Morgunblaðið - 17.03.1978, Qupperneq 1
32 SÍÐUR
56. tbl. 65. árg.
FÖSTUDAGUR 17. MARZ 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ringulreið í kjölfar
bíræfins maxinráns
Aldo Moro aðeins fyrsta fómarlambið segir Rauða herdeildin
Róm. lfi. marz. AP. Reutcr.
EINUM áhriíamesta stjórnmála-
manni á Ítalíu eftir stríð var rænt
í gær eftir cina blóðugustu aðför
hryðjuverkamanna í Evrópu í
áratugi. Fórnarlamhinu, Aldro
Moro. sem fimm sinnum hefur
farið með embætti forsætisráð-
herra í landinu. var rænt úr
bifreið sinni f Róm á fimmtudag
af vopnuðum hermdarverka-
mönnum, sem myrtu fimm líf-
verði hans í skothríð úr launsátri
áður en þeim tókst að hafa
stjórnmálamanninn á brott. At-
burðurinn átti sér stað skammt
frá heimili Moros. Fram til þessa
höfðu margir talið hann einn
líklegasta frambjóðandann til
Framhald á bls 18.
Aldo Moro
Myndin sýnir staðinn þar sem formanni Kristilega demókrataflokks-
ins, Aldo Moro var.rænt á Ítalíu á fimmtudag. Bifreið Moros, dökk
á lit sést fyrir miðju, en hvíta bifreiðin fyrir aftan var fylgdarbifreið.
Lík eins lífvarðanna liggur á götunni.
' Bifreið Moros eftir árásina. Sjá má lík bifreiðastjórans og eins
öryggisvarðanna í framsætunum.
Kambódíumenn
í sókn í Víetnam
____ ... . AP-símamynd
ísraelar fylgja
innrásinni eftír
Tel Aviv. Heirut. Kairó.
AP — Reuter.
HERIR ísraelsmanna fylgdu í
dag eftir innrás sinni í
Suður Líbanon með leitar- og
eyðingaraðgerðum við höfuðvíg-
stöðvar Palestínuskæruliða á 100
kílómetra ræmu mcðfram landa-
mærunum. Sadat Egyptalands-
forseti hefur harðlega fordæmt
innrásina og kallaði í dag saman
Sprengja
drap sex
í Istanbúl
Istanhúl. Ifi. marz. — Reuter.
SEX stúdentar létu lífið og 44
særðust í sprengjuárás í háskólan-
um í Istanbúl í dag. Sprengjunni
var að sögn lögregluyfirvalda
varpað í hóp vinstrisinnaðra
stúdenta, er þeir voru um það bil
að ganga inn í háskólann eftir
hádegisverð. Þeir, sem létust, voru
allt karlar.
þjóðöryggisráð landsins, en það
mun aðeins gert þegar mjög
mikið er í húfi.
Að sögn vitna héldu Israels-
menn áfram heiftugum árásum á
vígi Palestínumanna, sem Israels-
menn telja að ógni öryggi sínu á
svæði fráMiðjarðarhafsströndum
að hlíðum fjallsins Hermon. Sam-
kvæmt fréttamanni Reuters á
staðnum hefur ísraelska land-
gönguliðið nú náð á sitt vald
þorpinu Haddata, nokkr kílómetra
norðvestur af Bint Jbeil. Sú borg
var höfuðvígstöð Palestínumanna
fyrir innrásina, sem um 20.000
ísraelskir hermenn tóku þátt í.
Að sögn sérfræðinga miðar árás
ísraelsmanna að tvennu, annars-
vegar að veikja stöðu Frelsis-
hreyfingar Palestínumanna eins
og framast er unnt og í öðru lagi
að styrkja samningsaðstöðu
Israelsmanna sjálfra í samninga-
umleitunum í Mið-Austurlöndum.
Þykir mönnum á staðnum, að sögn
fréttaritara Reuters, engum vafa
undirorpið að Israelsmenn ætla að
ílendast á svæðum þeim, er þeir
unnu í gær enn um sinn.
Fyrstu skýrslur benda til þess
að nokkurt mannfall hafi orðið í
dag. Að sögn talsmanna Alþýðu-
fylkingarinnar fyrir frelsi Palest-
Framhald á bls 18.
BanKkok. lfi. marz. AP.
