lag-
anna um rétt forsetans til að
binda enda á vinnustöðvanir.
Forsetinn tók þessa ákvörðun
eftir að hafa fengið umsögn
rannsóknarnefndar sem komst
að þeirri niðurstöðu að samn-
ingaviðræður deiluaðila væru
komnar í algjöra sjálfheldu.
Verkfall kolanámumanna hefur
staðið í rúma þrjá mánuði og er
nú orðinn mikiil kolaskortur
víða í Bandaríkjunum.
Kafbátur fastur á
botni (Norðursjó
Leirvík, Hjaltlandi, 9. marz. AP.
LITILL kafbátur sem í eru tveir
menn festist í vír við olíuathug-
anir í Norðursjó í dag og situr
nú á hafsbotni á 100 metra dýpi
og kemst ekki upp á yfirborðið.
Að sögn fyrirtækisins sem gerir
út bátinn eiga vistir og súrefni
kafbátsins að endast í átta daga.
Mennirnir tveir, sem báðir eru
Bretar, eru alvanir því að vinna
í kafbátum þessarar tegundar,
og eru þeir sagðir bíða þess
rólegir að þeim verði bjargað.
Björgunarskip er á leið á
staðinn og verður komið þangað
á morgun, föstudag, með búnað
sem notaður verður til að ná
kafbátnum aftur upp á yfirborð-
ið. Að svo stöddu er mönnunum
tveimut- því ekki talin nein
hætta búin.
samið verði um vopnahlé í stríðinu
og setzt að samningaborði. Brott-
flutningurinn opnar einnig mögu-
leika á því að Bandaríkjamenn og
aðrar vestrænar þjóðir selji
Sómölum varnarvopn.
Carter Bandaríkjaforseti sagði
frá því.á blaðámannafundi í dag að
Siad Barre forseti Sómalíu hefði
tilkynnt sér í gærkvöldi að Sómal-
ir áformuðu að draga lið sitt út úr
Ogaden.
Carter sagðist vona að þessi
ákvörðun yrði til þess að átökun-
um og blóðbaðinu á þessum
slóðum linnti.
Talsmaður bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins gaf i dag í skyn
við fréttamenn að Bandaríkja-
stjórn kynni að senda vopn til
Sómalíu ef her Sómalíu hörfaði frá
Ogaden, en ekkert hefur verið
staðfest i þessu efni.
A vígstöðvunum í dag gerðist
__________Framhald á bls. 18
Dollarinn
styrkist
London. 9. marz. AP
DOLLARINN sótti heldur í sig
veðrið gagnvart evrópskum
gjaldmiðlum í dag en lækkaði enn
frekar gagnvart japanska yen-
inu. Á sama tíma lækkaði gull-
verð nokkuð frá því sem verið
hefur undanfarna daga. en gull-
verð er nú hærra en nokkru sinni
undanfarin þrjú ár.
Fukuda forsætisráðherra
Japans sagði í dag að Bandaríkja-
menn yrðu að gera ráðstafanir til
að styrkja greiðslujöfnuð sinn og
ná tökum á gengi dollarans. Hann
lagöi einnig áherzlu á nauðsyn
þess fyrir Japan að landsmönnum
tækist að minnka hinn risastóra
afgang sem þeir hafa af viðskipt-
um við önnur lönd.