Morgunblaðið - 30.03.1978, Page 29

Morgunblaðið - 30.03.1978, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1978 29 Unniö aö eftirliti viö F-4 þotu V arnarliðið fær nýjar þotur Hitasaekiö flugskeyti Vegna fyrrnefndrar takmörk- unar á fjölda starfsmanna, koma fjölskyldur þeirra sem sendir eru til starfa við 57. flugsveitina yfirleitt ekki hing- að til lands. Það þýðir að menn fást síður til starfa um lengri tíma en 2 ár og oftast aðeins í lágmarkstíma sem er eitt ár. Það veldur þannig frekari erfið- leikum að alltaf eru að koma nýir menn sem þjálfa þarf við aðstæður hér og aðrir eru að búa sig til brottfarar að dvöl lokinni hér. Það má með sanni segja að yfirmaður flugsveitarinnar R.J. Slowey hefur elcki setið auðum höndum það tæpa ár sem hann hefur dvalið hér. Ekki er að efa, að það er mjög mikilvægt fyrir' íslendinga að einmitt þessi flugsveit skuli vera staðsett hér og vonandi kunna landsmenn að meta það sem skyldi Stefán Sa'mundsson Radar flugskeyti Um þessar mundir er að koma til landsins fyrsta flugvél af gerðinni F-4 E Phantom, og á þessu ári er ráðgert að 57. flugsveit bandaríska flughersins skipti á eldri gerð af Phantom og noti eingöngu hina nýju gerð. Þetta markar tímamót í sögu þessarar flugsveitar, sem hefur verið staðsett hér á Keflavíkur- flugvelli síðan 1954. Fram til ársins 1973 voru notaðar flug- vélar af gerðinni F-102A Delta Dagger, en þá tóku við F-4 fiugvélar sem flugsveitin fékk til afnota fyrst allra orrustu- flugsveita í bandaríska flug- hernum. 1973 hafði flugsveitin haft afskipti af 1000 flugvélum í nágrenni landsins sem ekki höfðu tilkynnt flug sitt fyrir- fram til flugstjórnarmiðstöðva og stofnuðu þannig öllu farþega- flugi í hættu með nærveru sinni. í 011 þessi skipti var um að ræða rússneskar herflugvélar. í viðbragðsstöðu Hvort sem er að degi eða nóttu og í hvaða veðri sem er, ösla tvær F-4 þotur út úr flugskýlum sínum innan fimm mínútna frá því að merki er gefið um að óþekkt flugvél nálgist landið sem þurfi nánari athugunar við. Boð um slíkar flugvélar ber- ast oft frá stöðvum í Noregi eða frá radarflugvélum á flugi, svo pg frá radarstöðvum hér á Islandi. Greina má slíkar flug- vélar í a.m.k. 400 km fjarlægð, en F-4 flugvélarnar geta farið þá vegalengd á rúmum 5 mínút- um. Þetta svarar til flugs yfir þvert Island með um 2500 km hraða á klukkustund. Flugþol þotnanna er 3 klst., sem við góðar aðstæður endist til 3700 km flugs. Flugskeyti F-4 flugvélanna Tvenns konar flugskeyti geta F-4 flugvélarnar borið, en að auki hefur hin nýja gerð F-4E fallbyssu. Flugvélarnar geta samtímis borið 4 „Sidewinder“ hitasækin flugskeyti og/eða 4 „Sparrow" radarstýrð skeyti. F-4 þoturnar eru þannig vopnaðar til að geta barist við skip, kafbáta og flugvélar, en geta þar að auki grandað mörgum tegundum flugskeyta. Radarbúnaður þotnanna er einn sá fullkomnasti sem til er, enda ■~ór R.J. Slowey, yfirmaöur flug- sveitarinnar. Hvað gerir 57. flugsveitin? Flugsveitinni er ætlað það hlutverk að verja Island sem aðila í Nato svo og að sjá um könnunarflug á stóru svæði umhverfis ísland. Þegar árið Ur fundarsal flugsveitarinnar hald vélanna einnig mun erfið- ara, svo oft þarf að leggja nótt við dag til að endar nái saman. Nú skyldi maður halda að þetta kæmi niður á afköstum og hæfni flugsveitarinnar, en hver er réyndin? Viðurkennd færasta orrustuflugsveit Bandaríkjahers Á hverju ári er einni flugsveit Bandaríkjahers veitt verðlaun fyrir alhliða bestu frammistöðu á öllum sviðum starfsemi sinn- ar. Síðasta ár fékk 57. flugsveit- in þessa viðurkenningu og má slíkt undrum sæta miðað við aðstæður. Það er augljóst að í þessa flugsveit hljóta að veljast bestu starfsmenn sem völ er á innan bandaríska flughersins. Skemmst er þess að minnast að þegar valdir voru geimfarar hjá NASA, höfðu margir þeirra einmitt starfað hér með þessari flugsveit. ræður það nákvæmni flugskeyt- anna og er að auki eitt af siglingatækjunum. Ein flugvél af gerðinni F-4C kostar um 4 milljónir dollara eða einn milljarð króna, en hér eru 13 slíkar flugvélar. Starfslið 57. flugsveitarinnar Sveitinni er sniðinn mjög þröngur stakkur hvað snertir fjölda starfsfólks vegna tak- markana á heildarfjölda þeirra sem vinna hér á vegum hersins. Þessi flugsveit er nærri fjórð- ungi mannfærri en samsvarandi flugsveit annars staðar. Ekki er þar með öll sagan sögð, því veðurskilyrði hér eru með ein- dæmum léleg fyrir þjálfunar- flug þeirra 15 flugmanna og 15 kerfisfræðinga sem skipa áhafn- ir flugvélanna, þannig að erfitt er að halda þeim í þjálfun í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru. Þessi veðrátta gerir allt við-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.