Morgunblaðið - 16.03.1978, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.03.1978, Blaðsíða 1
48 SIÐUR 55. tbl. 65. árg. FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Tel Aviv, Beirút, Damaskus, 15. marz. Reuter. AP. ÍSRAELSKUR flugher, landher og floti hélt í dag áfram stanzlausum árásum á Suður-Líbanon og hafa Israelsmenn lagt undir sig stór svæði innan landamæra Líbanons jafnframt því sem þotur þeirra hafa gert loftárásir á bækistöðvar og flóttamannabúðir Palestínuaraba rétt utan við Beirút, höfuðborg Líbanons. Upplýsingum um mannfall ber ekki saman en ljóst þykir að mikill fjöldi óbreyttra borgara hefur látið lífið í innrásinni og einnig fjöldi Palestínuskæruliða og ísraelskra hermanna. Talið er að alls hafi ísraelsmenn beitt 20 þúsund manna herliði í innrásinni, sem er stærsta hernaðaraðgerð ísraelsmanna frá því í stríðinu 1973. ann sagói að innrásin væri til þess gerö að uppræta í eitt skipti fyrir öll alla starfsemi skæruliða á þessu svæði, en þaðan hefðu þeir gert mörg hundruð árásir á Israel á undanförnum árum. Hann sagði að ísraelsmenn vildu koma upp nokkurra kílómetra öryggisbelti við landamæri sín og Líbanons sem ísraelsmenn réðu yfir þannig að tryggt væri að árásir væru ekki framar gerðar á ísrael frá Líban- ón. Hann vildi ekki segja hvenær ísraelskt lið yrði dregið til baka frá Líbanon en sagði stjórn sína ekki hafa neinn áhúga á því að ráða yfir eða stjórna Suður-Líban- on. Því yrði ekki um yfirráð ísraelsmanna að ræða þegar til sögunnar kæmi ríkisstjórn í Líbanon sem réði við ástandið á þessu svæðl og gæti haft stjórn á því. Weizman gaf einnig í skyn að Framhald á bls. 26 ísraelskur, brynvarinn herbfll á leið inn í Líbanon í gær. Sýrlenzkar loftvarnaskyttur skutu í dag á flugvélar ísraels- manna við strendur Líbanons, en að öðru leyti er ekki vitað til þess að Sýrlendingar hafi blandað sér í innrásina. Her Líbanons, sem er margklofinn, hefur ekki veitt viðnám, en Palestínuskæruliðar sem innrásin beinist að hafa víða veitt harðskeytt viðnám. Margir óttast að Sýrlendingar muni hlanda sér í átökin með fullum herstyrk sínum og að þar muni brjótast út nýtt stríð í Miðaustur- löndum, en þess sáust þó ekki merki í gær, enda þótt Sýrlending- ar hafi lofað Palestínuaröbum aðstoð herþota. ísraelsmenn hafa þegar náð á sitt vald fjórum mikilvægun- bækistöðvum sínum í landamæra- héruðum S-Líbanons og var hart barizt um aðrar stöðvar þeirra, þ.á m. höfuðstöðvar Yassir Arafats skammt frá Beirút. Búizt er við að ísraelsmenn muni reyna að halda yfirráðum yfir hluta Suður-Líban- ons til að koma í veg fyrir starfsemi Palestínuskæruliða á þeim slóðum. Ezer Wiezman varnarmálaráð-- herra ísraels sagði í dag á fundi með fréttamönnum að innrásin í Líbanon væri ekki gerð í Vefndar- skyni vegna árásar Palestínu- skæruliða í ísrael um helgina sem kostaði tugi manns lífið. Ráðherr- Begin forsætisráðherra og Weizman varnarmálaráðherra Israels ræða við ísraelska herforingja á landamærum ísraels og Lfbanons á meðan innrásin í Líbanon stóð sem hæst. (Símamynd AP). Innrásin gagnrýnd víða „Skipuleg fjöldamorð” segja Egyptar New York, Moskvu, Washington, Róm, Kairó, 15. marz. AP. Reuter. INNRÁS ísraelsmanna í Suður-Líbanon var í dag harðlega gagnrýnd víða um heim og kölluð óðra manna æði í Arabalöndunum og Sovétríkjunum. Kurt Wald- heim framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sagðist harma innrásina og hvatti Rostropovich sviptur borgararétti Moskva, 15. marz. AP. MSTISLAV Rostropovich, sellóleikarinn heimskunni, var á miðvikudag sviptur sovézkum borgararéttind- um með þingskipun fyrir athafnir á erlendri