Morgunblaðið - 09.04.1978, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1978
33
— Velta
Framhald af bls. 48
af loðnu borizt til Reykjavíkur.
Þetta var árið 1970. Hann sagði að
margar spurningar vöknuðu nú
þegar þetta gerðist aftur, t.d. sú
spurning hvort hinar miklu
sumarioðnuveiðar hefðu kannski
einhver áhrif á hegðun loðnunnar,
allavega hefðu vindar verið mjög
hagstæðir fyrir loðnuna til þess að
ganga vestur með landinu.
„Utgerð hefur dregizt svo mikið
saman í Reykjavík að við höfum
hyggt afkomu okkur að mestu á
loðnunni en mun minna á bræðslu
fiskúrgangs. Því verður áfallið
ennþá meira," sagði Jónas.
Hann sagði að lokum að engar
tölur lægju enn fyrir um verð-
mætatapið né það tekjutap, sem
starfsmenn verksmiðjunnar hefðu
orðið fyrir miðað við fyrri vertíðir.
Það tap væri tilfinnanlegt fyrir
starfsmennina. Þeir hefðu aðeins
unnið venjulega dagvinnu að þessu
sinni í stað þess að ganga vaktir
eins og venjan væri á loðnuvertíð-
um þegar bræðslurnar væru
keyrðar allan sólarhringinn, en
vaktavinnan gefur þeim mest í
aðra hönd.
Áfall fyrir
verksmiðjuna,
starfsmennina
og bæjarfélagið
„Það er óneitanlega mikið áfall
fyrir verksmiðjuna, starfsmenn
hennar og bæjarfélagið í heild
þegar vertíðin þregzt okkur svona
eins og raunin hefur orðið á,“ sagði
Valdimar Indriðason fram-
kvæmdastjóri Síldar- og fiski-
mjölsverksmiðjunnar hf. á Akra-
nesi í samtali við Mbl. Verksmiðj-
an tók nú á móti 7 þúsund tonnum
en í fyrra tók hún á móti rúmum
23 þús. tonnum.
„Ég er nú ekki búinn að reikna
það út hverju munar frá vertíðinni
í fyrra þar sem ég eins og aðrir
héldum í vonina um að vertíðin
væri ekki búin. En það er víst
óhætt að afskrifa hana úr þessu.
Það er þó ljóst að verksmiðjan
hefur orðið af miklum verðmætum
og sömuleiðis starfsmenn hennar.
Þetta kemur á versta tíma því við
höfðum ráðizt í miklar fram-
kvæmdir fyrir á annað hundrað
milljónir til þess að vera betur í
stakk búnir til að taka við
loðnunni. Það voru sett upp ný
sogkjarnatæki og gufuketill. Ég
reikna með því að verksmiðjueig-
endur suðvestanlands muni á
næstunni ræða þetta alvarlega
ástand sem upp er komið, því ljóst
er að verksmiðjurnar þurfa á
miklu fjármagni að halda til þess
að halda rekstrinum gangandi
eftir þetta áfall. En við erum
bjartsýnir á það að framtíðin beri
í skauti sér betri tíð en bjartsýnin
gengur því miður ekki í bönkun-
um,“ sagði Valdmar að lokum.
Kemur á versta tíma
„Þetta áfall kemur á versta tíma
því verksmiðjan hefur ráðizt í
miklar endurbætur og fram-
kvæmdir, sem kostað hafa
milljónatugi," sagði Árni Gíslason
framkvæmdastjóri hjá Lýsi og
mjöli hf í Hafnarfirði.
Árni sagðist ekki sjá fyrir
endann á þeim erfiðleikum, sem
þessi misheppnaða loðnuvertíð
suðvestanlands hefði í för með sér
fyrir verksmiðjurnar. Þetta mál
yrði að skoða í heild á næstunni en
ljóst væri að verksmiðjurnar
hefðu orðið fyrir stórkostlegu
verðmætatapi og þá ekki síður
starfsmenn þeirra, sem misst hafa
af þeim tíma ársins, sem venjulega
gefur mest í aðra hönd.
Á nýlokinni vertíð tók Lýsi og
mjöl á móti 3454 lestum af loðnu
en í fyrra tók verksmiðjan á móti
14.534 lestum.
Loðnan líka afurðaminni
„Þessi loðnuvertíð olli okkur
hálfgerðum vonbrigðum. Við feng-
um nú 22.500 lestir á móti 34.500
lestum í fyrra. Þar við bætist að
loðnan, sem við fengum, var miklu
afurðaminni en á sl. ári. Nú
fengum við aðeins 700 tonn af lýsi
úr 22.500 tonnum, en 1800 tonn úr
34 þús. tonnum í fyrra," sagði
Sigurður Einarsson hjá Fiskimjöl-
verksmiðju Einars Sigurðssonar í
Vestmannaeyjum.
Sigurður sagðist vilja taka fram,
að það væri ekki hægt að tala um
slæmt ástand hjá verksmiðjunum
í Vestmannaeyjum, miðað við það
sem væri hjá verksmiðjunum á
suðvesturhorninu, sem hefðu feng-
ið litla sem enga loðnu. En sem
dæmi um hve loðnan hefði komið
í stuttan tíma til Eyja, mætti
benda á að venjulega væri vinnslu-
tími verksmiðjanna þar kringum 2
mánuðir, en að þessu sinni hefði
hann aðeins verið 1 mánuður."
