Morgunblaðið - 09.04.1978, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1978
-""A
T M "
Byggingakranar
BREIÐFJORÐS
1/ BLIKKSMIÐJA HE
SIGTÚN 7 • REYKJAVÍK • P.O. BOX 742. SÍMAR 35557- 35000-35488
Seljum ýmsar gerðir aí nýjum og notuðum byggingakrðnum frá
F.B. KR0LL A/S Danmörku.
Leitið upplýsinga.
VANTAR ÞIG VINNU
VANTAR ÞIG FÓLK
ÞL ALGLÝSIR L'M ALLT
LAND ÞEGAR Þl’ ALG-
LÝSIR í MORGUNBLAÐINL
— Kópavogur
Framhald af bls. 2
vogi, aðallega í þá veru að of
margir reynslulitlir menn væru
þar framarlega á listanum."
Richard sagði ennfremur, að
rétt væri að fram kæmi út af
ummælum Eggerts Steinsen í Mbl.
í gærm um að tillaga hans um að
láta niðurstöður prófkjörsins gilda
um sex efstu sæti listans, hefði
verið felld með 11 atkvæðum gegn
40. „Varðandi tilkomu mín
pCrsónulega í framboðslistanum
vil ég láta þess getið, að ég hafði
ákveðið sl. sumar að fara ekki
aftur í framboð til bæjarstjórnar
af persónulegum ástæðum. Um
þetta ver flokksfélögum mínum og
samstarfsmönnum í bæjarstjórn
kunnugt. Hins vegar þegar ganga
skyldi frá skipan framboðslistans
skoruðu mjög margir fulltrúaráðs-
menn á mig að taka sæti á
listanum og kjörnefnd samþykkti
nær einróma tillögu um að biðja
mig að gera það. Eg taldi það því
flokkslega skyldu mína til að leysa
þarna nokkurn vanda og verða við
þessu en setti það skilyrði að
endanlegt samþykki mitt gæfi ég
ekki fyrr en ljóst væri á fundi
fulltrúaráðsins, að það óskaði eftir
þessu og % fulltrúaráðsmanna
greiddu þvi atkvæði á fundi
ráðsins."
Richard sagðist loks vilja lát
það koma fram vegna þess er
fleygt hefði verið að hann hefði
ekki viljað fara í prófkjörið vegna
bæjarstjórnarlistans þar sem
hann hefði hlotið svo slæma útreið
í prófkjörinu vegna Alþingislist-
ans, að hann hefði ákveðið þegar
sumarið 1977 að fara ekki í
framboð til bæjarstjórnar eða
löngu áður en til umræðu hefði
komið að hann gæfi kost á sér í
Alþingisprófkjörið. „Það ákvað ég
að gera sl. haust eingöngu fyrir
Verðlaun í áskrifendaleik Dagblaðsins.
Láttu ekki happ úr hendi sleppa.
BIAÐIÐ
írjálst, óhað dagblað
Biöur hann þín ?
Chevrolet Nova 1978 bíður afhendingar 15. apríl n.k.
Sértu áskrifandi, þá andaðu rólega.
Ef ekki, þá hringdu strax og pantaðu áskrift að Dagblaðinu í
síma 27022.
tilmæli félaga míns, Axels Jóns-
sonar, alþingismanns. Utreið mín
í þessu prófkjöri hér í Kópavogi
var nú samt ekki verri en það, að
ég hlaut um 60% greiddra at-
kvæða í Kópavogi," sagði Richard
Björgvinsson.
— Á1 til Kína
Framhald af bls. 48
hingað þar til ljóst væri hverju
fram yndi með útflutningsbannið.
Ragnar Halldórsson forstjóri
tjáði Mbl. að nýlega hefði skip
lestað 3200 tonn af áli til Rotter-
dam og ekki væri von á skipi aftur
til að ferma ál fyrr en í maí n.k.
— 9 fundir
Framhald af bls. 48
Antonsson, borgarfulltrúi,
Arinbjörn Kolbeinsson, læknir,
séra Lárus Halldórsson, Þór
Halldórsson, læknir og Haukur
Þórðarson, læknir. Einnig mun
dr. Gunnlaugur Snædal, læknir,
kynna niðurstöðu nýafstaðinnar
ráðstefnu lækna um málefni
aldraðra. Auk ofangreindra
taka þátt í umræðum þau
Geirþrúður H. Bernhöft, elli-
málafulltrúi, og Sveinn Ragn-
arsson, félagsmálastjóri.
Mánudaginn 17. apríl verða
haldnir þrír fundir um heil-
brigðismál, dagvistun barna og
húsnæðismál.
Fundurinn um heilbrigðismál
verður haldinn að Hótel Esju, 2.
hæð, og hefst kl. 20.30 eins og
hinir fundirnir. Málshefjendur
verða Páll Gíslason, borgarfull-
trúi, Margrét S. Einarsdóttir,
varaborgarfulltrúi, og Skúli
Johnsenm borgarlæknir. Um-
ræðustjóri verður Ulfar Þórðar-
son, læknir.
Fundurinn um dagvistun
barna verður haldinn í Valhöll,
Háaleitisbraut 1, kjallara. Máls-
hefjendur verða Markús Örn
Antonsson, borgarfulltrúi, Elín
Pálmadóttir, borgarfulltrúi, og
Björn Björnsson, prófessor.
Fjallað verður um húsnæðis-
málin á fundi í Valhöll, Háaleit-
isbraut 1, 1. hæð. Málshefjendur
verða Magnús L. Sveinsson,
borgarfulltrúi, Hilmar Guð-
laugsson, varaborgarfulltrúi, og
Gunnar S. Björnsson, formaður
Meistarasambands bygginga-
manna. Umræðustjóri verður
Skúli Sigurðsson, skrifstofu-
stjóri Húsnæðismálastofnunar-
innar.
Þriðjudaginn 18. apríl verða
þrír síðustu fundirnir haldnir og
fjalla þeir um íþróttamál,
fræðslumál og æskulýðsmál.
Fundurinn um íþróttamál
verður haldinn í Valhöll, Háa-
leitisbraut 1, 1. hæð. Málshefj-
endur verða Sveinn Björnsson,
varaborgarfulltrúi, Albert Guð-
mundsson, borgarfulltrúi, Þórir
Lárusson, formaður I.R., og
Júlíus Hafstein, framkvæmda-
stjóri.
Fundur um fræðslumál verð-
ur haldinn að Hótel Esju, 2.
hæð. Málshefjendur verða
Ragnar Júlíusson, borgarfull-
trúi, Sigurjón Fjeldsted, skóla-
stjóri, og Gísli Baldvinsson,
kennari.
Æskulýðsmálafundurinn
verður haldinn í Valhöll, Háa-
leitisbraut 1. Málshefjendur
verða Davíð Oddsson, borgar-
fulltrúi, Bessí Jóhannsdóttir,
varaborgarfulltrúi, og Áslaug
Friðriksdóttir, skólastjóri. Um-
ræðustjóri verður Hinrik
Bjarnason, framkvæmdastjóri.
Hefjast fundirnir kl. 20.30.