grund, sem „sneiða að virðingu Sovétríkjanna“ að sögn hins opinbera málgagns stjórnarinnar, Izvestia. Einnig var kona Rostropov- ich, óperusöngkonan Galina Vishnevskaya, svipt þegnrétt- indum. Tilskipun þessi þýðir í raun að hjónin geta ekki snúið aftur til heimalands síns. Rostropovich er nú stjórnandi Rostropovich þjóðlegu sinfóníuhljómsveitar- innar í Washington. Hann fór frá Sovétríkjunum 1974 og bar því við að hann hefði verið sviptur „frelsi til listsköpunar“. aila til að sýna stillingu. Vance utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði að inn- rásin mundi verða hindrun í vegi friðarumleitana og páfagarður lét í ljós áhyggj- ur vegna innrásarinnar. Arababandalagið krafðist þess þegar að Sameinuðu þjóðirnar létu málið til sín taka án tafar. í Kaíró lét utanríkisráðuneytið frá sér fara tilkynningu þar sem innrás ísraelsmanna í Líbanon er lýst sem skipulagðri útrýmingu Palestínumanna í landinu og farið afar hörðum orðum um aðgerðirn- ar, sem sagðar eru leggja stein í götu frekari viðleitni í friðarátt í Miðausturlöndum. Fyrr um daginn hafði Sadat forseti Egyptalands neitað að láta neitt eftir sér hafa um málið fyrr en hann hefði fengið um það betri upplýsingar. Ummæli Waldheims fram- kvæmdastjóra S.Þ. þykja fremur mild í samanburði við það sem hann lét hafa eftir sér eftir árás Palestínuskæruliða í ísrael um helgina. í Moskvu sagði Tass-fréttastof- an að innrás Israelsmanna í Suður-Líbanon , væri gerð með samþykki og vilja Bandaríkjanna og tengdi hana friðarumleitunum Sadats, sem ísraelsmenn hefðu tekið sem beina heimild til ofbeld- is- og ódæðisverka gagnvart Pale- stínumönnum. Vance utanríkisráðherra Banda- ríkjanna sagði að innrásin og árás Palestínumanna í ísrael á laugar- dag væru hvort tveggja atburðir sem mundu hafa slæm áhrif á friðarviðleitni manna í löndunum á svæðinu, en fram hjá þessum hindrunum yrði að reyna að komast. Vance sagði að Ísraels- menn hefðu tekið ákvörðun sína um innrás algerlega upp á eigin spýtur, en Carter forseta hefði verið tilkynnt um hana rétt áður en hún hófst. Standa vinstrimenn saman á sunnudag? París, 15. marz, Reuter. FRAMBOÐSMÁL skýrðust í Frakklandi í dag fyrir hólm- göngu stjórnarsamstcypunnar og vinstrimanna í seinni umferð frönsku þingkosninganna á sunnudag. í samræmi við samn- ing þann. er gerður var á mánudag. tóku jatnaðarmenn og kommúnistar höndum saman um að styðja þá frambjóðendur, sem sigurstranglegastir eru í hverju kjördæmi um sig. Gaullistar og bandamenn þeirra fóru eins að í flestum kjördæmum og eiga kjósendur nú um skýra kosti að velja. Þegar stokkað var upp í kjör- dæmum í dag, viku frambjóðendur jafnaðarmanna hvarvetna úr sæti, þar sem maður kommúnista stóð betur að vígi eftir fyrri umferð kosninganna. Fljótt á litið virtist svo sem þessi ráðabreytni gerði jafnaðarmönnum mun hærra und- ir höfði á vinstri vængnum, með 241 frambjóðanda samanborið við aðeins 145 kommúnista. A hitt ber þó að líta að hingað til hefur veriö miklu erfiðara að segja til um 'hvernig jafnaðarmenn greiða at- kvæði heldur en kommúnistar, sem oftast hlíta flokksaga dyggi- lega. Fulltrúar stjórnarinnar voru snöggir að gera sér mat úr óttanum við valdatöku kommún- ista og báru leiðtoga jafnaðar- manna, Mitterand, á brýn að hafa gert hin mestu gumpkaup við Marchais, leiðtoga kommúnista, og myndi hann sennilega neyðast til að láta kommúnistum eftir helm- ing ráðherraembætta í stjórninni Framhaid á bls. 26 „Upprætum skæruliða í eitt skipti fyrir öll” — segja ísraelsmenn um innrás í Líbanon Mikið mannfail meðal óbreyttra borgara

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.