Morgunblaðið - 16.04.1978, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 16.04.1978, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. APRÍL 1978 Ragnhildur Helgadóttir, alþingismaður: íslenzkir f jölmiðlar og norræn fréttaþjónusta Stefna Sjálfstœöisflokksins í öryggismálum óbregtt Hér fer á eftir þingræða Ragn- hildar Helgadóttur (S), er hún flutti í umræðu um skýrslu utanríkisráðherra á dögunum. Að líta sjálfum sér nær Eg þakka hæstv. utanrrh. fyrir þessa skýrslu, sem í ýsmum greinum er ítarleg. Ég vil gjarnan bera fram eitt málefni, sem mætti e.t.v. teljast umkvörtun, en það varðar samstarf okkar við Norður- lönd. I skýrslu þessari er vikið allnákvæmlega að samstarfi Norð- urlanda að því er varðar áhrif þeirra til hjálparýmsum fjariægð- um þjóðum eða þá á hvern hátt Norðurlönd vilja sameinast um ýmsar aðgerðir, sem hafa eiga áhrif á málefni fjarlægra þjóða. Ég get ekki látið hjá líða að benda á, að mér þykir ekki á fullnægj- andi hátt fjallað um íslensk utanríkismál í skýrslu okkar utanrrh. nema einnig sé að því vikið á hvern hátt Norðurlönd vinna að því að bæta sín eigin málefni sameiginlega og gagn- kvæmt. M.ö.o., það sem virðist skorta í þessa annars ágætu skýrslu er, að menn flýti sér e.t.v. nær. Hæstv. ráðh. gerði grein fyrir því í framsöguræðu sinni, að ástæðan til þess að ekki væri í þessari skýrslu fjallað sérstaklega um Norðurlandaráð eða þess málefni væri, að búast mætti við skýrslu frá þn., sem á Norður- landaráði starfar eða Islandsdeild Norðurlandaráðs. Slík skýrsla var gefin í fyrra en það breytir hins vegar ekki þeim hluta málsins, sem ríkisstj. varðar. Það fer fram margháttað samstarf á ráðherra- grundvelli milli Norðurlanda. Frumkvæði ráðh. í störfum Norð- urlandaráðs fer vaxandi og fyllsta ástæða er til þess að fyrir því sé gerð grein á Alþ. eins og gert er í þjóðþingum hinna Norðurland- anna. A ári hverju er af hálfu ráðherrans lögð fyrir norska Stórþingið mjög ítarleg skýrsla um norrænt samstarf. Henni fylgir miklu styttri skýrsla Nor- egsdeildar Norðurlandaráðs og auk þess grg. um helstu stofnanir á sviði norrænnar samvinnu. Ég held, að það væri mjög æskilegt, að við tækjum upp sið þessu líkan, því að það er að sjálfsögðu svo bæði með starf Alþ. og hlutdeild þess í starfinu innan Norðurlanda- ráðs og starf þm. í ýmsum öðrum samtökum þm., að alþm. eiga á því fyllsta rétt að fá að fylgjast með því hvað fram fer í þessum samkundum og einnig hvað fer fram á ráðherrafundum, sem starfa í sambandi við þessar alþjóðlegu samkundur. Hér er fjallað allítarlega um Evrópuráðið og ráðherrafundi þess, en að því er Norðurlönd varðar einungis um utanrrh.-fundi. Margþætt samstarf Norðurlanda Ég óttast að skortur á upplýs- ingum um það sem fram fer í samstarfi Norðurlandanna. geti smátt og smátt orðið til þess að menn geri sér minni grein fyrir því en vert væri, hvaða þýðingu þetta samstarf hefur fyrir Island. Á hverju einasta ári er afgreiddur fjöldi. mála og undirbúinn fjöldi mála, sem hefur mikla þýðingu fyrir hversdagslegt líf og starf þessara þjóða ailra saman og ef ég aðeins vík að stærstu málunum, sem unnið var að á sviði ráðh. á síðasta ári, þá var þar um að ræða verulega stór stefnumál á nokkr- um sviðum. Sú starfsaðferð hefur tíðkast á undanförnum árum og slíkar stórar stefnuyfirlýsingar voru samþykktar bæði í Helsing- fors 1977 og nú í Ósló á þessu ári. í Helsingfors voru samþykktar stefnuyfirlýsingar á sviði bygging- armála, á heilbrigðis- og félags- málasviði og stefnumörkun var gerð um umhverfismál á vinnustað. í því efni