Morgunblaðið - 01.04.1978, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1978
Botswanamenn
skjóta 3 hvíta
Gabarone, Botswana, 31. marz.
AP/
HERMENN Botswana-stjórnar
skutu til bana í dag tvo suður-af-
ríska veiðiverði og brezkan
skemmtiferðamann þegar þeir
réðust á tcæzlumenn sina og
reyndu að flýja eftir að þeir höfðu
verið teknir höndum í Botswana
að því er skrifstofa forseta
iandsins tilkynnti í dag.
Atburðurinn gerðist á miðviku-
dag skammt þar frá þar sem
landamæri Suður-Afríku, Rhódes-
íu og Botswana mætast og blöð í
Jóhannesarborg skýrðu frá hon-
um í gær.
Samkvæmt yfirlýsingu stjórnar-
Alþjóðabankinn
lánar Portúgal
Washington, 31. marz. AP.
ALÞJÓÐABANKINN greindi frá Því í
dag að ákveöiö heföi veriö lán til
Portúgals að upphæð fjörutíu
milljónir dollara og skal pví variö til
að bæta vatnsveitu og vatnsdreif-
íngarkerfíð í Líssabon og í nágrenni
höfuðborgarinnar.
innar í Botswana voru Suður-Af-
ríkumennirnir Willie De Beer og
Michael Arden og Bretinn
Nicholas Love klaeddir fötum sem
líktust einkennisbúningum her-
manna þegar þeir voru færðir til
yfirheyrslu. I yfirlýsingunni er
gefið í skyn að þeir hafi verið
njósnarar og sagt að ætlunin hafi
verið að yfirheyra þá um dagbók
sem fannst á þeim með upplýsing-
um um útbúnað Botswana-hers,
sjónauka sem þeir hafi verið með
og óleyfilega riffla og skotfæri.
Stjórnin í Botswana segir að
mennirnir hafi verið handteknir
þegar fréttir hefðu borizt um að
Rhódesíu-hermenn hefðu verið
fluttir yfir Shasheá til Botswana
um páskana. Spenna hefur aukizt
að undanförnu á landamærunum
og ættflokkamenn á þessum slóð-
um óttast fréttir um árásarleið-
angra Rhódesíumanna yfir landa-
mærin og tilraunir til að neyða þá
til að ganga í skæruliðaheri
rhódesískra skæruliða. Hvítir
menn hafa oft verið handteknir,
yfirheyrðir og sætt misþyrming-
Heyerdahl
í Djibouti
Djihouti, 31. marz. Al*.
NORSKI landkönnuðurinn Thor
Heyerdahl og áhöfn hans sigldi
inn á höfnina í Djibouti í morgun. -
Á bát Heyerdahls sem lagði upp
fyrir fjórum mánuðum er fimmtán
manna áhöfn. Síðasti viðkomu-
staður þeirra var Karachi og héldu
þeir þaðan fyrir röskum rnánuði.
Búizt er við að Heyerdahl og menn
hans sem eru af hinum ýmsum
þjóðernum dveljist í Djibouti í
vikutíma eða svo.
imm
Fyrrverandi ráðherra
Bhuttos í stofufangelsi
Quotta Pakistan. 31. marz. Routor.
TAHIT Mohammed Kjan, fyrr-
verandi upplýsinga- og fjölmiðla-
ráðherra Pakistans, hefur verið
settur í stofufangelsi í mánuð, að
Veður
víða um helm
Amsterdam 11 skýjað
Apena 21 skýjaö
Berlín 13 skýjað
Brussel 12 bjart
Chicago 12 bjart
Kaupm.h. 13 sól
Frankfurt 19 skýjað
Genf 12 skýjað
Jóh.b. 23 rigning
Líssabon 16 rigning
London 15 bjart
Los Angeies 19 rigníng
Madrid 13 bjart
Miami 25 skýjað
Moskva 12 bjart
New York 11 bjart
Ósló 6 poka
París 11 hálfskýjað
Rómaborg 16 rigning
San Francis. 18 skýjaö
Stokkh. 8 skýjað
Tel Aviv 18 skýjað
Tókíó 9 skýjaö
Vancouver 12 skýjaö
Vínarborg 20 sól
því er sagði í opinberri tilkynn-
ingu. Engin ástæða var gefin
fyrir þessum úrskurði.