VÍETNAMAR héldu því fram í
dag. að fjölmennt •fótgöngulið
Kambódiumanna hefði sótt til
svæðis nálægt hafnarbænum Ha
Tien syðst og vestast í Víetnam og
sögðu að árásir liðsaflans hefðu
haft það í för með sér að
Dauða-
dómar
í Zaire
Kinshasa. 16. marz. Reuter.
IIERDÓMSTÓLL í Zaire
dæmdi í dag 19 hermenn og
óbreytta borgara til dauða
fyrir samsæri til að steypa
Mobutu Sese Seko forseta af
stóli með hjálp fulltrúa ríkis-
stjórna Belgíu, Líbýu og
Bandarikjanna.
í hópi hinna dauðadæmdu
eru fjórir útlægir leiðtogar
samtaka stjórnarandstæðinga
með aðsetri í Brússel, í MARC.
Fjórtán sakborningar voru
sýknaðir, en 51 sakborningur
var dæmdur í eins til 20 ára
fangelsi.
landamærastríð þjóðanna hefði
stórum magnazt.
Víetnamska útvarpið krafðist
þess, að kambódíska fótgönguliðið
hörfaði frá víetnömsku yfirráða-
svæði og sagði, að það yrði að taka
afleiðingunum ef það hörfaði ekki.
Útvarpið sagði, að margar
kambódískar fótgönguliðssveitir
hefðu sótt inn í Víetnam á
þriðjudag og tvær þeirra hefðu
hertekið tvö svæði sex kílómetra
norðvestur af Ha Tien-Xa Xia og
Kylo. Því var haldið fram í
útsendingunni, að Kambódíumenn
hefðu framið marga villimannlega
glæpi.
Flóttamenn sem hafa komið til
Thailands hafa skýrt frá því að
Framhald á bls 18.
73 fórust
í flugslysi
Sófíu — lfi. marz — AP
SJÖTÍU og þrír fórust er
Tupulev-þota af gerðinni 134 frá
húlgarska flugfélaginu Balkan
fórst í dag. Þotan var á leið frá
Sófíu til Varsjár.
Ekki hefur verið greint frá
nánari tildrögum slyssins, en
nefnd hefur verið skipuð til að
kanna orsakirnar. Sextíu og sex af
þeim sem fórust voru farþegar.
Sljákkar í jafnaðar-
mönnum í Frakklandi
París — lfi. marz. AP.
GREINILEGA hafa úrslit fyrri
umferðar frönsku kosninganna
valdið leiðtogum jafnaðar-
manna sárum vonbrigðum, og í
dag lét Claude Mauroy, borgar-
stjóri í Lille, sem er mikill
áhrifamaður í flokknum, svo um
mælt, að líkur væru á ósigri í
síðari umferðinni. Borgarstjór-
inn í Marseille, Gaston Deferre,
sem einnig er í innsta hring
jafnaðarmanna, hefur tekið í
sama streng.
Þessi ummæli hafa
vakið athygli, því að hingað til
hafa vinstri menn verið kok-
hraustir, þrátt fyrir mun lakari
frammistöðu í fyrri umferðinni
en búizt var við.
Ymsir hafa á orði, að í
kosningunum á sunnudaginn
var hafi það í raun og veru verið
skoðanakannanafýrirtækin, sem
hafi beðið ósigur. Niðurstöður
kannana höfðu mánuðum saman
bent til verulegrar fylgisaukn-
ingar vinstri manna, og að þeir
bæru úr býtum nægilega mörg
þingsæti til að mynda ríkis-
stjórn. Yfirleitt hafa kannanir
af þessu tagi, sem fram fara á
vegum. virtra stofnana, reynzt
nokkuð áreiðanlegar, þannig að
niðurstaðan um síðustu helgi
kom mjög á óvart. Forstöðu-
menn stofnananna vísa á bug
gagnrýni, og halda því fram að
hér hafi það einfaldlega gerzt að
kjósendum hafi snúizt hugur á
síðustu stundu.
Kjördæmaskipan og kosning-
areglur í Frakklandi valda því
að í síðari umferðinni nægir
vinstri mönnum ekki minna en
52.3 prósent atkvæða til mynd-
unar ríkisstjórnar, en fáir eru
þeirrar skoðunar að þeir bæti
við sig fylgi frá því um síðustu
helgi. Samanlagt fylgi jafnaðar-
manna, kommúnista og Róttæka
vinstri flokksins var þá 49.5
prósent.