Alþýðublaðið - 25.08.1920, Blaðsíða 1
1920
Miðvikudagirm 25. ágúst.
193. tölubl.
Hér með tilkynnist vinum og vandamönnum, að okkar kæri faðir,
fengdafaðir og fósturafi, Guðmundur Þorgilsson, andaðist {1. 23. þ. m.
á Landakotsspítala.
Jarðarförin ákveðin siðar.
Sigurður Guðmundsson. Hólmfríður Björnsdóttir. Þorsteinn iónsson.
íýrtíiin á ðslanii.
Hvers vegna vex hún meira
^ér á landi en annarsstaðar?
í öllum löndum er nú dýrtíð og
það er því eðlilegt, að dýrtíð sé
^ianig hér á landi, en það er ekki
tiigangur þessarar greinar að rann-
^aka hinar almennu orsakir hennar.
£n hvers vegna er það, að alþýð-
an stynur nú meira en nokkru
sinni áður undir dýrtíðarbyrðinni,
þrátt fyrir kauphaekkanir þær, er
tengist hafaf Og hvers vegna er
*neiri dýrtíð hér á landi en í ná-
laagum löndum, og hvers vegna
vex dýrtíðin nú hraðar hér en
^nnarsstaðar ?
Orsökin til þess, að dýrtíðin er
^neiri hér á íslandi en á hinum
Norðurlöndunum er sú, að Alþýðu-
^okkurinn má sín svo miklu minna
l’ér en þar, En það er margsann-
að, að dýrtiðin er í hverju landi
því minni sem Aiþýðuflokkur þc-ss
lands er 'ójlugri, og er það ofur-
skiljanlegt, því að því öflugri sem
^ann er, því meira er látið að
vilja hans.
En þqtta gefur enga skýringu á
því, hvers vegna dýrtíðin vex nú
**raðar hér á landi en annarsstað-
ar- Orsökina til þess fyrirbrigðis
er að finna í því, að vöruflutning-
ar til landsins hafa að miklu leyti
Verið stöðvaðir í marga mánuði,
ea afleiðing af því hefir aítur orð-
‘ð' að lftið hefir orðið í landinu
a^ ýmsum varningi.
En hver er nú bein afleiðing af
^ví. þegar fítið verður um einhvern
Varning? Hún er sú, að varan stíg-
Ur í verði, að þeir, sem vöruna
ei§a, nota sér tækifærið til þess
setja hana upp, hvort sem það
er nú gert með keðjuverzlun eða
5 a»nan hátt.
^essi nýja dýrtíð í landinu staf-
ar þá af því, að landsstjórnin tak-
^kar vöruinnflutninginn til lands-
1 1
> an þess að hata hönd í bagga
vöruverðinu.
En hvers vegna gerir lands-
stjórnin það?
Upprunalega var sagt, að við-
skiftanefndin hefði verið sett á
laggirnar til þess að bæta gengi
krónunnar, en nú virðist auðsætt,
að tilgangurinu hafi frá byrjun
verið sá, að draga með því slæðu
yfir íjárkreppu tslandsbanka. En
hvað sem því viðvíkur, þá er þetta
víst:
1. Þessi nýja dýrtíð, sem nú ætlar
að síiga almenning, stafar afþví
að vöruinaflutningur til landsins
er takmarkaður, en við það gefst
nokkrum sárfáum kaupmönnum
og heildsölum, sem vörur eiga,
tækifæri til þess að setja þær
upp að mun.
2. Orsökin til þess, að stjórnin
takmarkar þaanig vöruinnflutn-
inginn (gegnum viðskiftanefnd
ina) er peningakreppan, eða
réttara sagt kreppa sú, sem ís-
iandsbanki er I, en hann er lög-
um samkvæmt skyldugur til
þess að „yfirfæra" fé til útlanda
eins og þörf er fyrir, en til þess
að gera þetta er hann sem
stendur algerlega ófær.
3. Orsökin til þess að íslandsbanki
er f kreppu þessari og þar með
setur alt landið í þá hræðilegu
peningakreppu, sem nú er, er
sú, að batakinn hefir lánað nokkr-
um örfáum mönnum, hinum
svokölluðu fiskhringsmönnum,
þriðja hluta af öllu veltufé bank-
ans.
Það, sem gera þarf til þess að
þessari nýju dýrtíð létti aftur, er:
1. Létta af innflutningshöftunum.
2. Knýja fram að Fiskhringsmenn-
irnir selji. En því getur ráðið
hvort sem vera vill bankaráð
íslandsbanka eða landsstjórnia
(sem getur haft bæði töglin og
hagldimar, ef hún vill, við bank-
ann', sökum margfaldra afbrota
hans).
Khöfn, 23, ágúst.
Frá V&rsjá er símað að Rússar
hörfi alstaðar á norðurherlínunni
og að her þeirra sé þar í háska
staddur.
Frá friðarráðstefnunni í Minsk,
milli Pólverja og Rússa, hafa eng-
ar fregnir borist.
[Fregnin sem kom fyrir nokkr-
um dögum frá París, um að Pól-
verjar hefðu tekið 30—40 þúsund
fanga af bolsivíkum, hefir að lík-
indum verið röng, úr því ekki
hefir frekar um það frézt]
€rtesð síœskeytL
Khöfn, 23. ágúst.
Bolsivíkar og Rúmenar.
Bolsivíkar hafa boðið Rúmenum
frið.
Sjálfstæði Egipta.]
Frá London er simað að Bretar
ætli að viðurkenna sjálfstæði
Egiptalands.
Ástralíuflug.
Meintosch flýgur frá Englandl
til Ástralíu.