eru ýmis nýmæli, sem menn eru að taka upp í löggjöf þessara landa. Það hefur aðeins verið lítils háttar fjallað um þetta enn þá hér á landi. Á Norðurlandaráðsþinginu í Ósló var samþykkt stefnumörkun ráð- herranefndar um samgöngumál, um umhverfismál og jafnrétti karla og kvenna. Þetta nefni ég aðeins til þess að minna á, á hversu mörgum sviðum unnið er. Það segir sig sjálft, að ef skýrsla væri um þetta gefin, væri þarna af mjög mörgu að taka og margar hugmyndir, sem nýtilegar væru hér á okkar þingi. Ég mun hins vegar 'ekki fara nákvæmlega út í þessi mál, því að ég geri ráð fyrir, að formaður Islandsdeildar Norð- urlandaráðs, sem er hv. 4. þm. Reykn., Jón Skaftason, gefi þing- inu skýrslu um starf Norðurlanda- ráðs síðasta ár, en hv. 4. þm. Reykn. er einmitt nú í dag erlepdis á fundi á forsætisnefnd Norður- landaráðs og getur þess vegna ekki tekið þátt í þessari umræðu. íslenzkir fjölmiðlar og norræn fréttaþjónusta Ef ég mætti nefna eitt málefni, sem mér virðist að gæti orðið til þess að auka mjög og bæta samstarf okkar við Norðurlanda- þjóðirnar, þá er það fréttaþjónust- an. Ég tel, og ég veit, að flestir hv. þm. eru sammála um það, að það hefur verulega þýðingu fyrir íslendinga að halda áfram að styrkja þann þátt í okkar stjórn- málum og okkar menningu, sem er norrænn. Aðstaðan til þessa er e.t.v. ekki að öllu leyti eins góð eins og vera þyrfti. Ef litið er til þess, að nú um nokkurra ára skeið hefur ísland ekki haft beint samband við neina norræna fréttastofu, þá sést, að þarna er um töluvert takmarkaðar leiðir að ‘ræða til þess að sýna okkur íslendingum í fjölmiðlum okkar, hvað er að gerast í heiminum í kringum okkur. Ég vanmet vissu- lega ekki það samband, sem við Ragnhildur Helgadóttir. höfum við fréttastofur hins engil- saxneska heims, en vissulega eru einnig á Norðurlöndum stórar og miklar fréttastofur, sem ég tel í raun og veru alveg fráleitt, að við skulum ekki hafa beint samband við. Þarna er að vísu um nokkurt kostnaðaratriði að ræða, en ég held hins vegar, að þetta atriði sé svo mikilvægt, að þarna sé vissu- lega ástæða til að reyna að leysa vandann og það jafnvel á grund- velli utanríkisráðherra. Leysa þarf þetta mál til þess að upplýsa betur almenning á Islandi og létta undir með íslenskum fjölmiðlum með því að norrænir utanrrh. legðu þessu máli sitt lið. Herra forseti. Erindi mitt í ræðustól var einungis að hreyfa við þessum eina þætti máls í þessari viðamiklu skýrslu. Hún fjallar um margvíslega hluti. Ég vildi aðeins leggja á það áherzlu eins og ég hef raunar áður gert, að samstarfi Norðurlanda verði gerð ítarlegri skil í skýrslu utanrrh. Þar er óneitanlega um að ræða eitthvert mikilvægasta ávið í íslenskum utanríkismálum og svo hefur verið um langt skeið. í þessum efnum höfum við tekið mikinn þátt og það skýtur nokkuð skökku við og lítur næstum því einkennilega út, að ekki sé á þá hluti minnst í svo viðamikilli skýrslu. Sjálfstæðis- flokkurinn og öryggismálin Áður en ég hverf úr ræðustóli, herra forseti, get ég ekki látið hjá líða að víkja örfáum orðum að þeim aths., sem hv. 3. þm. Reykn., sem nú situr í forsetastóli, lét falla hér i sinni ræðu, er hann fjallaði um utanríkismál og Sjálfstfl. Hv. 3. þm. Reykn. gerði mikið úr því að mismunandi skoðanir væru uppi í Sjálfstfl. að því er varðaði framkvæmd varnarmálanna og hv. þm. taldi, að þessar skoðanir byggðust á því að sjálfstæðismenn hefðu í grundvallaratriðum mis- munandr aðstöðu til mikilvægis varnanna á Islandi. Ég held, að hv. þm. fari þarna villur vegar, því að það er löngu ljóst og