Khan var í ríkisstjórn Ali
Bhuttos á sínum tíma. Stjórn-
málasérfræðingar segja að and-
rúmsloft í landinu sé mjög ótryggt
og enda bendi sú ráðstöfun Zia U1
hershöfðingja að framlengja bann
við stjórnmálastarfsemi til þess.
Segir að ólga sé mikil og hafi vaxið
eftir að dauðadómurinn yfir
Bhutto var upp kveðinn á dögun-
um.
Begin og Carter í Washington.
áfram að hækka og gengi
ísraelska pundsins lækkar.
Stefnt er að því að verðbólgan
verði minni en 20% eftir fjögur
ár, að viðskiptahallinn verði
minnkaður um helming og að
ýtt verði undir fjárfestingu
einkaaðila. En fólkið vill ekki
bíða. Begin stendur andspænis
stórfelldum verkföllum og hefur
enn ekki tekið harða afstöðu
gegn verkfallsmönnum eins og
hann lofaði í kosningabarátt-
unni.
Sp.i Hvers konar leiðtogi er
Begin?
Sv.i Hann hefur beðið álits-
hnekki. Hann lofaði því þegar
hann tók við að stjórnin yrði
samstillt, en helztu ráðherrar
hans eiga í stöðugum þrætum og
hann virðist ekki hafa taumhald
á þeim. Andstæðingar hans
segja að hann taki vanhugsaðar
skyndiákvarðanir. Hann ákvað
til dæmis að minnast 30 ára
afmælis Ísraelsríkis með her-
sýningu og öll stjórnin lagðist
gegn því. Þegar hann ætlaði að
velja nýjan forseta sagðist hann
vilja frambjóðanda úr röðum
austurlenzkra Gyðinga til þess
Málamiðlanir
eiga illa við mann
eins og Begin
Tel Aviv, 31. marz. AP.
ÞEGAR Menachem Begin varð
forsætisráðherra fyrir 10 mán-
uðum og endir var bundinn á
29 ára valdatima Verkamanna-
flokksins vöknuðu vonir um að
hann gæti leyst pólitíska, efna-
hagslega og félagslega erfið-
leika Israelsmanna.
Nú er svo komið að vinsældir
hans minnka óðfluga enda hafa
friðarviðræðurnar við Egypta
siglt í strand, efnahagsástand-
ið vernsnar sífellt. pólitískur
stuðningur við hann þverr
óðum pg vaxandi kala gætir í
garð ísraela af hálfu Banda-
ríkjamanna sem eru aðalhanda-
menn þeirra.
Hér fara á eftir nokkrar
spurningar og svör um Begin:
Sp.i Kenna Israelsmenn Begin
um að friðarviðræðurnar við
Egypta hafa strandað?
Sv.i Flestir ísráelar áfellast
Sadat fyrir að gera kröfur sem
ísraelar geta ekki gengið að.
„Dúfurnar“ í ísrael gagnrýna
Begin þar sem þær halda að
hann hefði átt að fallast á fleiri
tilslakanir í deilunni um vestur-
bakkann og stofnun Palestínu-
ríkis. „Haukarnir" gagnrýna
Begin fyrir að stöðva landnámið
á vesturbakkanum og vera fús
að samþykkja að Sinaiskaga
verði skilað. Vinsældir Begins
hafa minnkað um 10% á mánuði
undanfarna þrjá mánuði og það
stafar að miklu leyti af frum-
kvæði Sadats.
Sp.i Er líklegt að hann verði
settur af eins og um er rætt?
Sv.i Sumir segja að Ezer
Weizman landvarnaráðherra,
sem er talinn sveigjanlegri, segi
af sér og að hann myndi
„þjóðarfriðarstjórn" ásamt hóf-
sömum sósíalistum eins og
Weizman hefur lagt til að gert
verði. Weizman gætir þess
vandlega að sýna Begin holl-
ustu, en telur sig áreiðanlega
arftaka hans. Egyptum líkar vel
við hann. Fréttir frá Washing-
ton um að Carter-stjórnin hafi
lagt til að Begin verði vikið frá
hafa fylkt ísraelum um Begin.
Sp.i Hvaða önnur vandamál á
Begin við að stríða?