BÍLAEIGENDUR, BÍLAMÁLARAR
ÞARF AÐ BLETTA EÐA SPRAUTA BÍLINN ?
Dupont lökkin LUCITE og IMLAR eru
gæðavara, margreynd og henta
íslenskum staðháttum.
Gefiö okkur upp bilategund, árgerö
og litanúmer. Við afgreiðum litinn
með stuttum fyrirvara.
í Dupont blöndunarkerfinu eru 7000
litaafbrigði möguleg.
Öll undirefni svo sem grunnar, þynn-
ar og sparsl fást einnig hjá okkur.
Laugavegi 178 simi 38000
IMLAR*
LUGITE
Karnabær
HUCMDHLD
Fyrir 2 plötur ókeypis buröargjald
Fyrir 4 plötur 10% afsláttur og
ókeypis buröargjald.
Elvis Costello: This
Year‘s Model
Þessi frábæri Tölvufræöingur er
nú einn vinsælasti og skemmti-
legasti rokkari breta i dag.
Ótrúlegt, segja sumir, en peir hafa
Þá heldur ekki heyrt í honum.
Billy Joel — The Stranger
Billy Joel er oröinn stórstirni hér
sem annarsstaðar enda á tónlist
hans og textar eríndi til allra. Enn
ein sending var aö koma og
viljiröu vera vitur tryggiröu Þér
___________________eintak strax.
MUNIO PLÖTUKYNNINGUNA í HOLLYWOOD í KVÖLD
Genesis: Then There
Were Only Three
Þaö viröist ekki hafa áhrif, nema
til góðs, aö meðlimum Genesis
fækki, bví Þessi nýja plata Þeirra
er ekki síður góö en allar hinar.
l;noon town
Wings: London Town
Platan, sem Þú beiöst eftir meö
svo mikílli eftirvæntingu er komin
og ef Þú hugöist tryggja Þér
eintak er eins gott að hafa
hraðann á, Því fleiri eru um hituna.
□ Debby Boone
□ Rod Stewart -
Elvis Costello)
□ Warren Zeven
□ John Miles —
Rokk/ Pop
- You light Up My Life □ Linda Ronstadt — Simple Dreams
- Jesus Of Cool (vinur □ Lummurnar Gömlu og Góðu
□ Spilverk þjóöanna — Sturla
- Excitable Boy □ Bob Marley & Waiters — Kay
Zaragon
Rokk Þungt, Þróað
□ Santana —
□ Bethnal —
□ Journey —
□ Meat Loaf
□ Dragon —
Moon Flower
Dangerous Times
Infirnity
— But Out Of Hell
Dragon
□ Judas Priest — Stained Glass
□ Ted Mugent — Double Live Ganzo
□ Cafe the Jaques — Round the Back
(uppáhaldshljómsveit Phil Colling —
Genesis)
□ Frank Marvin & Mahagonu Rush —
Live
□ Jefferson Starship — Earth
Disco/ Soul
□ Ýmsir Góðir — Disco Fever
□ Aðrir Góðir — Dynamite
□ Isley Brothers — Showdown
□ Heatwave — Central Heating
□ Vicky Sue Robinson — Half & Half
□ Chic — Chic
□ Baccara — Baccara
□ Rose Royce — In Full Bloom
□ Earth Wind & Fire — AH‘n‘AII
□ Ýmsir — Soul City
Urvals Plötur
Hits
□ America — History Of
□ Dobie Brothers — Best Of
□ Linda Ronstadt — Greatest
□ Chicago — Greatest Hits
□ Carole King — Greatest Hits
□ Elvis Presley — 40 Bestu Lögin
(2 plötur verð aöeins kr. 4.900.-)
□ Blood, Sweat & Tears
□ Simon & Garfunkel -
□ Saga popsins — All You Need Is L ~
□ Jim Croce — Greatest Hits
□ Poco — Very Best Of
□ Dave Clarck Five — 25 Thanking Hits
□ Platters — 20 Greatest Hits
□ George Baker Selection — Best Of
□ Canned Heat — Best Of
Greatest Hits □ Joe Walsh — So Far So Good
Greatest Hits □ Eagles — Greatest Hits
□ London Symphoni
Classic Rock
Orchestra
□ Paul Simon — Greatest Hits
□ Herman Hermits — Greatest Hits
□ Ýmsir — Feelings
Eins og pið sjáið pá eru plötuverslanir okkar í hinu heilbrigðasta
\ ástandi, hvað varðar úrval a‘f nýjum, gömlum og góðum plötum.
\ Það er ástæða til að kynna sér margar af
\ Þeim plötum, sem á pessum lista eru, jafnvel Þó pú hafir hvorki barið
\ augum plötuheiti né flytjendur. Við veitum allar tiltækar upplýsingar
\ um leiö og pú leggur inn pöntun símleiðis. Eða pá að pú
\ sendir listann í pósti og krossar við pær plötur, sem hugurinn
girnist, sem við sendum svo samdægurs í póstkröfu.
Kamabær, Hljómplötudeild
Laugavegi 66 Austurstræti 22
28155 S 28155