margkomið fram opinberlega, að stefna Sjálf- stfl. í utanríkismálum hefur í engu breytzt. Hún er mörkuð af lands- fundi Sjálfstfl. Hún er staðfest af flokksráði Sjálfstfl. og grundvall- aratriðið er þetta: afstaða Sjálf- stfl. til varna Islands markast af íslenzkum öryggishagsmunum. Tilraunir fólks til þess að láta svo líta út, að þar séu aðrir hagsmunir í fyrirrúmi, eru á sandi reistar. Það er óskhyggja andstæðinga Sjálfstfl., að töluverður hluti sjálfstæðismanna sé nú í raun og veru búinn að tjá sig um það, að stefna Alþb. að mér skildist gagnvart vörnum á Islandi hafi verið sú rétta stefna, þ.e.a.s. eins og hv. þm. ræddi um, menn gerðu lítið úr gildi varnarliðsins á Islandi. Að því leyti virtist hv. 3. þm. Reykn. fagna því, sem kallað hefur verið Aronskusjónarmið í varnarmálum. Ég held þó að þegar vel er að gáð, þá sé niðurstaða hv. þm. ekki rétt. Margsinnis hefur verið sýnt fram á það, að niður- staða skoðanakönnunarinnar, sem framkvæmd var í sambandi við prófkjör sjálfstæðismanna hér í Reykjavík, gaf í raun og veru alls ekki upplýsingar um það, að stefna Sjálfstfl. í varnarmálum hefði breyst. Hún benti heldur ekki til þess að nú vildi Sjálfstfl. taka gjald fyrir veru varnarliðs í landinu. Það var ljóst, að hér var um að ræða málefni, sem var á þann veg lagt fyrir, að svarið mátti túlka á margan veg og gaf því í raun og veru alls ekki heimild til þess að draga þá ályktun, að Sjálfstfl. setji í fyrirrúm aðra hagsmuni en alíslenzka öryggis- hagsmuni og öryggishagsmuni eina, að því er varðar veru varnarliðs í landinu. Ég mun ekki ræða þessi mál frekar vítt og breitt. Mér fannst aðeins ástæða til þess að undirstrika þetta. Að því er varðar fullyrðingu hv. 3. þm. Reykn. um það, að skoðana- ágreiningur væri innan hæstv. ríkistj. um þetta efni, þá er það auðvitað ljóst og hefur komið fram hér á Alþ., að uppi eru skoðanir um það, að ýmislegt mætti endur- skoða í framkvæmd varnanna hér á landi, en þær till., sem settar hafa verið fram af sjálfstæðis- mönnum hér á Alþ. um þetta efni rúmast að ég held allar saman innan varnarsamningsins eins og hann er. Ég get ekki séð að til þess að athuga þau atriði, sem aðrir sjálfstæðismenn hafa bent á hér í Alþ. í vetur, þurfi til að koma nein breyting á sjálfum varnarsamn- ingnum. Á þetta vil ég benda til þess að undirstrika, að að þessu leyti til er stefna Sjálfstfl. á sviði varnarmála og öryggismála óbreytt, sem og aðalatriðið, sem ég áður hafði nefnt. Stefna Sjálfstfl. í varnarmálum og öryggismálum markast af íslenzkum öryggis- hagsmunum. UMF Hruna- manna 70 ára Syðra-Langholti, 13. apríl. RYSJÓTT tíðarfar hefur verið hér í Hrunamannahreppi, svo sem víða annars staðar á landinu í vetur. Snjólétt hefur þó verið og færð á vegum því oftast ágæt. Hér inn til landsins eru veður oftast hægari en við ströndina, en frostharka oft meiri. Því er talsverður klaki í jörðu nú og þegar hlýnaði sá fljótt á vegum, sem þola illa hina þungu flutningabíla sökum ofaníburðar- leysis. Mikið og öflugt félagslíf hefur verið hér í vetur eins og jafnan áður. Ber þar hæst fjölbreytta starfsemi ungmennafélagsins, sem ávallt hefur starfað af miklum þrótti. Ungmennafélag Hrunamanna var stofnað 17. apríl 1908 og er því að verða 70 ára. Af því tilefni verður efnt til afmælisfagnaðar í félagsheimilinu að Flúðum laugar- daginn 22. apríl klukkan 21. Éru allir núverandi og fyrrverandi félagar velkomnir til þessa afmælishófs. Núverandi formaður UMF Hrunamanna er Kristmund- ur Sigurðsson. — Sig. Sigm.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.