Sv.i Efnahagsmálin eru alvar-
leg. Fólki finnst stjórnin hafa
svikið sig. Begin byrjaði á því að
breyta hinu sósíalistíska hag-
kerfi í frjálsara horf. Allir voru
fegnir að losna við höft. En
verðlag hefur hækkað um allt að
50%, það heldur sennilega
að hressa upp á sjálfsálit þess
hluta þjóðarinnar en svo valdi
hann óþekktan utangarðsmann.
Þetta mætti svo mikilli mót-
stöðu að nú situr hann uppi með
það að frambjóðandi Verka-
mannaflokksins hefur engan
mótframbjóðanda.
Sp.i Hvernig stóð á þessu?
Sv.i Þetta var líklega af
reynsluleysi. Begin er hug-
myndafræðilega sinnaður. Hann
stjórnaði Herut-flokknum og
Likud-bandalaginu sem hann
stofnaði á grundvelli skapfestu
sinnar og sannfæringarkrafts.
Nú verður hann að stjórna með
málamiðlunum. Og málamiðlan-
ir eiga illa við mann sem lifði
það að nasistar myrtu foreldra
hans, dvaldist þrjú ár í rúss-
neskum fangabúðum og var í
fimm ár hundeltur skæruliði
sem barðist gegn Bretum í
Palestínu.
Sp.i Hvernig maður er Begin?
Sv.i Hann er oröheppinn,
fræðilega þenkjandi og einn
viðfelldnasti maður sem hefur
stjórnað Israel og honum þykir
greinilega vænt um starfið.
Hann er flugmælskur og flestir
ísraelar fyllast stolti þegar þeir
heyra hann tala.
Grigorenko
biður um hæli
Washmgton, 31. marz. AP. Reuter.
PYOTR Grigorenko fyrrverandi
hershöföingi sem var sviptur
sovézkum ríkisborgararétti fyrir
premur vikum vegna mannréttinda-
starfsemi hefur beóiö um hœli sem
pólitískur flóttamaóur í Bandaríkj-
unum.
Hann sagöi á blaðamannafundi aö
hann vildi heldur fara aftur í sovézkt
fangelsi eöa geösjúkrahús til aö sýna
sovézkum borgurum viö hvers konar
réttarríki þeir byggju. Hann sagði:
„Ég veit ég verö dæmdur ef ég sný
aftur." Grigorenko sakaöi vestræn
ríki sem undirrítuöu Helsinki-sáttmál-
ann 1975 um að loka augunum fvrir
mannréttindabrotum í Sovétríkjunum
af því þau vildu ekki opna augun fyrir
þeirri „blekkingu" sem slökunarstefn-
an détente væri. „Þessi blinda stefna
á eftir aö kalla mikla ógæfu yfir þá
sem fyrir henni stóöu,“ sagði Grigor-
enko.
Hann sagöi síðan: „Alveg eins og
Múnchenarsamningurinn varð ekki til
þess aö afstýra stríöi (1939) og flýtti
aðeins fyrir því mun undanhalds- og
þagnarstefna hafa hörmulegar afleið-
ingar í för með sér.“
Grigorenko skoraöi á þjóðir heims
að krefjast þess að ríkisstjórnir
þeirra tryggðu að Sovétríkin heföu í
heiöri skyldur sínar samkvæmt
Helsinki-sáttmálanum, þar á meöal
mannréttindaákvæöi sáttmálans.
Hann sagði aö samkvæmt nýju
sovézku stjórnarskránni væri ekki
heimilt aö svipta menn ríkisborgara-
rétti. „Ég skora á þjóöir heims aö
mótmæla og krefst þess að fá að
snúa aftur og mæta fyrir rétti,“ sagöi
hann.
Grigorenko
Kaupa
Kínverjar
Boing?
Hung Kunií. 31. mari. AP.
KÍNVERJAR íhuga að íesta
kaup á f jölda véla af gerðun-
um Boeing 727 og Boeing
747 á næstunni að því er
sagði í blaðafregnum þar í
morgun.
Var vitnað í ummæli Ernest
Boullioun, forseta Boeing-verk-
smiðjanna, þar sem hann segir að
kínverska stjórnin hafi beðið um
ítarlegar upplýsingar um báðar
þessar vélar. Boullion er í Hong
Kong að ganga frá samningum og
hann sagði að nefnd hefði farið til
Kína að ræða þar við stjórnvöld en
niðurstaða lægi ekki fyrir að svo
komnu.